Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓLASÖFNUN Hjálparstarfs kirkjunnar hófst í gær á því að stjórnarformaður, framkvæmda- stjóri og upplýsingafulltrúi Hjálp- arstarfsins báru hver 20 lítra af vatni sex kílómetra leið sem leið lá frá Árbæjarsafni að Kringlu. Í Afríku og Asíu ganga konur sömu vegalengd á hverjum degi til að sækja um 20 lítra af vatni. „Það er spurning hvernig þessi píslarganga okkar endar en við ætlum allavega að reyna þetta,“ sagði Jónas Þ. Þórisson fram- kvæmdastjóri Hjálparstarfsins, áð- ur en lagt var í hann. „Eitt er víst að við verðum ekki þyrst á leiðinni því við getum drukkið af okkar eigin góða Gvendarbrunnavatni.“ Gangan tókst prýðisvel og eftir rúma klukkustund voru þremenn- ingarnir komnir í Kringluna, reynslunni ríkari og vafalítið með örlitla strengi í vöðvum líka. Undanfarin tíu ár hefur Hjálp- arstarfið kostað gerð 20 brunna á ári í Mósambík og útvegað nærri 200 þúsundum manns hreint vatn. Gíróseðlar að upphæð 2.500 krónur hafa verið sendir inn á hvert heimili í landinu en sú upp- hæð nægir til að tryggja fimm fjöl- skyldum hreint vatn alla ævi. „Við erum að safna almennt til hjálparstarfsins, bæði fyrir ýmsa þróunaraðstoð erlendis en líka fyrir innanlandsstarf. Það sem er sérstakt núna er að aðaláherslan er lögð á vatnsöflunarverkefnin í Mósambík,“ segir Einar Karl Har- aldsson, stjórnarformaður Hjálp- arstarfsins. Á hverjum stað er áhersla lögð á að fólkið taki þátt í gerð brunn- anna en Hjálparstarf kirkjunnar kostar ráðgjöf um hvar fýsilegt sé að leita að vatni og greiðir fyrir brunninn og fyrir fræðslu um hreinlæti og smithættu. Sérstök vatnsnefnd sem skipuð er á hverj- um stað er síðan ábyrg fyrir við- haldi og fræðslu. Mestu vatnssullarar í heimi Árið 2003 er ferskvatnsár Sam- einuðu þjóðanna þar sem sérstök athygli verður vakin á vatnsskorti í heiminum. Einar Karl bendir á að á leiðtogafundinum í Jóhann- esarborg um sjálfbæra þróun hafi verið samþykkt áætlun um að fækka þeim sem ekki hefðu að- gang að hreinu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu um helming fyr- ir árið 2015. „Þetta er risavaxið verkefni vegna þess að vatnið er afar tak- mörkuð auðlind, þó að við séum ferskvatnsauðugasta þjóð í heimi. Við erum með rúmlega 660 þús- und rúmmetra af vatni á mann en í Djibútí eru 23 rúmmetrar á hvert mannsbarn. Við erum mestu vatns- sullarar í heimi því þeir skvetta vatni sem eiga það.“ Sem dæmi um það nota Íslend- ingar 220 lítra af vatni á mann á dag en fólk í Djibútí notar 10 lítra, og þá er vatn til þvotta talið með. Bara við það að sturta niður úr klósettinu fara 15 lítrar af dýr- mætu ferskvatni. „Þess vegna finnst okkur að verkefnið standi Íslendingum mjög nærri, hafandi þessa ótak- mörkuðu auðlind á meðan þetta er takmörkuð og dýrmæt auðlind um allan heim. Það eru margir sem spá því að vatnið verði ennþá meira deiluefni í heiminum í framtíðinni heldur en olían,“ segir Einar Karl. Jónas Þ. Þórisson bendir á að 1,1 milljarður manna hafi ekki að- gang að hreinu drykkjarvatni og daglega deyja sex þúsund börn úr sjúkdómum sem af því hljótast. „Það deyja fleiri úr sjúkdómum tengdum óhreinu vatni heldur en alnæmi og ég held að það séu ekki allir sem gera sér grein fyrir því,“ segir Jónas. Ljósmynd/Hjálparstarf kirkjunnar Vatnsbrunnur í Mósambík. Um 90 þúsund krónur kostar að byggja slíkan brunn sem séð getur þúsund manna þorpi þar fyrir vatni í áratugi. Morgunblaðið/Golli Forráðamenn Hjálparstarfsins leggja af stað með vatnið frá Dillonshúsi. Frá vinstri: Einar Karl Haraldsson, Anna M.Þ. Ólafsdóttir og Jónas Þ. Þórisson. Árleg jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar að hefjast Safnað verður fyrir vatnsbrunnum í Afríku SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flugleiða, segir félagið tilbúið í sam- keppni við Air Greenland hvenær sem er en fyrirtækið íhugar sam- keppni við Flugleiðir milli Keflavík- ur og Kaupmannahafnar. Air Green- land hyggst taka ákvörðun um málið innan sex vikna. „Við teljum að við séum búnir að lækka kostnaðinn það mikið að við séum með einna lægstan eininga- kostnað flugfélaga í Evrópu. Við er- um því tilbúnir í samkeppni og erum í raun þegar í mikilli samkeppni, því 25% af tekjum okkar myndast á ís- lenska markaðnum en 75% annars staðar,“ segir Sigurður. Forstjóri Air Greenland, Finn Øelund, staðhæfði í samtali við Morgunblaðið í gær að verðið hjá Flugleiðum væri hátt, 3,70 danskar kr. á kílómetra á opnum miða milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Kílómetraverðið hjá Air Greenland væri hins vegar 1,21 dönsk króna milli Syðri-Straumfjarðar og Kaup- mannahafnar. „Þetta virðist vera reiknað út frá fargjaldi sem er hærra en þau sem við þekkjum á þessari leið og okkar meðalfargjald milli Kaupmannahafnar og Reykjavíkur er langt fyrir neðan báðar þær tölur sem þarna eru nefndar,“ segir Sig- urður. „Lægstu gjöld okkar eru svo enn lægri.“ Forstjóri Flugleiða „Tilbúnir í samkeppni“ ÞÓR Sigurðsson, 24 ára, sem varð Braga Óskarssyni, 51 árs, að bana á Víðimel aðfaranótt 18. febrúar dregur ekki í efa að þeir mörgu og alvarlegu áverkar sem voru á líkinu hafi verið af sínum völdum. Kom þetta fram við aðalmeðferð málsins í gær. 20 áverk- ar voru á líkinu, en ákærði man óglöggt eftir atlögunni sjálfri. Sagðist hann hafa verið á leið fótgangandi í innbrot í hjólbarðaverkstæði við Ægi- síðu, vopnaður kjötöxi, slaghamri og sveðju, þegar Bragi heitinn varð á vegi hans. Ákærði lýsti því svo að hann hefði rekist á Braga aftan frá og misst vopnin úr höndum sér við árekstur- inn. Þegar hann hafi beygt sig niður eftir þeim hafi Bragi sagt eitthvað við sig sem hafi reitt sig til reiði. Ekki mundi ákærði hvað það var sem Bragi sagði en í kjölfarið hafi runnið á sig æði með fyrrgreindum afleiðing- um. Mundi ákærði eftir því að hafa slegið Braga með slaghamrinum einu sinni í höfuðið og þeir síðar fallið báðir í götuna. Rannsókn leiddi síðar í ljós 11 áverka eftir slaghamarinn ein- göngu og 9 áverka til viðbótar með hinum vopnunum. Næst mundi ákærði eftir því er hann lá ofan á Braga og síðan skildi hann við hann meðvitundarlausan, án þess þó að að- gæta nánar hvort hann væri lífs eða liðinn. Úr morði í innbrot og partí Að loknu ódæðinu lá leið ákærða í Hjólvest þar sem hann braust inn og stal allt að 300 þúsund krónum og gekk síðan heim til sín. Á leiðinni los- aði hann sig við blóðug föt og vopnin. Þegar heim kom pantaði hann leigu- bíl og fór í fíkniefnapartí í Breiðholti sem stóð fram til hádegis. Fór hann þá heim til sín á Laufásveg og sá þá um daginn í textavarpi sjónvarps að Bragi hefði fundist látinn. Lögreglan handtók ákærða þenn- an sama dag eftir að fótspor við inn- brotið í Hjólvest pössuðu við spor á morðstaðnum og hefur ákærði setið í gæsluvarðhaldi síðan. Hann sagðist ekki muna til þess að hann hefði greint frá morðinu í partíinu en sak- sóknari sagðist hafa framburð vitna um hið gagnstæða. Fram kom við aðalmeðferðina að líkið af Braga hefði verið fært til um einni klukkustund eftir morðið en ákærði fullyrti að hann hefði ekki gert það. Við líkið var fótspor sem lögreglu tókst ekki að upplýsa eftir hvern væri og er spurningunni ósvarað um hvort vitorðsmaður ákærða hafi átt við líkið eftir morðið. Úlpa sem Bragi var í hafði m.a. verið dregin yfir höfuð hans og líkið fært út að gangstéttarbrún. Ákærði skýrði frá mikilli fíkni- efnaneyslu sinni, en hann neytti amfetamíns, alsælu, kókaíns og kannabiss. Sagðist hann hafa verið haldinn ofsóknarbrjálæði og verið vakandi fjóra sólarhringa í röð fyrir morðið. 24 ára maður játar morðið á Víðimel Rakst á fórnar- lambið og reidd- ist heiftarlega Morgunblaðið/Júlíus Lögreglumenn úr tæknideild lög- reglunnar í Reykjavík á vettvangi. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær rúmlega tvítugan karlmann fyr- ir ölvunarakstur en áfengi í blóði hans mældist 0,5 prómill, án tillits til vikmarka, sem telst því undir leyfilegum mörkum. Blóðsýnið var hins vegar tekið um 3½ klukkustund eftir að akstri lauk. Ekki tókst að fá þvagsýni vegna meiðsla manns- ins. Í málinu lágu fyrir upplýs- ingar frá Rannsóknarstofu í lyfja- og efnafræði um brott- hvarfshraða etanóls, eða áfeng- is, í blóði. Taldi Hæstiréttur að þegar þær upplýsingar væru hafðar til hliðsjónar og ýtrustu varfærni gætt við útreikninga og allur vafi virtur sakborningi í hag, væri ekki varhugavert að telja að áfengismagn í blóði mannsins hafi verið a.m.k. 0,7– 0,75 prómill þegar hann ók bif- reiðinni. Því væri hafið yfir skynsamlegan vafa að við akst- urinn hafi áfengi í blóði hans verið yfir löglegum mörkum. Málavextir eru þeir að mað- urinn missti stjórn á bifreið sinni austan í Búlandshöfða á Snæfellsnesi og fór hún nokkrar veltur. Þetta gerðist um klukk- an 14.20 á laugardegi. Hann og farþegi voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en síðar vakn- aði grunur um að hann hefði verið ölvaður við aksturinn og var blóðsýni tekið á sjúkrahús- inu. Maðurinn bar að hann hefði sótt dansleik kvöldið áður, drukkið sex bjóra og verið „þéttur“. Daginn eftir var hann lítillega timbraður en kvaðst ekki hafa fundið fyrir áfengis- áhrifum við aksturinn. Blóðsýnið sagði aðra sögu og var maðurinn dæmdur til að greiða 35.000 krónur í sekt. Hann var einnig dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, Björns Ólafs Hallgríms- sonar, samtals 180.000 krónur, auk alls sakar- og áfrýjunar- kostnaðar. Málið dæmdu hæsta- réttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir. Dæmdur þótt áfengi mældist innan marka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.