Morgunblaðið - 29.11.2002, Síða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VELTA Brimis, sem er nýtt nafn á
sjávarútvegssviði Eimskipafélags
Íslands, verður nærri helmingur af
heildarveltu Eimskips á næsta ári.
Stjórn félagsins tók ákvörðun um
nýja nafnið í gær.
Í rekstraráætlunum Eimskipa-
félags Íslands fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir að félagið velti um 35 millj-
örðum króna. Þar af gæti velta
Brimis, sjávarútvegssviðs félagsins,
numið 16 milljörðum króna. Þetta
kom fram í máli Ingimundar Sigur-
pálssonar, forstjóra Eimskipafélags-
ins, og Guðbrandar Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Útgerðarfélags
Akureyringa og Brimis, á fundi með
starfsmönnum ÚA á Akureyri í gær.
Eimskipafélagið hefur eins og
kunnugt er eignast á þessu ári meiri-
hluta hlutafjár í þremur rótgrónum
sjávarútvegsfyrirtækjum: ÚA, Har-
aldi Böðvarssyni á Akranesi og
Skagstrendingi á Skagaströnd. Eim-
skip gerði öllum öðrum hluthöfum í
þessum þremur félögum tilboð um
skipti á hlutabréfum í viðkomandi fé-
lagi og Eimskipafélaginu. Tilboð til
hluthafa HB er nú í gangi og því ekki
ljóst hversu stóran hlut Eimskipa-
félagið á sem stendur í HB. Hins
vegar upplýsti Ingimundur að Eim-
skipafélagið ætti orðið um 99%
hlutafjár í Útgerðarfélagi Akureyr-
inga og um 93% hlutafjár í Skag-
strendingi. „Við gerum ráð fyrir því
að formlega muni rekstur Brimis
hefjast um áramótin. Ég er mjög
bjartsýnn á rekstur nýja félagsins og
ég verð að segja það að mér finnst af-
ar vel hafa tekist til með aðdraganda
að stofnun þessa félags og samsetn-
ing þess er sú besta sem við gátum
séð fyrir, ekki síst vegna kvótasam-
setningar félaganna. Ég tel að í
þessu felist miklir möguleikar í sam-
legð í rekstri nýs félags,“ sagði Ingi-
mundur.
Horft til frekari vaxtar
Hann sagði að á næstu mánuðum
yrði lykilatriði að ná utan um rekstur
hins nýja sjávarútvegssviðs, jafn-
framt því sem horft yrði líka til frek-
ari vaxtar og möguleika sem kynnu
að bjóðast. Starfsmenn Eimskipa-
félagsins, eftir að Brimir varð hluti
af rekstri félagsins, eru um 2.100
talsins. Ingimundur telur ekki
ástæðu fyrir starfsmenn þessara
þriggja gömlu sjávarútvegsfyrir-
tækja að óttast um sína stöðu. „Ég sé
ekki að þessar breytingar á eignar-
haldi eigi að skapa ótta meðal starfs-
fólks um sína stöðu. Miklu fremur tel
ég að með því að efla fyrirtækin und-
ir einum hatti Eimskipafélagsins sé
verið að treysta allar starfsstöðvar
fyrirtækjanna. Ég er sannfærður
um að með þessum breytingum á
Eimskipafélaginu er verið að gera
félagið hæfara til þess að takast á við
breytingar í efnahagsumhverfinu,
ekki bara á Íslandi heldur líka á
þeim markaði sem við erum að vinna
á erlendis,“ sagði Ingimundur.
Guðbrandur Sigurðsson sagði á
starfsmannafundi ÚA að unnið hefði
verið af krafti að skipulagi nýs sjáv-
arútvegssviðs Eimskipafélagsins og
framundan væri mikil vinna í þeim
efnum. Hann upplýsti meðal annars
að vinnsla á bolfiski yrði efld á Ak-
ureyri, en á móti yrði karfavinnsla
efld á Akranesi. Landvinnslu Brimis
verður stýrt frá Akureyri, en upp-
sjávarveiðum og vinnslu verður stýrt
frá Akranesi. Þá nefndi Guðbrandur
að náin samvinna yrði í rækjuvinnslu
á Skagaströnd og Hólmavík.
Rammíslenskt nafn
Stjórn Eimskipafélagsins ákvað á
fundi sínum í gær sjávarútvegssvið
félagsins héti hér eftir Brimir. Ingi-
mundur sagði að mörg nöfn hefðu
komið til greina, en að vel ígrunduðu
máli hefði þetta orðið niðurstaðan.
„Við höfum stillt upp tugum nafna og
mörg þeirra eru hljómfögur. Hins
vegar kom í ljós að mörg þeirra
nafna sem við veltum fyrir okkur eru
skráð og í notkun. Þess vegna var
vandasamt verk að finna gott nafn.
Ég tel hins vegar að okkur hafi tekist
að finna rismikið og framsækið nafn.
Mér vitanlega er þetta nafn ekki til
skráð, en við munum endanlega
ganga úr skugga um það á næstu
dögum,“ segir Ingimundur og bætti
við að Brimir merkti sverð. Nafnið
Brimir er rammíslenskt og kemur
m.a. fyrir í tveimur erindum Völu-
spár.
Sjávarútvegssvið Eimskips hefur fengið nafnið Brimir
Veltir um 16 millj-
örðum á næsta ári
VÖRUSKIPTIN við útlönd voru
hagstæð um 1,6 milljarða króna í
októbermánuði en á sama tíma í
fyrra voru þau hagstæð um 2,2 millj-
arða á sama gengi.
Fyrstu tíu mánuði ársins var af-
gangur á vöruskiptunum við útlönd
sem nam 11,9 milljörðum króna en á
sama tíma árið áður voru þau óhag-
stæð um 12,6 milljarða. Viðsnúning-
urinn er því 24,5 milljarðar króna á
milli ára.
Í októbermánuði voru fluttar út
vörur fyrir 18,6 milljarða króna og
inn fyrir 17,0 milljarða króna fob.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs hafa
verið fluttar út vörur fyrir 173,5
milljarða króna en inn fyrir 161,6
milljarða króna fob.
Verðmætari vöruútflutningur
Í tilkynningu frá Hagstofu Íslands
kemur fram að verðmæti vöruút-
flutnings fyrstu tíu mánuði ársins
var 15,4 milljörðum eða 10% meira á
föstu gengi en á sama tíma árið áður.
Sjávarafurðir voru 63% alls útflutn-
ings og var verðmæti þeirra 11%
meira en á sama tíma árið áður.
Aukningu vöruútflutnings má því
helst rekja til aukins útflutnings á
sjávarafurðum, aðallega fiskimjöli,
frystum flökum og frystum heilum
fiski en á móti kemur að útflutningur
á flöttum saltfiski hefur dregist sam-
an. Útflutningur iðnaðarvara hefur
einnig aukist, aðallega á lyfjavörum
og lækningatækjum, að því er segir í
tilkynningunni.
Minni innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu
tíu mánuði ársins var 9,1 milljarður
eða 5% minna á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Að stærstum
hluta má rekja samdráttinn til minni
innflutnings á fjárfestingarvörum og
flutningatækjum.
8998
:22)+:
"6+
2
.+ 2
! " # $
%$ & ' %( ) *+ ,--, -./0 # 1
;
!
"!#
! " # !
$
$!
%
$%
"
$
&
'
$
&! ' (
(( (()*
+ (*+)
, -(-)
, ,*,.
++ */+(
+/0(
( -+-.
-- +01+
. **++
, .)--
) ,+,,
. )0)1
(( 10)-
+ +0++
- .-0)
, ))1+
+( ..*+
),-+
, 0((-
-1 +-0/
. .+0,
- 0/.1
, )0(.
* ,//+
!
!"
21(3
4(13
2-/-3
2,(*
"
4-,03
2,13
4),3
2/+3
2003
2-+3
2,0-3
2)1)3
4--+3
#$%&'
()
*
+
),#*-
*,+2
+
.2)2<+ +
.
-2
:)+:2899=2)28998
&5!% !
% 6
899=
:22)+:
Vöruskiptin
hagstæð um
1,6 milljarða
SJÓÐFÉLAGAFUNDUR Almenna
lífeyrissjóðs Íslandsbanka (ALVÍB)
samþykkti í gær að fresta fundinum,
og þar með atkvæðagreiðslu um
sameiningu sjóðsins við Lífeyrissjóð
arkitekta og tryggingafræðinga
(LAT), til 17. desember nk.
Á aukaársfundi LAT sl. þriðudag
var samþykkt tillaga um frestun
fundarins til 17. desember, enda
urðu á fundinum miklar umræður
um fyrirhugaða sameiningu við AL-
VÍB. Eins var sjóðsstjórn LAT
gagnrýnd fyrir að hafa ekki kynnt
sameininguna á sérstökum kynning-
arfundi. Brynjólfur Bjarnason,
stjórnarformaður ALVÍB, segir að
samstaða sé meðal félaga sjóðsins
um að sameinast LAT. Hinsvegar
hafi verið borin upp tillaga um að
fresta fundinum, og þar með at-
kvæðagreiðslu um sameininguna, til
17. desember til að vera samstiga
sjóðfélögum LAT varðandi samein-
inguna. Hann segist bjartsýnn á að
hægt verði að haga málum þannig að
sátt náist um sameininguna, enda sé
hún félögum beggja sjóða mjög í
hag.
Brynjólfur sagði á sjóðfélagafundi
ALVÍB í gær að ef sjóðfélagar LAT
samþykktu ekki sameininguna
mundi stjórn ALVÍB samt sem áður
leggja til að samþykktum sjóðsins
yrði breytt en ákvæði sem fjalla um
sameininguna féllu þá niður.
ALVÍB frestar
einnig ákvörðun