Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VÍSINDAGARÐAR og frum-
kvöðlasetur hafa mikilvægu hlut-
verki að gegna í að efla nýsköpun í
atvinnulífinu, að sögn Olle Sten-
berg. Hann er forseti frumkvöðla-
setursins Chalmers Innovation í
Gautaborg í Svíþjóð og jafnframt
formaður Samtaka sænskra vís-
indagarða.
Hann segir að til að vísindagarð-
ar og frumkvöðlasetur skili tilætl-
uðum árangri þurfi að slíkri starf-
semi í fyrsta lagi að koma
menntastofnanir, í annan stað
stjórnvöld og í þriðja lagi atvinnu-
lífið. Menntastofnanir eða rann-
sóknarstöðvar tryggi að hæfnin sé
til staðar, stuðningur stjórnvalda
eigi að leiða til þess að fram-
kvæmdin heppnist og gott sam-
starf við atvinnulífið treysti fram-
ganginn. Í fjórða lagi sé svo
mikilvægt að þeir sem að þessu
koma hafi skilning á því að það geti
tekið tíma fyrir vísindagarða og
frumkvöðlasetur að skila sýnileg-
um árangri sem hægt sé að mæla.
Þetta sé langtímaverkefni sem nái
til lengri tíma en tveggja eða
þriggja ára. Það fari þó eftir að-
stæðum á hverjum stað og þeim
verkefnum sem unnið er að.
Fyrsta skrefið í
öflugri nýsköpun
Stenberg hefur komið að upp-
byggingu og skipulagningu fjöl-
margra vísindagarða í Svíþjóð.
Hann segir að erfitt sé að meta
með beinum mælingum árangur-
inn af starfsemi þeirra eða árang-
urinn af starfsemi frumkvöðla-
setra. Ljóst sé þó að í Svíþjóð hafi
töluverður fjöldi fyrirtækja og
starfa orðið til vegna þessa á um-
liðnum árum. Svipaða sögu megi
og segja um mörg önnur lönd þar
sem svipuð starfsemi er.
Hann segir að frumkvöðlasetur
sé fyrsta skrefið í öflugri nýsköp-
un. Þar fái frumkvöðlar aðstöðu og
aðstoð við að vinna úr hugmyndum
sínum. Þegar þær séu komnar á
legg geti verið heppilegt að færa
sig yfir í vísindagarð, þar sem sam-
an eru komin fyrirtæki á mismun-
andi stigum.
Frumkvöðlasetur á Íslandi
Olle Stenberg er staddur hér á
landi um þessar mundir í tilefni af
tveimur morgunverðarfundum
Iðntæknistofnunar, annars vegar í
Reykjavík í gær, og hins vegar á
Akureyri í dag. Umfjöllunarefni
fundanna er hlutverk vísindagarða
og frumkvöðlasetra.
Nokkur frumkvöðlasetur eru
starfrækt hér á landi, sem ætlað er
að styðja frumkvöðla við fram-
kvæmd rannsókna og þróunar og
að styðja fyrstu skref fyrirtækja á
markaði. Nefna má Frumkvöðla-
setur Impru á Iðntæknistofnun,
Frumkvöðlasetur Norðurlands,
Nýheima á Höfn í Hornafirði og
Klak hjá Nýherja.
Umræður um vísindagarða hafa
verið nokkrar hér á landi að und-
anförnu en nokkrir aðilar hafa
kannað og undirbúið hugmyndir að
slíku.
Hlutverk vísindagarða og frumkvöðlasetra í nýsköpun
Tíma tekur að skila
sýnilegum árangri
Morgunblaðið/Golli
Olle Stenberg, forseti frumkvöðlasetursins Chalmers Innovation í
Gautaborg í Svíþjóð.
GUÐJÓN Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að félagið
myndi vilja að Ísland yrði aðili að loft-
ferðasamningi Evrópusambandsins
við Bandaríkin, færi svo að slíkur
samningur yrði gerður fyrir hönd
allra aðildarríkja. Hann segist telja
að slík breyting myndi hafa í för með
sér fleiri tækifæri en hættur.
Eins og staðan er núna gera aðild-
arlönd Evrópusambandsins hvert
fyrir sig svokallaðan „open skies“
samning við Bandaríkin um loftferða-
lög þangað. Evrópudómstóllinn felldi
nýverið dóm um að mikilvægir þættir
samninganna væru ólöglegir. Því
leikur nokkur vafi á því hvort Evr-
ópuráðið eigi að semja fyrir hönd
allra aðildarríkja eða hvort núverandi
fyrirkomulag eigi að gilda áfram. Ef
Evrópuráðið fær samningsréttinn
geta ríkin að öllum líkindum ekki
leyft innlendum flugfélögum að ein-
oka ferðir milli viðkomandi lands og
Bandaríkjanna.
Guðjón segir að þar sem Ísland sé
aðili að evrópska efnahagssvæðinu
gildi hér reglugerðir Evrópusam-
bandsins um flugrekstur og réttindi.
Ísland sé eitt þeirra Evrópulanda
sem hafi „open skies“ samning við
Bandaríkin. „Við hjá Flugleiðum höf-
um fylgst með þessum umræðum
meðal Evrópuríkja, bæði í gegnum
aðild okkar að Evrópusambandi flug-
félaga, AEA, og eins hafa íslensk
stjórnvöld eðlilega fylgst með þessum
málum,“ segir hann.
Lítum á okkur sem
evrópskt flugfélag
„Okkar afstaða er sú að ef svo færi
að Evrópusambandið gerði einn
samning fyrir hönd allra ríkjanna
innan þess, þá viljum við að Ísland sé
aðili að þeim samningi. Við lítum á
okkur sem evrópskt flugfélag og telj-
um mikilvægt að vera hluti af því um-
hverfi sem flugfélögum í álfunni er
búið af opinberri hálfu. Við sjáum í
slíkri breytingu fleiri tækifæri en
hættur,“ segir Guðjón.
Hugsanlegar breytingar á flugi
Fleiri tækifæri
en hættur
FELLDIR hafa verið niður tollar
sem lagðir hafa verið á ýmiss kon-
ar iðnvarning frá fátækustu þró-
unarríkjum heims, en í þeim hópi
eru meðal annars Afganistan,
Bangladess, Búrma, Haítí, Kamb-
ódía, Nepal, Sómalía og Úganda.
Stefán S. Guðjónsson ræð-
ismaður Bangladess segir að þessi
breyting, sem gerð er með reglu-
gerð frá fjármálaráðuneytinu, hafi
meðal annars í för með sér að
tollar á fatnaði, sem hingað til
hafa verið 15%, verði felldir niður.
Fatnaður er að sögn Stefáns
það helsta sem Ísland flytur inn
frá Bangladess, en auk þess sé
talsverð framleiðsla á leðri og
keramikvörum þar í landi. Hann
segir að vörur framleiddar í
Bangladess séu oft keyptar í
gegnum þriðja ríki, en með þess-
ari breytingu ætti að verða auð-
veldara að kaupa beint frá
Bangladess. Aðspurður segir hann
tiltölulega auðvelt að eiga við-
skipti við Bangladess, þetta sé
fyrrum bresk nýlenda og enska sé
annað tungumál þar í landi. Hann
nefnir einnig að í janúar á hverju
ári sé þar haldin stór vörusýning
til kynningar á framleiðslu lands-
ins.
Stefán segist telja að með þess-
ari niðurfellingu tollanna sé stigið
stórt og mikilvægt skref og að
verslunin í landinu hafi lengi bar-
ist fyrir breytingum sem þessum.
Tollar á
fátækustu
ríkin felld-
ir niðurÍSLENSKI hlutabréfasjóðurinn hf.keypti í gær hlutabréf í Jarðborun-
um hf. fyrir rúmar 45 milljónir
króna. Eignarhlutur Íslenska hluta-
bréfasjóðsins hf. er nú 19,32% eða
rúmar 50 milljónir að nafnverði en
var áður 1,86%.
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 seldu
í gær 20 milljónir króna að nafnverði
í Jarðborunum hf. Eignarhlutur Líf-
eyrissjóða Bankastræti 7 eftir við-
skiptin nemur 6,28% en var áður
13,98%. Lokaverð hlutabréfa í Jarð-
borunum hækkaði um 6,5% í gær, fór
úr 6,20 í 6,60. Alls voru viðskipti með
félagið fyrir 310 milljónir í gær.
Í gær var tilkynnt um fyrirhug-
aðan hluthafafund hjá Íslenska
hlutabréfasjóðnum hinn 6. desember
nk. Á fundinum verður farið yfir
breytingar á fjárfestingarstefnu
vegna fyrirhugaðra breytinga á
skattalögum og aðkomu nýrra fjár-
festa að sjóðnum.
Stjórnarformaður Íslenska hluta-
bréfasjóðsins, Gunnar Andersen,
hefur sagt sig úr stjórn sjóðsins en
Sigurður Atli Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfasviðs
Landsbankans tekur sæti Gunnars í
stjórn sjóðsins og verður jafnframt
stjórnarformaður.
Íslenski hlutabréfa-
sjóðurinn með 19,32%
í Jarðborunum
KAUPHÖLLIN í Lundúnum hef-
ur hug á að festa kaup á Kauphöll-
inni í Stokkhólmi af OM-gruppen.
Frá þessu var greint í Dagens
Industri í gær. Gunnar Halldórs-
son, forstöðumaður tæknisviðs
Kauphallar Íslands, segir að sam-
kvæmt tilkynningu sem Kauphöll-
inni hafi borist frá OM, þá sé ekk-
ert hæft í þessari frétt Dagens
Industri.
OM-gruppen hefur í tvígang á
síðastliðnum tveimur árum gert
tilraun til að festa kaup á Kaup-
höllinni í Lundúnum án árangurs.
Í frétt Dagens Industri segir að
OM-gruppen myndi sjá um tækni-
leg málefni fyrir Kauphöllina í
Lundúnum ef yrði af kaupum
hennar á Kauphöllinni í Stokk-
hólmi.
Kauphöllin í Stokkhólmi er
framleiðandi Saxxess viðskipta-
kerfisins sem notast er við í Norex
samstarfinu, sem Kauphöll Ís-
lands er aðili að, ásamt kauphöll-
unum í Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn og Ósló. Dagens Industri
segir að Kauphöllin í Lundúnum
myndi gerast aðili að því kerfi yrði
af kaupum hennar á Kauphöllinni
í Stokkhólmi.
Kauphöllin í Stokk-
hólmi til Lundúna?
BAUGUR-ID á nú 18,08%
hlutafjár í Big Food Group, eft-
ir að hafa keypt fimm milljónir
hluta í breska matvörufyrir-
tækinu. Talsmaður fyrirtækis-
ins vildi ekki gefa upp verðið
sem Baugur borgaði fyrir hlut-
inn.
Baugur með
18% í Big Food
SÆPLAST hf. hefur lokið við áreið-
anleikakönnun vegna kaupa á Ice-
box Plastico S.A. og hefur stjórn
Sæplasts samþykkt kaupin. Gengið
hefur verið frá kaupsamningum og
er hluti kaupverðs greiddur með
hlutabréfum í Sæplasti hf. Sæplast
mun taka yfir rekstur Icebox Plast-
ico S.A. frá og með næstu áramót-
um.
Icebox Plastico S.A. tók til starfa
um mitt ár 2001 og er vélbúnaður
og húsnæði fyrirtækisins allt nýtt.
Frá stofnun fyrirtækisins hefur ver-
ið unnið að sölu- og markaðssetn-
ingu afurða en sölutekjur eru enn
sem komið er litlar. „Það er mat
stjórnenda Sæplasts að með kaup-
um á Icebox sé félagið að styrkja
stöðu sína á markaði í Suður-Evr-
ópu en markaður fyrir hverfis-
steyptar plastafurðir þar hefur ver-
ið mjög vaxandi á undanförnum
árum. Þá styrkja kaupin almennt
samkeppnisstöðu Sæplasts þar sem
samkeppnisumhverfi á Spáni er
mjög gott og verður framleiðslu-
kostnaður í verksmiðjunni töluvert
lægri en í núverandi verksmiðjum
Sæplasts í Evrópu.
Kaupverð er greitt með eigin
bréfum og lausafé félagsins og
munu kaupinn hafa lítil áhrif á eig-
infjárstöðu Sæplasts,“ segir í frétt
um kaupin frá Sæplasti.
Sæplast kaupir á Spáni