Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 18
HRYÐJUVERKIÐ Á PARADISE-HÓTELINU Í KENÝA
18 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNVÖLD Í Kenýa hertu mjög
öryggisviðbúnað í gær eftir mann-
skætt sprengjutilræði í borginni
Mombasa við Indlandshaf. Ekki er
vitað hverjir stóðu að hryðjuverkinu
og tilraun til að skjóta niður ísr-
aelska farþegaþotu við Mombasa
nokkrum mínútum fyrr en áður
óþekkt samtök Palestínumanna með
bækistöð í Líbanon, Her Palestínu,
lýstu því á hendur sér. Sögðu þau til-
efnið vera að 55 ár væru liðin frá því
að Palestínu var skipt milli gyðinga
og araba. Grunur beinist einnig að
samtökum Osama bin Ladens, al-
Qaeda.
Þrír menn óku bíl hlöðnum
sprengiefni á Paradise-strandhótelið
við borgina Mombasa í gærmorgun
og dóu 12 manns í árásinni auk
hermdarverkamannanna sjálfra.
Um 80 manns slösuðust. Hótelið er í
eigu Ísraela, níu hinna látnu voru
Kenýamenn, félagar í þjóðdansa-
flokki, þrír voru Ísraelar, þar af tvö
börn. Ekki er vitað um þjóðerni
sjálfsmorðingjanna.
Skotið að farþegaþotu
Nokkrum mínútum fyrir árásina
var skotið tveim sprengiflaugum að
farþegaþotu ísraelska Arkia-flug-
félagsins sem var í flugtaki við völl-
inn í Mombasa með alls 271 mann
um borð. Flugmaðurinn, Rafi Mar-
ek, sá hvíta ljósblossa vinstra megin
við vélina en flaugarnar hæfðu ekki
og vélin lenti heilu og höldnu í Tel
Aviv fimm og hálfri stund síðar.
Farþegar heyrðu hvell og vélin
hristist mikið rétt eftir flugtak en
flugfreyja sagði þeim að líklega hefði
verið flogið á fugla. „Mér fannst eins
og eitthvað dytti af vængnum,“ sagði
einn farþeganna, Kerry Levy. Fyrst
í stað hugðist Marek snúa við og
lenda í Mombasa til að kanna hvort
vélin hefði skemmst en eftir að hafa
ráðfært sig við ísraelska embættis-
menn ákvað hann að fljúga beint til
Tel Aviv. Farþegum var ekki skýrt
frá málavöxtum fyrr en rétt fyrir
lendingu í Ísrael.
El AL, ísraelska ríkisflugfélagið,
skýrði frá því að flugvélar þess á ferð
erlendis hefðu verið látnar halda
kyrru fyrir á flugvöllum vegna árás-
arinnar. Öryggisgæsla félagsins er
talin vera sú fullkomnasta í heimi.
Tilræðismennirnir brostu
Um 140 gestir voru á hótelinu en
þar eru að jafnaði um 40 öryggis-
verðir. Að sögn Yehuda Sulami hót-
elstjóra óku tilræðismennirnir þrír
grænum Mitsubishi Pajero-fjór-
hjóladrifsbíl gegnum timburhlið við
húsið sem er þriggja hæða. Er þeir
nálguðust innganginn stökk einn út,
hljóp inn í gestamóttökuna og
sprengdi sig þar. Hinir tveir voru
áfram í bílnum sem síðan sprakk í
loft upp og varð þegar eldur laus í
byggingunni. Stór gígur myndaðist
þar sem bíllinn hafði stansað. Hluti
hótelþaksins féll til jarðar og allar
rúður sundruðust.
Rebecca Zevi er 30 ára gömul
kona sem hóf störf sem þjónustu-
stúlka á hótelinu fyrir aðeins viku.
Hún var stödd á herbergi sínu og
ætlaði niður í gestamóttökuna þegar
sprengingin varð. „Ég heyrði óp og
vein og fór að hjálpa fólki bak við
hótelið og sinna þeim sem höfðu slas-
ast,“ sagði Zevi, þakin sóti og enn
miður sín eftir atburðinn.
„Ég var nýbúinn að fara með
ferðamenn á staðinn og ætlaði að
fara heim til að fá mér að borða og
sofa dálítið,“ sagði hótelstarfsmaður
sem kynnti sig sem Dreesen. Hann
skalf enn er hann talaði við frétta-
menn. Hann sagði tilræðismennina
hafa ekið mjög hægt. „Þegar við fór-
um fram hjá þeim voru þeir bros-
andi.“ Flestir gestanna voru uppi á
herbergjum sínum eða í matsal.
Fjöldi fólks var á leið að hótelinu og
ef tilræðið hefði orðið stundarfjórð-
ungi síðar hefði blóðbaðið orðið
margfalt stærra, að sögn hótelstjór-
ans.
Biðu við flugvöllinn
Lögreglan sagði að sprengiflaug-
unum sem beint var gegn flugvélinni
hefði verið skotið frá fjórhjóladrifs-
bíl sem var um tvo kílómetra frá
flugvellinum. Hylki utan af léttum
flaugum fundust við völlinn og sjón-
arvottar sögðu að þrír eða fjórir
menn hefðu yfirgefið staðinn í hvít-
um bíl. Síðar var skýrt frá því að
tveir menn af arabískum uppruna
hefðu verið handteknir.
Strandsvæði Kenýa eru aðallega
byggð múslímum, mörgum af arab-
ískum ættum en meirihluti lands-
manna er kristinn. Fjöldi vestrænna
ferðamanna sækir Kenýamenn heim
á hverju ári, meðal annars komu
þangað um 80.000 Bretar í fyrra.
Gæsla var hert í gær við vinsæla
ferðamannastaði í víðfrægum þjóð-
görðum landsins en einnig hugað að
strandbæjum og skipum með vest-
ræna gesti. Óttast var að gerð yrði
árás á skemmtiferðaskipið Marco
Polo sem var væntanlegt til hafnar í
gær með um 350 bandaríska ferða-
menn um borð.
Ruddust á bíl inn í gestamót-
töku hótelsins og sprengdu
Stjórnvöld í Ken-
ýa auka viðbúnað
gegn hermdar-
verkum eftir árás
í Mombasa sem
kostaði alls 15
manns lífið
AP
Loftmynd af Paradise-strandhótelinu við Kikambala, skammt frá borginni Mombasa í Kenýa, eftir árásina í gærmorgun. Húsið brann og hluti þaksins féll
til jarðar. Tilræðismennirnir þrír dóu allir og einnig 12 fórnarlömb þeirra, níu Kenýamenn og þrír Ísraelar, þar af voru þrjú börn.
Kikambala, Mombasa, Nairobi. AFP, AP.
&($.*/01
2
'.*31
*2
.+2).+2 +
.2>+ .+2723-2
*
.
2 2*22 +2.
-..2 *
2.+2) +2
-2
3)
2 )3.
-2
?
)3.
0@
BENJAMIN Netanyahu, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði í gær að þótt grunur léki á að
al-Qaeda-samtök Osama bin Ladens hefðu
staðið að baki tilræðunum í
Kenýa væru ísraelsk
stjórnvöld að rannsaka
aðra möguleika.
Hann sagði palestínska
öfgamenn hafa nýlega
reynt að kaupa frá Íran og
af Hezbollah-skæruliða-
hreyfingunni í Líbanon
sprengiflaugar sem einn
maður getur skotið af öxl-
inni, en slík vopn voru not-
uð er reynt var að skjóta niður ísraelska far-
þegaþotu í flugtaki frá flugvelli nærri
Mombasa í Kenýa í gærmorgun.
Netanyahu sagði sprengiflaugaárásina
„mjög alvarlega stigmögnun hryðjuverka-
hættunnar“. „Þetta þýðir að hryðjuverka-
samtök og þau stjórnvöld sem að baki þeim
standa eru fær um að verða sér úti um vopna-
búnað sem hægt er að beita til að valda dauða
fjölda fólks, hvar og hvenær sem er,“ sagði
Netanyahu. „Í dag skjóta þeir á ísraelskar
flugvélar, á morgun skjóta þeir á bandarísk-
ar, brezkar flugvélar, flugvélar frá öllum
löndum. Það segir sig því sjálft að það koma
engar málamiðlanir við hryðjuverkaöfl til
greina.“
„Vinir okkar hjálpuðu okkur ekki“
Daniel arap Moi, forseti Kenýa, hét því í
gær að yfirvöld í landinu myndu gera allt sem
í þeirra valdi stæði til að finna þá sem stóðu
að voðaverkunum.
„Við höfum áður þurft að þola svipaðar
árásir, en umheimurinn og vinir okkar hjálp-
uðu okkur ekki,“ sagði forsetinn, með tilvísun
til hinnar mannskæðu sprengjuárásar
hryðjuverkamanna á sendiráð Bandaríkjanna
í Nairobi fyrir fjórum árum, en al-Qaeda-
samtökin eru talin hafa borið ábyrgð á því.
„Við munum gera það sem við getum og Ken-
ýamenn munu fást við vandamálið upp á eigin
spýtur.“
Ráðamenn út um allan heim fordæmdu til-
ræðin í gær. George W. Bush Bandaríkja-
forseti, sem hélt upp á þakkargjörðardaginn
á búgarði sínum í Texas, sagðist harma mjög
þessa atburði. Of snemmt væri þó að slá því
föstu að al-Qaeda hefði verið þarna að verki.
Osama bin Laden sendi fyrir tveim vikum frá
sér myndband með hótunum um ný hryðju-
verk og er nú talið víst að hann sé enn á lífi.
Gordon Johndroe, talsmaður Hvíta húss-
ins, sagði bandarísk stjórnvöld reiðubúin að
aðstoða bæði stjórnvöld í Kenýa og Ísrael við
að leita hina seku uppi. Jack Straw, utanrík-
isráðherra Bretlands, fordæmdi tilræðin
harðlega í yfirlýsingu frá Lundúnum. Sagði
hann enga réttlætingu til fyrir slíkum hryðju-
verkum en var annars sama sinnis og Bush,
að of snemmt væri að fullyrða um sök al-
Qaeda.
Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, fordæmdi hryðjuverkin í yfir-
lýsingu frá Brussel og sagði þau sýna glöggt
þörfina á alþjóðlegu samstarfi í baráttunni
gegn hryðjuverkaógninni. Sömu áherzlu lagði
talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins,
Alexander Jakovlenko, í yfirlýsingu stjórn-
valda í Moskvu. „Hinir sorglegu atburðir í
Kenýa undirstrika að glæpastarfsemi fjöl-
þjóðlegra hryðjuverkasamtaka ógnar öllu al-
þjóðasamfélaginu,“ sagði Jakovlenko.
„Alvarleg stig-
mögnun hryðju-
verkahættunnar“
Kikambala í Kenýa, Crawford í Texas, Brussel, London. AP, AFP.
Benjamin
Netanyahu