Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 25
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
PEYSUR
Góð hreinsiblanda
fyrir lifrina
www.islandia.is/~heilsuhorn
Liver Blend
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889,
fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Glæsilegt tímamótaverk
Loksins, loksins. Saga sjósóknar skiptir
alla Íslendinga máli. Hvert var upphaf
fiskveiða við Ísland? Er það satt að
árabátar hafi um aldir verið „skut-
togarar“ Íslendinga? Hvað var gert við
seglskútur á Íslandi?
Hrífandi bók um gleði,
sorg og mannleg örlög
Þeir fara á kostum viðmælendur Gylfa
Guðmundssonar: Rúnar Júlíusson, Dag-
bjartur Einarsson, Sigríður Jóhannes-
dóttir, Hjálmar Árnason, Ellert Eiríks-
son og Reynir Sveinsson. Að ógleymdri
hetjunni Jay D. Lane sem vann einstakt
björgunarafrek við Svörtuloft í fyrra.
Það eru engin takmörk fyrir því hvað
börnunum okkar getur dottið í hug.
Tilsvör þeirra eru einlæg, þrungin visku
og falslaus en jafnframt bráðskemmti-
leg - og þau lýsa sannarlega í skamm-
deginu.
Einlæg bók
Fyndnasta bók ársins
Bókin sem segir frá mistökunum á bak-
við tjöldin; frábærlega fyndin en um
leið fræðandi um þá starfsáhættu sem
fylgir því að vera fjölmiðlamaður.
Fyndnasta bók ársins en um leið sú
grátbroslegasta.
Saga mikilla örlaga, þrungin spennu
ástar- og sakamálasögunnar, eftir
þekktasta rithöfund Eistlendinga, Jaan
Kross. Vitfirringur keisarans, í þýðingu
Hjartar Pálssonar, er mögnuð dæmi-
saga um eðli valds og harðstjórnar.
Saga sem lætur
engan ósnortinn
Var stríðið Hitler að kenna?
„Hitler og seinni heimsstyrjöldin
eftir A. J. P. Taylor er og verður
sjálfsagt lengi enn mjög umdeilt
verk, en eitt er víst, að enginn,
sem vill kynna sér uppruna
ófriðarins að gagni, getur leyft
sér að láta það framhjá sér fara.“
Þór Whitehead sagnfræðingur
MIKIL spenna ríkti í Samkomuhús-
inu á Akureyri um síðustu helgi,
þar sem boðið var upp á fjölbreytta
leiksýningu fyrir fullu húsi. Að sýn-
ingunni stóðu um 60 börn á aldr-
inum 3ja–14 ára, sem þátt tóku í
átta vikna leiklistarnámskeiði á
vegum Leikfélags Akureyrar nú í
haust. Börnin sýndu afrakstur
vinnu sinnar og var þeim vel fagn-
að af foreldrum, ættingjum og vin-
um, sem fylltu salinn. Það gekk
mikið á fyrir sýningu, enda þurfti
að taka lokaæfinguna og mála
mörg börn í framan vegna hlut-
verka þeirra. Á sýningunni komu
þátttakendur m.a. fram í hlut-
verkum apa, Rauðhettu og úlfa,
Mógla, flugna, ánamaðka og
dverga, auk þess sem sýnt var at-
riði úr Bugsy Malone. Þetta er ann-
að árið sem LA býður upp á leik-
listarnámskeið fyrir börn.
Námskeiðin hafa verið mjög vel
sótt og að þessu sinni komust færri
að en vildu. Kennarar á námskeið-
unum voru þær Laufey Brá Jóns-
dóttir og Hildigunnur Þráinsdóttir.
Á síðasta leikári var jafnframt
boðið upp á námskeið fyrir þá sem
eldri eru, m.a. eldri borgara og
ekki er útilokað að slík námskeið
verði í boði í vetur.
Leikfélag Akureyrar stóð fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn á öllum aldri
Námskeið-
inu lauk
með fjöl-
breyttri
sýningu
Þessar ungu dömur sýndu
skemmtileg svipbrigði í svoköll-
uðum myndaleik.
Ekki var hægt að setja upp hefðbundna sýningu
á Rauðhettu, þar sem enginn fékkst til að leika
veiðimanninn. Því voru í sýningunni tveir vondir
úlfar og þrír góðir úlfar. Hér er verið að mála
einn af góðu úlfunum.
Flugurnar fylgjast með veiðimanningum tína upp ána-
maðka í dolluna sína.
Ánamaðkarnir höfðu mikinn áhuga á að gæða sér á
flugunum og bíða hér færis.
Yngstu börnin léku apa og þurftu aðeins að laga sig til.
Morgunblaðið/Kristján
Enskunám í Englandi
Virtur málaskóli á suðurströndinni
18 ára og eldri
2-10 vikna námskeið.
13-17 ára
2-4 vikna námskeið
50 ára og eldri
2 vikna námskeið
Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði.
Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825.