Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 26
HÖFUÐBORGIN
26 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
TÓLF krakkar í Salaskóla í Kópa-
vogi eru á kafi í skák þessa dagana
en þeir taka þátt í svokallaðri Skák-
smiðju í skólanum. Krakkarnir koma
saman þrjá morgna í viku til að tefla,
ekki bara hver við annan heldur
einnig við fólk út um allan heim.
Hin alþjóðlega taflmennska krefst
þó ekki ferðalaga heldur er henni
sinnt í gegn um þýska skákþjóninn
Fritz og Netið en það var Skákfélag
Garðabæjar sem átti frumkvæðið að
því að íslenskum börnum 6 – 16 ára
býðst nú ókeypis aðgangur að þjón-
inum í eitt ár.
Að sögn Tómasar Rasmus, kenn-
ara í Salaskóla, er Skáksmiðjan að-
eins ein af mörgum slíkum smiðjum
sem eru starfræktar í skólanum en
hinar smiðjurnar taka önnur við-
fangsefni fyrir á borð við hand-
menntir, myndlist, tæknilegó og
fleira. Eftir þriggja vikna námskeið í
hverju viðfangsefni skipta krakkarn-
ir svo um smiðju.
Stelpurnar forvitnari
um aðstæðurnar
„Við ákváðum að vera með eina
smiðju sem tæki fyrir spilamenningu
og skák,“ segir Tómas. „Það er nauð-
synlegt að fá eitthvert mótvægi við
þessum geggjaða tölvuheimi og öll-
um tölvuleikjunum.“
Hann segir áhuga krakkanna ekki
síst hafa vaknað á skákinni í gegn um
skákþjóninn en í gegnum hann safna
þeir stigum fyrir taflmennskuna.
„Þeir eru ofboðslega mikið fyrir að
safna stigum í öllu sem þeir eru að
gera, sérstaklega strákarnir, það er
kannski veiðimannaeðlið í þeim.
Stelpurnar horfa aðeins öðruvísi á
þetta. Þær eru forvitnari um t.d. að-
stæður þess úti í heimi sem þær eru
að tefla við og vilja þá frekar spjalla
við viðkomandi.“
Það er augljóst að skákmennskan
á hug krakkanna þegar litið er yfir
hópinn en þegar Morgunblaðið lítur
inn stendur yfir 9. umferðin í skák-
móti smiðjunnar en alls eru umferð-
irnar 11 talsins. „Meiningin er að
vera fær um að skemmta sér og
skemmta öðrum með því að tefla og
spila,“ segir Tómas. „Svo er það
aukabónus ef við fáum einhverja sem
vilja sinna skákinni áfram og fara
virkilega að stúdera hana.“
Að sögn Tómasar er reynslan af
því að nota skák í skólastarfi mjög
góð. „Ég hef náð mörgum, sem eiga
erfitt með að einbeita sér, í virkilega
góða einbeitingu í gegn um skákina.
Svo er kannski smám saman hægt að
yfirfæra það yfir á annað nám. Ef
fagið heitir ekki stærðfræði eða al-
gebra heldur þraut, spil eða leikur
verður öðruvísi hvatning hjá mörg-
um.“
Skáktölvan Fritz í þjónustu kornungra skáksnillinga í Salaskóla
Teflt við fólk út
um allan heim
Kópavogur
Það vantaði ekki einbeitinguna á níundu umferð skákmóts smiðjunnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Iðunn, Tómas og Eymar ásamt Andra Karli í leit að keppinaut úti í heimi.
EYMAR Andri Birgisson og
Iðunn Haraldsdóttir eru
meðal krakkanna sem taka
þátt í Skáksmiðjunni sem
þau segja vera mjög
skemmtilega. Iðunn segist
þó ekki fara oft á Netið til
að tefla. „Það eru aðallega
bara strákarnir,“ segir hún.
„Ég held að ég hafi aldrei
komist almennilega inn á
þetta.“
Öðru máli gegnir um
Eymar sem hefur gert tals-
vert af því að finna sér
keppinaut úti í hinum stóra
heimi. En hvaðan eru mót-
spilararnir?. „Þeir eru ein-
hvers staðar í Þýskalandi og
bara úti um allan heim,“
segir hann. „Þetta eru bæðu
fullorðnir og krakkar.“
Hann segir andstæðingana
oft erfiða og verður til dæm-
is að viðurkenna að ekki
hafi gengið vel í skákinni
fyrr um daginn.
Þau Iðunn og Eymar segj-
ast hafa lært talsvert í skák
á því að vera í smiðjunni og
eru bæði viss um að þau
muni halda taflmennskunni
áfram enda fleiri til-
kippilegir í slaginn en skóla-
félagarnir. „Ég tefli alltaf
svolítið við pabba minn,“
segir Iðunn og Eymar tekur
í sama streng. „Ég tefli líka
stundum heima við mömmu
eða pabba eða einhvern.“
Tefla líka
við foreldr-
ana heima
KAUPVERÐ Orkuveitu Reykjavík-
ur á eignarhlut Garðabæjar í fyr-
irtækinu nemur tæpum 170 millj-
ónum króna samkvæmt
samkomulagi um kaupin. Bæjarráð
Garðabæjar og stjórn Orkuveitunn-
ar samþykkti samkomulagið á fund-
um sínum á þriðjudag.
Eignarhlutur Garðabæjar í Orku-
veitunni nemur 0,47 prósentum en í
byrjun mánaðarins fól bæjarráð
bæjarstjóra að ganga til viðræðna
við Orkuveituna um sölu á hlutnum.
Nú hefur bæjarráð falið bæjarstjóra
að undirrita samninginn með fyr-
irvara um samþykki bæjarstjórnar.
Í frétt Morgunblaðsins frá 6. nóv-
ember síðastliðnum segir að hlut-
urinn sé talinn metinn á 190 millj-
ónir króna en samkvæmt
samkomulaginu er kaupverðið
169.304.873 krónur. Ásdís Halla
Bragadóttir bæjarstjóri segir að 190
milljónir hafi verið tillaga Garða-
bæjar að kaupverði en ákveðin rök
hafi hnigið að lægri upphæð. „Þegar
Garðabær gerðist eignaraðili fyrir
ári var eigið fé fyrirtækisins metið á
ákveðnum forsendum. Okkur varð
að samkomulagi að meta það á sömu
forsendum núna og þá er hlutur
Garðabæjar metinn á tæplega 170
milljónir.“
Hún segist sátt við það verð sem
fæst fyrir eignarhlut Garðabæjar.
„Hins vegar er ekki búið að skrifa
undir þetta þannig að þetta er ekki
frágengið mál,“ segir hún.
Að sögn Hjörleifs Kvaran borg-
arlögmanns var samkomulagið sam-
þykkt af hálfu stjórnar Orkuveit-
unnar á fundi hennar á þriðjudag en
í framhaldinu eigi það eftir að fara
til staðfestingar allra eigenda fyr-
irtækisins áður en til undirskriftar
getur komið.
Hlutur í OR seldur á 170 milljónir
Garðabær
SKATTTEKJUR Seltjarnarnes-
bæjar hækkuðu um 98% á árun-
um 1992 til 2001. Þannig hækk-
uðu þær um 123 þúsund krónur á
íbúa í 244 þúsund krónur á tíma-
bilinu. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu sem endurskoðunarfyr-
irtækið Grant Thornton hefur
gert um fjárhagsstöðu Seltjarn-
arnessbæjar fyrir bæjaryfirvöld.
Í skýrslunni, sem kynnt var í
bæjarstjórn í gær, segir að
skatttekjur á íbúa í fyrra hafi
verið hæstar hjá Seltjarnar-
nesbæ af þeim sveitarfélögum
sem samanburðurinn náði til. Þá
segir að peningaleg staða bæj-
arsjóðs sé sterk og með því besta
sem gerist meðal sveitarfélaga. Í
árslok 2001 hafi nettóskuld bæj-
arsjóðs per íbúa verið 84 þúsund
krónur en 102 þúsund krónur ef
fyrirtæki bæjarins eru talin með.
Hins vegar er bent á að veltu-
fjárhlutfall bæjarins sé lægra en
almennt sé álitið æskilegt en um
er að ræða hlutfallið milli
skammtímaskulda bæjarins og
áætlaðra innborgana á því tíma-
bili sem skuldirnar gjaldfalla.
Segir að svo virðist sem áhersla
sé lögð á niðurgreiðslu langtíma-
lána en eðlilegra væri að auka
hlutfall langtímalána af heildar-
skuldum bæjarins án þess þó að
breyta neinu um nettóskuld
hans.
Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri segir að þessi ábending
sé réttmæt. „Við höfum brugðist
við henni í fjárhagsáætlunargerð
fyrir næsta ár með tillögu um
langtímafjármögnun um allt að
100 milljónir króna til þess að
greiða niður skammtímaskuldir.
Það myndi styrkja veltufjárhlut-
fallið í samræmi við tillögur
þessara endurskoðenda án þess
þó að hækka heildarskuldirnar.“
Rekstrarhlutfallið of hátt
Loks er á það bent í skýrsl-
unni að rekstur bæjarsjóðs sem
hlutfall af skatttekjum taki
meira til sín en viðmiðanir Eft-
irlitsnefndar með fjármálum
sveitarfélaga gera ráð fyrir en
eins og Morgunblaðið greindi frá
í síðustu viku er þetta hlutfall um
86 prósent á yfirstandandi ári.
Því sé svigrúm til að fjármagna
framkvæmdir með rekstraraf-
gangi lítið, eins og segir í skýrsl-
unni.
„Þetta er ákveðin pólítísk
ákvörðun okkar á Seltjarnar-
nesi,“ segir Jónmundur um
þetta. „Við erum að reka bæinn
fyrir lágmarksálögur og það þýð-
ir að við höfum færri krónur til
að inna af hendi þá þjónustu sem
við veitum. Það er auðvitað meg-
inorsökin fyrir því að hlutfallið
er þarna rétt við mörkin.“
Hann segir að hægt væri að
lækka þetta hlutfall með því að
hækka skatta en gjaldtökuheim-
ildir bæjarsjóðs eru að hans sögn
ekki fullnýttar. Fyrir því sé hins
vegar ekki pólitískur vilji. „Ég
held að meginorsökin fyrir þessu
hlutfalli, sem hefur verið rokk-
andi, sé ekki reksturinn sem
slíkur heldur tekjuhliðin – við er-
um með hlutfallslega mikla starf-
semi og fáa gjaldendur.“
Skýrsla um fjárhag bæjarsjóðs
kynnt í bæjarstjórn
Skatttekjur
nær tvöfölduð-
ust á 10 árum
Seltjarnarnes