Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 28
SUÐURNES
28 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sérsniðin innheimtulausn
LANDIÐ
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,
kemur til starfa 1. desember og býst
María við að læknarnir muni fara á
hennar fund strax eftir helgi til að
ræða málið og sækja um störfin.
Stofnunin þurfi síðan að taka afstöðu
til þeirra.
María telur að meirihluti
læknanna tíu sem hættu, jafnvel all-
ir, muni óska eftir að koma aftur til
starfa á Suðurnesjum. Ekki sé víst
að allir geti byrjað strax en flestir
myndu koma fljótlega til starfa.
Læknarnir eru reiðubúnir að
vinna þessa þrjá mánuði á sömu for-
sendum og voru þegar þeir hættu,
það er að segja á gildandi kjara-
nefndarúrskurði.
Guðlaug segir að það geti tekið
einhvern tíma að ganga frá ráðningu
læknanna en segir fyrir mestu að nú
virðist séð fyrir endann á ástandinu.
LÆKNARNIR sem létu af störfum
á heilsugæslustöðvum Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir mánuði
hefja væntanlega störf aftur ein-
hvern tímann í næstu viku.
Læknarnir hafa lýst því yfir að
þeir séu reiðubúnir að koma til
starfa á sínum fyrri vinnustað og
starfa þar í þrjá mánuði, á meðan fé-
lag þeirra semur við heilbrigðisráðu-
neyti um breytingar á starfskjörum
þeirra og réttindum.
María Ólafsdóttir, fyrrverandi yf-
irlæknir á heilsugæslunni, hafði í
gær samband við Guðlaugu Björns-
dóttur, starfandi framkvæmdastjóra
stofnunarinnar, sem óskaði eftir því
að læknarnir sendu umsóknir um
sínar fyrri stöður. Sigríður Snæ-
björnsdóttir, nýr framkvæmdastjóri
Læknarnir vilja koma aftur til starfa
Sækja um stöð-
urnar eftir helgi
Suðurnes
ingu síðastliðinn fimmtudag. Fjöl-
breytileikinn var allsráðandi í
uppfærslunni en meðal atriða
voru þjóðsögur úr Grindavík og
lag eftir Bubba Morthens í nýjum
búningi. Ljóð voru flutt, meðal
NEMENDUR í 8. til 10. bekk
Grunnskóla Grindavíkur æfðu
dagskrá vegna Dags íslenskrar
tungu og héldu síðan mikla sýn-
annars eftir Þórarin Eldjárn, og
spilað undir eða leikið. Óhætt er
að segja að nemendurnir hafi lagt
sig verulega fram og margir kom-
ið skemmtilega á óvart í flutningi
sinna atriða.
Fluttu þjóðsögur og lag eftir Bubba
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Grindavík
VERK eftir félaga í svoköll-
uðum upphafshópi Baðstof-
unnar verða í sýningarglugg-
anum hjá Gallerý Hringlist við
Hafnargötuna í Keflavík
næstu vikur, í tilefni þess að
hópurinn fékk nýlega menn-
ingarverðlaun Reykjanesbæj-
ar fyrir árið 2002.
Í hópnum eru tíu myndlist-
armenn: Ásta Árnadóttir, Ásta
Pálsdóttir, Guðmundur Marí-
asson, Hreinn Guðmundsson,
Jón Ágúst Pálmason, Sigmar
Vilhelmsson, Sigríður Rósink-
arsdóttir, Soffía Þorkelsdóttir,
Steinar Geirdal og Þórunn
Guðmundsdóttir. Fram kemur
í fréttatilkynningu frá menn-
ingarfulltrúa bæjarins að allur
hópurinn hefur verið virkur í
myndlistinni og glætt menn-
ingarlíf Reykjanesbæjar í ára-
tugi.
Upphafshópur Baðstofunnar
sýndi síðast saman í septem-
ber, í tengslum við Ljósanótt.
Verk Bað-
stofuhópsins
til sýnis í
Hringlist
Keflavík
FISKVERKUNIN Háteigur í Garði
er að kaupa 50 metra langt flutn-
ingaskip til að flytja þorskhausa frá
Skotlandi til vinnslu í þurrkstöð fyr-
irtækisins. Einnig verður fluttur
annar varningur eftir því sem býðst.
Að sögn Matthíasar Magnússon-
ar, eiganda Háteigs, hefur nokkuð
fjarað undan hráefnisöflun fyrirtæk-
isins af ýmum ástæðum þannig að
það hefur ekki nærri nógu marga
hausa til að þurrka í stöðinni í Garði.
Þá er Háteigur að koma sér upp við-
bótaraðstöðu á Reykjanesi og þarf
meira hráefni einnig af þeim sökum.
Segir Matthías að ekki sé of gott að
fá hráefni í öðrum löndum en eitt-
hvað hafi opnast í Skotlandi og ætli
hann að láta á það reyna með kaup-
um á þessu skipi.
Flutningaskipið er norskt og heit-
ir nú Lars Hagerup. Að sögn Matt-
híasar verður það skráð á Íslandi og
með íslenska áhöfn. Það mun landa
reglulega í Sandgerði og Aberdeen.
Hann vonast til að geta fengið ann-
an flutning, segir meðal annars
möguleika á að flytja skreiðina út til
Bretlands og flytja þaðan í gámum
til Nígeríu. Þá er hægt að flytja
frystar og kældar vörur milli land-
anna.
Skipið er væntanlegt til Íslands í
fyrsta skipti í lok næstu viku.
Hyggjast þurrka
skoska hausa
Garður
Vina- og paraball félagsmið-
stöðvarinnar Fjörheima 2002
verður haldið í kvöld á N1 bar.
Húsið verður opnað klukkan 20.15.
Vinir og par kvöldsins verða valin og
skemmtiatriði verða í boði. Hljóm-
sveitin Írafár leikur fyrir dansi.
Miðaverð er 1000 kr.
Í DAG
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
FYRSTA september sl. tók Eiríkur
Bj. Björgvinsson við bæjarstjóra-
starfi á Austur-Héraði. Hann starfaði
áður sem deildarstjóri íþrótta- og
tómstundadeildar Akureyrarbæjar
og kemur nú inn í mikið breytinga- og
endurnýjunarferli í sveitarstjórnar-
málum á Héraði.
Eiríkur er fæddur árið 1966 í
Reykjavík, þar sem hann lauk grunn-
og framhaldsskólamenntun. Fótbolt-
inn átti hug hans allan á þeim árum og
eftir að hafa spilað með Knattspyrnu-
félaginu Fram um árabil flutti hann
til Húsavíkur og spilaði með Íþrótta-
félaginu Völsungi. Á Húsavík kynnt-
ist hann eiginkonu sinni, Ölmu Jó-
hönnu Árnadóttur. Þá lá leiðin í
Íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni en eftir að námi lauk urðu þátta-
skil. Til að bæta við sig menntun
fluttu þau Alma til Þýskalands og Ei-
ríkur stundaði nám næstu fjögur árin
við Íþróttaháskólann í Köln. Eftir það
drap hann niður fæti í Bandaríkjun-
um en kom svo til Egilsstaða árið
1994 og tók við starfi æskulýðs- og
íþróttafulltrúa.
Með stjórnsýslureynslu
„Þá þegar var farið að höfða til mín
að vinna á vettvangi sveitarfélaga,“
segir Eiríkur, þegar hann er inntur
eftir aðdraganda þess að hann tók við
embætti bæjarstjóra. „Staða æsku-
lýðs- og íþróttafulltrúa á Egilsstöðum
var ný þegar ég tók við henni og ég
fékk því tækifæri til að brydda upp á
ýmsum nýmælum. Það er gaman að
geta þess í því samhengi að hugmynd-
in að Landsmótinu á Egilsstöðum ár-
ið 2001 og endurbætur á íþróttavell-
inum á Egilsstöðum, síðar
Vilhjálmsvelli, varð til hjá okkur
Helga Halldórssyni, þáverandi bæj-
arstjóra.“
Eftir tæplega tvö ár á Egilsstöðum
lá leiðin til Akureyrar og Eiríkur tók
við sambærilegri en þó miklu víð-
feðmari stöðu næstu sex árin sem
deildarstjóri íþrótta- og tómstunda-
deildar. „Þau ár sem við vorum á Ak-
ureyri fylgdist ég vel með því sem var
að gerast á Austurlandi og þá sér-
staklega á Egilsstöðum,“ segir Eirík-
ur. „Ég hafði fréttir af því að Björn
Hafþór Guðmundsson bæjarstjóri
væri að hugsa sér til hreyfings og að
hér á Austur-Héraði væru að eiga sér
stað ákveðnar breytingar og ákvað að
slá til og sækja um bæjarstjórastöð-
una.
Í því umhverfi sem ég vann í á Ak-
ureyri kynntist ég mörgu sem laut að
sveitarstjórnarmálum. Ég fékk tæki-
færi til að vinna mjög náið með allri
yfirstjórn sveitarfélagsins að undir-
búningi mála og að koma þeim í fram-
Austur-Hérað blæs til sóknar
Úr fótboltan-
um í forystu
bæjarmála
Egilsstaðir
FÉLAGS- og skólaþjónusta Snæ-
fellinga stóð fyrir fundum á Snæ-
fellsnesi um fíkniefnavandann og
forvarnir. Magnús Stefánsson,
fræðslufulltrúi Marita á Íslandi,
kom vestur í tvo daga og hélt
þrjá foreldrafundi og fjóra fundi
með nemendum 9. og 10. bekkja í
skólunum á Snæfellsnesi.
Magnús sýndi nýja íslenska
kvikmynd þar sem sýnd eru átak-
anleg örlög ungmenna sem ánetj-
ast hafa fíkniefnum. Hann kynnti
einnig átaksverkefnið sem heitir
„Hættu áður en þú byrjar“. Verk-
efnið er á vegum Samhjálpar, Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar
og Lögreglununar í Reykjavík. Á
áðurnefndum fundum mættu
einnig Gísli Guðmundsson, lög-
reglumaður á Snæfellsnesi, og
Sigþrúður Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga. Þau fóru yfir
atriði sem miklu máli skipta til
að veita unglingum gott eftirlit
og aðhald og búa þá undir að
takast á við þann þrýsting sem
fíkniefnasalar veita.
Foreldrafundirnir voru vel
sóttir, enda er kvíði hjá for-
eldrum varðandi fíkniefni. Að
sögn Sigþrúðar eru fíkniefni í
grunnskólum á Snæfellsnesi ekki
til staðar og er fræðslan ekki til
að bregðast við vanda heldur að
koma í veg fyrir hann. Nálægðin
við höfuðborgarsvæðið hefur
aukist og er greið leið á milli ef
vilji er fyrir hendi. Hún leggur
áherslu á ábyrgð foreldra í þess-
um efnum og öðrum varðandi
uppeldi barna. Þá ábyrgð tekur
enginn frá foreldrunum. Þeir
verða að standa við bakið á börn-
um sínum með því að vera í góðu
sambandi við þau og sýna þeim
aga og hlýju. Byggja þarf upp já-
kvætt sjálfstraust hjá unglingum
svo að þeir hafi þann vilja að
neita eiturlyfjum þegar freisting-
arnar banka upp á. Holl tóm-
stundastörf og góður vinahópur
eru einu bestu fíknivarnirnar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Foreldrar í Stykkishólmi á fræðslufundi um fíkniefnavandann og forvarnir
Forvarnir gegn fíkni-
efnum á Snæfellsnesi
Stykkishólmur