Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 33
JAPANSKI myndlistarmaðurinn
Kazumasa Mikohami er fæddur í
Aríta í Japan, en hefur síðastliðin 15
ár búið í Mílanó á Ítalíu. Í Gallerí
Gangi stendur nú yfir sýning á fimm
litlum verkum eftir listamanninn,
skúlptúr og lágmyndum sem unnin
eru í leir og máluð í skærum ákallandi
litum. Skúlptúrinn er lítil blá stytta
eða fígúra sem situr á hvítum kassa,
sem festur er við vegginn, og heldur á
hvítum hnoðrabolta. Blár liturinn hef-
ur óhjákvæmilega tengingu við bláa
byltingu franska listamannsins Yves
Klein, sem á sjötta áratugnum hélt
því fram að það eina sem gæti gefið
okkur sýn á tómleika alheimsins væri
djúpur blár litur. Klein dvaldi um ára-
bil í Japan þar sem hann nam júdó,
stundaði Zen-hugleiðslu og lærði þau
fræði. Tenging á milli fígúru Miko-
hami og bláu byltingar Klein er því
ekki einungis í litnum heldur skerast
sömu menningarlegu hefðir hjá báð-
um listamönnunum.
Í öðrum og stærri sýningarsölum
hefur Mikohami bæði sýnt stórar blá-
ar fígúrur og mikinn fjölda af litlum
fígúrum sem allar halda á hvítum
hnoðra. Í ganginum er aðeins þessi
eina til sýnis ásamt gulu ávölu formi
með litlum öngum sem líkist helst
svampi úr djúphafinu og lágmyndum
sem sýna þvögu af blómum. Verkin
virðast öll sköpuð í heimi barnslegra
ævintýra og drauma líkt og tíðkast í
japanskri alþýðulist og hefur í dag
fest sig í sessi hjá japanskri teikni-
myndagerð, eins og við þekkjum í
Pokemon-myndunum sem farið hafa
sigurför um heim allan. Fegurð verk-
anna er svo í lítillæti og auðmýkt sem
djúpt er í japanskri menningu og
finna má í nosturlegum smáblómum
Mikohami, sem líkja má við lítil og vel
klippt bonsai-tré.
Það er einkennilegt að heimagallerí
eins og Gallerí Gangur skuli hafa al-
þjóðlegri sýningarstefnu en önnur
gallerí á Íslandi. Þykir mér það oft
miður að aðstæður geri Ganginn að
frekar lokuðu kúlt-galleríi þar sem al-
menningur á ekki greiðan aðgang að
sýningum, sérstaklega þegar sýning-
ar sem þessi eru í boði, þar sem verk-
in geta bæði höfðað til listþenkjandi
manna og þeirra sem lítið spá í listir
en hafa bara ánægju af fögrum hlut-
um. Vissulega er öllum frjálst að
hringja í Helga Þorgils og Margréti
Lísu, sem reka galleríið heima hjá
sér, og óska eftir að fá að skoða sýn-
ingu. En fæstir sem ekki þekkja til
hjónanna virðast reiðubúnir til að
gera það.
Smágerð fegurð
Blá fígúra eftir Kazumasa Miko-
hami.
MYNDLIST
Gallerí Gangur
Galleríið er opið eftir samkomulagi.
Sýningu lýkur í árslok.
LEIRSKÚLPTÚRAR OG LÁGMYNDIR
KAZUMASA MIKOHAMI
Jón B. K. Ransu
VEFNAÐARLISTAKONAN
Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson hefur
verið búsett í Bandaríkjunum um
árabil og sýnt þar fjórar einkasýn-
ingar. Hún sýnir nú í fyrsta sinn hér á
Íslandi, í Galleríi Sævars Karls. Sýn-
inguna nefnir hún „Landslagsbrot“
og eru fyrirmyndir hennar teknar úr
íslenskri náttúru. Verkin eru 11 tals-
ins. Þau eru unnin úr silki og á all-
langt ferli sér stað í gerð eins lista-
verks, eða frá því að skissa er gerð í
tvíriti, þræðir lagðir í uppistöðu og
ívaf, þræðir málaðir með silkilitum,
og myndin síðan ofin. Listakonan
meðhöndlar veflistaverkin á afar
malerískan hátt þar sem litaðir þræð-
irnir skerast svo að í fjarlægð er eins
og myndin hafi verið máluð í láréttum
og lóðréttum rákum. Virðast litir
jafnvel flæða saman svo halda mætti
að fyrirmyndir Hildar væru í raun
landslagsmálverk en ekki sjálft
landslagið. Hér er um afburðaþroska
í handverki að ræða sem auðvelt er að
dást að, en sambærilegan þroska er
ekki að finna í myndrænni túlkun
listakonunnar. Að vissu leyti mætti
sjá myndefnið og stílbrigðin sem
póstmóderníska „íroníu“ í anda ull-
arteppa eftir Rosemary Trockel eða
Delft-bláa gaskúta belgíska lista-
mannsins Wim Delvoy, en ég sé ekki
betur en að listakonunni sé fullkom-
lega alvara með myndræna túlkun
sína, sem er frekar skammt á veg
komin. Þau verk sem eru á mörkum
hlutbundinna og óhlutbundinna
mynda, eins og „Eyjar“, „Á“ og
„Foss“ eru þó athyglisverðari en önn-
ur, þar sem myndefnið sjálft vekur
einhverja forvitni, en á heildina eru
myndirnar sundraðar í ólíkum mód-
ernískum stílbrigðum.
Ofin málverk
MYNDLIST / HANDÍÐ
Gallerí Sævars Karls
Sýningin er opin á verslunartíma
og lýkur 5. desember.
VEFNAÐARLIST
HILDUR ÁSGEIRSDÓTTIR JÓNSSON
„Eyjafjallajökull“ eftir Hildi Ásgeirsdóttur Jónsson.
Jón B.K. Ransu
LAUGAVEGI 53,
SÍMI 551 4884
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Kápur stuttar og síðar
Fullt af tilboðum
Ullarjakkar frá kr. 7.900
Mokkakápur frá kr. 9.990
Komið og
skoðið úrvalið
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
Þjónustudeild - Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegi 2, 101 Reykjavík, 551 5500, 551 7800
hfi@islandia.is www.islandia.is/~heimilisidnadur
Opið mánudaga og fimmtudaga kl. 10-18
og langan laugardag kl. 13-17.
Þjóðbúningar
Allt í þjóðbúninga, skyrtu og svuntuefni,
útsaumspakkningar o.fl.
Námskeið í þjóðbúningasaum, baldýringu,
knipli, útsaumi, þæfingu, tóvinnu o.fl.
Gjafabréf - tilvalið til jólagjafa
Laugavegi 29, s. 552 4320
Tifsagir 4 gerðir
Mikið úrval
af handverksbókum
Jól
Laugavegi 54, sími 552 5201
í FLASH
Gallabuxur
áður 7.990
nú 3.990
Stærðir 36-48
Bolir - toppar
50%
afsláttur
Aðeins þessa helgi
Langur laugardagur