Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 35 líkanið i verið ólanna ur sem ikið og „Ég er hús þar annan di ein- ar væri skólan- mönn- ét. iknilík- gum til kvæmt MK átt r, fyrir r sam- . Í fjár- 2003 er 3 millj- K. Mar- ðað við di hins rja út- þessum ljós og mennta- a við- er búið tvö ár að end- ð koma þarfir, “ sagði ri hins r. ækkar skóla- s á Ak- i boðið rknám. r mun Dýrasta dýrara lti Jón iknilík- d. hefði Þessi breyting hefði haft mikla þýðingu fyrir VMA og raunar hefði rekst- urinn verið í jafnvægi miðað við endurskoðað reiknilíkan ef fram- lög til skólans hefðu ekki verið skert um 24,5 milljónir í fjárlaga- frumvarpinu fyrir næsta ár. „Við sjáum því ekki fram á bjart- ari tíma nema að mjög litlu leyti. Hallareksturinn verður viðvar- andi. Nú er komið að því að skera burt þær deildir sem eru okkur dýrastar óháð því hvað atvinnulífið á svæðinu segir. Við getum ekki lengur staðið undir þessum hug- sjónarekstri. Þar vil ég nefna sjúkraliðabraut, sem við höfum rekið í góðri samvinnu við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri, en hún er dýr í rekstri. Ég vil einnig nefna vélstjórnarbrautina. Sú deild er ágætlega myndug hvað varðar fjölda nemenda, en er dýr í rekstri, sérstaklega þriðja og fjórða stig vélstjóra,“ sagði Hjalti. Hjalti sagði að sú stefna sem hefði verið rekin þýddi að nám í iðngreinum færðist í æ ríkari mæli til Reykjavíkur. Nemendur sem ekki ættu kost á námi við sitt hæfi í heimabyggð sinni færu til náms í Reykjavík og fæstir kæmu til aftur til baka. Þetta mál væri því að hluta til byggðamál. Búnaður afskrifaður á 24 árum Lárus H. Bjarnason, skóla- meistari Menntaskólans við Hamrahlíð, hefur tekið þátt í að endurskoða reiknilíkanið. Hann sagði að upphaflega hefði verið ætlunin að ljúka vinnunni á næsta ári og á síðasta fundi starfshóps, sem vann að málinu, hefði ekki ver- ið komið samkomulag um alla þætti málsins. Engu að síður hefðu fjárveitingar í fjárlagafrumvarp- inu verið ákveðnar samkvæmt breyttu líkani. Hins vegar hefði ekki verið sett aukið fjármagn í framhaldsskólana, en það hefði þurft að gera til að kosta nauðsyn- legar breytingar á reiknilíkaninu. Lárus sagði að þótt margt væri til bóta í nýju líkani væri ýmislegt sem hægt væri að gagnrýna. Hann nefndi sem dæmi að reiknilíkanið gerði ráð fyrir að afskriftarpró- senta tækja og búnaðar væri ákveðin 4%, sem þýddi að gert væri ráð fyrir að hvert tæki og annar búnaður entist í 24 ár. Hann sagði einnig að fámennir skólar gætu ekki uppfyllt kröfur líkansins um nýtingu á skólahús- næði. Þá væri víða skortur á kennurum sem þýddi að yfir- vinna væri meiri en líkanið gerði ráð fyrir. Lárus tók fram að þrengt væri að framhaldsskólastiginu í heild og bóknámsskólanir væru ekki af- lögufærir. Hann sagði að nemend- um í framhaldsskólum hefði fjölg- að um 400 í haust samkvæmt tölum framhaldsskólanna, en fjármála- ráðuneytið virtist bera brigður á þetta og viðurkenndi aðeins fjölg- un um 80. Fjárveitingar væru ákveðnar í samræmi við að nemum fjölgaði um 80 en ekki 400. Lárus sagði að menn yrðu að horfast í augu við kostnaðinn af rekstri verkmenntanáms. „Stjórn- málamenn eiga að taka ákvörðun um hvort þetta nám er í boði. Það er þeirra hlutverk að setja leik- reglur um hvers konar samfélag þeir vilja búa okkur. Það á ekki að vera á verksviði skólameistara að ákveða hvort boðið er upp á þetta nám,“ sagði Lárus. Í nýlegri skýrslu Ríkisendur- skoðunar um ríkisreikning 2001 er fjallað um rekstur framhaldsskól- anna. Bent er á að sumir fram- haldsskólar hafi verið reknir með tapi ár eftir ár. Ríkisendurskoð- andi minnir í þessu sambandi á ákvæði 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en þar segir: „Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðun- andi getur ráðherra veitt forstöðu- manni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda van- rækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.“ ristján nta- að t m erk- gna kur- ri og koð- ri. Fjárveitingar ekki í samræmi við fjölgun UNDANFARIN ár hafaverið ævintýri líkust áBifröst að mati RunólfsÁgústssonar rektors Viðskiptaháskólans. Hann og aðrir sem tóku til máls í gær við vígslu nýs skólahúss á Bifröst lögðu áherslu á hina undrahröðu upp- byggingu háskólans og staðarins í heild og hve mikið nýja skólabygg- ingin eigi eftir að breyta aðstöðu nemenda. Margir hefðu komið að verki, skýr stefna mörkuð og unnið að settum markmiðum af einurð og krafti. Fjöldi fólks var viðstaddur vígsl- una en jafnframt voru nýir nem- endagarðar og kaffihús formlega tekið í notkun í gær. Fyrr í haust var opnaður nýr leikskóli á Bif- röst, verslun og bankaafgreiðsla. Athöfnina setti Guðjón Auðuns- son, formaður stjórnar Við- skiptaháskólans. Að því loknu tók Runólfur Ágústsson rektor til máls. Hann vitnaði í gamlan Borg- firðing í upphafi ræðu sinnar sem hann hafði heyrt segja fyrir skömmu að það stykki enginn hærra en hann hugsaði. Og víst er að hugsað hefur verið hátt ef marka má þann skamma tíma sem tók að byggja nýja skólahúsið. Upphafið má rekja til þarfagrein- ingar sem gerð var vorið 2001, en nú í lok árs 2002 hefur nýja skóla- húsið þegar verið tekið til notk- unar. Húsið var hannað af arkitekta- stofunni Studio Granda en Línu- hönnun sá um burðarþolshönnun, Fjarhitun um loftræstingu og pípulagnir, Verkfræðistofa Jó- hanns Indriðasonar um rafmagns- hönnun og Línuhönnun um hljóð- vist. Verktaki var Sólfell ehf. Ellefu mánuðir frá fyrstu skóflustungu Björn Bjarnason, þáverandi menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að húsinu fyrir réttum 11 mánuðum. Framkvæmd- ir hófust um miðjan janúar á þessu ári og þeim lauk í gær kl. 14 eins og Runólfur komst að orði. Kostn- aður við bygginguna nemur 210 milljónum króna, eða 180 þúsund kr. á fermetra og er þá miðað við fullbúið hús með tækjum og bún- aði. Húsið er 1.190 fermetrar að stærð. Runólfur þakkaði öllum sem að byggingunni komu fyrir vel unnin störf og afhenti síðan Hannesi Heiðarssyni yfirsmiði ferð fyrir tvo til Evrópuborgar að eigin vali, því eins og Runólfur sagði vildi skólinn leggja sitt af mörkum til að hann og konan hans gætu eytt tíma saman. Konan hans hefði varla séð hann í heilt ár, því hann hafi alltaf verið til staðar á meðan á byggingunni stóð. Runólfur vildi einnig sérstaklega þakka þeim Birni Bjarnasyni, fyrr- verandi menntamálaráðherra, og Guðmundi Bjarnasyni, forstöðu- manni Íbúðalánasjóðs, sem hann sagði hafa stutt dyggilega við alla uppbyggingu skólans og haft trú á henni. Ráðherrar og þingmenn upp- teknir við atkvæðagreiðslu Ráðherrar og alþingismenn sem ætluðu að vera viðstaddir vígsluat- höfnina komust ekki fyrr en í lok hennar eða á eftir vegna afgreiðslu aukafjárlaga á Alþingi en Guð- mundur Árnason ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins flutti ræðu Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra. Í ræðunni kom m.a. fram hve starfsemi og mannlíf væri orðið fjölbreytt á Bifröst í kjölfar þess- arar miklu uppbyggingar. Sérstak- lega vekti athygli hversu tækni- væddur skólinn væri og næði sú athygli út fyrir landsteinana. Hvatti Guðmundur f.h. mennta- málaráðherra skólann til að halda áfram á þeirri braut. Einnig kom fram að Viðskiptaháskólinn á Bif- röst væri einstakt dæmi um efl- ingu skólastarfs og góð tengsl við atvinnulífið. Þá hefði komið í ljós að þéttbýli væri ekki forsenda fyr- ir uppbyggingu slíks menntaset- urs. Að lokum benti hann á að engum dyldist hversu víðtæk áhrif skólinn hefði á menntun og upp- byggingu á Vesturlandi. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur Borgarfjarðarprófasts- dæmis, blessaði húsið og flutti Bif- restingum árnaðaróskir og óskaði þeim velfarnaðar í nýja húsinu. Þá léku þau Guðrún Birgisdóttir á flautu og Pétur Grétarsson á gítar fyrir gesti. Afhenti bókasafn Frú Guðlaug Einarsdóttir sté því næst í pontu og afhenti form- lega bókasafn Guðmundar Sveins- sonar, fyrrverandi rektors á Bif- röst. Því hefur verið komið fyrir í sérstöku herbergi í húsinu, svo- kallaðri Guðmundarstofu, sem Guðlaug opnaði formlega við þetta tækifæri. Magnús Árni Magnússon aðstoðarrektor las ræðu Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra í fjarveru hans, en í ræðunni minntist Jón Guðmundar sem var rektor er hann stundaði nám á Bif- röst. Árnaðaróskir fluttu einnig Bárður Örn Gunnarsson, formaður Skólafélagsins á Bifröst, fyrir hönd nemenda og Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, fyrir hönd stjórnar háskólasamfélagsins, en viðstaddir voru auk hans rektorar allra háskólanna á Íslandi nema Háskólans á Akureyri, en hann var forfallaður. Þá afhenti Gísli Kjart- ansson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu skólanum málverk að gjöf, en það málaði Einar Ingi- mundarson af Bifröst áður en nú- verandi uppbygging hófst. Þá af- henti Sigurður Guðmundsson hjá Sólfelli skólanum styttu í þakklæt- isskyni fyrir gott samstarf. Að athöfninni lokinni var gest- um boðið að þiggja veitingar ýmist í gamla hátíðarsalnum þar sem leikin var dinnertónlist eða í nýja Kaffihúsinu þar sem jafnframt var hægt að hlusta á jasshljómsveit spila. Fjölmörg börn komu saman eftir athöfnina í nýja salnum, Hriflu, þar sem þau fengu að horfa á teiknimynd á stóru tjaldi. Nýtt hús á Bifröst ger- breytir aðstöðu nemenda Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Guðlaug Einarsdóttir og Runólfur Ágústsson eru hér í Guðmundarstofu. STEVE Christer arkitekt, sem ásamt Margréti Harð- ardóttur og samstarfsfólki á Studio Granda hannaði nýju skólabygginguna á Bifröst, skýrði fyrir gestum atburðarásina. Vakti erindi hans mikla kátínu enda var létt yfir Steve og lét hann ýmislegt flakka. Hann lýsti samskiptum sínum við Runólf Ágústsson rektor sérstaklega skemmtilega og sagði m.a. að Runólfi hefði fundist fyrstu tillögur að byggingunni „leið- inlegar“. Það hefði hins vegar bjargað þeim að honum hefði fundist tillögur frá öðrum leiðinlegar líka. „Það gekk á ýmsu,“ sagði Steve. „Og eftir nokkrar leiðinlegar tillögur og eftir fjórðu tilraun til hönn- unar á húsinu hafði Runólfur misst þolinmæðina. Hugmyndir hans voru að byggja til framtíðar með möguleikum á breytingum á húsnæðinu eftir þörfum. Hann bauð Birni Bjarnasyni að koma og taka skóflu- stungu að byggingunni en þá voru engar teikningar tilbúnar. Ekki fallegt, Runólfur,“ sagði hann. Steve sagði að Runólfur væri mjög metnaðarfullur rektor. „En það kostar mikið að vera metnaðarfullur en ég get sagt ykkur að í raun og veru er veskið hans Run- ólfs mjög lítið.“ Steve hrósaði iðnaðarmönnunum mik- ið og sýndi myndir af þeim þar sem þeir voru að vinna úti í glaðasólskini á stuttermabol. „En þeir eru ekki alltaf að vinna í sól og á stuttermabol því þeir unnu líka í grenjandi rigningu og í frosti.“ Að lokum sagði hann: „Það sem ég lærði af þessu verkefni er að mikið traust og mikil trú og góð samvinna getur flutt fjöll.“ Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Steve Christer arkitekt flutti ávarp við vígsluna í gær. Ekki fallegt, Runólfur! ENGIN niðurstaða varð af fundi háskólarektora á Bif- röst í gær. Þar var fjallað um ágreining sem kom upp eftir að Páll Skúlason, rektor Há- skóla Íslands, sendi mennta- málaráðherra tillögur nefnd- ar um breytingu á lögum skóla á háskólastigi. Hafa nokkrir rektorar vísað því á bug að HÍ sé eini rannsókna- háskólinn á Íslandi og hafa m.a. sagt að með engu móti sé hægt að skilja rannsókna- starfsemi í frá kennslu. Runólfur Ágústsson sagði að umræður á fundinum hefðu verið opnar og hreinskilnar en engin niðurstaða hefði fengist. Engin nið- urstaða á fundi rekt- ora háskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.