Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÆTLI það hafi ekki verið haustið 1985 þegar undirritaður átti, einu sinni sem oftar, spjall við sómamann- inn og þáverandi gatnamálastjóra, Inga Ú. Magnússon. Hann sagði mér frá áhuga sínum um að reyna að fækka nagladekkjum í vetr- arumferðinni í ljósi þeirra skemmda á götum borgarinnar, sem þau valda. Ég man að fyrstu viðbrögð mín voru blendin, þetta hljómaði í mínum eyr- um eins og að taka kútinn af ósyndu barni, … bara af því. Röksemda- færslur fyrrverandi gatnamála- stjóra, sem m.a. innihéldu þær full- yrðingar að ónegld vetrardekk væru öruggari kostur en árs- eða tveggja ára gömul nagladekk, voru á undan sinni samtíð. Það hefur síðan komið rækilega í ljós, og nú síðast í mjög nýlegum rannsóknum og prófunum, að fyrrverandi gatnamálastjóri hafði rétt fyrir sér. Ársgamalt nagladekk getur verið stórhættulegt. Falska ör- yggið liggur í því að þegar naglarnir fara að detta af, einn af öðrum, hefur grip dekksins breyst með þeim hætti, að við hemlun í glerhálku, leit- ar bíllinn til hliðar og getur snúist. Og eins og ég met málið er það ör- yggið við hemlun, sem er ástæða þess að flestir kjósa nagladekk. Þróun í dekkjaframleiðslu síðan 1985 hefur verið gríðarleg og þeir sem fylgjast eitthvað með Formúlu 1 vita um mikilvægi dekkjanna, sem er eini snertiflötur bílsins við götuna. Þar hafa dekkjaframleiðendur oft haft úrslitaáhrif á gengi kappanna í keppnum. Bridgestone-menn sem hafa þjónustað heimsmeistarann óumdeilda hófu framleiðslu á svo- kölluðum loftbóludekkjum (Blizzak) fyrir fáum árum og eru enn að þróa þau. Árangur þessara dekkja í próf- unum setur menn hljóða og sú varð raunin í íslenskri rannsókn (RB o.fl.) sem gerð var. Loftbóludekkin eru með sambærilega hemlunarvega- lengd og nýnegld nagladekk. Það er eitt að skoða niðurstöður rannsókna í súluritum og línuritum og annað að prófa þessi loftbóludekk. Mín reynsla var með þeim hætti, að síðasta vetur ég ákvað að setja þau á „konubílinn“ til reynslu, en sjálfur hélt ég mér við gömlu nagla- dekkin, öryggið, frá því í hitteðfyrra. Þrátt fyrir allar gefnar upplýsingar um loftbóludekkin lét ég þau koma mér á óvart. Þvílík undradekk! Hvort sem var um hemlun að ræða eða að spyrna af stað í hálku eða kafsnjó leið mér strax vel og öryggis- tilfinningin var raunveruleg. Ég var sannfærður. Þessi ákvörðun mín kostaði að sjálfsögðu baráttu um „konubílinn“ og greip ég öll tækifæri sem mér buðust til þess að nota hann, frekar en að hlusta á nagla- sönglið í mínum. Ánægjan með dekk- in gerði það að verkum, að það var ekki fyrr en nokkrum vikum seinna sem ég áttaði mig á því að ég var ekki einungis að bæta öryggi fjölskyld- unnar og gera aksturinn ánægju- legri. Ég var að spara bensínkostn- aðinn, ég var að spara malbikið og það sem meira er, ég lagði mitt af mörkum til þess að halda andrúms- loftinu hreinu. Já – þvílík undradekk! RAGNAR ÓSKARSSON, Álfaskeiði 92, Hafnarfirði. Undradekkið Frá Ragnari Óskarssyni: ÞAÐ er reglulega gaman að mótmæla svona bara sér til dægrastyttingar. Ég er nefnilega einn af þessum „sjálf- skipuðu hobby-mótmælendum“ sem maður að nafni Jóhann Þór Hopkins ræðst á í grein sinni hinn 13.11. í Morgunblaðinu. Ég er kennari í meira en fullri stöðu og vinn í fríum mínum sem leið- sögumaður svo kaupið dugi til að hafa í sig og á. Ég á þar af leiðandi ekki mikinn afgangstíma til að „ausa óhróðri“ daginn inn og daginn út yfir þetta „góða og umhverfisvæna“ fyr- irtæki að nafni Landsvirkjun. Samt langar mig að svara þessu lesenda- bréfi. Ég ætla að taka fram að ég hef komið á alla þessa staði sem deilan snýst um og veit um hvað ég er að tala. Ég forðast að ferðast til meng- aðra stórborga, spara rafmagn þar sem ég get og fer mínar ferðir á hjóli. Hvar tekur Jóhann annars alhæfing- arnar sem birtist í bréfi hans? En snúum okkar að Landsvirkjun. Ég er mjög sammála þessum ágæta manni um að þetta ríkisfyrirtæki eigi að sjá landsmönnum fyrir yl og birtu. Mjög þarft og gott mál! Mín ósk er ekki að hverfa aftur inn í moldarkofa- tíðina. Ef Landsvirkjun myndi nú halda sig við að framleiða rafmagn handa landsmönnum á hagstæðu verði! En þetta fyrirtæki er fyrst og fremst að búa til ódýrt rafmagn handa erlendum stórfyrirtækjum á gjafaverði. Það er að vaða inn á hvaða landsvæði sem er til að útvega verk- efni handa stórum verktökum, til dæmis Íslenskum aðalverktökum. Slík fyrirtæki fitna eins og púkinn á fjósbitanum undir því yfirskini að bjarga landsbyggðinni. Á að skuld- setja íslenska þjóðina upp fyrir haus með framkvæmdum sem er ekki vitað um hvort borgi sig nokkurn tíma? (Ekki má gefa upp rafmagnsverð sem Alcoa ætlar að borga, hvers vegna skyldi það vera?) Aldrei get ég skilið af hverju rík- isfyrirtækið Landsvirkjun á að sinna verkefnum eins og að leggja vegi um hálendið, styðja umhverfismál eins og Landgræðslu, rétta framlög til menn- ingarmála, varla er hægt að opna nokkurn bækling án þess að sjá styrktarlínu frá Landsvirkjun. Þetta eru mál sem ríkinu ber að fjármagna beint. Ekki þarf Landsvirkjun að gefa þarna styrk á fölskum forsendum! Þetta er ríkisfyrirtæki, fyrirtæki landsmanna, ekki fyrirtæki erlendra auðhringja sem þarf að bæta sína ímynd á kostnað ríkisins. Gætum við fengið rafmagn frá Landsvirkjun fyrir okkar eigin þarfir hér á landi á sanngjörnu verði? Ekki nenni ég að borga hæsta rafmagns- verð í heimi til að styðja erlend stór- fyrirtæki. Vilt þú þetta, Jóhann? ÚRSÚLA JÜNEMANN, leiðsögumaður og kennari. Tómstundamótmæl- endur og Landsvirkjun Frá Úrsúlu Jünemann:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.