Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 57
Á SAMA tíma og gengið er til góðs og
íslenskt fé er sent til erlendra fátæk-
linga þeim til hjálpar, sem er í sjálfu
sér gott mál, þá líða Íslendingar sjálf-
ir fyrir fátækt á Íslandi án teljandi
hjálpar. Því datt mér í hug hvort þess-
ar frábæru hjálparstofnanir gætu
ekki gengið til góðs fyrir þessi jól fyr-
ir nauðstadda á Íslandi, og milljarð-
arnir sem munu safnast yrðu notaðir
til að borga húsaleiguna næsta árið
fyrir þá sem neyðast til að leigja hjá
borginni, þ.e. Félagsbústöðum. Það
kæmi sér mjög vel, því jólagjöf borg-
arinnar (Félagsbústaða) er hækkun á
húsaleigu 1. desember, sem mér
skilst að sé um 6%, eða kringum 1.900
kr., sem kallast jöfnunargjald. Og eft-
ir 1. mars hækkar húsaleigan um 12%
ofan á hækkunina 1. desember.
Þar sem enginn hefur talað um
jöfnunargjald eða hækkun á þeim
lágu launum eða bótum sem fólkið lif-
ir á í dag er útséð með að það verða
ekki margir sem geta staðið í skilum
með húsaleiguna þegar fram í sækir.
Því standa flestir frammi fyrir
þessari spurningu:
Á ég að borga reikninginn eða á ég
að fá að borða?
Er einhver í vafa um hvort yrði
gert?
Og þá eiga þeir sem lenda í skuld
von á að hið harðsvíraða innheimtu-
fyrirtæki sem sér um innheimtu fyrir
borgina með bréfum og símhringing-
um, og kannski heimsóknum, láti til
skarar skríða og hjálpi fátæklingum
út fyrir dyrnar.
Það má vera að fólk geti borið
hækkunina 1. desember í stað þess að
halda jól eða reyni að komast inn til
foreldra eða barna sinna eða annarra
ættingja í jólamatinn, því vitað er að
fáir eiga til fyrir mat til næstu mán-
aðamóta og líða því hungur góðan
part af mánuðinum þar sem laun eða
bætur duga engan veginn og hafa
ekki dugað hingað til. Talað er um að
fátæktarmörk séu um hundrað þús-
und krónur á mánuði, en þeir verst
settu tóra á 60–70 þúsund krónum á
mánuði.
Eins og allir vita er það lenska að
koma með hækkanir og erfiðar rukk-
anir í jólamánuðinum. En eftir 1.
mars er óvíst að margir standi í skil-
um og þar af leiðandi lendi í skuld við
borgina (Félagsbústaði) sem ég hélt
að væri skyldug samkvæmt stjórnar-
skrá til að hjálpa fátækum. Það er víst
ekki lengur í gildi, eða hvað? Og svo
er það hitt að fátækt er ekki viður-
kennd á landinu.
En hvað verður um fólkið sem
verður sett út fyrir dyrnar eftir 1.
mars, því vitaskuld verður að rýma
húsnæðið og hætta að safna húsa-
leiguskuldum því peningarnir vaxa
ekki á trjánum hjá okkur hvað mikið
sem hækkað er. En hvert á fólk að
fara? Við þeirri spurningu er ekki
hægt að fá svar í dag. Ekki heldur að
sjá hvaða tilgangi hækkunin þjónar,
öðrum en þeim að koma sem flestum í
meiri vandræði en þeir eru í fyrir.
Tekið er fram í bréfinu sem við
fengum að verið sé að jafna leiguna
svo allir borgi sömu leigu og búa
þannig til réttlætismál handa okkur
að gleypa við, en hvað með hækk-
unina 1. mars, er hún líka réttlætis-
mál?
Kannski er ætlast til að Íslending-
ar taki upp alla erlenda siði og þar á
meðal að búa á tilteknum svæðum í
pappakössum og tjöldum og ganga
um göturnar betlandi.
Er það ekki að sýna hagvöxt og
vera fjölþjóðlegur?
Gleðileg jól.
HULDA HELGADÓTTIR,
Fannarfelli 4.
Hvar stöndum við?
Frá Huldu Helgadóttur:
FRÉTTIR
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá flug-
félaginu Atlanta í tilefni af um-
ræðu að undanförnu um ramma-
samning utanríkisráðuneytisins við
Atlanta og Flugleiðir:
„Vegna misvísandi umræðna
undanfarna daga um rammasamn-
ing utanríkisráðuneytis og flug-
félaganna Atlanta og Flugleiða
þykir forsvarsmönnum Atlanta
rétt að taka eftirfarandi fram:
Flugfélagið Atlanta hefur aldrei
flogið inn á átakasvæði eða með
vopnabúnað til beinna hernaðarað-
gerða og um það hefur engin
stefnubreyting orðið. Ekki undir
neinum kringumstæðum væri flugi
fyrir hernaðar- eða varnarbanda-
lag og borgaralegu flugi Air Atl-
anta blandað saman.
Sérstakar reglur gilda um flutn-
ing vopna og skotfæra til hernaðar.
Samræmdar reglur flugmála-
stjórna í Evrópu segja til um
hvernig skuli staðið að slíkum
flutningum:
„JAR-OPS 1.065 Flutningur
vopna og skotfæra til hernaðar.
a) Flugrekandi skal ekki flytja
vopn eða skotfæri til hernaðar
flugleiðis nema fyrir liggi sam-
þykki allra hlutaðeigandi ríkja.
b) Flugrekandi skal sjá til þess
að vopn eða skotfæri til hernaðar:
séu sett í flugvélina á stað sem
farþegar hafa ekki aðgang að með-
an á flugi stendur; og 2) séu óhlað-
in, ef um skotvopn er að ræða,
nema öll hlutaðeigandi ríki hafi
samþykkt, áður en lagt er í flug, að
flytja megi slík vopn og skotfæri til
hernaðar við aðstæður sem eru að
einhverju eða öllu leyti frábrugðn-
ar því sem um getur í þessum lið.
c) Flugrekandi skal sjá til þess
að áður en lagt er í flug fái flug-
stjóri nákvæma vitneskju um vopn
eða skotfæri til hernaðar sem fyr-
irhugað er að flytja og hvar þau
verða geymd um borð.“ (Stjórn-
artíðindi B109 – Nr. 780–782, 2001)
Eins og sjá má á ofanskráðum
reglum þá er ekki hægt að taka
einhliða ákvörðun um svona flutn-
inga. Öll hlutaðeigandi ríki verða
að samþykkja aðgerðina, þ.e.a.s.
landið sem farið er frá, land eða
lönd sem flogið er yfir og loks land
það sem ákvörðunarstaðurinn er á.
Atlanta hefur í áranna rás
stundað flutninga á margs konar
hjálpargögnum eins og t.d. fyrir
Rauða krossinn svo og flutninga á
friðargæsluliðum fyrir Sameinuðu
þjóðirnar. Friðargæsluliðum fylgir
gjarnan léttur vopnabúnaður og þá
er í einu og öllu farið eftir of-
anskráðum samræmdum Evrópu-
reglum. Flutningur hermanna til
æfingabúða víða um heim er al-
gengur og Atlanta hefur flogið fyr-
ir breska varnarmálaráðuneytið
undanfarin ár til Oman, Kanada og
Bandaríkjanna. Loks hefur Atlanta
flogið með hjálpargögn til Taskjent
og Islamabad fyrir Rauðakross-
deildir t.d. í Danmörku og til Kab-
úl með hjálpargögn. Atlanta hefur
aldrei flogið til átakasvæða.
Hinn margræddi rammasamn-
ingur er eins og nafnið gefur til
kynna aðeins „rammi“ eða upptaln-
ing á atriðum sem hafa skal í huga
komi til þess að ríksstjórnin leigi
flugvél af Flugfélaginu Atlanta.
Samingurinn er „opinn“ eins og
sagt er. Hann fjallar um greiðslu-
fyrirkomulag, hvernig fara skuli
með farþegaskatta, virðisauka-
skatt, þjónustugjöld, hótel, máltíð-
ir og flutninga á farþegum í flugi
og á jörðu niðri.
Almenni kaflinn er um skjöl svo
sem vegabréf, bólusetningarvott-
orð og önnur ferðagögn. Sömuleið-
is um tafir vegna veðurs, náttúru-
hamfara, borgarastyrjalda o.s.frv.
Samningurinn vísar til Varsjár-
samkomulags frá 1929 um farþega-
flutninga og Haag-viðaukans frá
1955 um ábyrgðir. Þá er fjallað um
meðferð farangurs og flutnings-
skilmála. Samningurinn segir til
um valdsvið flugstjórans og
ákvarðanir hans um framkvæmd
flugsins, hleðslu flugvélarinnar,
fjölda farþega og magn farangurs.
Viðauki A – er skrá fyrir vænt-
anlega flugvél.
Viðauki B – er um flugáætlun og
flugnúmer.
Viðauki C – er um þjónustuþætti
og skuldbindingar.
Í þessum samningi er hvergi
fjallað um flutning vopna eða skot-
færa til hernaðar. Komi slík ósk
frá íslenskum stjórnvöldum á síð-
ari stigum vísast til áðurnefndra
samræmdra Evrópureglna um
slíka flutninga og sjálfstæðs
ákvörðunarmats forráðamanna Air
Atlanta.“
Tilkynning frá flugfélaginu Atlanta
Ekki hefur verið flogið
inn á átakasvæði
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Bjóðum fallegan fatnað
á konur
í stærðum 34-46
DKNY
Gerard Darel
Virmani
BZR
Thelin
Seller
Vent Couvert
Í tilefni dagsins
Privat Label peysur
áður 8.900
nú 5.900
eva
Laugavegi 91, 2. hæð,
sími 562 0625
LANGUR LAUGARDAGUR OPIÐ 11.00-18.00
Járnasett Betra ver›
Ozone járnasett, 3-pw 14.000
MacGregor DX, 3-pw 17.900
MacGregor MT 3-pw 29.900
MacGregor VIP 3-pw 54.900
Trékylfur
PING driver 29.900
Titleist 975J driver 42.500
Ozone 7-tré /grafít 4.000
Pútterar
PING pútter, standard 8.900
PING pútter, Isophur 13.900
Ozone pútter 1.500
Pokar og kerrur
Fer›apoki 3.990
Fer›apoki á hjólum 4.990
Kerrupoki 9" 5.000
Bur›arpoki-lítill 3.000
Unglingapokar 1.500
Ál-kerra 4.900
Anna›
FootJoy kvennaskór 9.900
Púttbraut 6.5 fet 3.900
Unglingasett m.poka 12.900
Unglingakylfur 1.500
Flís-vindvesti 7.990
Golf boltar/ 15 stk 1.500
Vei›arar 15´ 2.500
Langar flig a› prufa!
• D‡rasta (75.000) driverinn?
• D‡rasta (33.000) pútterinn?
• Stærsta (500cc) kylfuhausinn?
MIKIÐ ÚRVAL
JÓLAGJAFA
Öllum f
rjáls þá
tttaka
í golfle
ik Golfb
úðarin
nar
Spenna
ndi ver
ðlaun
Sími: 565 1402 / Gsm: 898 6324
Netfang: golfbudin@golfbudin.is
S T R A N D G Ö T U , H A F N A R F I R ‹ I
OP I Ð : 1 1 - 1 9
Jó
lal
eiku
r
G
ra
fí
sk
a
vi
n
n
u
st
o
fa
n