Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Ludvig
Andersen og Cielo di
Biscaglia og út fara
Mánafoss og Skógafoss.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17 fóta-
aðgerð, kl. 13–16 frjálst
að spila í sal.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: kl. 10–12 bókband,
línudans kl. 11. Miðasala
hafin á jólahlaðborð 12.
des. Uppl. í síma
586 8014 e.h.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13 op-
in verslunin. Bingó.
Félagsstarfið Furugerði
1. Í dag kl. 14 er jóla-
bingó. Allir velkomnir.
Aðventuskemmtunin
verður haldin 5. des nk.
kl. 20. Allir velkomnir.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir, kl.
14 brids og spila-
mennska, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14. Jóla-
bingó í dag kl. 13.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 11 leikfimi,
kl. 13. „Opið hús“ spilað á
spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag:
Tréútskurður kl. 13,
brids kl. 13.30, pútt í
Hraunseli kl. 13.30.
Námskeið í leirmótun
fyrir byrjendur kl. 13,
laus pláss. Dansleikur í
kvöld kl. 20.30. Caprí tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ.
Föstudagur: Félagsvist
kl. 13.30 síðasta skipti
fyrir jól.
Áður auglýstum fundi
nk. laugardag með al-
þingismönnum Reykja-
víkur verður frestað þar
til eftir áramót.
Jólafagnaður í Ásgarði,
Glæsibæ, miðvikudaginn
4. desember nk. og hefst
kl. 20.
Hugvekju flytur Guðrún
Ásmundsdóttir. Karla-
kórinn Kátir karlar syng-
ur.
Létt jólalög verða sungin
undir stjórn Sig-
urbjargar Hólmgríms-
dóttur. Danshópur Sig-
valda sýnir línudans og
dansað á eftir.
Ljósaskreytingar á
Akranesi stutt dagsferð
15. desember Byggða-
safnið í Görðum o.fl.
Kaffihlaðborð. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12, sími.
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8 (Gjá-
bakka) kl. 20.30.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar. Frá hádegi spila-
salur opinn. Myndlist-
arsýning Árna Sighvats-
sonar stendur yfir.
Föstudaginn 6. des.
dansleikur. Hljómsveit
Hjördísar Geirs. Húsið
opnað kl. 19.30. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9. 15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9 glerlistarhópur, kl.
14–15 Gleðigjafarnir
syngja. Jóla- og aðventu-
skreytingar. Jón Björg-
vinsson, fyrrum eigandi
Blómahallarinnar í
Kópavogi, verður með
sýnikennslu og sölu á
jóla- og aðventuskreyt-
ingum í Félagsheimilinu
Gullsmára, Gullsmára 13,
föstudaginn 29. nóv. kl.
13., föst. 6. des. kl. 13, og
föst. 20. des. kl. 13. Allir
velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Jólafagnaður.
Föstudaginn 6. desember
jólahlaðborð. Húsið opn-
að kl. 18 með fordrykk.
Ræðumaður: Dagur B.
Eggertsson læknir og
borgarfulltrúi. Nem-
endur úr Ártúnsskóla
syngja nokkur lög. Sig-
ríður Skarphéðinsdóttir
les jólasögu. Hugvekja:
séra Sigrún Ósk-
arsdóttir. Gradualekór
Árbæjarsóknar syngur.
Verð: 2.700. Skráning á
skrifstofu fyrir 4. des.
Takið með ykkur gesti.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi.
Fimmtud. Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17, hár-
greiðsla kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrídans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Aðventu- og jólakvöld 5.
des. kl. 17.45. Uppl. og
skráning í síma 561 0300.
Hallgrímskirkja. Opið
hús 4. des. kl. 14. Sr. Sig-
urður Pálsson sér um
stundina. Karl Kristian-
sen leikur jólalög á harm-
onikku. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids 13.15 í dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13,
kl. 10 á laugardögum.
Félag einhleypra. Fund-
ur á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánu- og fimmtudaga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud. kl.
13–15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Minningarkort
Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588 7555 og
588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort eru
afgreidd á skrifstofu fé-
lagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. h., s.
552 2154. Skrifstofan er
opin miðvikud. og föstud.
kl. 16–18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861 6880
og 586 1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin mán.–
fim. kl.10–15. Sími 568-
8620. Bréfs. 568-8621.
Tölvupóstur ms@msfe-
lag.is.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í s. 588 9220
(gíró) Holtsapóteki, Vest-
urbæjarapóteki, Hafn-
arfjarðarapóteki, Kefla-
víkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Í dag er föstudagur 29. nóvember,
333. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
En þetta er ritað til þess að þér
trúið, að Jesús sé Kristur, sonur
Guðs, og að þér í trúnni eigið líf í
hans nafni.
(Jóh. 20,31).
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 hrakninga, 4 ávöxtur, 7
úrskurður, 8 formæður, 9
mergð, 11 leðju, 13 at, 14
málminum, 15 haf, 17
södd, 20 lamdi, 22 ber, 23
snúa upp á, 24 þurrkuð
út, 25 hafa fyrir sið.
LÓÐRÉTT:
1 víntegund, 2 ber, 3
harmur, 4 líf, 5 lestrar-
merki, 6 hinar, 10 gesta-
gangur, 12 und, 13 nokk-
ur, 15 gefa gaum að, 16
árnum, 18 líkamshlutinn,
19 fugl, 20 lögun, 21 dá.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 rekkjuvoð, 8 eljan, 9 dáður, 10 nýr, 11 dorma,
13 aumur, 15 stáls, 18 slæða, 21 vol, 22 fræða, 23 ásinn,
24 villingur.
Lóðrétt: 2 erjur, 3 kenna, 4 undra, 5 orðum, 6 held, 7
þrír, 12 mál, 14 uml, 15 saft, 16 áræði, 17 svall, 18 sláin,
19 æðinu, 20 asni.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er hæstánægður meðnýju norrænu skýrsluna, þar
sem lagt er til að settar verði Evr-
ópureglur um réttindi flugfarþega,
komi til þess að flugvélum í áætlun-
arflugi seinki eða flugi sé aflýst. Vík-
verja er málefnið ofarlega í huga eft-
ir að hafa hangið í tíu klukkustundir
á Frankfurt-flugvelli í Þýzkalandi sl.
sunnudag ásamt tugum annarra van-
sælla viðskiptavina Flugleiða hf., en
fluginu frá Frankfurt til Keflavíkur
seinkaði þá um átta klukkutíma.
Hjá fulltrúum Flugleiða á flugvell-
inum var fullkominn skortur á grein-
argóðum upplýsingum um hvað or-
sakaði seinkunina, auk þess sem hún
var tilkynnt í fjórum skömmtum –
fyrst tveir og hálfur tími, svo rúmir
þrír enn, svo klukkutími og loks enn
klukkutími. Hefði Víkverji vitað það
á hádegi að hann kæmist ekki til Ís-
lands fyrr en tíu tímum síðar, hefði
hann nú skellt sér niður í bæ, setzt
niður á Römer og fengið sér bjór eða
skoðað sig um. Þess í stað hékk hann
á flugvellinum allan daginn, en
Frankfurt-flugvöllur hlýtur að vera
hér um bil leiðinlegasti staður í Mið-
Evrópu.
FLUGLEIÐIR voru ekki beinlín-is rausnarlegar við farþegana.
Víkverji og ferðafélagar hans fengu
matarávísun að fjárhæð 20 evrur,
þ.e. rúmlega 1.700 krónur, sem dugði
fyrir aðalrétti í ódýrari kantinum og
bjórglasi á veitingastað á flugvellin-
um. Þegar komið var út í hlið eftir
dúk og disk var þar boðið upp á pyls-
ur, bjór og gos. Um borð í flugvélinni
sjálfri gerðist hins vegar fátt til að
létta lund afar þreyttra ferðalanga,
nema hvað flugfélagið baðst afsök-
unar – enn án þess að útskýra al-
mennilega fyrir farþegunum hvað
hefði farið úrskeiðis.
x x x
EF TILLÖGUR norrænu nefnd-arinnar hefðu verið komnar til
framkvæmda, hefði Víkverji áreið-
anlega fengið ríflegri matarpeninga,
því að í skýrslunni er rætt um „mat
og drykk í sanngjörnum mæli“.
Hann hefði líka fengið símtöl og fax-
sendingar meðan á biðinni stóð
greiddar (þar á meðal tíu mínútna
millilandasímtal við sjálfvirkan sím-
svara Flugleiða, sem tjáði honum
a.m.k. 20 sinnum að allar línur væru
uppteknar áður en Víkverji gafst
upp og lagði á). Þar að auki hefðu
Flugleiðir borgað honum 225 evrur,
tæplega 20.000 krónur. Með þetta
hefði Víkverji gert sig nokkuð
ánægðan og ekki þótt það nema
hæfilegt endurgjald fyrir að tími,
sem samsvarar heilum vinnudegi,
fór í súginn hjá honum, börnin fengu
engan sunnudagsbíltúr til að sækja
pabba á flugvöllinn eins og þeim
hafði verið lofað, heldur voru þau
löngu sofnuð þegar gamli maðurinn
kom heim og Víkverji fékk ekki
nema fimm tíma svefn áður en hann
þurfti að vakna í vinnuna.
x x x
VÍKVERJI fékk skrýtið bréf frátryggingafélaginu sínu á dög-
unum. Það var fullt af torkennilegum
táknum og stóð m.a. undir því eitt-
hvað á þessa leið: „Me# kærri
kve#ju, Vátryggingafélag #slands
hf., einstaklingstryggingasvi#.“ Vík-
verji skildi að bréfið er frá Vátrygg-
ingafélaginu, en er ekki alveg viss
hvort það er frá einstaklingstrygg-
ingasviði eða einstaklingstrygginga-
svikum.
Lágkúrulegt orðalag
ÉG fékk „sparibauk“ frá
Hjálparstofnun kirkjunnar
þar sem er mynd af ungum
dreng og á honum stendur:
„hann er alveg að drepast
úr þorsta.“ Finnst mér
þetta lágkúrulegt orðalag
og finnst það kirkjunnar
mönnum til háborinnar
skammar.
Er íslenska þjóðin orðin
þannig að hún skilji ekkert
nema svona orðalag?
Móðir.
Sóðaskapur
MIG langar að benda fólki á
eitt dæmi um sóðaskap á
matsölustað. Þannig er að
við fjölskyldan komum við í
Víkurskála í Vík til að fá
okkur að borða: Ég fer
strax að afgreiðsluborðinu
og kíki á matseðilinn og á
meðan ég er að því þá horfi
ég á afgreiðslustúlkuna
borða franskar kartöflur
uppúr pottinum sem kúnn-
arnir síðan fá. Ég bið hana
um að steikja nýjar fransk-
ar því ég kærði mig ekki um
að borða þessar sem hún
var búin að vera að narta í.
Þegar ég er búin að panta
matinn, þá fer hún að
kreista bólu í andlitinu á sér
og fer svo strax í að setja
salat á diskana, með berum
höndum. Og ekki þvoði hún
sér um hendurnar áður en
hún meðhöndlaði matinn
sem við fengum síðan.
Svo fæ ég frönsku kart-
öflurnar, en þær voru ekki
nýsteiktar eins og ég bað
um í upphafi, svo það er far-
ið með diskana til baka og
beðið um nýjar franskar. Þá
tekur þessi afgreiðslustúlka
franskar af disknum hjá
okkur og stingur uppí sig og
segir „jújú þetta eru nýjar
franskar og allt í lagi með
þær“.
Við kvörtum við yfirmann
staðarins sem var þar
staddur og þvílíkum rudda-
og dónaskap hef ég aldrei
kynnst áður. Hann tók eng-
an veginn á málunum eins
og hann ætti að gera sem yf-
irmaður, heldur gerði hann
lítið úr okkur og gerði grín
að því að hún hefði verið að
kreista bólu í andlitinu á sér
og farið svo með lúkurnar
beint í matinn okkar.
Þetta finnst mér vera
sóðaskapur á háu stigi og ef
einhver þarf að kvarta yfir
þjónustunni eða matnum
þarna þá er yfirmaðurinn
ekki hæfur í að taka á þeim
málum.
Eitt er víst að ég mun
aldrei framar stoppa við í
Víkurskála á leið minni í
gegnum Vík og vara ég fólk
við þessum stað ef það íhug-
ar að koma þar við til þess
að borða. Það er ekki þess
virði!
Alda Karlsdóttir.
Tapað/fundið
Svartur jakki týndist
SVARTUR karlmanns-
utanyfirjakki týndist úr
poka líklega leiðinni frá Red
Green versluninni á Lauga-
vegi og upp á Barónsstíg.
Stoppað var á nokkrum
stöðum á leiðinni. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 564 4825 eða 694 4825.
Blár farsími týndist
BLÁR og smágerður Erics-
son-farsími tapaðist mið-
vikudaginn 20. nóvember
sl., hugsanlega í strætó á
leið frá Hlemmtorgi að Gull-
inbrú, í Háskólabíói eða í
nágrenni Háskóla Íslands.
Sá sem kann að vita um sím-
ann vinsamlega hringi í
síma 581 1081 eftir kl. 19
eða sendi tölvupóst á asgei-
ri@hi.is.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
SAMRÆMDUM prófum
lýkur mánudaginn 12. maí
í vor. Síðasta prófið er í
náttúrufræði sem er mjög
óheppilegt því það próf
taka ekki allir nemendur.
Síðasta prófið sem allir
taka er á föstudeginum á
undan.
Undanfarin ár hafa for-
eldrar og skólar verið
hvattir til að gera eitthvað
sniðugt með unglingunum
t.d. að fara í óvissuferðir
sem eru orðnar að hefð í
mörgum skólum. Það er
augljóst að foreldrum/
skólum er ekki gert auð-
velt að halda upp á prófa-
lok þar sem hluti nemenda
(kannski helmingur) lýkur
prófum á föstudegi og
hinn hlutinn á mánudegi.
Við skorum á stjórnir
foreldrafélaga í grunn-
skólum að fara fram á það
við yfirvöld menntamála
að víxla prófum þannig að
síðasta prófið verði ann-
aðhvort íslenska eða
stærðfræði en þau próf
taka allir nemendur.
Foreldrar eru öflugasti
þrýstihópurinn. Stöndum
saman barnanna okkar
vegna. Við eigum örugg-
lega vísan stuðning Heim-
ilis og skóla, Vímulausrar
æsku og fleiri samtaka
sem láta sig velferð barna
og unglinga varða. Kosn-
ingar eru framundan og
getur það líka hjálpað til
að frekar verði hlustað á
okkur.
Baráttukveðjur.
Foreldrar nemanda
í 10. bekk.
Lok samræmdu prófanna