Morgunblaðið - 29.11.2002, Page 59
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 59
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert listelskur og gæddur
næmu fegurðarskyni. Orka
þín er mikil.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú kemur auga á betri leiðir
til að leyfa öðrum að taka
þátt í þínu lífi, án þess að þú
glatir einstaklingseinkenn-
um þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að læra að gera þér
mat úr þeim tækifærum,
sem þér bjóðast. Sýndu
sveigjanleika og þá mun þér
farnast vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hikaðu ekki við að grípa
gæsina, þegar hún gefst. Þú
gætir komið í mark sem sig-
urvegari ef þú tekur áhætt-
una.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Loksins lýsist upp fyrir þér
leyndardómur, sem þú hefur
velt vöngum lengi yfir. Þá er
ekki um annað að ræða en
setjast niður og skipuleggja
hlutina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Oft er skammt á milli hláturs
og gráturs. Gefðu þér tíma
til þess að fara í gegnum
málin og skipuleggja fram-
gang þeirra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Eitthvað í fari félaga þíns
vekur með þér ugg enda á
ýmislegt eftir að koma á dag-
inn. Margir fordómar eiga
rætur sínar í þekkingarleysi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú vilt gera þér dagamun og
þá er alltaf skemmtilegra að
hafa fleiri með í för. Góður
vinur er gulli betri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn hentar vel til að
vinna þig í álit í vinnunni.
Þér verða falin mannaforráð
og þá skiptir öllu að vera
sanngjarn og láta eitt yfir
alla ganga.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft ekki að vera með
neina eftirsjá yfir því að þér
hafi tekist betur upp en sam-
starfsmönnum þínum.
Horfðu til framtíðar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hláturinn lengir lífið svo
blessaður taktu sjálfan þig
ekki svona hátíðlega. Kvöld-
inu er best varið heimavið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er gaman að njóta
augnabliksins þegar allar að-
stæður eru réttar. Leyfðu
einhverjum að njóta þess
með þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu ekki eins og þú þurfir
að klára alla skapaða hluti á
einu bretti. Það kemur dag-
ur eftir þennan dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Öll hefir ætt til hylli
Óðins skipað ljóðum,
algildar man eg – aldar –
iðjur vorra niðja;
en trauðr, því að vel Viðris
vald hugnaðist skaldi,
legg eg á frumver Friggjar
fjón, því að Kristi þjónum.
Hallfreður Óttarsson vandræðaskáld
SPIL dagsins gefur tilefni
til að rifja upp gömul
sannindi. En allt í réttri
röð. Fyrst er að velja leið í
fjórum hjörtum:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 1094
♥ G85
♦ ÁKD73
♣62
Suður
♠ K7
♥ ÁD642
♦ G95
♣KD10
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði Pass Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er hjarta-
þristur. Hvernig er best að
spila?
Útspilið er þægilegt, en
það er full snemmt að
hrósa sigri. Ef austur á
kónginn þriðja í trompinu
gæti hann komist þar inn
til að spila spaða í gegnum
kónginn. Það er ekkert í
málinu að gera ef austur á
K109, en hann gæti verið
með K107 eða K97. Og þá
skiptir höfuðmáli hvað sett
er úr blindum í upphafi:
Norður
♠ 1094
♥ G85
♦ ÁKD73
♣62
Vestur Austur
♠ ÁDG83 ♠ 652
♥ 93 ♥ K107
♦ 1084 ♦ 62
♣ÁG9 ♣87543
Suður
♠ K7
♥ ÁD642
♦ G95
♣KD10
Áttan er rétta spilið.
Austur lætur tíuna og suð-
ur tekur með drottningu.
Fer svo inn í borð á tígul
og spilar litlu trompi og
dúkkar þegar sjöan kem-
ur. Vestur þarf að taka
slaginn og þar með fær
vörnin aðeins einn slag á
spaða. Ef sagnhafi lætur
lítið tromp úr borðinu í
fyrsta slag, setur austur
sjöuna og kemst þá fyrr
eða síðar inn á tromp.
Dustum nú rykið af hin-
um gömlu sannindum:
Rétti tíminn til að hugsa
er í fyrsta slag – áður en
sett er úr blindum.
E.S. Vörnin er engu bet-
ur sett þótt vestur komi út
með hjartaníuna, því sagn-
hafi gefur honum einfald-
lega þann slag!
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. 1. des-ember verður átt-
ræður Guðmundur Arnald-
ur Guðnason, Aðalgötu 22,
Suðureyri við Súganda-
fjörð. Hann tekur á móti
gestum á heimili sínu laug-
ardaginn 30. nóvember. Af-
mælisfagnaðurinn hefst kl.
18 í verðlaunagarðinum á
Aðalgötu 22, hvernig sem
viðrar.
80 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 1. desember
verður áttræð frú Sigríður
Benediktsdóttir, Eyjaholti
10a, Garði. Á afmælisdag-
inn tekur hún á móti ætt-
ingjum og vinum eftir kl. 15
að Giljaseli 6, Reykjavík.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6.
Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5
9. Bxf6 gxf6 10. Rd5 f5 11. c3
Bg7 12. exf5 Bxf5 13. Rc2
Be6 14. a4 O-O 15. axb5 axb5
16. Hxa8 Dxa8 17. Rce3 Db7
18. g4 Re7 19. Bg2 Rxd5 20.
Bxd5 De7 21.
h4 Df6 22.
Dd3 Df4 23.
Dxb5 Bxg4
24. h5 Kh8 25.
Dc6 e4 26.
Bxe4 Hc8 27.
Db7 He8 28.
Hh4 f5 29. h6
Bxh6
Staðan
kom upp á
Ólympískák-
mótinu sem
lauk fyrir
skömmu í
Bled í Slóven-
íu. Sergei Az-
arov (2520)
hafði hvítt
gegn Luke McShane (2546).
30. Hxg4! De5 31. Rxf5 Dxf5
32. Kf1 Hxe4 33. Dxe4 og
svartur gafst upp. Unglinga-
meistaramót Íslands hefst
kl. 19.30 í kvöld, 29. nóvem-
ber í félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur Faxafeni 8.
Keppninni verður framhald-
ið laugardag og sunnudag en
í fyrstu þrem umferðunum
eru atskákir tefldar en kapp-
skákir í hinum fjórum.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. 15. nóvember sl. varð fimmtugur Jó-hann Geirdal, kennari og bæjarfulltrúi í Reykja-
nesbæ. Hulda Bjarnadóttir ljósmóðir verður fimmtug 15.
desember nk. Þau ætla að mætast á miðri leið og taka á móti
vinum og vandamönnum í Félagsheimilinu Stapa, föstudags-
kvöldið 29. nóvember, milli kl. 19–23.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Bikarkeppni Brids-
sambands Austurlands
Úrslitaleikurinn í Bikarkeppni
BSA var spilaður um helgina
(sunnud. 24.11.) í golfskálanum á
Ekkjufelli. Þar leiddu saman „hross“
sín sveitir Bjarna Sveinssonar og
Óttars Ármannssonar. Þrír fyrstu
fjórðungarnir voru hnífjafnir og
leiddi sveit Óttars með 4 impum fyrir
síðasta 10 spila leikhlutann. Lokalot-
una vann sveit Bjarna hins vegar
63-9 og leikinn með 50 impa mun
122-72. Í sveit Bjarna spiluðu, auk
hans, Bjarni Ágúst Sveinsson, Stef-
án Kristmannsson og Magnús Ás-
grímsson. (Í sveit Óttars, Jón Þór
Kristmannsson, B. Hafþór Guð-
mundsson og Magnús Valgeirsson.)
Þá má og geta þess að í frétt um
landstvímenninginn um daginn
mátti lesa að Bjarni Sveinsson og
Helgi Hlynur Ásgrímsson væru í
Bridsfélagi Fjarðarbyggðar en þeir
eru báðir í Bridsfélagi Borgarfjarðar
eystri.
Sviptingar í Borgarfirði
Það ríkir mikil spenna fyrir síð-
asta kvöldið í aðaltvímenningi Brids-
félags Borgarfjarðar. Flemming og
Guðmundur hafa endurheimt foryst-
una en telja of snemmt að fagna enda
urðu miklar sviptingar á fjórða og
næstsíðasta kvöldinu. Gamlir höfð-
ingjar eins og Örn og Kristján og
Jón og Baldur, sem að mestu hafa
legið í hýði sínu í haust, tóku mikinn
sprett og þegar sá gállinn er á þeim
er eins gott að vera var um sig.
Úrslit fjórða kvöldsins urðu sem
hér segir.
Jón Eyjólfsson - Baldur Björnsson 76
Örn Einarsson - Kristján Axelsson 63
Eyjólfur Sigurjónsson - Jóhann Oddsson 54
Flemming Jessen - Guðm. Þorsteinsson 41
Og staðan fyrir síðasta kvöldið:
Flemming Jessen - Guðm. Þorsteinss. 165
Kristján - Alda - Guðjón 152
Sveinbjörn - Lárus - Þorvaldur 126
Örn Einarsson - Kristján Axelsson 89
Jón Eyjólfsson - Baldur Björnsson 87
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Þegar er eftir að spila eitt kvöld í
hraðsveitakeppni 2002 er röð efstu
sveita eftirfarandi:.
Sveit Jóns Stefánssonar 1858
Sveit Birkis Jónssonar 1825
Sveit Séra Hermanns 1803
Sveit Önnu G. Nielsen 1790
Bestu skor hinn 25. nóv. sl.
Sveit Séra Hermanns 645
Sveit Birkis Jónssonar 614
Sveit Jóns Stefánssonar 605
Sveit Önnu G. Nielsen 587
Sveit Daníels Halldórssonar
vann sveitakeppni Hreyfils
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Hreyfils lauk sl. mánudagskvöld og
urðu úrslit þessi:
Sv. Daníels Halldórssonar 175
Sv. Rúnars Gunnarssonar 169
Sv. Vinir 162
Sv. Sigurðar Ólafssonar 140
Sv. Jóns Egilssonar 134
Sv. Björns Inga Stefánss. 119
Með Daníel spiluðu þeir Ragnar
Björnsson, Sigurður Steingrímsson,
Gunnlaugur Óskarsson, Guðlaugur
Sveinsson og Þórður Björnsson.
Aukaumferð á milli sveita eftir
hefðbundnar keppnisumferðir er
ekki talin með skv. úrskurði.
Nk. mánudagskvöld hefst aðaltví-
menningur félagsins. Spilað er í
Hreyfilshúsinu og hefst spila-
mennskan kl. 19.30.
Nýliðabrids á
fimmtudögum
Fimmtudaginn 21. nóv. mættu 10
pör til leiks.
Lokastaðan var þessi:
N-S-riðill
Kristján Þ. Kristjánsson-Dóra Halldórsd. 69
Ingólfur Sigurjónsson-Jónas Ágústsson 67
Þórir Jóhannsson-Eiríkur Eiðsson 64
A-V-riðill
Bryndís Guðm.-Hrafnh. Ýr Matthíasd. 70
Bjarni Jónatanss.-Sigrún Þorvarðard. 65
Ólöf Ingvarsdóttir-Björn Hrafnkelsson 63
Næsta spilakvöld er fimmtudag-
inn 28. nóv. í Síðumúla 37, 3. hæð.
Sigurbjörn tekur vel á móti öllum og
aðstoðar við að finna meðspilara.
Bridsdeild
Sjálfsbjargar
Mánudaginn 18. nóv. lauk 2 kvölda
minningarmóti. Spilað var á 11 borð-
um. Í efstu sætunum urðu eftirfar-
andi:
N-S
Helgi Ketilsson – Sigþór Haraldsson 507
Jón Jóhannsson – Jón Bergþórsson 498
Sigurður Marelss. – Sveinn Sigurjónss. 454
A-V
Ólafur Ingvarsson – Zarioh 523
Sigurður R. Steingr. – Viðar Guðm. 513
Halldór Aðalst. – Kristján Albertss. 513
Hraðsveitakeppni hjá
Bridsfélagi Akureyrar
Nú er hafin hraðsveitakeppni
Sparisjóðs Norðlendinga, með þátt-
töku 8 sveita. Eftir fyrstu umferð, af
þremur er staðan þannig:
Sveit Gylfa Pálssonar 287
Sveit Páls Pálssonar 269
Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 265
Önnur umferð verður spiluð
þriðjudaginn 3. desember og hefst
spilamennska stundvíslega kl. 19.30.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Guðbrandur Sigurbergsson og
Friðþjófur Einarsson sigruðu í
þriggja kvölda Michell–tvímenningi
seem lauk sl. mánudagskvöld.
Lokastaða efstu para varð annars
þessi:
Guðbrandur Sigurb. – Friðþjófur Ein. 61,96
Högni Friðþjófss. – Björn Eysteinss. 60,50
Jón Páll Sigurjónss. – Trausti Valss. 57,73
Lokastaða síðasta spilakvöldið var
eftirfarandi:
Norður/Suður
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðars. 371
Soffia Daníelsd. – Óli Björn Gunnarss. 358
Eðvarð Hallgrímss. – Þórður Sigfúss. 349
Austur–Vestur
Guðbrandur Sigurb. – Friðþjófur Ein. 384
Jón Páll Sigurjónsson – Trausti Valss. 383
Hlöðver Tómasson – Þórarinn Ólafss. 376
Mánudaginn 2. desember nk.
hefst aðalsveitakeppni félagsins.
Spilað verður tvö kvöld fyrir jól og
svo áfram eftir áramót. Spilað er að
Flatahrauni 3 í Hafnarfirði og hefst
spilamennska kl. 19.30. Sjáumst.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Glæsilegur
sparifatnaður
Peysur og pils
Bankastræti 11 • sími 551 3930