Morgunblaðið - 29.11.2002, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 63
STUÐROKKSVEITIN The Apes
frá Washington D.C. álpaðist inn á
Airwaves-hátíðina í fyrra og lék
þar á þrusutónleikum á Gauknum.
Vel líkaði þeim við land og þjóð og
slógu því til er Örlygur Örlygsson,
einn af skipuleggjendum tónleika-
raðanna Rokk á Grand Rokk,
spurði hvort þeir vildu ekki spila
aftur hérna í haust. The Apes eru
nú á leiðinni til Bretlands til hljóm-
leikahalds og ætla að stoppa hér á
leiðinni austur.
Blaðamaður hafði samband við
Eric, bassaleikara sveitarinnar, og
spurði hvernig stæði eiginlega á
þessum Íslandsáhuga.
„Ja ... þetta hljómaði bara spenn-
andi þegar okkur bauðst að spila
síðasta haust,“ segir Eric. „Ný
reynsla að fara til Íslands og
svona.“
Og Apes vöktu verðskuldaða at-
hygli fyrir þessa fyrstu tónleika
sína, fóru hreint út sagt hamförum.
„Við vissum þó ekkert hvað var
að gerast,“ viðurkennir Eric.
„Okkur fannst við allt í einu svo
lufsulegir við hliðina á hinum
böndunum sem voru að spila. Þau
voru eitthvað svo eitilhörð!“
Um þetta leyti var fyrsta skífa
sveitarinnar, The Fugue in the
Fog, að koma út. Hún hefur al-
mennt fengið góða dóma og nafn
ofurtöffarans Jon Spencer m.a.
nefnt í einhverjum þeirra, sem er
ekki leiðum að líkjast hvað rokk-
fræðin varðar. Í þetta skiptið koma
The Apes með glóðvolga, sex laga
tíutommu með sér sem kallast
Street Warz.
„Það var nú bara þannig að Ör-
lygur bauð okkur þetta,“ segir Er-
ic, spurður um ástæðu þessarar
heimsóknar. „Við vorum á leiðinni
til Bretlands að spila og fannst
þetta fínasta leið til að byrja túr-
inn.“
Hann segir þau ekkert endilega
vera að fylgja tíutommunni nýju
eftir.
„Ja ... við erum ekkert að kynna
hana neitt frekar. Við erum bara
að fara að spila og hafa gaman.“
Þegar Eric er inntur eftir því
hvort þau lifi af bandinu hlær hann
hátt.
„Ekki sjens, Jens! Við erum öll á
hvínandi kúpunni. Amanda (hljóm-
borðsleikarinn) er nærri því gjald-
þrota.“
En Eric virðist lífsglaður náungi
og hann hefur eðlilega vonir og
væntingar hvað hljómsveitina sína
varðar.
„Það sem drífur okkur áfram er
auðvitað gamanið við þetta. Það er
líka yndislegt að fást við eitthvað
skapandi. Þetta er líka skemmti-
legur hópur og svo gefast líka
tækifæri til að ferðast. Nú, draum-
urinn er svo auðvitað að geta lifað
af þessu.“
Eric segir að sveitin sé að taka
örugg skref fram á við, hún sé að
þróast, hún sé að verða betri.
„Vonandi rennur svo einhvern
tíma upp sá tími að maður eigi al-
mennilega til hnífs og skeiðar. En
það mikilvægasta af öllu er auðvit-
að að njóta þess sem maður er að
gera. Um leið og skugga dregur
fyrir það þarf maður að hugsa sinn
gang.“
The Apes spila í kvöld og á
morgun og fara tónleikarnir fram
á Grand Rokk á Smiðjustíg. Hvorir
tveggja hefjast kl. 23.59 og kostar
1200 kr. á hvora um sig . Fidel hita
upp fyrra kvöldið en Mínus hið
seinna.
The Apes spila á Grand Rokk um helgina
Svo lengi sem það er gaman
Paul, söngvari The Apes, sýnir hér réttu rokktaktana.
arnart@mbl.is
örugg stýring viðskiptakrafna
www.regnboginn. is
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8.30, 10.30 og 0.07.
Sýnd kl. 6 og 8.
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN NOKKRU
SINNI FYRR
ÍSLAND Í AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
I
I I
Í Í I
I I
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
700 kr. miðinn fyrir korthafa VISA kl. 0.07.
Sýnd kl. 4, 7, 10 og POWERSÝNING 12.30 eftir miðnætti.
Sýnd kl. 6 og 8.
www.laugarasbio.is
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
Sýnd kl. 10. B. i. 16. .
1/2
Kvikmyndir.is
SK RadíóX
ÓHT Rás 2
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.comPO
WERS
ÝNIN
G
kl. 1
2.30.
Á STÆ
RSTA
THX
tJALD
I LAN
DSINS