Morgunblaðið - 29.11.2002, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 65
Sýnd kl. 4 ísl tal Vit 448Sýnd kl.10. Sýnd kl.4. Vit 448 Sýnd kl.6.
AKUREYRIÁLFABAKKI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 474 Sýnd Kl. 6, 8 og 11.
Sýnd kl. 5, 8 og 10. Vit 468
1/2HK DV ÓHT Rás2
SV Mbl RadíóX
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 479 Sýnd kl. 8. Vit 479
ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI KEFLAVÍK ÁLFABAKI AKUREYRI ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5, 8 og powersýning kl. 11. Vit 468Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 468
RadíóX
DV
AKUREYRI
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 4 og 8. B. i. 16. Vit 469.
Kvikmyndir.is
HLJÓMSVEITIN Gus Gus gaf út sína fjórðu breið-
skífu, Attention, á dögunum og ætla fjórmenningarnir
að halda tónleika á nýja skemmtistaðnum Súper, sem
er á annarri hæð Astró, í kvöld. Ekki er hægt að segja
að um eiginlega útgáfutónleika sé að ræða því hljóm-
sveitin lék á stórtónleikum í Laugardalshöllinni á Ice-
land Airwaves-tónlistarhátíðinni.
Ennfremur kom platan út í Bandaríkjunum 25.
ágúst og fóru Gus Gus-liðar í hljómleikaferð um
Bandaríkin í september og heimsóttu 16 borgir.
Attention kom síðan fyrir sjónir Breta 11. október og
Íslendinga skömmu síðar.
Fyrstu tónleikarnir í Evrópu, utan heimalands,
verða síðan haldnir á Fabric í London 6. desember.
Birgir Þórarinsson, Biggi veira, tekur að sér að
ræða nýju plötuna fyrir hönd Urðar Hákonardóttur,
Stephans Stephensens og Magnúsar Guðmundssonar,
eða Earth, President Bongo og Buckmaster.
„Við förum líklega í annað ferðalag til Bandaríkj-
anna í febrúar. Þetta rúllar. Við erum ekkert að halda
neina stóra tónleika, innan við þúsund manns,“ segir
Biggi.
Blessun að fá söngkonu
Hann er greinilega ánægður með að vera með nýja
söngkonu innanborðs. „Hún er náttúrulega alveg æð-
isleg. Þetta var kærkomin blessun að fá hana inn í Gus
Gus. Það var svolítið svart ský yfir Gus Gus þegar
menn voru að hætta og það var verið að reka fólk,“
segir Biggi og vísar til fortíðar hljómsveitarinnar,
sem fjöllistahóps með þrjá lagahöfunda og þrjá söngv-
ara innanborðs.
Hljómsveitin leystist upp eins og þekkt er og segir
Biggi að það hafi tekið smátíma að komast upp úr
þessari niðursveiflu. „Við vorum bara orðnir þrír eftir
í hljómsveitinni,“ segir hann um tímann áður en þeir
komust í kynni við Urði.
Urður hefur strax sett mikinn svip á hljómsveitina
eins og heyra má á nýju plötunni og mátti sjá á tónleik-
unum í Höllinni. „Hún semur meirihlutann af sínum
sönglínum og mikið af sínum textum sjálf,“ segir hann.
Biggi segir að vinnsluferlið við lagasmíðar hafi
breyst talsvert eftir að fækkaði í hljómsveitinni. „Áð-
ur voru öll lögin unnin út frá demóum. Á þessari plötu
vorum við ekki með nein demó heldur vorum að fikta.
Þetta voru meira einhverjar þreifingar í græjunum og
svo byggðist þetta smám saman upp.“
Vinna síðustu tveggja ára
„„Desire“ er lag sem varð til að grunni til þegar
Daníel var enn í bandinu. Grunnurinn að „David“ og
„Unnecessary“ var lagður í lok ársins 2000. Vinnslan
á plötunni fór ekki almennilega í gang fyrr en um vor-
ið 2001. Við kláruðum plötuna svo í febrúar á þessu
ári. Það tók svolítinn tíma að finna sig aftur, hvað
mann langaði að gera,“ bætir Biggi við um lagasmíð-
arnar.
Eitt lag á plötunni er eftir Jimi Tenor. Biggi segir
að kappinn hafi alltaf verið að spila á sömu stöðum og
Gus Gus þegar hljómsveitin fylgdi Polydistortion eft-
ir. „Í kjölfarið drógum við hann til Íslands,“ segir
hann og gerði hljómsveitin einnig endurhljóðblöndun
af lagi hans. Það fór ekki betur en svo að Jimi var rek-
inn frá Warp og plötuna með laginu dagaði uppi.
„Það var í rauninni nákvæmlega eins og lagið er á
plötunni,“ segir Biggi og bætir við að Urður hafi síðan
sungið lagið í nýju útgáfunni í stað konu Jimis Tenors.
„Þannig að það er eitt „cover“-lag á plötunni,“ segir
hann og hlær.
Tók tíma að finna sig aftur
Gus Gus-liðar eru nú fjórir og er söngkonan Urður Há-
konardóttir fulltrúi kvenþjóðarinnar í hljómsveitinni.
Gus Gus með nýja plötu og tónleika
TENGLAR
..................................................................................
www.gusgus.com
Breiðskífan Attention er komin í verslanir. Gus Gus verður
með tónleika á Súper í kvöld.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.isFRÉTTIR
mbl.is