Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. BIRGITTA Haukdal söngkona hljómsveit- arinnar Írafárs söng af innlifun lög af fyrstu breiðskífu sveitarinnar, Allt sem ég sé, á útgáfu- tónleikum í Borgarleik- húsinu í gærkvöldi. Fullt var út úr dyrum og stemmningin góð meðal unglinganna sem voru í meirihluta þeirra sem sóttu tónleikana. Írafár er ein af allra vinsælustu hljómsveitum landsins um þessar mundir og inniheldur breiðskífan mörg þekkt lög, t.d. „Hringir“ og „Eldur í mér“. Birgitta er mikill áhrifavaldur í tísku unga fólksins og víst að margir hafa tekið vel eftir klæðaburði hennar á tónleikunum í gær. Morgunblaðið/Jim Smart Eldfim Birgitta HRAÐAMÆLIR flugstjórans í Flugleiðaþotu sem lækkaði skyndilega flugið yfir austurströnd Bandaríkjanna 19. október sl., sýndi af og til rangar upplýsingar um hraða þotunnar allt frá flugtaki og upp í 30.000 feta hæð. Seinna kom í ljós að aðskotahlutur hafði truflað hraðamælis- búnað vélarinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bráða- birgðaupplýsingum bandarísku rannsóknarnefnd- arinnar um flugatvikið. Þar segir að þegar þotan hækkaði flugið í 37.000 fet hafi viðvörunarljós kviknað í stjórnklefanum. Á þeirri stundu sýndi hraðamælir flugstjórans að þotunni væri flogið á 320–350 hnúta hraða en hraðamælir flugmanns sýndi um 220 hnúta hraða. Flugstjórinn tók þá við stjórn þotunnar og slökkti á sjálfstýringu hennar. Vart var því lokið er stýrisstöngin tók að hristast til marks um ofris. Flugstjórinn náði síðan fullri stjórn á þotunni eftir um 90 sekúndur en þá hafði hún lækkað flugið í um 30.000 feta hæð eða um 7.000 fet. Flugmaðurinn tók síðan við stjórn vél- arinnar og lenti henni í Baltimore. Við skoðun á þotunni kom í ljós aðskotahlutur í svonefndu stemmuröri sem er hluti af hraðamælabúnaði flugvélarinnar og var rörið hálfstíflað. Eins og áður segir er um bráðabirgðaupplýs- ingar að ræða. Í þeim felast ekki endanlegar nið- urstöður og þær geta breyst við frekari rannsókn málsins. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, sagðist ekki vilja tjá sig um málið með- an það væri í rannsókn. Í upplýsingunum frá bandarísku rannsóknar- nefndinni kemur einnig fram að þegar rannsaka átti hljóðritann eftir lendingu þotunnar í Balti- more, hafi verið búið að taka yfir samtöl áhafn- arinnar meðan á atvikinu stóð og því hafi hljóðrit- inn verið gagnslaus við rannsókn málsins. Fyrirmæli voru ekki fullnægjandi Ástæðan var sú að ekki var rofinn straumur til hljóðritans við lendingu og því hélt hann áfram að taka upp. Af þessum sökum hefur rannsóknar- nefnd flugslysa (RNF) lagt fyrir Flugmálastjórn að yfirfara leiðbeiningar í flugrekstrarbók Flug- leiða um vinnureglur við hljóðrita í flugvélum flugfélagsins þegar slys eða flugatvik eiga sér stað og hvernig þjálfun er háttað varðandi þessi atriði. Þormóður Þormóðsson, rannsóknarstjóri RNF, segir að flugmenn þotunnar hafi gripið til aðgerða til að varðveita upptökur á hljóðritanum. Þeir hafi fylgt þeim upplýsingum og fyrirmælum sem þeir höfðu þar að lútandi en þær reyndust á hinn bóg- inn ekki fullnægjandi. RNF vill að Flugmála- stjórn yfirfari flug- rekstrarbækur Flugleiða Rangar upplýsingar á hraðamæli frá flugtaki ÞAÐ er enn gert dálítið af því að svíða kindafæt- ur og eimir kannski eftir af þeim tíma þegar allt var nýtt af sauðkindinni. Mörgum þykja sviða- lappir sérlega bragðgóðar og sumir súrsa þær svo sem jafnan var gert áður en frysting mat- væla kom til. Hér er Ari Jónsson í Auðsholti í Hrunamannahreppi að svíða lappir og nokkuð af heyforða Auðsholtsbúsins er í bakgrunni. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Súrsaðar sviðalappir? „KRISTJÁN Pálsson málaði sig út í horn,“ segir Ellert Ei- ríksson formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi. Talið er að í tillögu nefndarinnar, sem kynnt verður á kjördæmisþingi á laugardag- inn, verði Árni Ragnar Árnason í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjördæm- inu en Kristjáni ekki boðið sæti á listanum. Kjörnefndin hélt fund í gær og mætti Kristján þar og kynnti sjónarmið sín. „Kristján hélt því fram við mig, formann nefndarinnar, og ritarann, Sigurð Jónsson frá Selfossi, strax í upphafi að hann mundi ekki taka sæti neðar en annað og þá því aðeins að Drífa Hjartardóttir yrði í fyrsta sæti. Þetta er búið að liggja fyrir hjá nefndinni og nefndarmenn hafa einnig fengið símtöl frá honum um að þetta hafi verið hans skilningur þá.“ Ellert segist hafa verið stuðn- ingsmaður Kristjáns Pálssonar og af hans hálfu hafi ekki verið reynt að bregða fæti við Krist- jáni hvorki fyrr né nú. „Nú þegar fjölskylda mín, sem ber enga ábyrgð á fram- boðsmálum Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurkjördæmi, er farin að verða fyrir áreiti og hótunum af hálfu stuðningsmanna Krist- jáns vegna þessa máls get ég ekki orða bundist lengur. Ég persónulega þoli allt en sit ekki undir því að Kristján Pálsson telji mig bera sök á því að hann nái ekki sæti.“ Á fundi stuðningsmanna Kristjáns í Stapa í fyrrakvöld kom fram hörð gagnrýni á starfshætti nefndarinnar. Ellert sagði aðspurður um það að ann- arri gagnrýni á störf nefndar- innar yrði svarað á laugardag. Kristján Pálsson sagði í gær að hann hefði sagt við kjör- nefndina á sínum tíma að hann teldi sig hafa sterka stöðu til að fá fyrsta eða annað sætið. Kæmi önnur staða upp teldi hann ekki eðlilegt að annar þingmaður færðist fram fyrir án þess að skýringar yrðu gefnar á því. Kristján Pálsson setti skilyrði Ellert Eiríks- son segir fjölskyldu sína sæta hótunum  Átök/11 MENNTASKÓLINN í Kópavogi og Verkmenntaskólinn á Akureyri und- irbúa tillögur um niðurskurð í starf- semi sinni. Báðir skólarnir hafa verið reknir með tapi undanfarin ár og sjá fram á hallarekstur á næsta ári. Hjalti Jón Sveinsson, skólameist- ari VMA, segir að skólinn hafi boðið upp á mjög fjölbreytt verknám, en ekki verði komist hjá því að draga úr námsframboði á næsta skólaári. „Nú er komið að því að skera burt þær deildir sem eru okkur dýrastar, óháð því hvað atvinnulífið á svæðinu segir. Þar vil ég nefna sjúkraliða- braut, sem við höfum rekið í góðri samvinnu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, en hún er dýr í rekstri. Ég vil einnig nefna vélstjórnarbraut- ina. Sú deild er ágætlega myndug hvað varðar fjölda nemenda, en er dýr í rekstri,“ segir Hjalti. Margrét Friðriksdóttir, skóla- meistari MK, segir að skólanefnd sé með til skoðunar tillögur sem geri ráð fyrir breytingum á starfsemi skólans. Þær miði að því að ná fram sparnaði í rekstri, en tillögurnar geri ráð fyrir samdrætti í námsframboði. Skólameistarar ætla að hittast á fundi í dag til að ræða fjárhagsstöðu framhaldsskólanna Tap hjá framhalds- skólum  Óttast að/34 Áforma að draga úr námsframboði DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið gaf út samtals 152 leyfi til nafn- breytinga á síðasta ári og er það talsverð fjölgun frá árinu áður en þá voru útgefin nafnbreyting- arleyfi 117. Algengustu óskir um nafnbreytingar eru þær er fólk ósk- ar eftir því að bæta eiginnafni við upprunalegt eiginnafn, en útgefin leyfi fyrir breyttu eiginnafni á síð- asta ári voru 100 talsins. Dæmi eru um að fólk hafi óskað eftir leyfi til að breyta eiginnafni sínu vegna óþæginda sem það telur sig hafa orðið fyrir vegna þess. Útgefnum leyfum fyrir kenni- nöfnum fjölgaði um tæpan helming á milli áranna 2000 og 2001, úr 21 í 40. Óskir um að taka upp ættarnafn hafa færst í vöxt. Ennfremur fer þeim fjölgandi sem óska eftir að kenna sig við móður í stað föður. Nafnbreyt- ingum fjölgar  Undir nýjum nöfnum/B6 ♦ ♦ ♦ MILT og hlýtt veður var á landinu í gær og fór hiti víða yf- ir tíu stig, t.d. á höfuðborgar- svæðinu. Á Suðaustur- og Aust- urlandi var þó rigning en víðast annars staðar þurrt. Óhætt er að segja að veðrið sé óvenjulegt miðað við árstíma, en aðventan fer senn í hönd. Í dag spáir Veðurstofan því að áfram verði rigning eða súld á Suðaustur- og Austurlandi, að það hvessi við suðurströndina en að hiti verði áfram á bilinu 4–10 stig. Víða mjög hlýtt í gær
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.