Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 1
DAUÐSFÖLLUM í slysum er rakin eru til farsímanotkunar bílstjóra undir stýri virðist vera að fjölga verulega í Bandaríkj- unum. Niðurstöður rannsóknar er unnin var við Harvard-há- skóla benda til að árlega látist um 2.600 manns af þessum sök- um, en fyrir tveimur árum var sambærileg tala um eitt þúsund. „Tíminn sem fólk ver í að tala í símann á meðan það er undir stýri hefur aukist, líklega vegna þeirrar staðreyndar að farsíma- notkun er orðin ódýrari,“ sagði Joshua Cohen, höfundur rann- sóknarinnar. Niðurstöðurnar benda enn- fremur til þess, að um 570 þús- und slys og 1,5 milljón árekstra er leiða til tjóns megi rekja til farsímanotkunar. Hugurinn, ekki hendurnar New York er eina bandaríska sambandsríkið sem hefur sett lög er skylda menn til að nota handfrjálsan búnað á farsíma en alls hafa 22 af 50 sambandsríkj- um íhugað að takmarka far- símanotkun undir stýri með ein- hverjum hætti. Cohen segir að ef til vill sé þetta þó ekki rétta leiðin. Rann- sókn í Kanada hafi sýnt fram á að handfrjáls búnaður virðist ekki draga úr hættunni á slys- um. Hættan stafi af truflun á eftirtekt bílstjóranna, fremur en truflun á beitingu handanna. Lífshættu- leg símtöl undir stýri Washington. The Los Angeles Times. STOFNAÐ 1913 283. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 mbl.is Lagasmiður Laga og reglu Atli Örvarsson semur tónlist í sjónvarpsþætti Fólk 46 Mikil pressa á Atla Atli Hilmarsson þjálfar Friesenheim í Þýskalandi Íþróttir 2 Jónas um veröld víða Dick Ringler kynnir Jónas Hallgrímsson í nýrri bók Listir 22 w w w . i c e l a n d r e v i e w . c o m ICELAND REVIEW Vönduð gjöf sem endist allt árið VERÐ AÐEINS 3. 175,- sendingarkostnaður innifalinn PANTIÐ GJAFAÁSKRIFTIR í síma 512 7575 eða á askrift@icelandreview.com LIÐSMENN vopnaeftirlits Samein- uðu þjóðanna í Írak við mynd af Saddam Hussein forseta í vígahug. Eftirlitsmenn könnuðu í gær Al- Wasiriya-eldflaugaverksmiðjuna í Bagdad. Komust þeir að raun um að búnaður sem eftirlitsmenn höfðu rannsakað og merkt 1998, áður en þeir voru reknir úr landi, var horf- inn ásamt eftirlitsmyndavélum. Írakar segja að sumt af búnaðinum hafi eyðilagst í loftárásum, annað hafi verið flutt á brott. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að niðurstöður eftirlitsins fram til þessa væru „ekki uppörvandi“. Reuters Saddam og vopn hans undir eftirliti  Saddam/15 FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins telur að stóraukin fjárframlög Íslands og Noregs í þróunarsjóði sambandsins dugi ekki til að fá fram aukna fríverzl- un með fisk í ESB. Percy Wester- lund, skrifstofustjóri í utanríkis- máladeild framkvæmdastjórnar- innar og væntanlegur aðalsamn- ingamaður í viðræðum við EFTA- ríkin, segir að ekki komi til greina að semja um aukinn markaðsað- gang fyrir fisk nema á móti komi heimildir til fjárfestinga ESB- borgara í íslenzkum og norskum sjávarútvegi. Litið til sérstöðu Íslands Í viðtali við Morgunblaðið segir Westerlund að krafa ESB um auk- in fjárframlög „standi á eigin fót- um“ og sé ekki tengd öðrum þátt- um samningaviðræðnanna. „Auð- vitað munu báðir samningsaðilar meta heildarmyndina þegar þar að kemur, en þrátt fyrir það er ekki hægt að hugsa sér niðurstöðu, sem felur í sér aukinn markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir án þess að þar sé náð jafnvægi innan sjávarút- vegsgeirans.“ Westerlund segir jafnframt að ekki sé hægt að slá því föstu hversu langt fjárfesting- arfrelsið eigi að ganga; það geti orðið í hlutfalli við þá aukningu markaðsaðgangs, sem farið sé fram á. Westerlund telur aftur á móti að ESB muni taka tillit til sérstöðu Íslands þegar komi að því að semja um fjárhæð greiðslna í sjóði ESB. „Það er ljóst að menn munu taka tillit til sérstakra aðstæðna og við vitum að Ísland er í sér- stakri stöðu,“ segir hann. Heimild til fjár- festinga skilyrði fyrir fríverzlun  EFTA-ríkin njóta forréttinda/6 FORSETAR Kína og Rússlands, Jiang Zemin og Vladímír Pútín, vilja að ágreiningur um gereyðingarvopn Norður-Kóreumanna verði leystur með viðræðum. Pútín og Jiang sögðu á fundi sínum í Peking í gær brýnt að samskipti N-Kóreu við Bandaríkin byggðust á samningi frá 1994 þar sem N-Kóreumenn féllust á að hætta að þróa kjarnavopn gegn því að Banda- ríkin sæju þeim fyrir kjarnakljúfum til orkuframleiðslu og olíu. Á fundi með bandarískum sendi- manni í október lýsti fulltrúi Norður- Kóreu því óvænt yfir að stjórn hans gerði tilraunir með kjarnavopn. N-Kóreumenn sögðu nýlega að samn- ingurinn frá 1994 væri ekki lengur í gildi eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að hætta að sjá þeim fyrir olíu. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær að ekki væri nauðsynlegt að N-Kórea og Banda- ríkin tækju upp stjórnmálasamband. Hins vegar lagði hann áherslu á að hafnar yrðu sem fyrst beinar viðræð- ur milli ríkjanna um deiluna. Pútín og Jiang samþykktu einnig í 13 síðna, sameiginlegri yfirlýsingu sinni í gær að snúa saman bökum í baráttunni gegn aðskilnaðarsinnum úr röðum múslíma. Uighurar í vest- urhéruðum Kína berjast gegn kín- verskum yfirráðum og slíkt hið sama gera Tétsenar í suðurhluta Rúss- lands. Leiðtogarnir tveir sögðu að barátta uppreisnarmannanna væri þáttur í aðgerðum alþjóðlegra hermd- arverkasamtaka. Reuters Pútín og Jiang takast í hendur að loknum fundi sínum í Peking í gær. Vilja við- ræður við N-Kóreu Peking. AP, AFP.  Pútín/17 HUGMYNDIR eru uppi um stofnun umfangsmikils fasteignafélags sem eignist og annist rekstur fasteigna sem nú eru í eigu sveitarfélaga, fjár- málafyrirtækja og jafnvel ríkisins. Íslandsbanki átti frumkvæði að verkefninu, sem hefur verið í und- irbúningi í nokkra mánuði, og standa viðræður yfir um þessar mundir við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er hugmyndin sú að sett verði á fót sérhæft eignarhaldsfélag þar sem sveitarfélög og fleiri aðilar leggi fasteignir sínar til félagsins og leigi þær síðan af félaginu. Hug- myndir um að ríkið komi að þessu verkefni eru hins vegar mun skemmra á veg komnar. Engar ákvarðanir hafa enn verið teknar en stefnt er að stofnun fast- eignafélagsins síðar í þessum mán- uði. Ragnar Atli Guðmundsson við- skiptafræðingur, sem var áður m.a. framkvæmdastjóri eignarhalds- félagsins Kringlunnar og fasteigna- félagsins Þyrpingar, hefur stýrt undirbúningi málsins fyrir hönd Ís- landsbanka og annarra væntanlegra stofnaðila félagsins. Rekstur fasteignafélaga sem sér- hæfa sig í rekstri fasteigna og leigu til traustra leigutaka á borð við ríki, sveitarfélög og bankastofnanir er óþekktur hér á landi en þau hafa ver- ið starfrækt víða í öðrum löndum. Talið er að ef af stofnun fasteigna- félagsins verður gæti félagið rekið viðkomandi fasteignir á mun hag- kvæmari hátt en verið hefur og til hagsbóta fyrir sveitarfélögin, ekki síst þar sem gerð er krafa um það í nýjum bókhaldslögum um sveitar- félög að skýr aðskilnaður sé á milli rekstrarreiknings sveitarfélagsins og þeirra fasteigna sem sveitarfélag- ið á. Íslandsbanki og sveitarfélög ræða stofnun fasteignafélags Félag kaupi og leigi út opinberar eignir Stefnt að stofnun félagsins í mánuðinum  Hugmyndir um þátttöku ríkisins í félaginu skemmra á veg komnar Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.