Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GRANNRÍKI Ástralíu fordæmdu í
gær yfirlýsingu Johns Howards, for-
sætisráðherra Ástralíu, sem hótaði
árásum á hryðjuverkamenn í öðrum
löndum til að koma í veg fyrir árásir
á ástralska borgara. Stjórnvöld í
Indónesíu, Malasíu, Filippseyjum og
Taílandi sökuðu Howard um hroka
og sögðu hótunina grafa undan sam-
starfi þeirra við Ástrala í baráttunni
gegn hryðjuverkasamtökum.
Howard sagði á sunnudag að hann
myndi skipa her Ástralíu að gera
fyrirbyggjandi árásir á hryðjuverka-
menn í öðrum löndum ef hann fengi
áreiðanlegar upplýsingar um að þeir
ráðgerðu árásir á ástralska borgara.
Hann hvatti einnig til breytinga á
stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og
þjóðarétti til að heimila slíkar fyr-
irbyggjandi árásir á hryðjuverka-
menn.
Sakaður um stríðsæsingar
Stjórnarandstæðingar á þingi
Ástralíu sökuðu forsætisráðherrann
um stríðsæsingar og sögðu yfirlýs-
inguna glappaskot sem yki spennuna
í samskiptunum við grannríkin.
Howard kvaðst standa við ummælin
og sagði að stjórninni bæri skylda til
þess að grípa til aðgerða gegn
hryðjuverkamönnum ef nauðsyn
krefði til að vernda ástralska borg-
ara.
Alexander Downer, utanríkisráð-
herra Ástralíu, neitaði því að stjórn-
in væri að undirbúa fyrirbyggjandi
árásir. „Það er ekki rétt að draga þá
ályktun að Ástralar séu um það bil
að senda hersveitir til landa í Suð-
austur-Asíu,“ sagði hann.
Ummæli Howards ollu miklu upp-
námi í Indónesíu, fjölmennasta
múslímaríki heims. „Ástralar eru til-
búnir að ráðast inn í Asíu,“ sagði í
flennifyrirsögn á forsíðu indónesíska
dagblaðsins Republika. „Stjórn
Ástralíu skammast sín ekki fyrir að
líta á sig sem lögreglustjóra Banda-
ríkjanna í þessum heimshluta.“
Haas Wirayuda, utanríkisráð-
herra Indónesíu, sagði að ummæli
Howards væru „óviðunandi“ og
þorri aðildarríkja Sameinuðu þjóð-
anna myndi ekki fallast á tillögu
hans um að heimila fyrirbyggjandi
árásir í öðrum löndum.
Roilo Golez, þjóðaröryggisráðgjafi
stjórnarinnar á Filippseyjum, sakaði
Howard um hroka og kvaðst ætla að
leggja til að stjórnin endurskoðaði
fyrirhugaðan samning við Ástralíu
um samstarf í baráttunni gegn
hryðjuverkasamtökum.
Svar við ásökunum
Ástralar fylgjast nú grannt með
því hvernig grannþjóðirnar taka á
íslömskum öfgahreyfingum eftir
sprengjuárásina á indónesísku eyj-
unni Balí 12. október. Yfir 190 manns
biðu þá bana, þar af 82 ástralskir
ferðamenn.
Keith Suter, sérfræðingur í þjóða-
rétti, sagði að ummæli Howards virt-
ust vera svar hans við ásökunum um
að stjórn hans hefði látið hjá líða að
vara ferðamenn við því að ferðast til
Indónesíu fyrir sprengjutilræðið á
Balí þótt hún hefði fengið upplýsing-
ar frá leyniþjónustunni um að
hryðjuverk kynnu að vera yfirvof-
andi. „Ásakanirnar um að hann hafi
leitt hryðjuverkavána hjá sér fengu
svo á hann að hann hefur látið leiðast
út í hinar öfgarnar,“ sagði Suter.
„Vandamálið er að það sem hljómar
vel í eyrum Ástrala veldur augljós-
lega vandræðum erlendis.“
Grannríki Ástralíu for-
dæma hótun Howards
Reuters
John Howard og stjórn hans vilja ganga langt í hryðjuverkavörnum.
Hótaði fyrirbyggjandi árásum á
hryðjuverkamenn í öðrum löndum
Bangkok, Manila. AP, AFP.
FORSVARSMENN nokkurra
sveitarfélaga í Danmörku hafa
farið fram á það við ríkisstjórn-
ina, að hún breyti lögum þannig
að hægt verði að sekta sjúk-
linga sem ekki mæta í sjúkra-
hússaðgerðir. Jyllandsposten
hefur það eftir Bent Hansen,
formanni heilbrigðismála-
nefndar samtaka danskra
sveitarfélaga, að um tíundi hver
sjúklingur „skrópi“ í fyrirfram
ákveðnum aðgerðum og að
þetta valdi óþægindum og
kostnaði í heilbrigðiskerfinu.
Vill hann að heimild verði veitt
fyrir því að sett verði sem svar-
ar allt að 110.000 ísl. kr. við-
urlög við því að mæta ekki í að-
gerð.
Dauðadómi
áfrýjað
LÖGMAÐUR umbótasinnaða
háskólakennarans Hashem
Aghajari, sem dæmdur var til
dauða í Íran fyrir guðlast og
drottinsvik fyrir að hafa leyft
sér að efast
opinberlega
um óskeik-
ulleik
klerka-
stjórnarinn-
ar, hefur
áfrýjað
dómnum. Sú
ákvörðun
gerir dóm-
stólunum –
þar sem harðlínumenn hafa
tögl og hagldir – kleift að end-
urmeta dóminn í samræmi við
fyrirskipun Ayatollah Ali
Khamenei æðstaklerks. Dóm-
urinn hafði valdið víðtækum
mótmælum, einkum af hálfu
námsmanna, en Aghajari hafði
neitað að áfrýja honum í því
skyni að ögra dómstólunum.
Sagðist lögmaðurinn, Saleh
Nikbakht, munu áfrýja jafnvel
þótt skjólstæðingur sinn vildi
það ekki, í von um að það drægi
úr spennunni sem málið hefur
valdið.
47 farast
í eldsvoða
ELDSVOÐI í troðfullum næt-
urklúbbi í Caracas, höfuðborg
Venesúela, varð að minnsta
kosti 47 manns að bana
snemma á sunnudagsmorgun.
Að sögn talsmanna slökkviliðs
uppfyllti húsnæðið ekki örygg-
isstaðla um eldvarnir, en klúbb-
urinn var til húsa í kjallara
gamallar byggingar í einu fá-
tækasta hverfi miðborgarinn-
ar. Reykeitrun reyndist bana-
mein um átta af hverjum tíu
sem fórust.
Rússar svara
Svíum
RÚSSNESK stjórnvöld vísuðu
í gær úr landi tveimur sænsk-
um sendiráðsstarfsmönnum.
Var þessi ákvörðun svar við
brottvísun tveggja rússneskra
sendiráðsstarfsmanna frá Sví-
þjóð í fyrra mánuði, en sænsk
stjórnvöld sökuðu þá um að
hafa verið viðriðnir iðnaðar-
njósnir hjá dótturfyrirtæki
fjarskiptatæknistórfyrirtækis-
ins Ericsson.
STUTT
Sekt fyrir
að mæta
ekki í að-
gerð?
Hashem Aghajari
ROSTOCK-borg í
Þýskalandi hefur
öðlast nýtt líf í pip-
arkökum. Marion
Decker er hér að
leggja síðustu hönd
á smíðina en borgin
nær yfir um 400 fer-
metra á landbún-
aðarvörumarkaði í
Rövershagen
skammt frá Rostock.
Í hana fóru 800 kíló
af hveiti, 320 af hun-
angi, 2.400 egg, 400
kíló af möndlum og
heilmikið af rúsín-
um. Segjast borg-
arsmiðirnir vera
vissir um, að þetta
sé nýtt met og muni
því rata rétta leið
inn í metabók
Guinness.AP
Stærsta
pipar-
köku-
borgin
SÍFELLT koma í ljós fleiri vís-
bendingar um að ævi margra líf-
vera lengist verulega ef þær
fækka mikið þeim hitaeiningum
sem þær innbyrða, en þróunarlíf-
fræðingar gjalda vara við því að í
náttúrunni sé ekkert til sem heiti
frítt fæði.
En vísindamenn við heilsu-
gæslumiðstöðina við Háskólann í
Connecticut og læknadeild Yale-
háskóla greindu frá því í tímarit-
inu Science í gær, að ef dregið er
úr magni eins ensíms í ávaxta-
flugu geti hún borðað eins mikið
og hún vill og samt orðið jafn
gömul og flugur sem borða minna.
Ensímið heitir Rpd3 og það
styttir líka líftíma gers, sem
bendir til að það kunni að gegna
sama hlutverki í dýrum og einnig
mönnum. „Við teljum okkur geta
líkt eftir hitaeiningafækkun, en
vitað er að það dregur úr magni
þessa ensíms,“ sagði Stewart
Frankel, vísindamaður við Yale og
aðalhöfundur rannsóknarinnar.
„Ef maður dregur úr magni
ensímsins án þess að borða minna
lengir það samt lífið.“
Niðurstöðurnar eru enn eitt
skrefið í átt til útskýringar á öldr-
un, þ. á m. hvers vegna það virð-
ist lengja líf orma og flugna, og
jafnvel gers, að fá minni
næringu.
Fyrir tveimur árum
greindu vísindamenn við
Háskólann í Connecti-
cut frá því að með því
að stökkbreyta
hjá einum arf-
bera gátu þeir tvö-
faldað meðalævi-
lengd ávaxtaflug-
unnar, Drosophilia
melanogaster. Vísinda-
mennirnir gáfu þessum arf-
bera nafnið „Indy“, sem stóð fyrir
enska heitið „I’m not dead yet“,
eða: Ekki dauður enn.
Í Science í gær kom fram, að
ýmsar stökkbreyttar gerðir af arf-
beranum, sem draga úr magni
Rpd3, geta lengt ævi flugna frá
33% til 52%. Það er um það bil
sama aukning og hjá flugum sem
voru á megrunarfæði, sem einnig
dregur úr magni Rpd3.
Þróunarlíffræðingar hafa
löngum verið fullir efasemda um
svona rannsóknir og halda því
fram, að ef svona stökkbreyt-
ingar, sem bæta lífsskilyrðin
svona mikið, yrðu við nátt-
úrulegar kringumstæður myndu
þær breiðast hratt út innan dýra-
tegundarinnar þar sem langlífari
einstaklingar myndu eignast fleiri
afkvæmi en þeir skammlífari og
afkvæmin myndu erfa breyt-
inguna.
Þróunarlíffræðingarnir fullyrða
að stökkbreytingin hlyti að hafa
einhvern dulinn kostnað í för með
sér, eins og til dæmis minnkaða
hæfni lífverunnar til að fjölga sér.
Kostir aukinnar ævilengdar, sem
koma fram í rannsóknarstofuum-
hverfi, myndu hverfa úti í nátt-
úrunni ef þeir einstaklingar sem
hafa þá geti ekki komið þeim
áfram til afkomenda sinna. Og
staðreyndin er sú, að ávaxta-
flugan lifir það ekki af að hafa lít-
ið magn af Rpd3.
The Hartford Courant.
Ávaxtaflugan get-
ur étið á sig gat