Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTJÁN Pálsson alþingismaður segir að
óskað verði eftir því að miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins leggi mat á það hvort farið hafi ver-
ið að reglum flokksins og hvort trúnaðarmenn
flokksins hafi brugðist trausti við uppstillingu
á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi.
Kristján segir að mjög þungt sé í sínum stuðn-
ingsmönnum vegna niðurstöðu kjördæmis-
ráðsins, en Kristján er ekki á framboðslist-
anum sem samþykktur var á kjördæmisþingi
um helgina.
Árni Ragnar Árnason leiðir lista sjálfstæð-
ismanna í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningar
næsta vor. Drífa Hjartardóttir er í öðru sæti,
Guðjón Hjörleifsson í þriðja sæti og Kjartan
Ólafsson í fjórða sæti. Kosið var um þriðja og
fjórða sæti listans, en tillaga uppstillingar-
nefndar var á endanum samþykkt óbreytt.
Ekki nægur stuðningur í kjörnefnd
Sigurður Valur Ásbjarnarson, formaður
Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi, sagði að við uppröðun á lista hefði
kjörnefnd sett sér nokkur markmið. „Í fyrsta
lagi vildum við að framboðslistinn endurspegl-
aði búsetu í kjördæminu. Í öðru lagi að fram-
boðslistinn tæki eins og kostur er tillit til hlut-
falls karla og kvenna. Í þriðja lagi að
framboðslistinn endurspeglaði aldursdreif-
inguna. Í fjórða lagi að tvö sæti a.m.k. skilji á
milli frambjóðenda úr sama byggðarlagi. Við
settum okkur einnig þá reglu í kjörnefndinni
að viðhöfð væri skrifleg atkvæðagreiðsla um
öll sætin.“
Sigurður Valur sagði þegar hann var spurð-
ur hvort Kristján Pálsson hefði sett nefndinni
einhver skilyrði, að allir þingmenn flokksins
hefðu sent nefndinni ákveðin skilaboð. Krist-
ján hefði ekki gengið lengra í þeim efnum en
aðrir þingmenn gerðu.
Sigurður Valur sagði að skrifleg atkvæða-
greiðsla hefði farið fram innan kjörnefndar um
öll sætin. Stuðningur við Kristján innan kjör-
nefndar hefði ekki dugað honum til að fá eitt af
efstu sætunum.
Vinnureglur kjörnefndar ekki kynntar
Kristján Pálsson sagði í samtali við Morg-
unblaðið að kjörnefndin hefði að sínu mati ekki
lagt fram nein rök fyrir því að leggja ekki til að
hann yrði á listanum. „Á fundi kjördæmisráðs-
ins gerði kjörnefnd grein fyrir reglum sem
hún notaði við uppröðun á listann. Þessar regl-
ur, sem ég hafði aldrei séð áður, eru hins vegar
nánast sniðnar til þess að hægt væri að gera
eitthvað svona. Reglurnar ganga m.a. út á að
það verði að vera tvö sæti á milli manna úr
sama bæjarfélagi. Það gat aðeins varðað tvo
menn, mig og Árna Ragnar og þetta þýddi að
einungis annar okkar var inni á listanum.“
Kristján sagði ámælisvert að nefndin skyldi
ekki hafa kynnt þessar reglur fyrir öllum
frambjóðendum. „Það kom fram á fundi kjör-
dæmisráðs að þrír af þeim sem sátu í uppstill-
ingarnefnd létu nefna sjálfan sig sem mögu-
lega frambjóðendur. Þetta voru Ellert
Eiríksson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og
Guðjón Hjörleifsson. Tveir af þessum mönnum
létu síðan kjósa um sig. Sigurður Valur gaf
kost á sér í fyrsta sætið þrátt fyrir að hann
sæti í uppstillingarnefnd. Þetta er auðvitað fá-
heyrt. Hann fékk hins vegar ekki nægilega
mörg atkvæði, en hélt engu að síður áfram
störfum í nefndinni.
Guðjón Hjörleifsson tók þátt í atkvæða-
greiðslu um fyrsta sætið og tók þátt í að und-
irbúa mál fyrir næstu sæti þar á eftir og sagði
sig síðan úr nefndinni.“Kristján sagðist aldrei
hafa kynnst öðrum eins vinnubrögðum. Það
væri augljóst að þarna hefðu frambjóðendur
ekki setið við sama borð.
Munaði 10 atkvæðum
Á kjördæmisþinginu lögðu stuðningsmenn
Kristjáns fram tillögu sem að sögn Kristjáns
miðaði að því að brjóta upp tillögu kjörnefnd-
ar. Tillagan gekk út á að Kjartan yrði í þriðja
sæti, Kristján í fjórða og Guðjón í fimmta. Í
kosningu um þriðja sætið fékk Guðjón 82 at-
kvæði og Kjartan 72. Þar með var ljóst að til-
raun til að breyta tillögu kjörnefndar hafði
mistekist. Í atkvæðagreiðslu um fjórða sætið
var kosið milli Kjartans og Kristjáns og
studdu stuðningsmenn Kjartans þá sinn mann,
en stuðningsmenn Kristjáns og Kjartans
höfðu sameinast um að styðja Kjartan í at-
kvæðagreiðslu um þriðja sætið. Kjartan fékk
118 atkvæði í atkvæðagreiðslu um fjórða sætið
en Kristján 36.
„Það er mjög erfitt að breyta tillögum upp-
stillingarnefndar,“ sagði Kristján þegar hann
var spurður um þessa niðurstöðu. Hann sagði
að fjöldi fulltrúa á kjördæmisþingi endurspegl-
aði fjölda félagsmanna á hverjum stað en ekki
endilega fjölda kjósenda. Vestmannaeyingar
hefðu t.d. verið með næstum jafnmarga full-
trúa á kjördæmisþinginu og Suðurnesjamenn
þrátt fyrir að kjósendur á Suðurnesjum væru
mun fleiri. Kristján sagði að þegar menn
kæmu á kjördæmisþing gætti ákveðinnar
tregðu til að breyta tillögu kjörnefndar. Menn
vildu síður rugga bátnum, m.a. af ótta við að
þeirra maður félli útbyrðis.
„Ég veit ekki hvort það er nokkurn tímann
hægt að sætta sig við svona vinnubrögð. Þetta
er óskaplega ódrengilegt og óheiðarlegt gagn-
vart mér. Ég mun því aldrei sætta mig við
þetta. Það er svo aftur annað mál hvað ég geri
í því,“ sagði Kristján.
Margir rætt um sérframboð
Hafa þínir stuðningsmenn þrýst á þig að
fara í sérframboð?
„Það hafa mjög margir rætt við mig um sér-
framboð. Reyndar miklu fleiri en ég hefði get-
að búist við að óreyndu.
Ég geri ráð fyrir því að við munum koma
þessu máli til miðstjórnar flokksins og það
verði látið á það reyna hvort miðstjórnin sjái
ástæðu til að gera eitthvað í þessu. Mér finnst
það fara nokkuð mikið eftir því hvað miðstjórn
vill gera, hver framhaldið getur orðið. Æðsta
stjórn flokksins hlýtur að þurfa að taka af-
stöðu til þess hvort eðlilega hafi verið staðið að
málum og hvort trúnaðarmenn flokksins hafi
brugðist trausti þeirra. Það er afskaplega
þungt í Suðurnesjamönnum og mínum stuðn-
ingsmönnum út af þessu og raunar í fólki í öllu
kjördæminu. Það er mjög alvarlegt að mál
skyldu þróast svona.“ Kristján sagðist koma til
með að ræða við Davíð Oddsson um miðja
þessa viku þar sem farið yrði yfir málið.
Kristján sagðist mjög ósáttur við þá fullyrð-
ingu sem höfð var eftir Ellert Eiríkssyni, for-
manni uppstillingarnefndar, í Morgunblaðinu
sl. föstudag að Kristján Pálsson hefði sett
nefndinni skilyrði. Þetta væri rangt. Sömuleið-
is sagðist hann undrast fullyrðingar Ellerts
um að fjölskyldu hans hefði verið hótað. Hann
sagðist hafa haft samband við mjög marga af
stuðningsmönnum sínum og enginn kannaðist
við að neitt hefði verið gert til að angra fjöl-
skyldu Ellerts Eiríkssonar. „Manni finnst
nokkuð langt gengið þegar menn, sem tekið
hafa að sér starf eins og þetta, eru farnir að
skýla sér á bak við eiginkonur sínar eða fjöl-
skyldu til að koma sér hjá gagnrýni,“ sagði
Kristján.
Mótmælir vinnu-
lagi kjörnefndar
Kristján Pálsson er ekki á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Kristján Pálsson alþingismaður er mjög óánægður
með vinnubrögð kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi og segir að miðstjórn flokksins verði
beðin um að segja álit sitt á þeim.
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
verður í fyrsta sæti á framboðs-
lista flokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður fyrir alþing-
iskosningar næsta vor. Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra og
varaformaður flokksins, verður í
fyrsta sæti á lista flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suður.
Dregið var um það í Valhöll á
sunnudag hvort Reykjavík-
urkjördæmanna þeir kæmu til
með að leiða fyrir hönd flokksins.
Það voru ungir kjósendur í
Reykjavík sem drógu miða sem
skar úr um hvar Davíð og Geir
yrðu í kjöri.
Ekki er búið að taka ákvörðun
um það hverjir skipa önnur sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í suður-
og norðurkjördæmum borg-
arinnar. Kjörnefnd kom saman til
fundar í gærkvöldi og stefnir hún
að því að ljúka vinnu við uppstill-
ingu á listann í þessari viku. Ekki
er búið að boða fund í fulltrúaráði
flokksins en endanlegur listi verð-
ur borinn undir ráðið.
Bæði Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar, og
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, hafa lýst því
yfir að þeir ætli að bjóða sig fram
í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Það eru því horfur á að formenn
Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
arflokks og Samfylkingar verði
allir í kjöri í sama kjördæmi.
Davíð verður efstur í
norðurkjördæminu
Morgunblaðið/Golli
Það voru ungir kjósendur í Reykjavík sem drógu miða sem skar úr um hvar Davíð og Geir yrðu í kjöri.
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi var
samþykktur á kjördæmisþingi flokks-
ins í Valhöll á laugardag.
Eftirtaldir skipa listann:
1. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra Hafnarfirði
2. Gunnar I. Birgisson alþingismað-
ur Kópavogi
3. Sigríður A. Þórðardóttir alþingis-
maður Mosfellsbæ
4. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
alþingismaður Hafnarfirði
5. Bjarni Benediktsson lögfræðing-
ur Garðabæ
6. Sigurrós Þorgrímsdóttir stjórn-
málafræðingur Kópavogi
7. Þórdís Sigurðardóttir flugumferð-
arstjóri Seltjarnarnesi
8. Bryndís Haraldsdóttir iðnrekstr-
arfræðingur Mosfellsbæ
9. Hildur Ragnars lyfjafræðingur
Bessastaðahreppi
10. Almar Grímsson framkvæmda-
stjóri Hafnarfirði
11. Sólveig Pálsdóttir bókasafnsfræð-
ingur Seltjarnarnesi
12. Pétur Stefánsson verkfæðingur
Garðabæ
13. Bjarki Sigurðsson rafvirki Mos-
fellsbæ
14. Halldór Karl Högnason raf-
magnsverkfræðingur Kópavogi
15. Oddfríður Steinþórsdóttir leik-
skólastjóri Hafnarfirði
16. Elín María Björnsdóttir Kennari/
þáttastj. Garðabæ
17. Gunnar Leó Helgason bóndi Kjós
18. Ásta Þórarinsdóttir hagfræðingur
Kópavogi
19. Albert Már Steingrímsson versl-
unarmaður Hafnarfirði
20. Níelsa Magnúsdóttir húsmóðir
Bessastaðahreppi
21. Þorgerður Aðalsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Kópavogi
22. Sigurgeir Sigurðsson fyrrv. bæj-
arstjóri Seltjarnarnesi
Tókst að auka hlut kvenna
„Mér finnst í raun ótrúlegt hvernig
Kópavogur gat tapað slagnum um
fimmta sætið. Úr því sem komið var
þegar það fór að kvisast út í fjölmiðl-
um að Kópavogur væri búinn að tapa
þessu fimmta sæti og að kandídatinn
fyrir hönd Kópavogs í sjötta sætið
væri Jón Gunnarsson þá fannst mér
meginmálið að fjölga konum í upp-
stillingu í sex efstu sætunum,“ segir
Helga Guðrún Jónasdóttir, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins og for-
maður Landssambands sjálfstæðis-
kvenna. Helga Guðrún er ekki á lista
flokksins í Suðvesturkjördæmi sem
samþykktur var á þingi kjördæmis-
ráðs á laugardag. Hún segist aðspurð
ekki hafa metnað til að vera varaþing-
maður önnur fjögur ár. „Þetta er
fyrst og fremst spurning um að auka
hlut kvenna í sex efstu sætunum. Mér
tókst það og er því sátt að vissu leyti
en er að sjálfsögðu óánægð með að
hafa ekki fengið fimmta sætið.“
Helga Guðrún segir listann vera
sterkan eins og hann líti út og bendir
á að búið sé að endurnýja bæði
fimmta og sjötta sætið.
„Í prófkjöri eru ákveðin óvissulög-
mál sem ráða för sem eru viðráðanleg
í uppstillingu. Þá er það allavega mín
skoðun að miðað við allar þær fjöl-
mörgu konur sem eru í Kópavogi með
góða reynslu af stjórnmálum þá ætti
að leggja áherslu á að finna konu.“
Helga Guðrún segist munu hverfa
til annarra trúnaðarstarfa innan
flokksins. Hún gegnir stöðu formanns
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
„Það er mikill kraftur í konum inn-
an Sjálfstæðisflokksins,“ segir Helga
Guðrún að lokum.
D-listi í Suð-
vesturkjördæmi
samþykktur