Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
ÁRIÐ 2002 var metár hjáÍbúðalánasjóði hvað varð-ar húsbréfaútgáfu, söluhúsnæðisbréfa, útlán við-
bótarlána og leiguíbúðalána.
Alls nam útgáfa Íbúðalánasjóðs á
húsbréfum og húsnæðisbréfum 50,6
milljörðum króna á reiknuðu verði
húsbréfa og söluverði húsnæð-
isbréfa. Sjóðurinn greiddi hins vegar
35,5 milljarða í afborganir, vexti og
verðbætur af skuldum sínum.
Þrátt fyrir metútgáfu voru afföll
húsbréfa á síðustu mánuðum ársins
2002 lægri en verið hafði frá því í
byrjun árs 2000. Ástæður þess eru
betra upplýsingaflæði Íbúðalána-
sjóðs og stóraukin kaup erlendra
fjárfesta á íslenskum húsbréfum og
húsnæðisbréfum.
Vanskil við sjóðinn voru í sögu-
legu lágmarki á árinu 2002.
Greiðsluerfiðleikamál hins vegar
tvöfölduðust á milli ára þótt enn sé
nokkuð í það að fjöldi slíkra mála nái
því sem var á árunum 1995 og 1997.
Hagræðing og aukin framleiðni
sem stefnt var að við stofnun sjóðs-
ins náðist á árinu sem meðal annars
sést á styttri afgreiðslutíma láns-
umsókna.
Húsbréfaútgáfa – Fjöldi
Afgreiddum umsóknum um hús-
bréfalán fjölgaði um 3,7% á árinu
2002 miðað við árið 2001.
Íbúðalánasjóður skipti alls 10.423
fasteignaveðbréfum fyrir húsbréf.
Að baki þessum skiptum lágu 10.039
umsóknir.
Flestar umsóknir eru vegna
kaupa á notuðu húsnæði eða alls
7.964. Þeim fjölgaði um 8,3% frá
árinu 2001 þegar afgreiddar um-
sóknur voru 7.353.
Afgreiddum umsóknum vegna ný-
bygginga fækkaði um 11,1%. Þær
urðu 2.188 á árinu 2002, en voru
2.433 á árinu 2001.
Fjöldi afgreiddra umsókna vegna
endurbóta var nánast sá sami árið
2002 og 2001. Afgreiddar voru 271
umsókn á nýliðnu ári, en 269 árið áð-
ur.
Fjárhæðir
Heildarútgáfa húsbréfa á reikn-
uðu verði varð alls um 34,9 millj-
arðar króna, en var um 31 milljarður
á árinu 2001. Heildarútgáfa á reikn-
uðu verði hefur því aukist um 13%
milli ára sem er nokkru meiri aukn-
ing en fjölgun umsókna milli ára.
Það stafar meðal annars af því að
hámarkslán hækkuðu í marsmánuði
2001 og hækkun húsnæðisverðs.
Útgáfa húsbréfa vegna kaupa á
notuðu húsnæði var að fjárhæð um
23,1 milljarður króna á reiknuðu
verði á árinu 2002, en var um 19,7
milljarðar árið áður. Þetta er aukn-
ing um 17%.
Vegna nýbygginga voru afgreidd
húsbréf á reiknuðu verði að fjárhæð
um 11,2 milljarðar króna á árinu
2002. Sambærileg fjárhæð árið 2001
var um 10,6 milljarðar. Fjárhæð af-
greiddra húsbréfa á reiknuðu verði
hækkar því um 5,7% milli ára, þrátt
fyrir fækkun umsókna.
Afgreidd voru húsbréf að fjárhæð
tæplega 502 milljónir króna vegna
endurbóta og endurnýjunar, sem er
um 4,7% samdráttur frá árinu 2001
þegar afgreidd voru húsbréf að fjár-
hæð tæplega 527 milljónir króna
vegna þessa lánaflokks.
Sala húsnæðisbréfa
Á árinu 2002 seldi Íbúðalánasjóð-
ur húsnæðisbréf að fjárhæð 15,7
milljarðar króna, en sjóðurinn fjár-
magnar peningalán sín með sölu
húsnæðisbréfa. Meðalávöxt-
unarkrafa ársins 2002 var 5,64%, en
meðaltal síðustu þriggja útboða hús-
næðisbréfa var 5,26%.
Viðbótarlán
Á árinu 2002 voru afgreidd 2.592
viðbótarlán að fjárhæð 4.836 millj-
ónir króna. Það er fjölgun um 48%,
en árið 2001 voru afgreidd 1.747 lán.
Fjárhæð viðbótarlána hefur hins
vegar hækkað um 65% þar sem
heildarfjárhæð viðbótarlána árið áð-
ur var 2.929 milljónir króna.
Lán til leiguíbúða
Lán til leiguíbúða eru afgreidd
þegar íbúðirnar eru tilbúnar til
notkunar. Alls voru afgreidd 449 lán
til leiguíbúða að fjárhæð 4.706 millj-
ónir króna. Um er að ræða eftirfar-
andi þrjá lánaflokka leiguíbúðalána.
Almennar leiguíbúðir:
Íbúðalánasjóður afgreiddi alls 181
lán til almennra leiguíbúða að fjár-
hæð samtals 1.740 milljónir króna.
Þessi lán báru 4,9% vexti á árinu
2002.
Félagslegar leiguíbúðir sveitarfé-
laga og félagasamtaka:
Afgreidd leiguíbúðalán til sveitar-
félaga og félagasamtaka urðu alls
235 á árinu 2002. Heildarfjárhæð
lánanna varð 2.680 milljónir króna.
Vextir þessara lána voru 3,5%.
Sérstakt átak:
Í sérstöku átaki til fjölgunar
leiguíbúða voru afgreidd 33 lán að
fjárhæð alls 289 milljónir króna.
Þessi lán bera 4,5% fasta vexti og
eru þetta fyrstu lánin sem afgreidd
eru úr þessum lánaflokki. Alls er
gert ráð fyrir að afgreidd verði um
600 slík lán í átakinu á árabilinu 2002
til 2006.
Metár hjá Íbúðalánasjóði
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
yfirmann gæða- og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs/hallur@ils.is
Morgunblaðið/Golli
Efnisyfirlit
Ás ............................................ 14–15
Ásbyrgi ......................................... 21
Berg ............................................... 31
Bifröst ........................................... 19
Borgir ........................................... 29
Brynjólfur Jónsson .................... 17
Eign.is .................................. 38–39
Eignaborg ....................................... 7
Eignalistinn ................................... 8
Eignamiðlun ........................ 24–25
Eignaval ....................................... 40
Fasteign.is .................................. 33
Fasteignamarkaðurinn ............. 13
Fasteignamiðlunin .................... 30
Fasteignamiðstöðin ................... 19
Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 15
Fasteignasala Íslands ................. 8
Fasteignastofan ........................ 48
Fasteignaþing ............................. 37
Fjárfesting .................................. 27
Fold ................................................ 12
Foss ................................................ 18
Garðatorg .................................... 43
Garður ............................................ 11
Gimli ................................................ 3
Heimili .......................................... 23
Hóll .................................................. 9
Hraunhamar ............................. 6–7
101 Reykjavík ............................. 28
Húsakaup ...................................... 16
Húsavík ........................................ 36
Höfði ................................................ 5
Höfði Hafnarfirði .......................... 4
Íslenskir aðalverktakar ........... 34
Kaupendaþjónustan ................... 21
Kjöreign ....................................... 47
Laufás .......................................... 20
Lundur ..................................... 10–11
Lyngvík ........................................ 35
Miðborg ......................................... 41
Skeifan ......................................... 45
Stakfell ........................................ 44
Valhöll .................................. 22–23
Mosfellsbær – Hjá Fasteignasölu
Mosfellsbæjar er nú til sölu stórt og
mikið 408 ferm einbýlishús á mikl-
um útsýnisstað við óbyggt svæði í
Hlíðarási í Mosfellsbæ. Ásett verð
er 29,5 millj. kr.
Komið er inn í flísalagða forstofu
með forstofuskáp og síðan inn í
stórt, opið alrými með ullarteppi á
gólfi. Þetta alrými skiptist upp í
stofu, borðstofu og setustofu. Til
hægri úr rýminu er eldhús með góð-
um eldhúskrók og dúk á gólfi.
Í eldhúsi er U-laga eldhúsinnrétt-
ing úr rauðri eik en inn af eldhúsi er
stórt búrherbergi. Úr eldhúsi er
komið í borðstofu og úr henni er
mikið útsýni. Úr borðstofu er opið
inn í stofu, sem afmarkast að hluta
til með fallegum arni. Úr stofunni er
gengið út á mjög stórar svalir í vest-
ur og af þeim er gríðarmikið útsýni
yfir Mosfellsbæ, Leirvog og að
Esju.
Úr alrýminu er gengið niður tvær
tröppur inn á svefnherbergisgang
með teppi á gólfi. Fyrst er baðher-
bergi með baðkari og sturtuklefa,
dúkur á gólfi en flísar á veggjum.
Þar við hlið eru tvö barnaherbergi
með dúk á gólfi. Innst á gangi er
stórt barnaherbergi með góðum
fataskáp og innst á gangi er einnig
gengið út á góðar svalir í vestur. Af
svefnherbergisgangi er gengið nið-
ur stóran hringstiga niður á jarð-
hæð. Þar er stórt flísalagt rými og
úr því er gengið inn í tvö svefnher-
bergi.
Við hlið þeirra á hægri hönd er
þvottahús með góðri innréttingu og
við hlið þvottahúss er gengt út í garð
í norður, en þar er einnig inngangur
í 43,7 ferm geymslurými undir bíl-
skúrnum. Á móti þvottahúsi er bað-
herbergi með sturtuklefa, en inn af
baðherbergi er geymslurými.
Til vinstri úr stigaholi er komið
inn í stóra flísalagða setustofu og úr
henni er gengið út á hellulagða ver-
önd í vestur með heitum potti. Úr
setustofunni er gengið niður í um 53
ferm flísalagt rými, sem nú er notað
sem leikherbergi.
Húsið stendur innst í botnlanga
við óbyggt svæði. Lóðin er 1.027
ferm og er vel gróin með háum
trjám. Bílastæðið er stórt og hellu-
lagt.
Húsið er 408 ferm. og stendur á miklum útsýnisstað. Lóðin er 1.027 ferm. og vel gróin með háum trjám. Ásett verð er
29,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Hlíðarás 9
Í Rauða húsinu á Eyrarbakka er núrekinn samnefndur veitingastaður.
„Hús þetta var byggt árið 1880 yfir
gamla barnaskólann á Eyrarbakka, á
þeim tíma bjuggu um 1000 manns
hér á Eyrarbakka en þá bjuggu í
Reykjavík um 5000 manns. Eyr-
arbakki var miðstöð samskipta við
umheiminn öldum saman eins og
menn kannski vita, “ segir Ingi Þór
Jónsson veitingamaður.
„Rekinn var barnaskóli í þessu húsi
til ársins 1913 en þá urðu þáttaskil.
Gunnar Jónsson húsasmiður keypti
húsið og að ósk kaupmanna á Eyr-
arbakka rak hann gistihús og greiða-
sölu í því um áratugaskeið.
Meðal gesta var t.d. Halldór Lax-
ness. Hann var í fæði í þessu húsi
sumarið 1945 þegar hann gerði upp-
kast að þriðja bindi Íslandsklukkunnar,
Eldur í Kaupinhafn.
Frá 1960 stóð húsið autt allt til
ársins 1987 er Bergljót Kjart-
ansdóttir myndlistarmaður keypti það
og lagfærði. Veitingarekstur hófst að
nýju 1992, Kaffi Lefoli hóf sinn rekst-
ur 1995 en Rauða húsið hefur verið
með veitingarekstur þarna sl. tvö ár.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Rauða húsið
áEyrarbakka
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar