Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 20
20 C ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
LÓMASALIR
Eigum eftir ca 8 nýjar glæsilegar og vandaðar 3ja
herb. íbúðir. Íbúðirnar eru 102-3 fm með sérinn-
gangi af svölum í nýju 4ra hæða lyftuhúsi. Eigninni
fylgir sérbílastæði í upphitaðu bílastæðishúsi og
geymsla. Lyfta úr bílageymslu upp á hæðir. Bygg-
ingaraðilar taka á sig öll aföll af húsbréfum og lán-
ar allt að 85% af verði eignar. Látum sölu mæta
kaupum. Verð 14,9 m.
BLÁSALIR
Erum með í sölu glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir í einstaklega vandaðri 12 hæða blokk.
Útsýnið er í einu orði sagt ‘stórkostlegt’ úr öllum
íbúðum yfir Suðurnes, Reykjavík, Snæfellsnesið og
víðar. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna. Í öll-
um herbergjum eru sjónvarps- og símatenglar, auk
þess sem hljóðeinangrun íbúðanna á sér ekki hlið-
stæðu í öðrum fjölbýlum. Öll sameign skilast fullbú-
in og að auki fullkláruð lóð með tveimur leiksvæð-
um. Hægt er að kaupa stæði í góðri bílageymslu og
öllum íbúðum fylgir geymsla í kjallara. Byggingar-
aðili tekur á sig afföll af allt að 9 millj. húsbréfum
og við getum látið sölu á þinni eign mæta kaupum
á þessum einstöku íbúðum. Nú er hver að verða
síðastur að tryggja sér íbúð, því þetta rennur út.
Komið og skoðið, og þið munuð ekki sjá eftir því.
Verð frá 12,5 M.
BARÐASTAÐIR - GRAFAR-VOGI
Vorum að fá í sölu þessa glæsilegu 3ja herb. íbúð í
nýlegri lyftublokk. Innréttingar úr mahóní, eikar-
parket alls staðar en flísar á baði og þvottahúsi
sem er innaf eldhúsi. Forstofa m. fataskápum.
Hjónaherb. m. fataskápum frá gólfi til lofts. Barna-
herb. einnig m. fataskápum. Baðherb. m. baðkari.
Eldhús m. fallegri innréttingu, flísum milli skápa og
borðkrók. Stofa með suðursvölum og fallegu útsýni.
Sérgeymsla. Örskammt frá útivistarsvæðum og
golfvelli. V. 13,8 M.
VESTURBERG -
BYGGINGAR SJÓÐUR
Góð 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í lyftublokk.
Gengið inn forstofu með Nbro-eik á gólfi. Gangur
með parketi. Eldhús með flísum og ágætri innrétt-
ingu með viftu. Stofa með parketi. Þaðan er gengið
út á góðar austursvalir. Baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, baðkar með sturtu. Svefnherbergi með
parketi á gólfum og hjónaherb. einnig með skáp-
um. Sérgeymsla fylgir í kjallara. Sameiginlegt
þvottahús á hverri hæð með sameiginlegum vélum.
Stutt í skólann, Fjölbraut í Breiðholti og sundlaug,
verslun o.fl. Áhv 4,1 M. V. 9,5 M.
KÓRSALIR GLÆSILEG 125,7 fm ÍBÚÐ Í
NÝJU LYFTUHÚSI MEÐ BÍLAGEYMSLU: Fullbúin
íbúð laus fljótlega. Forstofa m. flísum og skáp.
Rúmgóð stofa m. suð-vestursvölum. Eldhús m. fal-
legri innréttingu, boðkrók og plássi fyrir uppþvotta-
vél. Hjónaherb. m. fallegum skáp. Tvö herbergi
með skápum. Gott sjónvarpshol. Parket á öllum
gólfum. Baðherbergið er flísalagt m. baðkari og
sturtu. Hér færðu nýja parketið í kaupbæti. Vönduð
og góð eign. V. 16,9 M.
DALSEL
Vorum að fá í sölu mjög góða 120 fm íbúð, ásamt
stæði í bílageymslu, í barnvænu hverfi. Íbúðin
skiptist í stofu og hol með teppi, forstofu með nátt-
úruflísum og góðum skápum, eldhús með dúk á
gólfi og upprunal. innréttingum, baðherb. með dúk
á gólfi og baðkari, hjónaherb. með parketi á gólf-
um og miklu skápaplássi og 2 barnaherb, annað
með parketi og hitt með nýjum dúk. Að auki er 11
fm herb. í kjallara með aðgang að snyrtingu, tilval-
ið til útleigu, sameiginlegt þurrkherbergi og sér
geymslu í kjallara. Íbúð og hús eru í mjög góðu
standi og hafa fengið gott viðhald. Eignin getur
verið laus til afh. mjög fljótt. Áhv 4,2 M. V. 13,6 M.
KRISTNIBRAUT Glæsileg íbúð á góð-
um stað. Komið er inn í forstofu með parketi á
gólfi, fallegum skáp. Eldhús með parketi á gólfi,
glæsilegri innréttingu, innbyggðum kæliskáp og
uppþvottavél, góðum borðkrók við glugga. Björt og
rúmgóð stofa með hornglugga og svölum til suð-
austurs. Sjónvarpshol með parketi. Rúmgott her-
bergi með parketi og fallegum skáp. Herbergi með
parketi á gólfi og fallegum skáp. Herbergi með
parketi á gólfi, fallegum skáp og útgengi út á vest-
ur svalir. Hjónaherbergi með parketi og fallegum
skáp og útgengi út á flísalagðar svalir. Glæsilegt
baðhergergi með flísum á gólfi og á veggjum, horn-
baðkeri og innréttingu. Þvottaherbergi með flísum
á gólfi og innréttingu. Stór og góð geymsla. Stæði í
bílahúsi. Hús og lóð hin vandaðasta. Útsýni úr
þessari íbúð er stórfenglegt. Eign sem menn sleppa
ekki. V. 18,7 M.
Laufás fasteignasala í 27 ár
Magnús Axelsson
lögg. fasteignasali
Einar Harðarson
sölustjóri
Sæunn S. Magnúsdóttir
skjalavarsla
KLEPPSVEGUR Kleppsvegur 4-5 HER-
BERGJA MIÐHÆÐ Í ÞRÍBÝLISHÚSI ÁSAMT 36 FM
BÍLSKÚR. Stigapallur er teppalagður. Forstofuher-
bergið er dúkalagt. Hol er flísalagt. Tvær bjartar
samliggjandi stofur. Eldhús með borðkrók og dúk-
flísum á gólfi, eldri innrétting. Hjónaherbergi er
dúkalagt. Baðherbergi er flísalagt með dúkflísum á
gólfi. Tvær geymslur eru á hæðinni. Á jarðhæð er
þvottahús í sameign með annarri íbúð. Bílskúr með
hita, vatni og rafmagni. Bílskúrshurð með sjálfvirk-
um opnara. Stór garður í rækt. V.14,5 M. *GÓÐ
ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR OG FLOTTU ÚTSÝNI.*
ÓÐINSGATA 6
Mjög góð, ca 125 fm efri hæð og ris í steyptu húsi
við Óðinsgötu. Frábært skipulag, Stórar stofur. Þrjú
svefnherbergi, öll með skápum. Hjónaherb. er gert
úr tveimur herb. þannig að það er stórt og rúmgott.
Tvö bað-/snyrtiherbergi. Tvennar svalir. Tvær
geymslur. Útsýni. Sérhiti. Umgengni og ástand til
fyrirmyndar.
SÓLHEIMAR Mjög góð íbúð á þriðju hæð
í fjórbýli á horni. Byggður hefur verið sólskáli yfir
mjög stórar þaksvalir með einstaklega fallegu út-
sýni. Mjög rúmgott forstofuhol þaðan gengið inn í
mjög rúmgóðar stofur og sólskála. Út af sólskálan-
um eru góðar vestursvalir. Eldhús er með U-laga
fulningaviðarinnréttingu og góðum borðkrók. Á
herbergisgangi eru 3 svefnherb. og skápar í tveim-
ur. Baðherb. er flísalagt með baðkari og glugga.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara og sérgeymsla. V.
14;5 M
LAUFBREKKA Glæsilegt 200 fm einbýli
í Kópavogi. Á efri hæð er parket á öllum gólfum,
hæðin skiptist í 4 svefnherb. baðherb. með sturtu
og baðkari og gott sjónvarpshol. Á neðri hæðinni
er allt flísal., þar eru 2 stofur, borðstofa og sólstofa,
eldhús, aukaherb. og geymsla. Vandaðar innr. og
frágangur til fyrirmyndar. Góður garður. V 21,8 M.
Vegna mikillar sölu
vantar allar tegundir
eigna á skrá í
öllum hverfum
NJARÐVÍK Kirkjubraut, Njarðvík. GLÆSI-
LEGT 143,9 FM EINBÝLISHÚS MEÐ FRÁBÆRUM
GARÐI OG HEITUM POTTI: Forstofa með flísum og
fallegum skáp. Gestasnyrting með flísum og nýjum
tækjum. Sjónvarpshol með parketi. Stofa og borð-
stofa með parketi. Glæsilegt eldhús með eikarinn-
réttingu og góðum tækjum. Svefnherbergisgangur
með parketi. Hjónaherbergi með parketi og stórum
skáp. Herbergi með parketi og skáp. Herbergi með
parketi. Herbergi með parketi á gólfi og tveim
gluggum. Gott baðherbergi m. flísum, innréttingu
og sturtuklefa. Þvottahús með hillum og útgengi út
á nýja verönd. Glæsileg lóð með afgirtri verönd.
Leyfi er fyrir 50 fm bílskúr. V. 13,9M
VITASTÍGUR Vorum að fá í einkasölu af-
skaplega hlýlega 2ja herb íbúð. Forstofa, hol og
stofa með dökku parketi. Fallegur bogadreginn
gluggi í stofu. Baðherbergi mikið endurnýjað. Upp-
runaleg gólfborð lökkuð í baðherb og svefnher-
bergi, aldamótagólflistar í svefnherb. Íbúðin er
mæld 37,8 fm en gólfflötur er stærri þar sem hann
er undir súð. Mjög góð eign fyrir einstakling eða
par. V. 6,8 M.
SÆBÓLSBRAUT Falleg 2ja herb. íbúð
á fyrstu hæð í 3ja hæða fjölbýli. Íbúðin er 59 fm
ásamt 10 fm geymslu. Hol m. parketi og skápum.
Baðherb. er nýuppgert með flísum á gólfi og hluta
af veggjum, tengt fyrir þvottavél. Rúmgott svefnh.
m. dúk og fataskápum. Eldhús m. snyrtilegri hvítri
innréttingu, borðkrók og parketi. Stofan er rúmgóð
m/ parketi og suður-svalir. V. 9,9 M
LAUGAVEGUR Vorum að fá fráb.101.5
fm 3ja herb. „Penthouse“-íb. við Laugaveginn.
Teiknuð af hinum frábæra arkitekt Tryggva Tryggva-
syni. Íb. er á 4. hæð í fjórbýli. Stigagangur nýmálað-
ur og teppalagður. Gengið er beint inn í rými sem er
forstofa, eldhús og stofa. Parket á gólfum og loft-
hæð fer úr 3 m út við veggi og upp í ca 5,5 m í
miðju. Stórir fallegir þakgluggar gefa sérstök birtu-
skilyrði. Tvö svefnherb. m. parketi. Hillusamstæða
m. sjónvarpi í snúningsvegg sem hægt er að snúa á
milli stofu og stærra sv.herb. Allar dyr eru með
vandaðar rennihurðir. Einfalt og fallegt eldh. með
halogen-helluborði. Stórt og gott baðherb. er flísa-
lagt m. baðkari. Mikil sérsmíði er í íb., sem gerir
hana mjög sérstaka. Stórar suðursvalir. V. 15,5 M.
sími 533 1111 fax 533 1115 Kringlan 4-12 - Stóri turn - 9. hæð www.laufas.is
Lárus I. Magnússon
sölumaður,
Gizur Sigurðsson
sölumaður.
Vegna mikillar sölu og eftirspurnar
vantar eignir á skrá í öllum hverfumSeljendur athugið
ENN einu sini er komiðnýtt ár og fyrstu daganaeru allir uppteknir af aðvenja sig við að skrifa
rétt ártal, þeir sem á annað borð
þurfa eða vilja skrifa eitthvað.
Áramótaskaupið er enn til um-
ræðu og auðvitað síðustu stórtíðindi
úr pólitíkinni, sem varð miklu við-
burðaríkari í lok síðasta árs en við
var búist, setti vissulega lit á lífið.
Þessi vetur hefur verið óvenju-
legur fram að þessu, það er nánast
enginn vetur kominn enn þá, aðeins
myrkur meirihluta sólarhringsins,
það er óumflýjanlegt. En stöðugt
rauðar tölur á skjánum hjá veð-
urfræðingunum.
Þetta hefur talsverð áhrif á þá
sem láta sig lagnir og lagnakerfi
varða, bæði iðnaðarmenn og hús-
eigendur. Þegar svona vel viðrar
verða menn síður varir við hvort
eitthvað er að hitakerfinu, hvort
ofnlokarnir vinna rétt eða hvort
óþarflega mikið eyðist af heitu
vatni.
Hins vegar má búast við að víða
bregði mönnum illa ef skyndilega
kólnar þó vonandi fáum við ekki
sömu fimbulkuldana og eru austast
í Evrópu, í Finnlandi og Rússlandi.
Þar hefur tveggja stafa tala sýnt
frostið og það jafnvel yfir 20°C. Við
slíku frosti þarf tæpast að búast
hérlendis, þó ekki útilokað.
Hvað er framundan?
Sumir vilja rýna í kristalskúlu,
aðrir fara til miðils til að reyna að
sjá inn í framtíðina, sumir láta sér
nægja að lesa spádóm völvu Vik-
unnar.
Eitt er víst; á eftir vetri kemur
vor og tíminn er ótrúlega fljótur að
líða. Áður töluðu menn um að
„þreyja þorrann og góuna“ en ef að
líkum lætur verður góan liðin fyrr
en nokkurn varir, hvað þá þorrinn.
Íslendingar hafa ýmsa lesti, eins
og flestar þjóðir, einn er sá að láta
hlutina dragast fram á síðustu
stundu en rjúka þá til og ætla að
drífa allt af á svipstundu. Þetta hef-
ur það í för með sér að hérlendis er
oft fórnað litlum tíma í undirbún-
ing, sem svo aftur kemur niður á
framkvæmdinni.
Það liggur við að það sé freist-
andi að fara út í garð núna og hefj-
ast handa eins og vorið sé komið.
Það væri þó ekki ráðlegt, frost og
snjór getur verið á næsta leiti.
En væri ekki ráð að hefjast
handa og fara að undirbúa vorverk-
in? Var einhver að hugsa um að
helluleggja stéttir og plön og þá að
sjálfsögðu að leggja snjóbræðslu
um leið? Þá er vissulega tímabært
að hefjast handa en þó eiga þau
verk að vera innanhúss en ekki ut-
an. Hvernig væri nú að vinna svolít-
ið á óíslenskan máta og „fórna“ svo-
litlum tíma í undirbúning? Eða er
það nokkur fórn? Síður en svo, sá
tími skilar sér aftur við framkvæmd
verksins.
Íslendingar er mjög gjarnir á að
finna upp hjólið, ætli nokkur þjóð
hafi fundið það jafnoft upp og land-
inn. Þetta er oft æði tvíbent, það er
engin ástæða til að hver og einn sé
að reka sig á sömu vandamálin og
gera sömu mistökin og svo margir
hafa gert á undan.
Það eru vissulega til margir
handlagnir heimilisfeður og ekki
síður heimilismæður sem geta t.d.
lagt hellur listilega vel, ef þau á
annaðborð vita hvernig standa á að
verki. Sumir telja að það sé ekkert
mál „að henda niður slöngum“, með
öðrum orðum að leggja snjó-
bræðslukerfi.
En undirlag, efnisval, dýpt á
slöngum, lengd þeirra, þjöppun og
ótalmargt fleira skiptir sköpum um
endanlegan árangur.
Þess vegna er heillavænlegast að
leita til þeirra sem sérþekkingu
hafa, það er ergilegt að standa á illa
lögðu plani, með snjóbræðslukerfi
undir fótum sem bræðir sums stað-
ar, annars staðar ekki.
Það er líka ástæða til að hyggja
að því hvort ekki þurfi að endurnýja
lagnakerfi, hvort frárennslislagnir
undir grunnum gömlu húsanna sé í
lagi og hvort ekki þurfi að stilla
hitakerfið.
Þótt jarðvarminn sé ódýrari en sá
varmi sem notaður er í nágranna-
löndum okkar er óþarfi að sóa og
eyða með tilheyrandi aukakostnaði.
Tökum vorið snemma innanhúss.
Í upphafi árs
Það viðrar vel til útiverka þessa dagana, en skjótt skipast veður í lofti.
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is