Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 27
staðar á Suðurnesjum, þeirra á meðal
Flughótelið og Hótel Keflavík. Auk
þess hefur hann byggt fjölda íbúða.
Hann rekur nú fyrirtækið ásamt
tveimur sonum sínum, þeim Andrési
og Guðmundi.
Upphafsmaður að nýbyggingunni
var hins vegar Róbert Svavarsson,
kaupmaður í húsgagnaverzluninni
Bústoð, en hann átti lóðina og húsið,
sem þar stóð áður. Róbert fékk Ingi-
mund Sveinsson arkitekt til þess að
teikna nýbygginguna og hafði þegar
fengið byggingarleyfi fyrir henni, en
tók þann kost að selja Hjalta Guð-
mundssyni ehf. byggingarréttinn en
halda efstu hæðinni með þakíbúðinni,
sem verður um 200 ferm. Þar hyggst
hann búa sjálfur ásamt fjölskyldu
sinni.
Hinar íbúðirnar eru 24 samkvæmt
framansögðu, fjórar íbúðir á hæð og
ýmist 2ja, 3ja og 4ra herbergja og frá
80 ferm. upp í 120 ferm. að stærð.
Verð er frá 10,5 millj. kr. á þeirri
minnstu og upp í 19,5 millj. kr. á
þeirri stærstu. Bílastæði í bíla-
geymslu fylgir svo hverri íbúð og er
það inni í kaupverðinu. Innangengt
er úr bílageymslu í lyftu. Einnig eru
geymslur í kjallara.
Markaðurinn hefur tekið þessum
íbúðum mjög vel og ellefu þeirra eru
þegar seldar, en íbúðirnar eru til sölu
hjá þremur fasteignasölum, Stuðla-
bergi og Gunnari Ólafssyni í Reykja-
nesbæ og Ársölum í Reykjavík.
Mikið í húsið lagt
Þegar smíði nýbyggingarinnar var
skipulögð var að sögn þeirra félaga,
Róberts Svavarssonar, Hjalta Guð-
mundssonar og sona hans, Guðmund-
ar og Andrésar, ákveðið að hafa hana
í öðrum og vandaðri stíl en fyrir var á
markaðnum á þessu svæði.
„Það er mikið í þetta hús lagt,“
segja þeir félagar. „Það er einangrað
að utan með steinull og síðan klætt
með áli. Gluggar eru af mjög vand-
aðri gerð, alumíníum að utan og tré
að innan. Sama máli gegnir um íbúð-
irnar sjálfar, en gólfplötur eru hljóð-
eingraðar á sérstakan hátt, þannig að
hljóð berst síður milli íbúða. Þessar
íbúðir eru því af vandaðri gerð en
gerist og gengur.“
En voru engir erfiðleikar því fylgj-
andi að byggja á þessum stað innan
um gömul hús? „Það bárust engin
mótmæli,“ segja þeir félagar.
„Þessi lóð var satt að segja orðin
svolítið lýti í landslaginu og farin að
fara í taugarnar á mörgum, en hún
hafði stað lengi auð. Við teljum því, að
húsin í nágrenninu og umhverfið allt
eigi eftir að njóta þess, þegar þessi
nýbygging er tilbúin og að fasteignir í
nágrenninu muni jafnvel hækka í
verði ef nokkuð er. Hverfið verði eft-
irsóttara en áður.
Okkur finnst líka, sem húsið fari
ágætlega á þessum stað, en það
stendur í hjarta bæjarins. Öll þjón-
usta er í næsta nágrenni. Það er stutt
í verzlanir, sparisjóðinn, sundlaug-
ina, sjúkrahúsið og sýslumannsemb-
ættið svo að nokkuð sé nefnt.“
En hvaða fólk er það einkum, sem
sækist eftir þessum íbúðum. „Þetta
er einkum fólk hér úr Reykjanesbæ,
sem komið er yfir miðjan aldur og á
myndarlega eign fyrir en vill minnka
við sig og komast í húsnæði, sem
verður viðhaldslítið og þar sem ekki
þarf að sinna viðhaldsfrekri lóð eða
garði,“ segja þeir félagar.
„En íbúðir okkar eru á frjálsum
markaði og engin aldurstakmörk,
enda eru þessar íbúðir ekkert dýrari
en gengur og gerist um íbúðir af
þessu tagi almennt.
Þetta er svipað viðhorf og sagt hef-
ur til sín á höfuðborgarsvæðinu, en
þar hefur þegar verið byggður fjöldi
vandaðra íbúða í sama tilgangi t.d.
við Sóltún í Reykjavík og víðar og
hafa þær fengið góðar móttökur á
markaðnum.“
Styrkir byggðina
Að sögn þeirra félaga munu þessar
íbúðir verða til þess að styrkja
byggðina í Reykjanesbæ. „Það hefur
verið vöntun á íbúðum í þessum
gæðaflokki hér í bænum og því hefur
fólk þurft að flytja í önnur byggðar-
lög til þess að komast í slíkar íbúðir,“
segja þeir. „Þetta kann að vera hluti
af skýringunni á því, að fólki fækkaði
lítillega í Reykjanesbæ á síðasta ári í
stað þess að fjölga.
Markaðurinn hefur því tekið þess-
um íbúðum mjög vel og það virðist
vera mikill áhugi fyrir húsinu al-
mennt hér í Reykjanesbæ.
Þessar íbúðir verða líka mikilvæg-
ur áfangi í þeirri viðleitni að þétta
byggðina í miðbæ Reykjanesbæjar.
Á síðustu árum hafa verið byggð
nokkur fjölbýlishús á auðum lóðum
hér í gamla miðbænum. Það nýjasta
stendur við Framnesveg og er bæði
stórt og glæsilegt með yfir 20 íbúð-
um.
Í þessu felst töluverð stefnubreyt-
ing hjá bæjaryfirvöldum frá því sem
áður var, en þetta hefur örugglega
orðið til þess að efla og auka mannlíf í
miðbænum. Fyrirtækin í Reykja-
nesbæ eru að sjálfsögðu í samkeppni
við fyrirtækin á höfuðborgarsvæð-
inu.
Fjarlægðin er ekki meiri en svo.
Þýðingarmikill þáttur í þeirri sam-
keppni er að fá fleira fólk til þess að
búa hér í miðbænum. Með því verða
verzlunar- og þjónustufyrirtæki hér
betur í stakk búin til þess að mæta ut-
anaðkomandi samkeppni.
Við teljum líka, að glæsilegar ný-
byggingar af þessu tagi verði til þess
að gefa umhverfi sínu meiri svip og
að miðbærinn í Keflavík verði fallegri
á eftir.“
Mikið útsýni er frá efri hæðum hússins. Gluggar eru af mjög vandaðri gerð, alumíníum að utan og tré að innan.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 C 27HeimiliFasteignir
Opið
mánud.–fimmtud. frá kl. 9–18, föstud. frá kl. 9–17
Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir,
Álfheiður Emilsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
www.fjarfest.is - fax 562 4249
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
Álakvísl - Sérinngangur Björt
og skemmtileg 4ra herbergja íbúð á
tveimur hæðum. Góðar innréttingar,
stæði í bílageymslu. LAUS STRAX
Póstnr. 110
2ja - 3ja. herbergja
Sólvallagata Komin er á sölu 3ja
herbergja 80 fm íbúð á besta stað við
miðbæinn. Suðurgarður. Póstnr. 101
Njálsgata Komin er á sölu einstak-
lingsíbúð í miðbæ Reykjavíkur. Verð 4,5
millj. Póstnr. 105
Skeljagrandi - bílageymsla Til
sölu 2ja herb. íbúð. Glæsilegt útsýni
Póstnr. 107
Mosarimi Skemmtileg 3ja herb. íbúð
á mjög góðum stað í Grafarvogi. Stutt í
alla þjónustu. Verð 11 millj. Póstnr. 112
Lækjarsmári - jarðhæð Vorum
að fá á sölu stórglæsilega 82 fm 2ja herb.
íbúð. Pergo-parket og náttúruflísar á
gólfi. Suðurverönd. Stutt í Smáralindina.
Póstnr. 200
Einbýli, parhús og raðhús
Prestbakki - Bílskúr Til sölu
skemmtilegt raðhús á besta stað í Breið-
holti. Húsið er mikið endurnýjað. Stutt í
alla þjónustu. Póstnr. 109
Hryggjasel - Raðhús með
aukaíbúð Gott raðhús með 55 fm tvö-
földum bílskúr. Stórar svalir, arinn, fjögur
svefnherbergi. Hús í góðu ástandi
Póstnr. 109
Eyktarás - Aukaíbúð Vorum að fá
mjög gott og vandað einbýlishús á þess-
um vinsæla og góða stað. Stórar stofur
með miklu útsýni. Stór innbyggður bílskúr.
Góð 3ja herbergja aukaíbúð. Póstnr. 110
Rituhólar - Bílskúr 44,8 fm
Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum,
hægt að gera séríbúð í kjallara. Náttúru-
garður. Stórkoslegt útsýni. Póstnr. 111
Sérhæðir
Ferjuvogur - Ásamt bílskúr Til
sölu skemmtileg ca 120 fm hæð ásamt
sérbyggðum stórum bílskúr. Mjög vel
staðsett íbúð innst í lokaðri götu. Skjól-
góður suðurgarður. Stutt í skóla og alla
þjónustu. Eign sem vert er að skoða.
Póstnr. 104
Njörvasund - bílskúr 28 fm
Vorum að fá á sölu ca 80 fm sérhæð.
Góður garður. Frábær staðsetning.
Póstnr. 104
Bergstaðastræti - Nýtt
Eskihlíð Vorum að fá á sölu glæsilega
4ra herb. sérhæð með 40 fm bílskúr.
Parket er á gólfum, góðar innréttingar,
mikið uppgerð. Verð 13,9 millj. Póstnr.
105
4ra - 6 herbergja íbúðir
Hvassaleiti - 3ja-4ra herb. Vel
staðsett rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi ásamt
bílskúr. Verð 12,5 millj. Póstnr. 103
Hvassaleiti - 5-6 herb.- Bíl-
skúr Sérstaklega björt og stór íbúð 150
fm. Frábært útsýni. Verð 16,9 millj.
Póstnr. 103
Naustabryggja Vorum að fá á sölu
„penthouse“-íb. á tveimur hæðum m.
stæði í bílageymslu. Hnotu-parket á allri
íbúðinni. Póstnr. 110
Mosarimi - Skemmtileg
íbúð 4ra herb. íbúð með sérinn-
gangi. Góðar suð-austursvalir. Stutt í
þjónustu. LAUS STRAX. Póstnr. 112
Til sölu nýjar 3ja og 4ra herb. íbúðir, einnig
tvær „PENTHOUSE“-íb. á besta stað í miðbæ
Rvíkur. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með
vönduðum innréttingum og flísum á baði, en
án gólfefna að öðru leyti. Lyftuhús. Húsið er
álklætt að utan að hluta og sameign verður
frágengin. Möguleiki á að fá lán frá byggingar-
aðila á eftir húsbréfum. Póstnr. 101
Naustabryggja 12-18 - 20-22 - Nýtt
Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm
„penthouse“-íb. á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án
gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúð-
irnar eru með vönduðum innréttingum. „Penthouse”-íb. verða afhentar
tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bíla-
geymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd. Afhending á
Naustabryggju 12-18 í júní 2003 og Naustabryggju 20-22 í mars 2003.
Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari
upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110
Núpalind -Bílskýli. Komin er á
sölu glæsileg 112,3 fm íbúð á efstu hæð í
fjölbýli. Glæsilegt útsýni. Vandaðar innrétt-
ingar. Látið þessa eign ekki fram hjá ykkur
fara. Póstnr. 201
Nýjar íbúðir
Maríubaugur - Keðjuhús Til af-
hendingar nú þegar. Tilbúin til innréttinga.
Skemmtilega hönnuð ca 200 fm keðjuhús
á einni hæð með innbyggðum 25 fm bíl-
skúr. Húsin standa á útsýnisstað og af-
hendast tilbúinn til innréttinga. Fullfrá-
gengin að utan og lóð verður grófjöfnuð.
Glæsilegt útsýni. Teikningar og nánari
upplýsingar er hægt að nálgast á skrif-
stofu. Verð frá kr. 19,4 millj. Póstnr. 113
Nýkomnar á sölu stórglæsilegar íbúðir, 3ja-4ra herb. 96,1 fm til 119,2 fm. Íbúðirnar
verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi, þar verða
flísar. Í öllum íbúðum verður sérþvottahús og síma- og tölvutengi í öllum herbergj-
um. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá Brúnási. Hægt er að kaupa bíl-
skúr. Sérinngangur verður í hverja íbúð. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Afhend-
ing í maí 2003. Póstnr. 113
Kristnibraut 77-79
NÝTT - Lyftuhús - Grafarholti