Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 17
Ú
T
S
A
L
A
Stórútsala á teppasettum
Rúm úr sýningarsal
Komdu og gerðu góð kaup
Heilsunnar vegna
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
20-30%afsláttur
Skápar úr sýningarsal
Ótrúlegt verð
®
Takmarkaðmagn
Lúxus hægindastólar
Evrópskst útlit, amerísk þægindi
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið: mán. - fös. frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-15
20-70%afsláttur
15-40%afsláttur
ÞAÐ reynist mörgum vinstri-
mönnum erfitt að vera sammála
Davíð Oddssyni og hans baklandi í
Evrópumálum. Fljótt á litið virðist
líka vera um sjaldgæfa og óvenju-
lega samstöðu að ræða. Hægrikröt-
um, sem sýknt og heilagt kenna sig
við nútímajafnaðarmennsku, er
skemmt enda telja þeir þetta vera
sönnun þess hve afturhaldssamir og
gamaldags kommarnir í Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði séu.
Þar fari flokkur sem setji sig upp á
móti öllu enda þingmenn flokksins
aðeins óábyrgir nöldurseggir sem
kunna fátt annað en að vera með
málþóf í þinginu. En er þetta í raun
og veru svo? Eru sjálfstæðismenn og
VG vinir í utanríkismálum?
Lítum aðeins á hvað það er sem
fælir Sjálfstæðisflokkinn frá Evr-
ópu. Við hátíðleg tækifæri mælir
Davíð hvað þessi ósköp komi til með
að kosta okkur. Hann úttalar sig um
að erlendir aðilar muni vasast með
kvótann sem hefur algjörlega verið
eign LÍÚ til þessa. LÍÚ saman-
stendur að mestu af gömlu valda-
klíkunni sem kennd hefur verið við
kolkrabbann. Þar má finna Eimskip
með nýja lógóið og Samherjamenn.
Þetta eru mennirnir sem eiga landið
og eru hin ráðandi stétt. Forysta
Sjálfstæðisflokksins verndar þessa
vini sína og er aðeins við stjórnvöl-
inn fyrir þá og vegna þeirra. Það er
ekki þeirra hagur að Evrópusam-
bandið hafi eitthvað með kvótann
þeirra að gera enda væri það ávísun
á takmörkun valds.
Sannir jafnaðarmenn, sem hafa
kynnt sér dásemdir Evrópusam-
bandsins, geta illa verið fylgjandi að-
ild Íslands. Kvótinn er þar algjört
aukaatriði enda er vandséð að það sé
mikil jafnaðarmennska falin í því,
hvort eð er, hvernig honum hefur
verið dreift sl. tvo áratugi. Nei, rökin
á móti aðild eru þessi helst: Evrópu-
sambandið er ólýðræðislegt apparat
sem verndar stórfyrirtæki innan
sambandsins. Þetta er klúbbur
þeirra ríku og stóru, sem eiga sér að-
eins eitt markmið; að verða ríkari og
stærri. Auðvitað eru þetta einnig
markmið vina ríkisstjórnarinnar á
Íslandi en Evrópuklúbburinn hentar
því miður ekki kvótakóngum; og því
bregst obbi Sjálfstæðisflokksins
hart við öllum hugmyndum um aðild.
Kannski eru nútímamennirnir Össur
og Halldór áfjáðir að vinna sér vin-
sældir hjá nýríkum valdastéttum
þessa lands og því er Evrópuaðild
komin á dagskrá hjá Samfylkingu og
Framsókn. Við vitum fyrir víst að
Samfylkingin er ekki vinkona Sam-
herjabræðra eða Eimskipa.
Evrópusambandið er til fyrir
stóru þjóðirnar og fátæk ríki utan
sambandsins verða illilega fyrir
barðinu á styrkjakerfi þess. Hvers
eiga t.d. sykurframleiðendur í fá-
tækum ríkjum, sem ekki eru aðilar,
að gjalda þegar sambandið styrkir
framleiðendur innan þess með 150
milljörðum kr. árlega? Þjóðir sem
eiga allt sitt undir að við ríka fólkið á
Vesturlöndum kaupum af því sykur
eiga ekki möguleika á þessu stóra
markaðssvæði. Stórfyrirtæki og
auðhringir mergsjúga auðlindir fá-
tækari ríkja og víla ekki fyrir sér að
múta embættis- og ráðamönnum til
þess að moka þúsundum milljarða til
hluthafanna. Þetta er hið raunveru-
lega andlit Evrópusambandsins og
„brotabrotastyrkir“ til menningar-
mála og annars í þeim dúr er aðeins
dulbúningur. Með þeim hætti er
hægt að breiða yfir raunverulegt
markmið sambandsins: Að skila
valdastéttum innan þess endalaus-
um gróða.
Að lokum er vert að spyrja: Eru
Vinstri grænir afturhaldsafl af því
að þeir eru á móti aðild Íslands að
Evrópusambandinu? Er Samfylk-
ingin nútímalegur jafnaðarmanna-
flokkur af því að hana langar í auð-
inn sem soginn hefur verið út úr
hagkerfi fátækari ríkja plánetunn-
ar? Vonandi hugsa nútímalegir jafn-
aðarmenn sig tvisvar um áður en
þeir velja Samfylkinguna í vor. Og
kannski gerist það ótrúlega; venju-
lega fólkið, sem á í raun enga sam-
leið með Sjálfstæðisflokknum,
ákveður að snúa baki við kvótanum
og velur eina flokkinn sem í raun
boðar trúverðuga stefnu um jöfnuð,
Vinstrihreyfinguna – grænt fram-
boð.
Evrópa og nútíma-
jafnaðarmennska
Eftir Grím
Atlason
„Vonandi
hugsa nú-
tímalegir
jafnaðar-
menn sig
tvisvar um áður en þeir
velja Samfylkinguna í
vor.“
Höfundur er félagi í Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði.
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfur
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 697
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
www.nowfoods.com