Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 27
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 27 w w w .d es ig n. is © 20 02 - IT M 90 41 V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga í des. 10-16 • Sturtuklefar • Sturtuhorn • Baðkarshlífar Baðkarshlíf, h140 L85 cm. 5mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 14.900,- Þrískipt baðkarshlíf, h140 L125 cm. 5 mm öryggisgl., hvítt Verð kr. 16.900,- Baðkarshlíf milli veggja, h140 L160-200 cm. 4 mm öryggisgl., hvítt Verð frá kr. 26.850,- Sturtuklefar, rúnnaðir með eða án nudds. 80-90 cm. 4mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 65.750,- Sturtuhorn, 80-90 cm. 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 19.750,- Rúnnað sturtuhorn, 80-90 cm. 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 35.800,- Sturtuklefi, frístandandi eða í horn, 70-90 cm. 4mm öryggisgl., hvítt Verð frá kr. 48.950,- Við látum verðið tala! •Rýmingasala Sýningainnréttingar fyrir baðherbergi SÍF er einn styrktaraðila íslenska landsliðsins í handknattleik á heimsmeistaramótinu í handknatt- leik í Portúgal. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson heimsóttu ný- verið höfuðstöðvar SÍF ásamt Ein- ari Þorvarðarsyni, framkvæmda- stjóra HSÍ, og veittu viðtöku 400 þúsund króna ávísun, sem er framlag SÍF til landsliðsins. SÍF hefur ákveðið að tvöfalda þessa fjárhæð nái lið Íslands einu af þremur efstu sætunum á HM 2003. Jafnframt afhenti SÍF landslið- inu að gjöf kassa með íslenskum úrvalssaltfiski, sem strákarnir munu gæða sér á meðan á heims- meistaramótinu stendur. Það fer vel á því að hafa íslenskan saltfisk í farangrinum á ferð til Portúgals. Þarlendir hafa áratugum saman verið meðal helstu kaupenda þess- arar mikilvægu útflutnings- afurðar Íslendinga og búa til ljúf- fenga rétti úr íslenskum saltfiski. Þá rétti munu strákarnir snæða í sérstakri saltfiskveislu sem SÍF hyggst halda þeim til heiðurs meðan á mótinu í Portúgal stend- ur, segir í fréttatilkynningu. Einar Þorvarðarson tekur við styrk frá SÍF. Við hlið hans eru Guðjón Val- ur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Arnar Viðar Skúlason, aðstoðarfor- stjóri og framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs SÍF. SÍF styrkir landslið Ís- lands á HM í Portúgal Kynning á sjálfboðastarfi Rauðakrossins verður í dag, þriðjudaginn 14. janúar, kl. 20 í Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverfisgötu 105. Megintilgangur kynningarinnar er að afla sjálfboðaliða á öllum aldri í 4 – 10 tíma á mánuði til þeirra verk- efna sem unnin eru í þágu mannúðar hérlendis. Dæmi um verkefni í hönd- um sjálfboðaliða eru: sölubúðir, fangaheimsóknir, átaksverkefni, heimsóknarþjónusta, skyndihjálp, stuðningur við börn af erlendum uppruna o.fl. Allir sem vilja fræðast um framlag sjálfboðaliða til sam- félagsins eru velkomnir á kynning- arfundinn. Á MORGUN LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsir eftir vitni að umferðaróhappi, sem átti sér stað laugardaginn 11. janúar, um kl. 13.30. Óhappið átti sér stað á Reykjanesbraut, rétt sunnan við Bú- staðaveg. Þarna varð árekstur á milli strætisvagns, sem var ekið eftir hægri akrein norður Reykjanes- braut og jeppabifreiðar af KIA gerð, hvítri að lit. Jeppabifreiðinni var ek- ið norður beygjuakrein, þar sem ökumaður hugðist beygja til vinstri, vestur Bústaðaveg á gatnamótum Reykjanesbrautar/Bústaðavegar. Mikill ágreiningur er á milli öku- manna varðandi tildrög óhappsins Lýst eftir vitnum Sást á þrettándanum Í frétt í laugardagsblaðinu var ranglega fullyrt að sést hefði til hryssunnar, sem fældist á þrett- ándanum, sl. mánudag. Hið rétta er að á mánudaginn frétti eigandi hryssunnar af því að sést hefði til hennar við Víðidal á þrettándanum þar sem hún hljóp út í buskann. LEIÐRÉTT ÞÝSKU náttúruverndarsamtökin NABU ásamt hollenska fuglavernd- arfélaginu, Vogelbescherming, hafa sent borgarfulltrúum í Reykjavík, Alcoa og fleiri aðilum bréf þar sem fyrirhugaðri virkjun við Kárahnjúka er mótmælt. Samtals eru um 500 þúsund félagar í samtökunum, en um 385 þúsund manns í þýsku sam- tökunum, að því er fram kemur í til- kynningu sem Fuglaverndarfélag Íslands sendi frá sér. Þjóðverjar eru sú þjóð sem mest sækir Ísland heim og í tilkynning- unni segir að mótmæli samtakanna séu m.a. gerð til að sýna stuðning við vistvæna ferðamennsku. Segir að ljóst megi vera að Þjóðverjum sé ekki sama hvað er að gerast á há- lendi Íslands. Ennfremur að al- þjóðasamfélagið fylgist gjörla með þeim hremmingum sem ógni hálend- inu. Bæði þýsku og hollensku samtök- in eru aðilar að Alþjóða fuglavernd- arsamtökunum, BirdLife Interna- tional, en Fuglaverndarfélag Íslands er einnig aðili að samtökunum sem í eru alls nærri þrjár milljónir félaga í rúmlega 100 löndum. Áður hafa Konunglega breska fuglaverndarfélagið (RSPB) og áð- urnefnd móðursamtök, BirdLife, mótmælt virkjunaráformum á Brú- aröræfum. Þá hafa samtökin jafn- framt bent á að náttúrspjöllin sem hljótist af Kárahnjúkavirkjun séu brot á alþjóðlegum sáttmálum, sem Íslendingar hafa undirritað, þ. á m. Bernarsáttmálanum. NABU-samtökin mótmæla Kára- hnjúkavirkjun Blönduósi – Fulltrúar frá Lions- klúbbi Blönduóss afhentu Iðju, dag- vist fyrir fatlaða á Blönduósi, tölvu af fullkomnustu gerð fyrir skömmu. Tölvan er hugsuð til að auka fjölbreytni í iðjuþjálfun fatl- aðra. Það voru þau Ásta Ingvars- dóttir deildarstjóri og Hannes J. Eðvarðsson félagsmálastjóri í A-Hún. sem veittu tölvunni form- lega móttöku í kaffisamsæti í hús- næði Iðjunnar. Jón Aðalsteinn Sæ- björnsson formaður Lionsklúbbs Blönduóss og Björn Magnússon stjórnarmaður afhentu tölvuna fyr- ir hönd Lionsklúbbsins. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Frá afhendingu tölvunnar. F.v. Hannes Eðvarðsson, Björn Magnússon, Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson og Ásta Ingvarsdóttir. Fyrir framan þau við tölv- una situr Sigurður Óli Kristjánsson, einn aðnjótenda tölvunnar. Gáfu dagvist fatlaðra tölvu LÖGREGLAN á Akureyri lýsir eftir bifreið af gerðinni Toyota RAV4 sem stolið var úr bifreiðageymslu við Hjallalund á Akureyri síðastliðna nótt. Bifreiðin ber skrásetningar- númerið MR-884. Að sögn lögreglunnar á Akureyri þurfti sá eða þeir sem þarna voru að verki að hafa talsvert fyrir þjófnað- inum þar sem bíllinn var geymdur í læstri bílageymslu. Bifreiðin er tvílit, dökkgræn að of- an og grá að neðan, af árgerðinni 2000. Þeir sem kunna að hafa orðið bifreiðarinnar varir frá því í nótt eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar á Akureyri í síma 464-7700. Bíl stolið úr bílageymslu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.