Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Gar-
ibaldi kemur í dag. Brú-
arfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinustofa
kl. 13, félagsvist kl. 14.
Söngstund á morgun kl.
14.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofa, kl.
11 boccia, kl.13–16.30
opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 9–17 fóta-
aðgerð, kl. 10–11
samverustund, kl. 13.30–
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13–16 bútasaumur.
Uppl. í s. 568 5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos. Pútt-
kennsla í Íþróttahúsinu
á sunnudögum kl. 11.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Mánudagur:
Kl. 9.30, 10.15 og 11.10
leikfimi, kl. 13. postu-
línsmálun.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerðastofan opin
frá kl. 10. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félag aldraðra í
Mosfellsbæ og ná-
grennis. Aðalfundur
félagsins verður í
Hlégarði í dag. Auk
venjulegra aðalfund-
arstarfa mun Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
fræðingur og Sigurður
M. Grétarsson við-
skiptafræðingur mæta á
fundinn.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Korp-
úlfarnir, eldri borgarar í
Grafarvogi, hittast á
fimmtudögum kl. 10,
aðra hverja viku er pútt-
að á Korpúlfsstöðum en
hina vikuna er keila í
Keilu í Mjódd. Vatns-
leikfimi er í Grafarvogs-
laug á þriðjudögum kl.
9.45 og föstudögum kl.
14. Síðasta miðvikudag í
hverjum mánuði eru
fræðslu- og skemmti-
fundir í fundarsal Mið-
garðs við Langarima 21.
Aðrir atburðir eru augl.í
Morgunblaðinu og á
www.grafarvogur.is, og
með bréfi í pósti til
þeirra sem taka þátt í
starfi Korpúlfanna. Nýir
félagar velkomnir. Upp-
lýsingar gefur Þráinn í
síma 545 4500.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 9 mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhald.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 10
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 9–
12 myndlist, kl. 13–16
körfugerð, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13–16 spilað,
kl. 10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Böðun kl. 9–
12, almenn handavinna
kl. 9–16.30, félagsvist kl.
14, hárgreiðslustofan op-
in 9–14.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað kl.
10, kóræfing kl 10.30,
Tréskurður kl. 13 fé-
lagsvist kl. 13.30. Dags-
ferð á Suðurnes mið-
vikudaginn 15. janúar.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Morgunkaffi, blöð-
in og matur í hádegi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Línudans fyrir byrj-
endur kl. 18. Dans-
kennsla Sigvalda, sam-
kvæmisdansar,
framhald kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. Skrif-
stofa félagsins er í Faxa-
feni 12, sími 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar frá hádegi, spila-
salur opinn. Alla virka
daga vikunnar er fjöl-
breytt dagskrá frá 9–
16.30. Allar upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–17, kl. 10.50, róleg
leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 postulíns-
málun og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og föndur, kl. 13
spilað, kl. 13.30 ganga,
fótaaðgerðir. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–11
ganga, kl. 9–15 fótaað-
gerð, kl. 9–12 myndlist,
kl. 9–16 opin handa-
vinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálning, kl.
9.15–15.30 alm. handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl.10.30–11.30
jóga, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing. Lyfjafræð-
ingur á staðnum kl. 13
fyrsta og þriðja hvern
mánudag.
Vitatorg. Kl. 08.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia-æfing,
kl. 11.30 matur, kl. 13
handmennt – almennt,
glerbræðsla og frjáls
spil, kl. 14.30 kaffi.
Gullsmárabrids. Brids
að Gullsmára 13 mánu-
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst
kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudag-
kvöld kl. 20.
Digraneskirkja, eldri
borgarar, opið hús byrj-
ar á morgun kl. 11.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra,
verður með opið hús að
Skógarhlíð 8, þriðjudag-
inn 14. janúar kl. 20.30.
Júlíus K. Björnsson sál-
fræðingur ræðir um
svefn og svefntruflanir.
Allir velkomnir.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
kl. 19 brids.
Minningarkort
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í
síma 861-6880 og 586-
1088. Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvík.
Skrifstofan er opin
mán.-fim. kl. 10–15. Sími
568-8620. Bréfs. 568-
8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonssamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd
á skrifstofutíma í síma
552-4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (K.H.),
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44, II. hæð,
sími á skrifstofu 544-
5959.
Í dag er mánudagur 13. janúar, 13.
dagur ársins 2003, Geisladagur. Orð
dagsins: Verið heldur sjálfir heilagir
í allri hegðun, eins og sá er heilagur,
sem yður hefur kallað.
(1Pt. 1, 15)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 háski, 4 lund, 7 aski, 8
álút, 9 gagn, 11 vot, 13
kvæði, 14 örðug, 15 mik-
ill, 17 mjög, 20 heiður, 22
óbundið, 23 líffærið, 24
starir, 25 sleifin.
LÓÐRÉTT:
1 afslöppun, 2 skýrði frá,
3 lengdareining, 4 hæð, 5
varkárt, 6 trjónur, 10
fórn, 12 mergð, 13 tryllta,
15 látin, 16 óþekkt, 18
þunga, 19 ákveðin, 20
borðandi, 21 sprota.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 svifasein, 8 rugga, 9 konum, 10 tík, 11 skatt, 13
síðan, 15 korgs, 18 kants, 21 púa, 22 pakka, 23 reyfi, 24
vikapilts.
Lóðrétt: 2 vígja, 3 flatt, 4 sokks, 5 iðnað, 6 hrós, 7 smán,
12 tóg, 14 íma, 15 kopp, 16 rukki, 17 spaka, 18 karfi, 19
neytt, 20 skin.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur veitt því eftir-tekt að fréttamenn Ríkisút-
varpsins tala jafnan um „fyrirhugað“
stríð er þeir ræða um málefni Banda-
ríkjanna og Íraks, sem auðvitað eru
mjög í fréttum þessi misserin.
Orðabókin er ekki afdráttarlaus að
þessu leyti en það er málskilningur
Víkverja að sé eitthvað „fyrirhugað“
þýði það að búið sé að „ákveða“ það.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur hins vegar sagt margoft, að enn
hafi engin ákvörðun verið tekin um
árás á Írak, allt sé þetta undir Sadd-
am Hussein komið: þ.e. ef hann hlíti
skilmálum ályktunar öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna verði ekkert
stríð.
Nú getur verið að fréttamenn, eins
og annað fólk, hafi skoðun á því hvort
rétt sé að taka orð Bush trúanleg.
Víkverja finnst þó að þeir verði að
sýna fagmennsku og gæta hlutlægni:
að eðlilegast sé að tala um „hugsan-
legt“ stríð fremur en „fyrirhugað“ –
a.m.k. enn um sinn.
x x x
VÍKVERJA finnst umhugsunar-verðar þær upplýsingar, sem
fram komu í Morgunblaðinu á
fimmtudag, í tengslum við fréttir frá
Bretlandi um að fundist hefði nokk-
urt magn eitursins rísíns í íbúð í
London.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins
að blómabúðir hér á Íslandi hafa selt
fræ kristpálmans, sem rísín er unnið
úr, en ekkert er því til fyrirstöðu að
rækta þessa plöntu í blómapotti
heima í stofu.
Úr kristpálmanum má auðveldlega
búa til stórhættulegt eitur, þ.e. rísín,
en hann fengi maður semsé að eiga í
friði, þó að manni bærist áreiðanlega
ákæra ef verið væri að rækta marij-
úana í stofuglugganum!
x x x
VÍKVERJI var að gæla við þá til-hugsun fyrir jól að kaupa sér bíl.
Hann þræddi nokkur bílaumboð,
þ.á m. Bílaþing Heklu, og kíkti á verð
á notuðum bílum. Víkverji er hins
vegar ekki mikill sérfræðingur um
bíla og þurfti á aðstoð að halda, m.a.
af því að það þurfti eiginlega að ýta
ofurlítið á hann, ætti að verða af bíla-
kaupunum.
Maður skyldi ætla að það væri
hlutverk bílasala að veita viðskipta-
vininum ráðgjöf annars vegar, og síð-
an hins vegar að sinna hagsmunum
fyrirtækisins og reyna að pranga til-
tekinni vöru upp á viðskiptavininn.
Sannarlega hlýtur það að vera mark-
mið sölumanns að viðskiptavinurinn
fari ekki tómhentur út.
Víkverji fékk hins vegar á tilfinn-
inguna að sölumenn Heklu hefðu eng-
an sérstakan áhuga á að selja honum
bíl. Aldrei gaf sig að honum nokkur
maður og þegar Víkverji loks tók
sölumann tali að fyrra bragði var eins
og veslings viðskiptavinurinn ætti að
vita nákvæmlega fyrirfram hvað það
var sem hann langaði í. Raunar varð
Víkverji var við ákveðna hneykslan á
því, hversu lítið hann vissi um bíla, og
hversu ómótaðar hugmyndir hann
hafði um það, hvers konar bíl hann
vildi. „Vertu ekkert að ónáða okkur
fyrr en þú veist hvað þú vilt, vinur-
inn,“ voru þau skilaboð sem Víkverja
fannst hann fá. Fyrir vikið varð ekk-
ert af bruðlinu á þessum tímapunkti;
Víkverji ákvað að keyra frekar um á
gömlu druslunni svona eitthvað fram
á vorið. Varla var því góð sölu-
mennska hér á ferðinni, eða hvað?
ÉG þekki þá sögu vel að
vera fatlaður, ég hefði aldr-
ei trúað því er ég var ófatl-
aður að viðhorfin næðu
svona djúpt í huga fólks, og
það ennþá – eftir tímabil
þar sem skilningur fólks,
með aukinni meðvitund um
málefni fatlaðra, hefur
stóraukist – að maður hélt,
en hvernig er reyndin.
Ég er búinn að vera at-
vinnulaus í 7 ár, hef einung-
is unnið sumarstörf í af-
leysingum í 2 skipti, en ég
er menntaður bókhaldari,
og er ég hafði menntað mig
í tölvufræði í Iðnskólanum
þóttist ég nú fær í flestan
sjó, en ekkert gekk að fá
vinnu þótt lög séu í landinu
um forgang fatlaðra í
vinnu … hjá ríkinu alla-
vega. Þannig að ég bætti
við mig menntun, hélt að
það hefði eitthvað að segja
og sat í 3 ár í HÍ og var
tilbúinn að láta reyna á
hlutina. En kemst því mið-
ur að því að þjóðarsálin á
enn langan veg fyrir hönd-
um í að breyta eigin hug-
arfari – öllum til heilla.
Það að svo fór að marg-
faldur verðlaunahafi á
heimsmeistaramóti hafi
ekki fengið þjóðarverðlaun
Íslendinga, breytir því ekki
að Ólafur Stefánsson er
hinn mesti sómapiltur sem
allir eru stoltir af enda bú-
inn að vera einn af mínum
uppáhaldsmönnum í mörg
ár. En það þarf meira til ef
breyta á þessari fötluðu
fóbíu Íslendinga.
Stefán.
Góð sólbaðsstofa
ÉG vil benda fólki á góða
sólbaðsstofu á Grandavegi
en þar eru frábærir bekkir.
Einnig vil ég þakka fyrir
góða þjónustu þar.
Viðskiptavinur.
Skemmtileg saga
DRÍFA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma á framfæri þakklæti
fyrir útvarpssöguna Góðir
Íslendingar eftir Huldar
Breiðfjörð sem les hana
einnig. Les hann mjög
skemmtilega og sagan er
mjög góð og mælir hún með
því að fólk hlusti á þessa
sögu.
Þakkir
ÉG vil koma á framfæri
þökkum til starfsfólks á
Stoðtækjaverkstæði Öss-
urar fyrir frábæra þjón-
ustu. Ég var búin að prófa
aðra staði og fór með son
minn og sjálfa mig til Öss-
urar og fékk alveg frábæra
þjónustu.
Starfsfólkið var notalegt
og gaf sér tíma til að sinna
okkur. Vil ég benda fólki á
að þarna er hægt að fá per-
sónulega og góða þjónustu.
Sigríður á Akranesi.
Góð þjónusta
ÉG keypti kápu í jólagjöf á
dóttur mínu hjá Lauru
Ashley en kápan passaði
ekki, var of lítil, og þegar
átti að skipta henni var ekki
til stærra númer. Fékk ég
þá kápuna endurgreidda og
þakka ég fyrir frábæra
þjónustu.
Gréta.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
í Hafnarfirði
SILFURLITAÐ kvenúr
týndist 28. desember,
sennilega í eða við verslun-
armiðstöðina Fjörð í Hafn-
arfirði. Skilvís finnandi hafi
samband við Önnu í síma
555 0125 eða í verslunina
Dalakofann í síma
555 4295.
Ljósgrá barnaúlpa
týndist
LÍTILL drengur á 3. ári
saknar sárt úlpunnar sinn-
ar en hún týndist á Þor-
láksmessu. Úlpan er
ljósgrá með gráu flísfóðri
og hettu og er merkt: Sölvi
Freyr. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 565 1032
eða 862 4681.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Fötluð fóbía
Íslendinga
Morgunblaðið/Ómar
Hundarnir viðraðir í Hljómskálagarðinum.