Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verð á mann frá 19.800 kr. þegar bókað er á www.icelandair.is www.icelandair.is Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu Flugsæti á broslegu verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 19 89 0 01 /2 00 3 NÝTT HLUTVERK Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, verður forsætisráð- herraefni Samfylkingarinnar og helsti talsmaður flokksins fyrir al- þingiskosningarnar í vor. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, mun einbeita sér að innra starfi flokksins og leiða stjórn- armyndunarviðræður, komi til þess. Ellert í viðbragðsstöðu Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, er tilbúinn að taka 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður verði honum boðið það. Hann hefur hins vegar afþakkað boð um að vera í 6. sæti á lista flokksins í Reykjavík- urkjördæmi norður. Dauðadeildin tæmd George Ryan, fráfarandi rík- isstjóri í Illinois í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að breyta öllum dauðadómum í ríkinu í lífstíðar- dóma. Ákvörðunin á sér engin for- dæmi og hafa ýmsir mótmælt henni harðlega, en Ryan segir að dauða- dómarnir séu geðþótta- og handa- hófskenndir og því ósiðlegir. Reykjanesbraut tvöfölduð Framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar hefjast af fullum krafti síðar í vikunni og er stefnt að því að ljúka fyrsta áfanga að mestu á rúmu ári en verktakar hafa frest til 1. nóvember 2004 til að skila af sér. Valgerður í fyrsta sæti Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verður í 1. sæti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi vegna al- þingiskosninganna í vor. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, verður í öðru sæti, en kosið var um sæti á listanum á kjördæmisþingi á laug- ardag. Vilja lægri toll á síld Samtök í sjávarútvegi segja mik- ilvægast að ná fram tollfríðindum fyrir fersk og fryst síldarflök í við- ræðum við Evrópusambandið um bætur fyrir missi frjáls markaðs- aðgangs fyrir sjávarafurðir í ríkjum Austur-Evrópu, sem eru á leið inn í ESB. Þessi flök bera 15% toll. 2003  MÁNUDAGUR 13. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A LÁRUS ORRI FÉKK NÓG AÐ GERA Á MÓTI UNITED / 5 BÍLDSHÖFÐI 510 8020 SMÁRALIND 510 8030 SELFOSS 480 7000 WWW.INTERSPORT.IS NOKKUÐ ljóst virðist vera hvaða 16 leikmenn muni skipa íslenska landsliðið á HM í Portúgal ef marka má leikina þrjá á fjögurra landa mótinu í Danmörku um helgina. Af þeim átján leikmönnum sem fóru út komu Róbert Gunnarsson, línumað- ur, og Birkir Ívar Guðmundsson aldrei við sögu þótt þeir fengju að verma varamannabekkinn hvor í sínum leiknum. Sennilegt má því telja að þeir heltist úr lestinni þegar HM-liðið verður tilkynnt á morgun. Þá liggur í augum uppi að eftirtaldir sextán leikmenn verði sendir á mót- ið: markverðirnir Guðmundur Hrafnkelsson og Roland Valur Eradze. Horna- og línumennirnir Gústaf Bjarnason, Guðjón Valur Sig- urðsson, Róbert Sighvatsson, Sigfús Sigurðsson og Einar Örn Jónsson og útileikmennirnir Patrekur Jóhannes- son, Sigurður Bjarnason, Gunnar Berg Viktorsson, Dagur Sigurðsson, Aron Kristjánsson, Rúnar Sigtryggs- son, Snorri Steinn Guðjónsson, Heið- mar Felixson og Ólafur Stefánsson. Tólf af þessum hópi voru í íslenska liðinu á EM í Svíþjóð fyrir ári síðan. Guðmundur Guðmundsson, lands- liðsþjálfari í handknattleik, vildi alls ekki staðfesta að þetta yrðu þeir sex- tán leikmenn sem færu til Portúgal á HM, er Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Sagðist hann ætla að gefa sér einn til tvo daga til þess að velta stöðunni fyrir sér áður en haldið verður til Svíþjóðar á miðviku- dag þar Ísland leikur síðasta und- irbúningsleikinn fyrir HM við heima- menn í Landskrona síðdegis á fimmtudag. Ljósmynd/NF Hornamaðurinn Gústaf Bjarnason er kominn fram hjá varnarmönnum Egyptalands í gær og skor- ar eina mark sitt í leiknum á fjögurra landa mótinu í Danmörku. Ísland vann Egypta, 35:25. Birkir og Róbert heltast úr lestinni Marel lánaður til Lokeren BELGÍSKA 1. deild- arliðið Lokeren hefur náð samkomulagi við Stabæk um að fá landsliðsmann- inn Marel Baldvinsson að láni til 30. júní í sum- ar.Þrír íslenskir lands- liðsmenn eru fyrir hjá Lokeren Arnar Þór Við- arsson, Arnar Grétarsson og Rúnar Kristinsson. „Við sáum hann leika á móti Anderlecht í Evr- ópukeppninni í haust og vorum mjög hrifnir af honum. Arnar Viðarsson og Arnar Grétarsson mæltu líka eindregið með honum. Marel er stór og sterkur leikmaður og það er einmitt þannig leik- maður sem við vorum að leita eftir. Okkur hefur tekist að ná samkomulagi við Stabæk um að fá hann lánaðan út þetta tímabil með möguleikum á kaup- rétti eftir það. Við erum mjög ánægðir með þá Ís- lendinga sem við höfum og vonandi eiga eftir að koma fleiri ,“ sagði Willy Verhoost, fram- kvæmdastjóri Lokeren við Morgunblaðið. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 26 Viðskipti 11 Dagbók 28/29 Erlent 112 Kvikmyndir 30 Aðsent 16/17 Fólk 31/33 Listir 14/15 Bíó 54/57 Forystugrein 18 Ljósvakar 34 Minningar 20/23 Veður 35 * * * AUK samþykkis stjórna Alcoa og Landsvirkjunar þarf niðurstaða eft- irlitsstofnunar EFTA, ESA, um rík- isstyrk vegna stóriðjuframkvæmda á Austurlandi að liggja fyrir áður en hægt verður að undirrita samninga á milli Alcoa, Fjarðabyggðar og iðn- aðarráðuneytisins. Tilkynning var send ESA 16. desember og hefur stofnunin tvo mánuði til þess að af- greiða erindið. Iðnaðarráðuneytið óskar eftir því við fjármálaráðuneytið að það sendi sérstaka ríkisstyrkjatilkynningu til ESA, þar sem slík mál heyra undir fjármálaráðuneytið. Samkvæmt upplýsingum í fjármálaráðuneytinu kynntu íslensk stjórnvöld ESA málið óformlega á fundi í Brüssel til þess að flýta fyrir afgreiðslu þess og sendu síðan sjálfa tilkynninguna með fylgiskjölum hinn 16. desember. Samkvæmt málsmeðferðarreglum hefur ESA tvo mánuði til þess að af- greiða málið frá þeim degi að telja sem stofnuninni berst tilkynning sem hún metur sem fullnægjandi. Að sögn Maríönnu Jónasdóttur, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu, eru til margir flokkar ríkis- styrkja og ríkisábyrgð á lánum getur verið ein tegund ríkisstyrkja. Marí- anna segir að ESA hafi ekki gert at- hugasemdir vegna svipaðs erindis sem ESA var sent vegna fram- kvæmda á Grundartanga. Niðurstaða um miðjan febrúar ESA skoðar álversframkvæmdir GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra segir fulltrúa aðildarríkja Barentsráðsins sammála um að tækifæri séu fyrir hendi innan ráðsins til að byggja upp nánara samstarf innan þess, einkum á sviði efnahags- og umhverfismála. Geir sat, í fjarveru Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra, tíu ára af- mælisfund ráðsins sem haldinn var í Kirkenes í N-Noregi dagana 10.–11. janúar sl. „Menn eru auðvitað ánægðir með það sem áunnist hefur síðast- liðin tíu ár en það er auðvitað alveg ljóst að þarna eru mikil tækifæri til að halda áfram að efla samstarf- ið.“ Fundinn sóttu forsætisráð- herrar Norðurlandana og Rúss- lands auk fulltrúa frá 13 fylkjum ríkjanna sem mynda Barentsráð- ið. Sérstakur forsætisráðherra- fundur var haldinn þar sem sam- þykkt var ályktun um áherslur og verkefni sem framundan eru í samstarfinu. Geir segir merkileg- ast í því sambandi að rússneski forsætisráðherrann hafi greint frá því að rússnesk stjórnvöld myndu veita undanþágu frá því að lagður yrði virðisaukaskattur á búnað sem nota á til að hreinsa upp kjarnorkuúrgang í NV-Rússlandi. Ekkert væri því að vanbúnaði að hefja undirbúning að hreinsunum á svæðinu. Tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki Geir bendir á að þótt Íslending- ar séu fullgildir aðilar að Barents- ráðinu séu beinir hagsmunir Ís- lendinga eðlilega ekki eins miklir og þeirra sem búa á svæðinu. Á hinn bóginn sé um gríðarlega stórt landsvæði að ræða sem sé jafn stórt að flatarmáli og Portúgal, Spánn, Ítalía, Frakkland og Þýskaland til samans með um sex milljónir íbúa. Svæðið sé auðugt, bæði af olíu og gasi og þar séu miklir skógar. Þá bjóði norðaust- ur-siglingaleiðin milli Atlantshafs og Kyrrahafs upp á mikla mögu- leika í framtíðinni, m.a. fyrir Ís- lendinga í tengslum við viðskipti við Asíu, ef takist að þróa þar sigl- ingar með samkeppnishæfum hætti þrátt fyrir ísinn. Allt hag- ræði sem skapist á svæðinu fyrir tilstuðlan ráðsins geti því nýst ís- lenskum fyrirtækjum og aðilum sem stunda viðskipti þar. Að sögn Geirs bar engin mál á góma sem snerta hagsmuni Ís- lendinga beint, s.s. fiskveiðar í Barentshafi. Samstarf í umhverfis- og efnahagsmálum Fundur Barentsráðsins haldinn í Kirkenes í N-Noregi SÍÐUSTU sex mánuði hafa eggjaframleið- endur hækkað verð til verslana um 28%. Hagkaup hafa ekki fallist á þessar hækk- anir og hafa síðustu mánuði greitt sam- kvæmt gömlu verðskránni. Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir að framleiðendur séu ótrúlega nálægt hver öðrum í hækkunum. Hagkaup kaupi egg frá fleiri en einum framleiðanda og allir virðist þeir mjög sam- stiga. „Síðustu sex mánuði hefur verðið hækkað um 28%. Við erum ennþá að reyna að lenda þessu svo við þurfum ekki að velta þessari hækkun út í verðlagið.“ Finnur segir að Hagkaup eigi ekki marga kosti í stöðunni. „Ég er hræddur um að okkar viðskiptavinir yrðu ekki ánægðir ef við hættum að selja egg. Ég held þeir væru heldur ekki ánægðir ef við myndum hækka egg hjá okkur um 28% í einu vetfangi. Svo er okkur óheimill innflutningur á eggjum. Við eigum fáar bjargir,“ segir Finnur. Hagkaup hafi síðustu mánuði greitt framleiðendum fyrir vöru þeirra sam- kvæmt gamla verðinu. Fyrst hafi Hagkaup tekið á sig hækkun og greitt samkvæmt henni í tvígang „en síðan sögðum við hingað og ekki lengra,“ segir Finnur. „Við viljum reyna að leysa þetta, eins og við alla okkar birgja og finna sátt um einhverja lausn sem allir geta verið ánægðir með.“ Í baráttunni við Rauðu strikin og verð- bólguna í fyrra hafi Hagkaup komið með mikilvægt innlegg þegar verð á ýmsum vörum var lækkað. „Það var ákveðið loforð sem við gáfum okkar viðskiptavinum og við viljum standa við það. Ég held að það hafi sýnt sig í vísitölu matvöru undanfarna mán- uði,“ segir Finnur. Hann segir að Hagkaup hafi ekki bent Samkeppnisstofnun á þetta en stofnunin hljóti að skoða aðra þætti en smásölustig á matvöru, verði þetta niðurstaðan. „Hingað og ekki lengra“ Hagkaup fallast ekki á 28% verðhækkun eggjaframleiðenda TVEIR jeppar lentu utan vegar í Fnjóskadal, rétt áð- ur en lagt er upp á Víkurskarð austan megin, á laug- ardagskvöld. Lögreglan á Húsavík og lögreglan á Akureyri fengu tilkynningu um slysið rétt fyrir klukkan tíu. Talsverður viðbúnaður var viðhafður þar sem ökumaður sat fastur í öðrum jeppanum, sem var skorðaður á hliðinni ofan í skurði við veginn. Lögreglan á Húsavík taldi atvikin óháð hvort öðru. Geysileg hálka var á þessum kafla en auður vegur sitthvorum megin. Lögreglan telur að öku- menn hafi misst stjórn á bílunum þegar þeir keyrðu inn á hálkukaflann. Talsverðan tíma tók að komast að öðrum ökumanninum, sem var samanklemmdur inni í flakinu. Hann var slasaður að sögn lögreglu en betur fór en á horfðist í fyrstu. Hinn ökumaðurinn skarst á höfði. Báðir voru fluttir með sjúkrabíl á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Víða var flughált á vegum landsins í gær og hálkublettir í öllum landshlutum samkvæmt upplýs- ingum frá Vegagerðinni. Sömu sögu var að segja um götur í íbúðarhverfum á höfuðborgarsvæðinu. Misstu stjórn á bílunum í hálku Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson TVEIR brenndust í andliti um helgina, annar í vinnuslysi og hinn af völdum flug- elds. Flugeldurinn sprakk framan í ungling í Þrastarskógi og brenndist pilturinn tals- vert í andliti, en hann var fluttur á Land- spítala – háskólasjúkrahús við Hringbraut. Starfsmaður Íslandslax hf. við Grindavík fékk í gærdag sápu framan í sig, þegar hann var að tengja sápudælu, og brann í andliti, en farið var með hann á spítala í Reykjavík eftir læknisskoðun í Keflavík. Brenndust í andliti ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.