Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
AUKIÐ ATVINNULEYSI
Árstíðabundið atvinnuleysi, sem
jafnan er mest í janúar og febrúar, er
nú meira en áður og auk þess birtist
það með nýjum hætti að því leyti að
mikið er um að menntað fólk og fólk í
verslunar- og þjónustustörfum hafi
misst vinnuna. Kemur þetta fram í
viðtali við Gissur Pétursson, forstjóra
Vinnumálastofnunar.
Geimfara minnst
Áhafnar geimferjunnar Kólumbíu
var minnst í gær við athöfn í Houston
í Texas. Tóku þátt í henni um 10.000
manns, þar á meðal George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, og kona hans.
Rannsóknin á slysinu heldur áfram
og beinist ekki síst að þeim skaða,
sem ferjan varð fyrir í flugtaki.
Verðstríð í bensíni
Verðstríð virðist vera skollið á hjá
olíufélögunum og hafa fyrri verð-
hækkanir þeirra flestra verið dregn-
ar til baka. Selja þau nú öll bensínið á
93,20 krónur í sjálfsafgreiðslu.
Viðtal við Saddam
Bresk sjónvarpsstöð birti í gær
viðtal sem breski stjórnmálamað-
urinn Tony Benn átti við Saddam
Hussein Íraksforseta. Í því neitar
hann tengslum við al-Qaeda og segir
Íraka engin gereyðingarvopn eiga.
Um 900 verk gefin
Afkomendur Sverris Sigurðssonar
listaverkasafnara færðu í gær Lista-
safni Háskóla Íslands að gjöf 894
myndir eftir Þorvald Skúlason. Eru
þær flestar smámyndir og skissur.
Íbúðarverð hækkar
Á síðustu sex árum hefur verð á
íbúðarhúsnæði hækkað um 63%, eða
þrefalt meira en almennt verðlag á
sama tíma.
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
GOKART-ÖKUSKÓLI
CITROËN BERLINGO
AUDI MARGRÉTAR
EKIÐ Í HLIÐARHALLA
OPEL VECTRA 2,2
CAYENNE Í LISTASAFNI
Þjónustuaðili fyrir öryggis- og
þjófavarnarbúnað frá DIRECTED
VIPER á Íslandi
HEFJA INNFLUTNING
Á LINCOLN
FULLBÚNIR LÚXUSJEPPAR
Á 6—7 MILLJÓNIR KR.
Yf ir l i t
Kynningar – Blaðinu í dag fylgir tíma-
ritið Lifun. Tímaritinu verður dreift um
allt land.
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 13/14 Minningar 32/37
Erlent 15/19 Staksteinar 38
Höfuðborgin 21 Hestar 39
Akureyri 21 Dagbók 42/43
Suðurnes 23 Íþróttir 44/47
Landið 22 Fólk 48/55
Listir 23/24 Bíó 50/53
Umræðan 25/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
ÞAÐ var handagangur í öskjunni í
Kringlunni í gær en þá var síðasti
dagur götumarkaðar sem markaði
lok útsölu þar eftir jól. Útsölu er
sömuleiðis lokið í Smáralind en
framkvæmdastjórinn þar segir
birgðastöðu kaupmanna mun betri
nú en á sama tíma í fyrra.
Að sögn Arnar Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Kringlunnar,
hefur útsalan gengið ákaflega vel
en götumarkaðurinn hófst á
fimmtudag. „Við ákváðum að
framlengja hann fram yfir mánu-
dag og þriðjudag af því að fólk
fékk margt hvert ekki útborgað
fyrr en í gær og við fengum áskor-
anir um framlengingu þess vegna.
Þetta er skemmtilegt stemning þar
sem farið er út með vörurnar og
fólk geri gríðarlega góð kaup.“
Hann segir útsölu hafa farið
snemma og vel af stað og ljúki
núna fyrstu vikuna í febrúar. Þó
geti verið að einhverjar verslanir
verði með hluta af útsöluvörum
inni í búð hjá sér í takmörkuðu
magni. „Í kjölfarið á þessu fara
nýjar vörur að detta inn og vorlín-
an fer að koma í þessari og á
næstu vikum.“
Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, segir
útsölu í Smáralind hafi í öllum
aðalatriðum lokið um helgina. Þó
verði einstaka verslanir áfram með
einhverjar vörur á útsölu. „Lang-
flestar verslanir eru hreinlega
búnar með allar vörur sem koma
til greina á útsölu því þetta hefur
gengið mjög vel. Birgðastaða
verslananna, sem kaupmaðurinn
vill gjarnan hafa sem lægsta á
hverjum tíma, var að meðaltali
mun lægri og hagstæðari nú eftir
áramót en fyrir ári.“
Hann segir nokkrar verslanir
hafa hreinlega tæmst af vörum
meðan á útsölu stóð en verið sé að
fylla þær af nýjum vörum í þessari
viku og vikunum framundan.
Morgunblaðið/Kristinn
Það var líf í tuskunum á götumarkaðinum í Kringlunni í gær enda sjálfsagt hægt að gera góð kaup á síðasta degi.
Útsöl-
um að
mestu
lokið
SVIPTINGAR voru í verðlagningu eldsneytis
hjá olíufélögunum þremur í gær, ESSO, Skelj-
ungi og Olís, en öll selja þau nú bensínlítrann á
93,20 kr. í sjálfsafgreiðslu. Tvö fyrstnefndu
drógu til baka verðhækkanir sínar á bensíni og
dísilolíu frá því á mánudag, fyrst ESSO og svo
Skeljungur. Olís tilkynnti hins vegar enga
hækkun á mánudag en hækkaði bensínlítrann
síðdegis í gær um 1,90 kr. og dísilolíu um 2 kr.
Þá þegar voru hin olíufélögin búin að afturkalla
1,70 kr. hækkun á bensínlítranum og 0,60 kr.
hækkun á dísilolíu. Dró Olís þá strax til baka
sína hækkun.
Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri
fjárfestinga- og áhættustýringasviðs Olís, sagði
að þessu ylli sú stefna félagsins að bjóða við-
skiptavinum sínum samkeppnishæft verð á
hverjum tíma. „Miðað við þróun á heimsmark-
aðsverði er hins vegar þörf á hækkun eldsneyt-
isverðs, fremur en lækkun,“ sagði hann. Hvorki
hann né Hjörleifur Jakobsson, forstjóri ESSO,
vildu tjá sig um það hvort þeir álitu að olíufé-
lögin væru komin í harkalegt verðstríð. ESSO
lækkaði eldsneytisverðið hjá sér kl. 15.58 þótt
forsendur fyrir hækkuninni sem tilkynnt var á
mánudaginn hefðu ekkert breyst að sögn Hjör-
leifs. „Hins vegar höfum við verið að kynna
nýja þjónustu á bensínstöðvum okkar að und-
anförnu og lagt áherslu á hagkvæmt verð fyrir
viðskiptavini okkar. Við töldum okkur ekki geta
staðið við það loforð öðruvísi en að lækka verð-
ið aftur í dag [í gær].“
Segir þörfina fyrir verðhækkun vera
jafnmikla eða meiri en áður
Að sögn Kristins Björnssonar, forstjóra
Skeljungs, voru eingöngu samkeppnisástæður
fyrir lækkun hjá félaginu í gær. „Þörfin fyrir
verðhækkun er því miður jafnmikil og jafnvel
meiri en hún var því olían hefur verið að
hækka. Þrátt fyrir það tókum við ákvörðun um
að láta verðhækkanirnar ganga til baka. Mark-
aðsaðstæður gera það að verkum að við viljum
taka þátt í þeirri samkeppni sem hafin er og við
því er ekkert að segja.“
Olíufélögin draga fyrri
hækkanir til baka
Olís hækkaði og
lækkaði verðið með
stuttu millibili í gær
BORGARRÁÐ frestaði í gær stað-
festingu samnings um uppbyggingu
hótels og sýningarskála við Aðal-
stræti og Túngötu en Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, fyrrverandi borgar-
stjóri, undirritaði hann í síðustu viku
fyrir hönd borgarinnar. Staðfesting-
unni var frestað vegna efasemda um
að nægilega vel væri staðið að varð-
veislu hússins í Aðalstræti 16 og ný-
fundinna fornminja á svæðinu.
Á fundi borgarráðs var óskað eftir
umsögn Árbæjarsafns um málið og
gagnrýndu fulltrúar sjálfstæðis-
manna að samningurinn hefði ekki
verið kynntur í borgarstjórn áður en
hann var undirritaður.
Stenst út frá
varðveislusjónarmiði
Guðný Gerður Gunnarsdóttir,
borgarminjavörður og forstöðumað-
ur Árbæjarsafns, telur ástæðulaust
að efast um ágæti þeirra aðferða
sem nota á við varðveislu Aðalstræt-
is 16. Húsið, sem sé friðað, hafi verið
tekið af grunni með leyfi húsafrið-
unarnefndar og í samvinnu við borg-
arminjavörð og stefnt sé að því að
endurbyggja það á faglegan hátt.
„Neðsta hæðin, sem var í rauninni
tekin niður, var skoðuð mjög vel,
mæld upp og teiknuð og viðir sem
þar voru hafa verið skoðaðir,“ segir
hún. „Það er stefnt að því að byggja
neðstu hæðina aftur í samræmi við
það hvernig hún leit út og síðan lyfta
húsinu upp á hana. Það er að mínu
mati alveg viðunandi lausn og aðferð
sem stenst fullkomlega út frá varð-
veislusjónarmiði og því sem tíðkast
við endurbyggingar og endurnýjun
gamalla húsa.“
Hvað varðar fornminjarnar segir
Guðný að áætlanir um byggingu
sýningarskála utan um rústina hafi
verið unnar í samráði við Árbæjar-
safn og hugmyndir um skálann séu
góðar að hennar mati. Aðspurð seg-
ist hún búast við að Árbæjarsafn
muni skila umsögn sinni til borg-
arráðs á næstu dögum eða fyrir
borgarráðsfund næstkomandi
þriðjudag.
Staðfestingu samnings um hótel við
Aðalstræti frestað í borgarráði
Efasemdir um að
vel sé staðið að
varðveislu hússins
Viðunandi lausn er fundin á málinu
að mati borgarminjavarðar