Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss og Goðafoss koma og fara í dag. Arnarfell kemur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Skrif- stofa s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Flóamarkaður, fataút- hlutun og fatamót- taka, s. 552 5277 Mannamót Aflagrandi 40. Opið hús verður fimmtud. 6. feb. Húsið opnað kl. 19.30, félagvist kl. 20, kaffiveitingar. Allir aldurshópar velkomn- ir. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgr., kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðg., kl. 10–10.30 Búnaðarbankinn, kl. 13–16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 hárgr., kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankaþjón- usta, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9 silkimálun, kl. 13–16 körfugerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13.30 bankaþjónusta. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 postulínsmálun, kl. 13–16.30 módelteikn- ing, kl. 9–14 hárgr., kl. 9–16.30 fótaaðg. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðnum, kl. 10 hárgr., kl. 10–12 verslunin op- in, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15–16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Línudans- kennsla kl. 19.15. S. 588 2111. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Tréútskurður kl. 9 myndlist kl 10–14, línudans kl. 11 pílu- kast, kl. 13 glerlist kl. 13, kl. 13.30 kóræfing kl 16. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur op- inn, postulínsámskeið verða á mánud. kl. 9– 12 og þriðjud. 14–17, skráning hafin. S. 575 7720. Félag eldri borgara, Suðurnesjum Selið, Vallarbraut 4, Njarð- vík. Í dag 14 fé- lagsvist. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 9.30 boccia og glerlist, kl. 10.50 leik- fimi, kl. 13 glerlist, kl. 15. 15 söngur, kl. 16 hringdansar, kl. 17. bobb. Kl. 20 mynda- kvöld frá síðastliðnu sumri. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinnustofan op- in. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, búta- saumur, útskurður, hárgr. og fótaaðg., kl. 11 banki, kl. 13 bridge. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 14 dans, kl. 15 frjáls dans, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðg. og hárgr. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 sam- verustund, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist. Messa á morgun kl. 10.30. Vesturgata 7. Kl. 8.25–10.30 sund, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15-14.30 versl- unarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Helgistund á morgun kl. 10.30 Vitatorg. Kl. 8. 45 smíði, kl. 9 hárgr., kl. 10 fótaaðg., bókband og bútasaumur, kl. 13 handmennt, kl. 13.30 bókband, kl. 12.30 verslunarferð. Rangæingar – Skaft- fellingar. Spilavist í kvöld í Skaftfell- ingabúð, Laugavegi 178, kl. 20. Vinahjálp, brids spil- að á Hótel Sögu í dag kl. 13.30. Kvenfélagið Hrönn. Aðalfundurinn verður haldinn fimmtud. 6. feb. í sal flugvirkja- félagsins Borgartúni 22 og hefst kl 20. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík að- alfundurinn verður fimmtud. 6. feb. í safn- aðarheimilinu Lauf- ásvegi 13, kl. 20. Hana-nú Kópavogi Fundur í Bókmennta- klúbbi í kvöld kl. 20. Verið er að lesa ljóð eftir Ingibjörgu Har- aldsdóttur. Í dag er miðvikudagur 5. febr- úar, 36. dagur ársins 2003. Agötu- messa. Orð dagsins: Látið því ekki hið góða sem þér eigið verða fyrir lasti. (Róm. 14, 16.) Krossgáta LÁRÉTT 1 ergileg, 8 gengur, 9 lé- laga rúmið, 10 sefa, 11 súta, 13 lélegar, 15 ís- breiða, 18 jarðvöðull, 21 málmur, 22 rándýri, 23 þjálfun, 24 skrök. LÓÐRÉTT 2 fjáðar, 3 braka, 4 lét sér lynda, 5 styrkir, 6 sjávar- gróður, 7 fyrr, 12 leyfi, 14 fisks, 15 hæðar, 16 Ís- lands, 17 stíf, 18 borði, 19 sér ekki, 20 smáalda. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 prísa, 4 goggs, 7 efuðu, 8 felga, 9 ról, 11 tuða, 13 kula, 14 flæða, 15 þjál, 17 ljúf, 20 þil, 22 arfar, 23 or- sök, 24 karta, 25 tjara. Lóðrétt: 1 prent, 2 íburð, 3 alur, 4 gafl, 5 guldu, 6 skata, 10 ótæti, 12 afl, 13 kal, 15 þjark, 16 álfur, 18 jaska, 19 fokka, 20 þróa, 21 lost. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VINUR Víkverja þurfti á dögunumað láta lagfæra puttann á sér. Hann hafði fyrir næstum tveimur áratugum meitt sig í fingrinum með því að festa giftingarhringinn á háu handriði og hanga þannig um stund. En nú var baugfingurinn semsagt orðinn svo boginn og krepptur að vin- urinn komst ekki einu sinni í hanska. Hann dreif sig til úrvals læknis sem kippti þessu í lag hið snarasta með lít- illi skurðaðgerð á stofunni hjá sér. Vinur Víkverja hélt að hann þyrfti að borga smámuni fyrir þessa einu og hálfu klukkustund hjá lækninum enda sagðist hann hafa búist við að Tryggingastofnun myndi bera kostn- aðinn. Vinurinn sem er reyndar mjög passasamur með budduna sína svo ekki sé nú meira sagt tók semsagt andköf þegar læknirinn rukkaði hann um 17.000 krónur og sagði að það væri aðeins hluti kostnaðarins, trygg- ingarnar borguðu afganginn. Vin- urinn ákvað að reyna að vera jákvæð- ur og hugsaði með sér að nú væri hann þó kominn með afsláttarkort fyrir fjölskylduna. Hann dreif sig í Tryggingastofnun og sótti um kortið. Þegar hann komst svo að því að af- sláttarkortið gilti fyrir hann einan en ekki fyrir konuna hans og börnin líka þá var honum öllum lokið. Fjögurra manna fjölskylda getur því lent í því að borga á fimmta tug þúsunda áður en allir eru komnir með afsláttarkort. NÚ ER að koma fiðringur í Vík-verja og hann eins og svo margir aðrir er farinn að velta fyrir sér sum- arfríinu. Þetta er samt svolítið flókið því hann er nefnilega haldinn mikilli flughræðslu og flugferðin má ekki vera of löng og helst verður hann að þekkja einhvern í áhöfninni. Víkverji er semsagt fullviss um að hver ferð sem hann fer sé hans síðasta. Hann ritar bréf og setur í eldfast hólf þar sem hann kveður sína nánustu sem ekki eru með honum í för. Nokkrum sinnum hefur hann skráð sig á flug- hræðslunámskeið en alltaf fundið sér afsakanir þegar komið er að mætingu því hann veit að í lokin er farið í flug- ferð og hann sér ekki tilganginn í því að fljúga til útlanda til einskis. En einu sinni til tvisvar á ári legg- ur hann á sig að fara til útlanda með fjölskyldunni. Nokkrum dögum áður en kemur að ferðinni fer að bera á einkennum, svefninn verður mar- traðarkenndur og hann sér bara fyrir sér endalokin um borð, hann fer að svitna í lófum og velta því fyrir sér hvort hann eigi að taka svefnpillu fyr- ir ferðina eða fá sér neðan í því. Þegar um borð er komið, sest hann dauðadæmdur í sætið sitt, kreistir aftur augun, grípur heljartaki í sinn heittelskaða og fer með Faðir vorið í gríð og erg. Von bráðar er hann kom- inn í loftið og þá fer honum strax að líða betur. Hann þakkar sínum sæla fyrir að hafa ekki látið flughræðsluna stoppa sig í að ferðast með fjölskyld- unni og finnur ekki fyrir einkennum aftur fyrr en líður að heimferð. Morgunblaðið/Sverrir Sérkennilegir viðskiptahættir! Í NÓVEMBER sl. sendi VÍS út blað til viðskiptavina sinna sem í voru þessar setn- ingar: „Frábær tilboð til ör- yggis“ og „Tryggðu öryggi fjölskyldunnar“. Þar voru ýmis tilboð, t.d. „Viðskipta- vinum VÍS býðst nú Purga T-sjónvarpsslökkvitæki. Frí uppsetning er innifalin.“ Var nú ákveðið að kaupa eitt slíkt tæki til að tryggja öryggi fjölskyldunnar enn betur. Þetta er síðan tekið út af Visareikningi okkar en ekk- ert bólar á tækinu. Eftir ítrekaðar hringingar í VÍS og fleiri milliliði á vegum VÍS er okkur tjáð að tækið hafi verið sent vestur í kringum 8. janúar, en þar sem svo fáir pöntuðu tæki fengjum við ekki okkar fyrr en búið væri að selja fleiri þar sem ætti að setja þetta upp í einum pakka. Við getum sem sagt ekki „tryggt öryggi fjölskyld- unnar“ nema fleirum hugn- ist að gera slíkt hið sama. Í dag, 31. janúar, er stað- an sú að við höfum farið fram á endurgreiðslu. Þetta finnst okkur óeðlilegir og ósiðlegir viðskiptahættir. Er það ekki skýlaus rétt- ur þess sem kaupir vöru og borgar fyrir að fá hana – hvort sem hún selst í litlu upplagi eða stóru? Guðný Pálsdóttir, Patreksfirði. Konur í kjafti karla JÓNÍNA Benediktsdóttir hefur verið afar áberandi í íslenzku þjóðlífi vegna heilsuræktarstöðva sem hún hefur haft forgöngu um að stofna. Hún stefndi hátt eins og margur en varð að láta í minni pokann af ýms- um ástæðum. Aðrir njóta nú góðs af frumkvöðulsstarfi hennar. Jónína hefur verið óhrædd við að veita opinská viðtöl um persónu sína og það sem hún hefur verið að aðhafast í það og það skiptið auk þess að lýsa yfir hvað hún ætlaði sér í framtíðinni. Auðvitað var hún bæði umtöluð og öfunduð. „Sjáið þið bara Jónínu. Hún ætlar sér ekkert lítið. Bara eiga allar heilsuræktarstöðvar í landinu,“ sagði fólk. „Hún fer ábyggilega á hausinn með allt saman,“ og Gróa á Leiti var ánægð. En Jónína er ekki af baki dottin. Hún kom nýlega í viðtal við Ingva Hrafn í Út- varpi Sögu og lýsti því yfir að hjá sér væri engin upp- gjöf. Hún væri einfaldlega byrjuð upp á nýtt. Eitt af því sem okkur konum er oft boðið þegar við kvörtum um verki og and- lega vanlíðan er að taka inn nokkrar gleðitöflur. Skyldu karlmenn fá sömu með- höndlun? Jónínu var líka boðin slík meðferð. En nei, engin geðlyf fyrir hana. Jónína ætlar að halda er- indi á Grandhóteli hinn 10. febrúar kl. 18, sem heitir „Konur í kjafti karla“. Það verður gaman að hlusta og ekki síður forvitnilegt að sjá hvað margir karlar hafa hugrekki til þess að mæta á staðinn. Við konur höldum með valkyrjum. Bravó Jónína. Erna V. Ingólfsdóttir, Krummahólum 10, R. Dýrahald Perla er týnd PERLA, sem er þriggja ára smávaxin tík, fór frá heimili sínu í Fossvogi sl. laugar- dag. Hún er ljós á lit (hvít). Ef einhver veit um ferðir hennar, hún er sennilega í Kópavogi, þá vinsamlega hafið samband í síma 895 6307. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Björgvin G. Sigurðsson,þingmannsefni Sam- fylkingarinnar, skrifar grein í Morgunblaðið á laugardaginn. Þar segir hann meðal annars: „Markmiðið er að Ísland verði tilraunastofa við þróun lýðræðisins og fánaberi framþróunar lýð- ræðislegra stjórnarhátta, þar sem hinn almenni borgari kemur í sem mest- um mæli að meginákvörð- unum samfélagsins.“     Það er óhætt að segja aðýmislegt hafi gengið á í tilraunastofu Samfylk- ingarinnar. Núverandi forsætisráðherraefni flokksins, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, beitti sér fyrir því á síðasta kjör- tímabili að haldin yrði al- menn atkvæðagreiðsla um Reykjavíkurflugvöll, sem var góð byrjun. Forysta Samfylkingarinnar hefur sett fram margar góðar hugmyndir um beint lýð- ræði. Hins vegar má spyrja hvort henni hafi gengið eins vel að efla lýð- ræðið í eigin ranni.     Eftir ákvörðun Ingi-bjargar Sólrúnar um að snúa sér að landsmál- unum (sem var ekki tekin í samráði við kjósendur, sem hún hafði lofað að verða áfram borgarstjóri) lokaði formaður Samfylk- ingarinnar sig af og til- kynnti síðar fjölmiðlum að nýtt forsætisráðherraefni hefði fæðst; Ingibjörg Sól- rún. Hún væri jafnframt talsmaður flokksins í kosningum og leiðtogi. Þessi sami formaður lagði á sínum tíma mikla áherslu á að almennir flokksmenn hefðu allt um það að segja hver yrði for- maður og talsmaður flokksins, í beinni póst- kosningu. Það skipti litlu máli þegar á reyndi.     Ekki treystu þingmennSamfylkingarinnar, framkvæmdastjórn eða nokkur önnur stofnun sér til að samþykkja þennan gjörning með formlegum hætti – hvað þá að flokks- menn fengju eitthvað um það að segja. „Samfylkingin leggur líka áherslu á lýðræði í flokksstarfinu þar sem að- koma flokksmanna á að vera sem greiðust að mót- un stefnu með gagnvirku sambandi félagsmanna og flokksins,“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur, á heimasíðu sinni 27. nóvember 2001. Er þetta gagnvirka samband bara í aðra átt- ina? A.m.k. hefur lítið orð- ið úr hugmynd formanns- ins, sem hann setti fram í ræðu á stofnfundi Sam- fylkingarinnar árið 2000: „Ég hef í hyggju að nota það [Netið] til að ráðfæra mig reglulega við flokks- menn, til dæmis með því að settar verði upp spurn- ingar á Netinu og óskað eftir svörum við þeim.“     Hugmyndir samfylking-armanna um lýðræð- ið eru góðar, en hætt er við að kjósendur hætti að hlusta ef tilraunirnar skila ekki betri niðurstöðum í flokksstarfinu sjálfu. STAKSTEINAR Fánaberi lýðræðislegra stjórnarhátta Dagatal – Gabríel FUNDIST hefur pappakassi og í honum var m.a. fatnaður, sæng og svefnpoki. Í kassanum var einnig dagatal, heimagert, með þessari mynd, merkt Gabr- íel 1BEB. Þeir sem kannast við að hafa týnt kass- anum hafi samband í síma 562 5521 eða 697 5665.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.