Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 22
LANDIÐ 22 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ KOMMABLÓT var haldið í Nes- kaupstað sl. helgi en það er Alþýðu- bandalagið í Neskaupstað sem stendur fyrir blótinu líkt og und- anfarin 37 ár. Þrátt fyrir litla starf- semi Alþýðubandalagsins á lands- vísu lætur Alþýðubandalagið í Neskaupstað ekki deigan síga Að vanda voru það fóstbræðurnir Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri og Smári Geirsson, formaður bæj- arráðs, sem sömdu annál ársins að mestu. En sér til aðstoðar við flutn- ing hans höfðu þeir Ágúst Ármann Þorláksson, Guðmund Gíslason, Helgu Steinson, Jón Björn Há- konarson og tuskuhundinn Kizu. Annállinn var fluttur ýmist í formi söngva eða upplestrar og er óhætt að segja að hann hafi vakið mikla kátínu gesta. Enginn er óhultur þegar nýliðið þorrablótsár er rifjað upp og meðal annarra var gert stólpagrín að nýja lögregluvarðstjóranum og fíkni- efnaleitarhundi hans. Laxeldi í Mjóafirði og laxaslátrun í Neskaup- stað var aðhlátursefni. Einnig bar á góma barátta bláu handarinnar við Bubba kóng, forstjóra Síldarvinnsl- unnar. Einna mesta lukku vakti túlkun skemmtikrafta á Neista- flugshátíðinni sl. sumar þar sem Valgeir Guðjónsson stjórnaði brekkusöng. En annálshöfundar voru líka duglegir að gera grín að sjálfum sér. Þeir grínuðust t.d. með úrslit sveitarstjórnarkosninga sl. vor þegar vinstrimenn í Neskaup- stað töpuðu meirihluta eftir rúm- lega hálfrar aldrar setu á valdastóli og sungu í kór: Fallnir með fjóra af níu í fyrsta sinn í 50 ár.“ Þá var ekki hægt að fjalla um nýyfirstaðið blótsár án þess að minnast á skin og skúrir í álmálum, fyrst kjaftshöggið frá Hydro og svo bjargvættinn Al- coa. Aðsókn á blótið var ágæt, en þó ekki eins góð og undanfarin ár. Vel lukkað kommablót Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Meðal gesta var Einar Már Sigurðarson þingmaður og fjölskylda hans. Neskaupstaður FRAMKVÆMDUM við viðbygg- ingu Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi er lokið. Verktakinn Jón Eiríksson ásamt samstarfsmönnum sínum afhenti Elínu Sigurðardóttur, formanni stjórnar Heimilisiðnaðar- safnsins, lyklana að húsinu sl föstu- dag, degi fyrr en áætluð verklok. Fyrstu skóflustunguna að húsinu tók Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja- vörður í október 2001. Viðbyggingin er 348 fermetrar að stærð. Elín Sigurðardóttir var afar ánægð með viðbygginguna og sagði hún húsið vandað í alla staði og gekk bygging þess mjög vel. Áætlaður byggingakostnaður um 40 milljónir króna fór tæplega 6 milljónir króna fram úr áætlun. Elín sagði að við- byggingin yrði formlega vígð í maí. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi var opnað á 100 ára afmæli Blöndu- óss árið 1976 en árið 1993 var heim- ilisiðnaðarsafnið gert að sjálfseign- arstofnun sem að standa nær öll sveitarfélög í A-Húnavatnssýslu ásamt sambandi austur-húnvetnskra kvenna (SAHK) en áður hafði SAHK alfarið séð um rekstur og stjórn safnsins. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er afar sérstakt og á eng- an sinn líka á Íslandi. Arkitekt við- byggingar Heimilisiðaðarsafnsins á Blönduósi er Guðrún Jónsdóttir. Byggt við heimilisiðn- aðarsafnið Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Jón Eiríksson afhendir Elínu Sig- urðardóttur lykla að byggingunni. Blönduós að vinna að framgangi hugmynda um heilsutengda ferðaþjónustu á Húsavík í samstarfi við aðra að- ila. Með stofnun félagsins Heilsu- laug á Húsavíkurhöfða er stigið það skref að koma þessu verkefni samvinnu við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Gunnar segir tilgang félagsins m.a. þann, að vera sam- eiginlegur vettvangur þeirra sem hafa áhuga á að stunda heilsuböð ásamt því að vinna að bættri að- stöðu til slíkrar ástundunar, og ALLT frá árinu 1992 hefur hópur fólks á Húsavík notað vatn, sem kemur upp úr borholu á Húsavík- urhöfða, til baða. Þetta vatn er sérstakt að efnisinnihaldi og má með einföldum hætti líkja við heitan sjó, reynslan sýnir að þetta salta vatn hefur t.d. góð áhrif á húðvandamál. Í raun eru á svæðinu nokkrar borholur sem hafa mismunandi seltustig. Bað- karið sjálft sem notað hefur verið er gamalt ostakar sem fékkst í Mjólkursamlaginu á sínum tíma og það ásamt lágmarks búnings- aðstöðu hefur verið látið duga til dagsins í dag. Fyrir skömmu var haldinn í Hvalamiðstöðinni á Húsavík stofnfundur félags áhugafólks um heilsuböð og heilsutengda ferða- þjónustu á Húsavík og hlaut það nafnið Heilsulaugin á Húsavík- urhöfða. Gunnar Jóhannesson at- vinnuráðgjafi hjá Atvinnuþróun- arfélagi Þingeyinga var frummælandi á fundinum ásamt þeim Friðfinni Hermannssyni framkvæmdastjóra Heilbrigð- isstofnunar Þingeyinga og Jóni Ásberg Salómonssyni sem er einn af upphafsmönnum náttúrubaðs- ins á Húsavíkurhöfða. Gunnar er jafnframt stjórnandi verkefnis um heilsutengda ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði í í ákveðinn farveg. Félagið mun t.d. hafa forgöngu um að ræða hvernig þetta sérstaka vatn verð- ur nýtt í framtíðinni. Í stjórn fé- lagsins voru kosin þau Jón Ás- berg Salómonsson, Gunnar Bóasson og Bryndís Torfadóttir. Vatnið í pott í sundlauginni? Góðar umræður urðu á stofn- fundinum og þar var m.a. rætt um bætta aðstöðu á Húsavík- urhöfðanum sjálfum, auk mögu- leika á að leiða vatnið niður í pott í Sundlauginni. Sveinn Rún- ar Arason forstöðumaður Sund- laugar Húsavíkur mætti á fund- inn og sýndi fundarmönnum teikningar af framtíðarskipulagi laugarinnar en þar er gert ráð fyrir pottum og laugum með heilsuvatninu af höfðanum. Það mun reyndar ekkert nýtt að Húsvíkingar hafi áhuga á nátt- úruböðum. Áður en sundlaugin á Húsavík var byggð voru misheit- ar laugar notaðar til baða eða sundiðkunar. Hluti þeirri upplif- unar að fara í ostakarið á Húsa- víkurhöfða er kannski einmitt hve frumstæðar aðstæður eru fyrir hendi og má segja að það sé í anda náttúrubaða. Þá er á höfð- anum gott útsýni yfir Skjálf- andaflóa sem getur verið glæsi- legt á fallegum sumarkvöldum og þykir ekki síðra að vetrarlagi því engin eru götuljósin sem trufla stjörnurnar og eða norðurljósin. Heilsulaugin á Húsavíkurhöfða Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þessa aðstöðu á Húsavíkurhöfða hafa menn notað til baða frá 1992. MEÐAL þeirra furðutóla sem lög- reglan í Ólafsfirði hefur gert upptæk á undanförnum árum er þessi sveðja með þeim myndarlegri. Jón Árni Konráðsson, lögregluvarðstjóri, heldur hér um gripinn en myndin er tekin á skrifstofu sýslumannsins í Ólafsfirði. Myndarleg sveðja Ólafsfjörður Á AÐALFUNDI Ungmennafélags- ins Heklu í Rangárþingi ytra á dög- unum var útnefndur íþróttamaður ársins 2002. Það var Árni Arason sem með ástundun og árangri þótti hafa skarað fram úr í frjálsum íþróttum og hlaut hann forláta bikar því til staðfestingar. Fjöldi annarra viðurkenninga var veittur, bæði í körfubolta og frjálsíþróttagreinum. Kom fram í máli formanns Umf. Heklu, Önnu Maríu Kristjánsdóttur, að starfið hefði gengið vel á síðast- liðnu ári, ekki síst í frjálsíþrótta- greinum, en félagsmenn hafa verið sigursælir á innan- og utanhússmót- um Rangæinga. Sagði Anna María að hópurinn, með þjálfarann Berg- lindi Pedersen í fararbroddi, stefndi að æfinga- og keppnisferð til út- landa, jafnvel á komandi sumri. Auk frjálsra íþrótta stendur Umf. Hekla fyrir körfuboltaæfingum og júdó og er góð þátttaka í öllum grein- um. Leikjanámskeið var haldið síð- astliðið sumar við góðar undirtektir. Kom fram á fundinum nú sú hug- mynd að stefna að enn öflugra og fjölbreyttara starfi fyrir tólf ára og yngri næsta sumar en athugun þess máls er á frumstigi. Íþróttamaður ársins hjá Umf. Heklu Hella Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Árni Arason, íþróttamaður ársins 2002 hjá Ungmennafélaginu Heklu í Rangárþingi ytra. ATVINNURÁÐGJÖF Vestur- lands boðaði íbúa Snæfellsness til fundar á Hótel Framnesi í Grund- arfirði 28. janúar sl. Á fundinum fór Ólafur Sveinsson, forstöðumað- ur stofnunarinnar, yfir þau mál sem unnið hefði verið að á svæðinu sem heyrir undir Atvinnuráðgjöf- ina eða frá Hvalfirði í suðri að Gils- firði í norðri. Kom fram í máli Ólafs að nýjustu verkefnin á Snæfells- nesi sem Atvinnuráðgjöfin komi að sé m.a. stofnun Sögumiðstöðvar í Grundarfirði og verkefnisins Tæknibærinn Grundarfjörður sem og Heilsueflingar Stykkishólms ehf. undir nafninu Temple Spa. Dr. Grétar Þór Eyþórsson, framkvæmdastjóri Rannsóknar- stofnunar Háskólans á Akureyri, var sérstakur gestur fundarins og fjallaði um niðurstöðu rannsóknar- vinnu um stoðgreinar sjávarútvegs með tilliti til kjarnasvæða. Kom þar fram að Snæfellsnes er þar sett á bekk með svæðum eins og Aust- fjörðum og Vestmannaeyjum. Ennfremur kynnti hann niður- stöðu rannsóknar á sameiningu nokkurra sveitarfélaga. Fjölmenni var á fundinum eða yfir 30 manns og sköpuðust nokkrar umræður í lok fundar einkum voru þar á ferð mismunandi túlkanir á niðurstöð- um úr rannsókninni um samein- ingu sveitarfélaganna. Fjölmenni á fundi um byggða- og atvinnumál Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Fylgst með af áhuga á fundinum. Grundarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.