Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 51 Naomi Watts er búin að sparka Heath Ledger eftir nokkurra mán- aða samband. Ástralska parið kynnt- ist við tökur á myndinni The Kelly Gang en hún er þekktust fyrir að leika ljóskuna í Mulholland Drive og hann fyrir að leika í myndum á borð við 10 Things I Hate About You, A Knight’s Tale, Monster’s Ball og The Patriot. Ellefu ára aldursmunur er á þeim, hún 34 ára og hann 23 ára, en þrátt fyrir það var það hann sem var tilbúinn að festa ráð sitt og að sögn félaga tilbúinn að ganga að eiga Watts. Svo langt voru brúðkaups- áformin reyndar gengin að fregnir herma að þau hafi verið búin að senda út 100 boðskort. En svo virðist sem hún hafi fengið bakþanka og ku vera farin að hitta aðra karlmenn, í kyrrþey þó. … Lara Flynn Boyle hefur loksins gef- ist upp á Jack Nicholson og kvennastandinu á karlinum. Það gerðist eftir að hafa gripið hann enn eina ferðina glóðvolgan í ból- inu með súludansara. Á þetta að hafa gerst á heimili Nicholsons í Aspen og sást til Boyle, sem er 34 árum yngri en hann, þar sem hún rauk í fússi á dyr. Parið hafði nýtekið saman á ný. Í millitíðinni hafði hún yngt verulega upp og gert sér dælt við Bruce Willis. … Jennifer Lopez leggur nú allt kapp á að fá unn- usta sinn Ben Affleck til að hætta að reykja og svo virðist sem hún fái sínu fram- gengt – eins og vanalega. Nú segist hann reykja eina á dag og jórtra þess á milli nikótíntyggjó. … Hjónaband leikaranna bresku Judes Law og Sadie Frost ku í molum. Þau hafa verið gift í fimm ár en nú virðist sem álag frægð- arinnar sé end- anlega að ganga af sambandinu dauðu, líkt og nær öllum öðrum stjörnuhjónaböndum. Sögusagnir segja leynilegt ástarsamband Law við Nicole Kidman hafa verið kornið sem fyllti mælinn, en trúlegri skýring er að Law sé búinn að fá sig full- saddan á ráðríki hennar og af- brýðisemi. Hjónakornin segja sögu- sagnir þessar úr lausu lofti gripnar og hafa hótað að lögsækja bresku götublöðin fyrir að halda þeim á lofti. … Bryan McFadder úr Westlife og eiginkona hans Kerry Katona, fyrr- um Atomic Kitten-liðsmaður, hafa eignast aðra dóttur. Fæddist hún á Mount Carmen-spítala í Dyflinni á mánudagskvöld og hefur þegar verið nefnd Rosie. Mæðgunum heilsast báðum vel. Eldri dóttirin Molly er orðin 16 mánaða. … FÓLK Ífréttum www.laugarasbio.is Náðu þeim í bíó í dag.  SV Mbl í mynd eftir Steven Spielberg. Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30. Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 4.30. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14. www.regnboginn.is Nýr og betri DV RadíóX Sýnd kl. 5.30 og 10. B.i 12 áraSýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 14 ára Suma vini losnar þú ekki við...hvort sem þér líkar betur eða verr Hverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 12.  kvikmyndir.com Á bakvið rómantíkina, glæsileikann og ástríðurnar var átakanleg og ögrandi saga einstakrar konu. Ein allra besta myndin sem þú sérð í ár! Salma Hayek er stórkostleg sem listakonan Frida. Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. GRÚPPÍURNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.