Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 47 FÓLK  ÍR-INGAR unnu sinn fyrsta körfu- knattleikssigur í Njarðvík í 20 ár, þegar þeir lögðu Njarðvíkinga á mánudagskvöldið, 97:95. Síðasti sig- urleikur ÍR var 4. febrúar 1983, 78:60. Kolbeinn Kristinsson skoraði þá 25 stig fyrir ÍR og Pétur Guð- mundsson 24. Valur Ingimundarson setti 24 stig fyrir Njarðvík en Valur var ennþá á ferðinni í fyrrakvöld og skoraði þá 13 stig fyrir Skallagrím í Grindavík.  VOLKER Zerbe, handknattleiks- maðurinn hávaxni sem leikur með Lemgo, er hættur við að hætta með þýska landsliðinu. Zerbe, sem hefur hætt tvisvar á síðustu árum og byrj- að aftur, hafði hugsað sér að gefa ekki aftur kost á sér eftir HM í Portúgal. Í samtali við Neue West- fälischen í gær kvaðst Zerbe hins- vegar vera tilbúinn til að leika áfram því spennandi verkefni væru fram- undan, EM í Slóveníu og Ólympíu- leikarnir í Aþenu.  ARSENAL hefur lánað Wimble- don þýska varnarmanninn Moritz Volz, fyrirliða unglingaliðs Þýska- lands, í fimm vikur. Hann hefur að- eins leikið einn leik með Arsenal í vetur – deildabikarleik gegn Sund- erland.  STEINAR Tenden, norski knatt- spyrnumaðurinn sem hefur verið til reynslu hjá KA að undanförnu, leik- ur að öllu óbreyttu með liðinu í úr- valsdeildinni í sumar. Tenden hefur handsalað samning við KA-menn og er væntanlegur til landsins á ný í apríl. Hann kemur frá 3. deildarlið- inu Stryn og hefur skorað fyrir það 88 mörk í 81 leik.  BJÖRN Þorleifur Þorleifsson var sigurvegari í sínum flokki á móti í Taekwondo í Colorado í Bandaríkj- unum laugardaginn 1. febrúar – vann allar þrjár viðureignir sínar.  BRIAN Kerr, nýráðinn landsliðs- þjálfari Írlands, mun hitta Roy Keane að máli í Manchester, til að ræða við hann um landsliðsmál. Eins og menn muna sendi Mick McCarthy, fyrrverandi landsliðs- þjálfari, Keane, fyrirliða liðsins, heim frá HM sl. sumar.  ALAN Smit, sóknarleikmaður, skrifaði í gær undir nýjan samning við Leeds sem gildir til ársloka 2006. Samningurinn tryggir honum 40.000 pund í vukulaun, eða sem svarar til um 5,2 millj. króna.  JAMES Beattie, markahrókur, hefur gert nýjan samning við South- ampton sem gildir til ársins 2006. Beattie hefur verið sérlega mark- heppninn á leiktíðinni og skoraði 16 mörk. Southampton vildi því fyrir alla muni gera nýjan samning við hann til þess að freista þess að halda honum innan raða félagsins, en vitað var að nokkur félög hafa rennt til hans hýru auga. BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Skotlands, hefur kallað á tvo 22 ára leikmenn, Jamie Smith, Celtic, og Bob Malcolm, Glasgow Rang- ers, í landsliðshóp sinn fyrir leik gegn Írum á Hampden Park 12. febrúar. Það verður upphit- unarleikur fyrir orrustu gegn Ís- lendingum í Evrópukeppninni á Hampden Park 29. mars. Vogts er mjög ánægður með hraða Smith og segir að hann þurfi á fljótum leikmönnum á miðj- unni að halda. Landsliðshópur Skotlands er þannig skipaður að markverðir eru Robert Douglas (Celtic), Paul Gallacher (Dundee United) og Neil Sullivan (Totten- ham). Varnarmenn: Graham Alexand- er (Preston), Russell Anderson (Aberdeen), Steven Caldwell (New- castle), Christian Dailly (West Ham), Robert Malcolm (Rangers), Dominic Matteo (Leeds), Steven Pressley (Heart) og Maurice Ross (Rangers). Miðjumenn: Colin Cameron (Wolves), Scot Gemmill (Everton), Jackie McNamara (Celtic), Paul Devlin (Birmingham), Barry Ferguson (Rangers), Paul Lambert (Celtic), Gary Naysmith (Everton) og Jamie Smith (Celtic). Sóknarmenn: Stephen Crawford, (Dunfermline), Scott Dobie (WBA), Don Hutchison (West Ham), Kevin Kyle (Sunderland), Neil McCann (Rangers), Kenny Miller (Wolves) og Steven Thompson (Rangers). Skotar hita upp fyrir orrustu við Ísland MARGT bendir til þess að þýski handknattleiksmaðurinn Stefan Kretzschmar leiki ekki meira með Magdeburg á þessari leiktíð, en hann fingurbrotnaði í undan- úrslitaleik Þjóðverja og Frakka á heimsmeistaramótinu í hand- knattleik í Portúgal á sunnudag- inn. Reynist það raunin er það mikið áfall fyrir Magdeburg og Alfreð Gíslason, þjálfara liðsins, en auk þess leika Ólafur Stef- ánsson og Sigfús Sigurðsson landsliðsmenn með liðinu. Það er í öðru til þriðja sæti í þýsku 1. deildinni og er í harðri baráttu við Lemgo og Flensburg um þýska meistaratitilinn. Þá er Magdeburg komið í 8 liða úrslit meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik þar sem það hefur meistaratign að verja. Kretzschmar úr leik? ÍSLAND mætir Svíþjóð í vin- áttulandsleik 21 árs landsliða kvenna í Egilshöllinni 15. mars. Þetta verður fyrsti landsleikurinn innanhúss hér á landi og að sjálf- sögðu hefur aldrei áður verið háður landsleikur á heimavelli svona snemma á árinu. Leikurinn er liður í undirbúningi landsliðs- ins fyrir Norðurlandamótið í sumar. Ekki er ljóst hver stjórnar íslenska liðinu í leiknum þar sem ekki hefur verið ráðinn landsliðs- þjálfari fyrir A- og 21 árs lands- liðin í stað Jörundar Áka Sveins- sonar sem hættir störfum í þessum mánuði. Lands- leikur í Egilshöll Guðríður sagði að heimavöllurinnmyndi líklega gera útslagið í viðureign ÍBV og Stjörnunnar. „Það verður örugglega troðfullt hús í Eyj- um því þar eru jafnan langflestu og bestu áhorfendurnir í kvennahand- boltanum. Það er frábært að spila í Eyjum því þar er alvöru umgjörð í kringum leikina. Ef ÍBV spilar af fullri getu er það besta liðið á landinu en spurning er hvernig það nær sam- an hverju sinni. Alla Gorkorian hefur átt við meiðsli að stríða en það á þó ekki að koma að sök því breiddin er mikil og leikmenn eins og Ana Perez og Birgit Engl sitja yfirleitt á vara- mannabekknum þegar liðið er í sókn. Ef Vigdís Sigurðardóttir er í stuði í markinu getur hún verið svakaleg. Stjarnan þarf toppleik til að sigra í Eyjum og þar getur markvarslan hjá Jelenu Jovanovic ráðið úrslitum. Hún er hálft liðið þegar því er að skipta. En Stjörnuliðið er sterkt, Jóna Margrét Ragnarsdóttir er besta vinstrihandarskyttan hér í dag, Amela Hegic hefur ekki náð sér á strik vinstra megin en á meira inni, Elísabet Gunnarsdóttir er öflug á línunni og Hind Hannesdóttir hefur verið sérstaklega sterk gegn sínum gömlu félögum í ÍBV í vetur. Á góð- um degi á Stjarnan sigurmöguleika í Eyjum, það er engin spurning.“ Staðan í deildinni skiptir ekki máli Guðríður sagði að Haukar væru með sterkara lið en FH, staða lið- anna í deildinni segði allt um það, en slíkt skipti ekki alltaf máli þegar Hafnarfjarðarliðin ættust við. „Það verða oft hnífjafnir leikir þeirra á milli, eins og einmitt hefur verið í vetur þar sem Haukar hafa unnið naumlega, með einu og tveim- ur mörkum. FH er að koma upp með þrælgott lið sem býr yfir meira sjálfstrausti en áður. Dröfn Sæ- mundsdóttir hefur leikið geysilega vel í skyttustöðunni vinstra megin og er einn besti leikmaður deildarinnar. Sigrún Gilsdóttir er sterk á línunni, Björk Ægisdóttir er að koma upp á ný á hægri vængnum og Harpa Víf- ilsdóttir er mjög efnileg. FH-liðið vantar sterkan miðjumann og Jolanta Slapikiene þarf að sýna meiri stöðugleika í markinu. Haukastúlkurnar búa yfir gífur- legri reynslu og óbilandi sjálfstrausti sem fleytir þeim langt. Þær þekkja þetta allt frá undanförnum árum. Þeirra lið er firnasterkt og valinn maður í hverri stöðu. Hanna G. Stef- ánsdóttir er besti leikmaður deild- arinnar um þessar mundir, Inga Fríða Tryggvadóttir er sterk á lín- unni, Brynja Steinsen er komin aftur í hornið og Tinna Halldórsdóttir er mjög vaxandi leikmaður. Svo eru Haukarnir með Hörpu Melsted sem ber uppi liðið og tengir það saman með sínu mikla Haukahjarta, út- geislun og metnaði. Ég hallast því að sigri Hauka í þessari viðureign sem samt verður örugglega spennandi,“ sagði Guðríður Guðjónsdóttir. Aðeins eitt mark skilur að ÍBV og Stjörnuna í þremur leikjum liðanna í vetur. Þau hafa gert tvisvar jafntefli, 28:28 í Eyjum og 20:20 í Garðabæ um síðustu helgi þar sem ÍBV jafnaði undir lokin á ævintýralegan hátt. ÍBV náði síðan að vinna, 24:23, í Garðabæ. FH og Haukar hafa mæst tvívegis í 1. deildinni í vetur. Haukar unnu 26:24 á Ásvöllum og 28:27 í Kapla- krika. Morgunblaðið/Sverrir Birgit Engl, austurríska landsliðskonan í liði ÍBV, í dauðafæri í leiknum gegn Stjörnunni á laug- ardaginn. Ingibjörg Jónsdóttir úr ÍBV og Kristín Steinarsdóttir úr Stjörnunni fylgjast með. Liðin mætast aftur í undanúrslitum bikarkeppninnar í kvöld. Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Vals, veltir fyrir sér bikarrimmum ÍBV og Haukar lík- legri í hörkuleikjum UNDANÚRSLITIN í bikarkeppni kvenna fara fram í kvöld og ef marka má fyrri viðureignir liðanna sem þar mætast er útlit fyrir hörkuspennandi leiki. ÍBV tekur á móti Stjörnunni í Vestmanna- eyjum kl. 19.30 og hálftíma síðar hefst Hafnarfjarðarslagur FH og Hauka í Kaplakrika. Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Vals, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hún ætti von á jöfnum leikjum en spáir því að ÍBV og Haukar sigri og mætist í bikarúrslitunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.