Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 35 Ágúst afi minn var mjög glæsilegur og góður maður. Ég hef heyrt margar sögur af honum þegar hann var yngri og þá sérstaklega hversu stríðinn hann var. Síðan fékk ég einnig að kynnast því sjálfur á þessum árum sem ég þekkti afa. Það var hægt að tala við hann um allt, hann vissi einfaldlega alltaf eitthvað um alla hluti, hvort sem það voru heimsmálin, íþróttir eða pólitík. Við vorum auðvitað ekki alltaf sammála í öllu, eins og hvaða lið væri best í ensku deildinni. Þeg- ar við vorum að horfa á leiki saman, þá var hann ekki lengi að láta mig vita, ef mínum mönnum gekk illa, bara til að stríða mér. Afi var alltaf hress og brosandi, hann gat alltaf komið manni til að hlæja. Ég mun alltaf minnast hans í stólnum sínum með pípuna, breiða brosið og gefa „komment“ á ömmu ÁGÚST SVERRISSON ✝ Ágúst Sverrissonfæddist á Seyðis- firði hinn 13. ágúst 1931. Hann lést á heimili sínu á Mel- haga 17 í Reykjavík sunnudaginn 19. jan- úar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 31. janúar. sem sat ekki langt frá honum. Samveru- stundum okkar afa fjölgaði á síðustu árum og er ég því mjög þakklátur fyrir að hafa haft tækifæri til að kynnast honum jafn vel og ég gerði. Þessar stundir munu lifa lengi í minningunni. Takk fyrir allt saman, elsku afi, við sjáumst seinna. Davíð Ingi Daníelsson. Fallinn er frá einn úr hópi tæp- lega 90 nemenda sem útskrifuðust frá verzlunardeild Verzlunarskóla Íslands vorið 1953. Hópurinn kallar sig VÍ-53 og úr þessum árgangi eru nú fallnir frá liðlega tuttugu fé- lagar. Ágúst var einn þeirra sem settust í nýja C-deild 2. bekkjar haustið 1950 þegar nýnemahópur- inn var stækkaður. Í þessa deild söfnuðust nemendur úr ýmsum landshlutum og kom Ágúst alla leið frá Seyðisfirði. Fljótlega mynduð- ust nokkuð sterk tengsl milli okkar utanbæjarnemendanna í C-deild- inni m.a. vegna þess að við vorum eina deild 2. bekkjar sem var í skól- anum eftir hádegi. Ágúst var hress og kátur félagi, skorinyrtur og gat látið í sér heyra, ef þess þurfti með. Margs er að minnast frá þessum ljúfu og glöðu skólaárum og þá ekki síst þess hve samheldinn bekkjar- árgangurinn var. Fá munu þess dæmi að einn árgangur hafi hist ár- lega í 50 ár, en nú í vor heldur VÍ-53 einmitt upp á 50 ára útskrift- arafmæli bekkjarins. Ágústs er sárt saknað í hópnum nú þegar undirbúningur þessara tímamóta er að hefjast. Þótt samverustund- unum hafi fækkað fyrir utan hina árlegu fundi okkar hefur góður kunningsskapur ætíð haldist innan hópsins. Hér verður ekki rakin ætt eða lífsferill Ágústs, okkar ágæta skólafélaga, en fyrir hönd árshátíð- arnefndar VÍ-53 og annarra skóla- félaga votta ég Huldu, eiginkonu hans, og allri fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Megi Ágúst Sverr- isson hvíla í friði. Árni H. Bjarnason. Skarphéðinn Guð- mundsson hafði góða nærveru, enda traust- ur, gegnheill og fölskvalaus í öllum sín- um störfum og sam- skiptum við fólk. Hann naut af þess- um sökum virðingar og vinsælda samferðarmanna. Ekki skemmdi það heldur fyrir, að hann var lund- léttur, ætíð stutt í bjart brosið og kímin tilsvör; var því hrókur alls fagnaðar á góðum og glöðum stund- um. En Skarphéðinn Guðmundsson var jafnframt fastur fyrir, þegar við átti, enda hann langt í frá skoð- analaus um menn, en ekki síður málefni. Hann hafði nefnilegar fast- mótaðar skoðanir um þjóðfélagsmál og grundvallargildi í þeim efnum; var jafnaðarmaður í húð og hár og lagði Alþýðuflokknum mikið lið um áratugaskeið í baráttunni fyrir jöfn- uði og réttlæti; bættum lífskjörum fyrir hinn almenna mann. Eftir hans starfskröftum var óskað til trúnaðarstarfa á vettvangi Alþýðu- flokksins; fyrri árin á Siglufirði en á síðustu áratugum í Hafnarfirði. Það var á vettvangi stjórnmál- anna innan Alþýðuflokksins og í störfum fyrir Hafnarfjarðarbæ, sem ég kynntist Skarphéðni Guðmunds- syni. Við áttum þar margháttað samstarf, hvort heldur verkefnin lutu að innri málum Alþýðuflokks- ins í Hafnarfirði eða á landsvísu, ellegar störfum sem sneru að hags- munum bæjarfélagsins. Skarphéð- inn var oft á framboðslista flokksins í bæjarstjórnarkosningum og í stjórnum á vettvangi Alþýðuflokks- ins og gegndi störfum í ýmsum ráð- um og nefndum innan bæjarkerf- isins. Hann var eftirsóttur til þessara verka enda ráðhollur, fjöl- fróður og glöggur að greina auka- atriði frá aðalatriðum; á meginatriði máls. SKARPHÉÐINN GUÐMUNDSSON ✝ SkarphéðinnGuðmundsson fæddist á Siglufirði 7. apríl 1930. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. jan- úar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Seljakirkju 30. janúar. Nú er hann horfinn til annarrar strandar eftir alvarleg veikindi um árabil. Það er með sárum söknuði að ég kveð góðan drengskap- armann með þökkum fyrir samvinnu og vin- áttu í gegnum tíðina, ekki síst á vettvangi okkar jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Veit ég vel, að ég mæli fyrir munn okkar allra Al- þýðuflokksmanna, jafnaðarmanna í Hafn- arfirði fyrr og síðar þegar honum eru þökkuð samfylgd- in og verkin góðu. Eftirlifandi eiginkonu Skarphéð- ins, Esther Önnu Jóhannsdóttur, börnum og allri hans stóru og sam- heldnu fjölskyldu, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð geymi ykkur og styrki á erfiðri kveðjustund. Blessuð sé minning Skarphéðins Guðmundsssonar. Guðmundur Árni Stefánsson. Nú fallinn er frá afi minn Skarp- héðinn Guðmundsson. Sárt var að fylgjast með baráttu þinni við erf- iðan sjúkdóm, sem að lokum hafði yfirhöndina eftir 10 ár. Aðdáunar- vert var að fylgjast með því hvernig þú og amma tókust á við hinar miklu breytingar í kjölfar veikind- anna, allt heimilisbókhaldið og allt sem þú sást um afi færðist yfir á ömmu, þar á meðal bíllinn. En amma hentist í bílprófið 67 ára gömul og stóðst það með glans, erf- itt að toppa það, frábært hjá þér, amma. Ömmu og afa var gott heim að sækja og var yfirleitt einhver annar í heimsókn þegar ég kíkti inn. Í góðu veðri á sumrin var gaman að heimsækja gömlu hjónin í Bröttu- kinnina, þá var oft margt um mann- inn. Við frændurnir að sveifla okkur á þvottagrindinni, prílandi uppi á bílskúr, alltaf að eins og afi. Ef hann var ekki að bóna bílinn, þá var hann ber að ofan úti í garði með sláttuvélina, að klippa runnana, bera á pallinn, nú eða bara að leika við okkur barnabörnin. Afi var mikill afreksmaður í íþróttum og fór það ekki fram hjá neinum sem sótti þau gömlu heim. Bikarar, peningar og viðurkenning- arskildir sem fylltu heilt herbergi. Afreksmaður var hann einnig í at- vinnulífinu. Hinar ýmsu nefndir og stjórastörf vöfðust ekki fyrir hon- um, því klár var hann á mörgum sviðum. Skíðaíþróttin heillaði afa þó mest, enda átti hann Íslandsmet í skíða- stökki ár erftir ár og afrekaði að keppa á Ólympíuleikum fyrir Ís- lands hönd. Aldrei mun ég gleyma skíðaferð- unum upp í Bláfjöll á rauða Lada Sport-jeppanum þínum og svo á sumrin þegar kerran var komin aft- an í með allan útilegubúnaðinn. Afi var mikill útivistarmaður og mikill orkubolti og átti maður í miklum erfiðleikum með að halda í við kall- inn í öllum gönguferðunum og leikj- unum sem farið var í í útilegum, þvílík var orkan. Er ég horfi til baka sælla minninga, standa upp úr allar útilegurnar austur á Flúðum sem fjölskyldan fór í, og þegar ég fór með þér og bankanum í göngu inn Kaldársel og upp á Helgafell. Þá sigraði ég þig fyrst, var á undan á toppinn og fékk þig til að blása vel úr nös. enda varst þú að verða sex- tugur og ég bara unglingur. En er líða tók á veikindin og þú varst far- inn að slappast mikið, sá maður þó að stutt var í kímnina og gaman var að sjá borsið færast yfir andlit þitt eftir einhvern brandarann sem þaut hjá. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér og mikið hefði verið gaman ef Gréta konan mín og Hólmfríður Erla dóttir mín hefðu haft færi á að kynnast þér fyrir veikindin, í fullu fjöri, en það gerðist víst ekki. Hólm- fríður Erla mun ekki muna eftir þér, en dýrmætar eru mér mynd- irnar sem ég tók af ykkur saman rétt fyrir jólin síðustu, þú að smella kossi á hana og hún sofandi værum blundi. Þær myndir varðveiti ég vel. En elsku afi, hvort sem þú ert uppi í skýjabólstrunum, rennandi þér á skíðum eða að fást við önnur verkefni, þá mun dóttir mín kynnast langafa sínum í gegnum mig og mína fjölskyldu, því margar eru til sögurnar og myndirnar í gegnum árin. Jæja, afi minn, takk fyrir allt saman sem þú hefur gert fyrir okk- ur og bið ég góðan guð að styrkja ömmu og okkar stóru fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Davíð Sigurðsson og fjölskylda. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minn- ingargreina Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓLAFUR BJARNASON múrarameistari, Holtagerði 72, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 15.00. Fríða Margrét Guðjónsdóttir, Ágústa Ólafsdóttir, Einar Sveinbjörnsson, Valgarð Guðni Ólafsson, Sólveig Steinsson, Jónína Sigrún Ólafsdóttir, Guðmundur Rúnar Þorvaldsson, Óli Guðjón Ólafsson, Lilja Rós Sigurðardóttir, Birna Ólafsdóttir, Örn Þór Arnarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HJÖRTUR MARINÓSSON, Strandaseli 8, Reykjavík, sem lést á heimili sínu föstudaginn 31. janúar, verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 15.00. Auður S. Skarphéðinsdóttir, Sigmar Valur Hjartarson, Dóra Guðrún Þórarinsdóttir, Indíana Sigrún Hjartardóttir, Lára Sigrún Helgadóttir, Böðvar Eggertsson, Elín Helgadóttir, Ásþór Guðmundsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI INGVAR JÓNSSON, Miðvangi 75, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju fimmtu- daginn 6. febrúar kl. 13:30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- stofnanir. Margrét Fjeldsted, Daníel Gíslason, Steinunn Jónasdóttir, Snorri Gíslason, Guðrún Lára Skarphéðinsdóttir, Jónas Orri Daníelsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐNI HALLDÓRSSON fv. heilbrigðisfulltrúi, Kirkjubraut 52, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness. Lilja Guðrún Pétursdóttir, Halldór Gísli Guðnason, Guðmundur Smári Guðnason, Kristín Guðjónsdóttir, Eufemía Berglind Guðnadóttir, Kjartan Björnsson, Júlíus Víðir Guðnason Fanney Björnsdóttir og barnabörn. Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, VIGFÚS K. GUNNARSSON löggiltur endurskoðandi, Sóltúni 5, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 13.30. Anna L. Gunnarsdóttir, Óskar H. Gunnarsson, Unnur Agnarsdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir, Arnór Þórir Sigfússon, Agnar Óskarsson, Margrét Ásgeirsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.