Morgunblaðið - 05.02.2003, Side 4
VIÐRÆÐUR liggja niðri á milli
samningafulltrúa Íslands, Noregs
og Liechtensteins annars vegar og
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB) hins vegar um að-
lögun EES-samningsins samhliða
stækkun ESB. Hefur fundi sem
halda átti 6. febrúar verið aflýst að
ósk framkvæmdastjórnar ESB.
„Framkvæmdastjórnin sendi
okkur boð um að þeir teldu ekki að
neitt hefði breyst nægilega frá síð-
asta fundi til að ástæða væri til að
halda fund að svo stöddu,“ segir
Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu.
„Við vorum reiðubúnir að taka
þátt í fundinum og vorum í óða önn
að undirbúa frekari málflutning
okkar en þeir báðust undan því,“
segir Gunnar.
Haldnir hafa verið tveir formleg-
ir samningafundir í seinasta mán-
uði frá því viðræður hófust í byrjun
ársins. Er næsti formlegi samn-
ingafundur ekki á dagskrá fyrr en
11. mars.
„Við héldum því stíft fram á síð-
asta fundi að eins og þeirra samn-
ingsupplegg væri yrði erfitt að
hafa vitrænar umræður um það,“
segir Gunnar Snorri. Hann bætir
við að ef menn vilji líta á málin af
bjartsýni megi gera ráð fyrir að
framkvæmdastjórnin sé að taka
sér umhugsunarfrest til að meta
afstöðu EFTA-ríkjanna en að öðr-
um kostimegi ætla að samninga-
menn ESB ætli að standa stífir á
sínu.
Spurður hvort samstaða væri
milli Íslendinga og Norðmanna í
viðræðunum sagði Gunnar Snorri
svo vera. „Þeir hafa staðið alveg
með okkur að því, að ekki komi til
greina að taka þessa uppbygging-
arsjóði sem viðmiðun,“ segir hann.
Viðræður EFTA-ríkja
og ESB liggja niðri
Næsti formlegi
fundur á dag-
skrá 11. mars
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Guðrún Helgadóttir
Litla leyndarmálið
hans Péturs verður
að ævintýri sem
börnin vilja heyra
aftur og aftur!
Ljúf og
falleg saga
Tilboðsbók
mánaðarins
30%
afsláttur
ED
D
A
01
/2
00
3
ÚTFÖR Rúriks Haraldssonar leikara
var gerð frá Hallgrímskirkju í gær.
Séra Pálmi Matthíasson jarðsöng og
organisti var Hörður Áskelsson.
Kammerkórinn Schola cantorum
söng við athöfnina. Sigrún Eðvalds-
dóttir lék á fiðlu við undirleik orgels
og Egill Ólafsson söng einsöng. Leik-
ararnir Arnar Jónsson og Kristbjörg
Kjeld fluttu kvæðið Stefjahreim eftir
Einar Benediktsson.
Líkmenn sem báru kistu úr kirkju
voru (f.v.) Þórhallur Sigurðsson, Sig-
mundur Örn Arngrímsson, Björn
Guðmundsson, Örn Árnason, Jóhann
Sigurðarson, Ingvar E. Sigurðsson,
Randver Þorláksson og Sigurður Sig-
urjónsson.
Morgunblaðið/Golli
Útför Rúriks Haraldssonar
UTANRÍKISRÁÐHERRA telur eðlilegt að
lækka flugvallarskatt í utanlandsflugi til sam-
ræmis við innanlandsflugið. Muni það fela í sér
umtalsverða breytingu fyrir millilandaflugið.
Kom þetta fram í svari Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra á Alþingi við fyrir-
spurn Kristjáns Pálssonar alþingismanns um
flugvallarskatta á Keflavíkurflugvelli. Kristján
spurði meðal annars um það hvað væri gert eða
fyrirhugað að gera til að auka flugumferð um
Keflavíkurflugvöll og hvaða aðgerðir komi helst
til greina til að bæta samkeppnisstöðu flugvall-
arins.
Eins og áður hefur komið fram hefur Eftir-
litsstofnun EFTA gert athugasemd við mis-
munandi flugvallarskatta hér á landi. Innheimt-
ar eru 1.250 krónur við flug til útlanda en 165
krónur innanlands. Halldór lýsti þeirri skoðun
utanríkisráðuneytisins að eðlilegast væri að
sömu gjöld verði innheimt í utanlands- og inn-
anlandsflugi. Við núverandi kringumstæður
væri nærtækast að lækka gjöld í millilandaflugi
til samræmis við það sem tíðkast í innanlands-
flugi enda væri ekki grundvöllur til hækkana
þar. Ef ákveðið yrði að fara þessa leið mundi
það fela í sér umtalsverða breytingu fyrir milli-
landaflug án þess að um ríkisstyrk væri að
ræða.
Enginn skattur á Kastrup og í Frankfurt
Í svarinu kom einnig fram, vegna spurningar
frá Kristjáni, að enginn flugvallarskattur væri
greiddur í Kaupmannahöfn og Frankfurt.
Kristján lýsti ánægju sinni með það að ráðu-
neytið vildi samræma gjöld á flugvöllum, óháð
því hvort þau væru lögð á innanlands- eða ut-
anlandsflug. Það þýddi lækkun flugvallargjalda
á Keflavíkurflugvelli og ætti því að geta lækkað
þann kostnað sem leggst á hvern farþega sem
fer þar í gegn.
Kristján sagði mikilvægt að auka markaðs-
setningu á Íslandi sem ferðamannalandi en
komur farþega verði ekki háðar millilendingum
og fagnaði því starfi sem unnið væri á því sviði.
Benti hann á að flugfélög sem beina millilend-
ingum hingað, til dæmis kanadíska flugfélagið
HMY Airways, gerðu það af tæknilegri nauð-
syn. Ef flugvélartegundinni yrði breytt þannig
að hún gæti tekið meira eldsneyti þyrfti hún
ekki að millilenda hér á leið sinni milli Kanada
og Englands.
Ráðuneytið vill lækkun
á flugvallarskattinum
GYLFI Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands Íslands, segir
að kjör atvinnulausra á Íslandi hafi
rýrnað verulega eftir að hætt var að
láta atvinnuleysisbætur fylgja lág-
markstaxta fiskverkafólks. Síðan
1995 hafi atvinnuleysisbætur hækkað
um 45% á meðan dagvinnulaun fisk-
verkafólks hækkuðu um tæp 70%. Nú
séu fullar atvinnuleysisbætur rúm-
lega 77.000 krónur en ættu að vera
87.000 krónur. „Sá mismunur er ansi
stór fjárhæð af þessum bótum.“
Gylfi segir að ASÍ hefði varað við
þessu á sínum tíma. „Ástæðan fyrir
því að málið kemur upp núna er að á
árunum 2000 og 2001 var atvinnuleysi
sem betur fer lítið en nú eru um sex
þúsund manns án vinnu. Fjöldi ein-
staklinga sem hafa verið atvinnulaus-
ir í sex mánuði eða lengur hefur þre-
faldast á einu ári, úr því að vera 400 í
1.200. Það er vaxandi hópur fólks sem
þarf að reiða sig á atvinnuleysisbætur
til framfærslu,“ segir Gylfi.
Hann segir að ef sátt eigi að ríkja
um þetta kerfi til lengri tíma eigi bæt-
urnar að fylgja lágmarkslaunum.
Einnig sé nú til umræðu innan ASÍ að
atvinnuleysisbætur verði ákveðið
hlutfall af launum, sem einstaklingur
hafði áður. Oft sé tekjutap mikið þeg-
ar fólk missir vinnuna og þiggur at-
vinnuleysisbætur. Engin leið sé fyrir
þann einstakling að mæta sínum
skuldbindingum hvort sem er vegna
íbúðarhúsnæðis eða framfærslu.
Framkvæmdastjóri ASÍ
um atvinnuleysisbætur
Hafa ekki
fylgt lág-
marks-
launum
SAMSON eignarhaldsfélag ehf.
fær að öllum líkindum afhent
næstkomandi föstudag 33,3%
hlutafjárins í Landsbanka Íslands
hf. og mun þá reiða fram tæplega
50 milljónir bandaríkjadala eða
sem svarar tæplega 3,9 milljörðum
króna, sem fyrstu greiðslu af
þremur fyrir eignarhlutinn í bank-
anum.
Kaupverðið að fullu
greitt í bandaríkjadölum
Skv. kaupsamningnum verður
kaupverðið að fullu greitt í banda-
ríkjadölum. Að sögn Björgólfs
Thors Björgólfssonar, eins af eig-
endum Samsonar, verður næsta
greiðsla innt af hendi innan nokk-
urra mánaða en í desember nk.
verða þau 12,5% hlutarins sem eft-
ir standa afhent og fer Samson þá
með 45,8% hlutafjár í Landsbank-
anum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur Fjármálaeft-
irlitið komist að þeirri niðurstöðu
að félagið sé hæft til að fara með
eignarhlutinn í Landsbankanum.
Breska fjármálaeftirlitið á hins
vegar eftir að veita samþykki sitt
en að sögn Björgólfs er þess vænst
í dag eða á morgun.
Tillaga um fulltrúa í banka-
ráð lögð fram á aðalfundi
Birtar verða tölur um afkomu
Landsbankans næstkomandi föstu-
dag og boðað hefur verið til aðal-
fundar bankans viku síðar eða 14.
febrúar. Þá mun Samson koma
með formlegum hætti að stjórn
Landsbankans. ,,Þar munum við í
fyrsta skipti ávarpa hluthafa og
starfsfólk,“ segir Björgólfur.
Kosið verður í bankaráð á aðal-
fundinum en ekki verður ljóst
fyrr en á fundinum hverjir verða
tilnefndir sem fulltrúar í
bankaráðið. „Við munum leggja
fram okkar tillögu þar og ekkert
fyrir þann tíma,“ segir Björgólf-
ur.
Eigendur Samsonar hafa greint
frá því að félagið muni beita sér
fyrir að fagaðilar, sem ekki eru
eigendur að Samson, muni taka
sæti í bankaráðinu og að í fyrstu
muni einungis einn af eigendum
Samsonar sækjast eftir kjöri í
bankaráð.
Samson ehf. kemur að
stjórn Landsbankans á
aðalfundi í næstu viku
Tæpir 3,9
milljarðar
kaupverðs
greiddir á
föstudag