Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Snjall maður, Guðni, lætur fitubollurnar losa sig við spikið með erfiðri fjallgöngu og þegar
upp er komið éta þær fjallið fyrir hann.
Ættfræðiþjóðin á Íslandi
Landlægur
ættfræðiáhugi
EKKI hefur dregiðúr ættfræðiáhugalandsmanna við
opnun Íslendingabókar.
Hér á landi hefur lengi
starfað Ættfræðifélag Ís-
lands og formaður þess er
Ólafur H. Ólafsson. Hann
svaraði nokkrum spurn-
ingum Morgunblaðsins.
– Segðu okkur fyrst frá
Ættfræðifélaginu, eitt og
annað um það, tilgang og
áherslur.
„Ættfræðifélagið var
stofnað árið 1945 í þeim til-
gangi að styrkja þá starf-
semi sem lýtur að ætt-
fræði, m.a. með því að
stuðla að varðveislu gam-
alla og mikilvægra skjala,
sem geyma lýðfræðilegar
upplýsingar sem nýtast
mætti í ættfræði og skyldum
greinum. Að gefa út manntöl svo
þau yrðu aðgengileg þorra manna
– félagið hefur þegar gefið út
manntöl frá árunum 1801, 1816 og
1845, samtals átta bindi. Það vinn-
ur nú að útgáfu á manntali frá
1910, út eru komin fjögur bindi,
sem ná yfir Skaftafellssýslur til og
með Gullbringu- og Kjósarsýslu;
nú er í vinnslu manntal frá 1910
fyrir Reykjavík sem verður í
tveimur bindum og er væntanlegt
á þessu ári – vonandi fær félagið
til þess dyggilegan stuðning frá
Reykjavíkurborg. Félagið hefur
gefið út tuttugu árganga af
Fréttabréfi Ættfræðifélagsins,
um 100 blaðsíður á ári. Félagið
heldur úti heimasíðu, www.-
vortex.is/aett sem gefur upplýs-
ingar um starfsemina og er mik-
ilvægur tengill við þá fjölmörgu
hérlendis sem erlendis, sem leita
ætta sinna eða uppruna hér.
Félagið stendur og fyrir fé-
lagsfundum nokkrum sinnum á
ári þar sem valinkunnir fyrirles-
arar flytja erindi, sem snerta ætt-
fræði og skyldar greinar. Þessi er-
indi birtast flest í Fréttabréfinu.
Þá hefur félagið opið hús í Ármúla
19 á miðvikudögum klukkan 17
þar sem menn hittast og bera
saman bækur sínar. Félagið
stendur í sambandi við ættfræði-
félög og ættrýna beggja megin
Atlantsála, áhugi manna af ís-
lenskum ættum í Bandaríkjunum
og Kanada að leita róta sinna á Ís-
landi fer ört vaxandi og margar
fyrirspurnir frá þeim streyma inn
til félagsins og margra ættrýna
hér á landi, og reynt er að greiða
götu þeirra eftir megni. Um 800
manns eru skráðir í Ættfræði-
félaginu.“
– Hvers vegna hafa Íslendingar
þennan mikla ættfræðiáhuga?
„Áhugi Íslendinga á ættfræði á
sér djúpar rætur í þjóðarsálinni,
sem ná aftur til landnáms og jafn-
vel lengra, enda var þekking
manna á ættum sínum til forna
mjög brýn, því ættin var þá eins-
konar tryggingarfélag þeirra
tíma, arfsrétturinn náði jafnvel til
manna í 5. lið, svo var og um
hefndarskyldu. Ættin var því
helsti bakhjarl manna
og eins gott að vera vel
að sér um sína ætt.
Ýmislegt var gert til að
tryggja þessa vitn-
eskju, nægir að nefna
Íslendingabók Ara fróða og fjöl-
margar ættrakningar í Íslend-
ingasögum. Ættvísi hefur fylgt Ís-
lendingum allar götur síðan og
birtist í sívaxandi útgáfu ætt-
fræðirita. Margir hafa lagt sig eft-
ir ættfræði í tímans rás og væri
óðs manns æði að reyna að telja
þá upp, enda brestur þekking til
þess. Þar hafa margir lagt hönd á
plóg með mismunandi árangri, en
hafa unnið að ættvísi sinni hver
eftir sinni getu og forsendum. Það
gladdi mitt gamla skólastjóra-
hjarta þegar ég fyrst frétti af ætl-
an Íslenskrar erfðagreiningar að
setja á stofn öfluga rannsóknar-
stofnun í erfðafræði, þar sem ung-
ir íslenskir háskólamenn gætu
komið heim úr „útlegð“ og fengið
starf við hæfi, en ég hafði séð á
eftir mörgu íslensku ungmenninu
til útlanda sem áttu vart kost á að
starfa hér í sínu fagi. Nú sá ég leið
fyrir mörg þeirra til að snúa heim.
Það gladdi mig einnig sem gamlan
ættrýni, að ættfræðin yrði loks
látin í askana, þar sem hún væri
sú undirstaða sem erfðafræðin
byggðist á og nú yrði hún veiga-
mikill þáttur í starfsemi Íslenskr-
ar erfðagreiningar.“
– Er það tilfellið að ættfræði-
áhuginn vaknar ekki fyrr en um
miðjan aldur ... og ef svo er, þarf
ekki að gæta þess að hann hverfi
ekki með nýjustu kynslóðunum?
„Minn áhugi vaknaði við 12 ára
aldur! Svo var mál með vexti að
móðuramma mín var eineggja tví-
buri og átti þrettán börn og tví-
burasystir hennar átti ellefu börn,
að auki voru mörg börn systkina
þeirra. Ég var alltaf að hitta fólk
sem kallaði mig frænda, en ég
vissi hvorki haus nér sporð á ætt-
artengslum og varð mér, að mér
fannst, til skammar fyrir van-
kunnáttu. Reyndi að setja á blað,
sem ég á enn, skrá yfir þessi ætt-
menni mín og þá var
áhugi minn vakinn og
lifir enn! Ekki get ég
svarað fyrir aðra, en
mér segir svo hugur
um að áhugi á ættfræði
sé landlægur á öllum aldri. Engin
þjóð önnur en sú íslenska spyr,
fljótlega þegar mann ber á góma:
„Hverra manna er hann eða hún?“
þá er fyrst hægt að ræða um
manninn og málefnið. Ég tel litla
eða enga hættu á að áhugi á ætt-
fræði dvíni eða hverfi með nýjustu
kynslóðum, enda er unga kynslóð-
in tölvuvædd og ættfræðiforrit
eru öllum aðgengileg.“
Ólafur H. Ólafsson
Ólafur H. Ólafsson er fæddur í
Reykjavík 17. mars 1933. Stúd-
ent frá MR 1954. BA í þýsku með
landafræði sem aukagrein frá
háskóla í Stuttgart og lauk prófi
í uppeldis- og kennslufræði frá
HÍ 1971 og MA-próf í landafræði
með þýsku sem aukagrein frá
Háskólanum í Minnesota 1974.
Við tóku ýmis kennslustörf og
skólastjóri Valhúsaskóla 1974–
98. Stundakennari við HÍ ’74–’90
og framkvæmdastjóri RKÍ ’62–
’63. Hefur og unnið að ýmsum
fræði- og ritstörfum. Eiginkona
hans er Ingibjörg Björnsdóttir
fulltrúi sem á þrjú börn af fyrra
hjónabandi.
… á sér djúp-
ar rætur í
þjóðarsálinni
Höggborvél DWT 500W
vnr. 5245280 Verð áður 4.995 kr.
3.995 kr.
Full búð af verkfærum á frábæru verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
20
06
2
0
1/
20
03
660 kr.
Hands
ög spe
cial
vnr. 5001640 Verð áður 879 kr.
Hvort sem þú ætlar að breyta, bæta, lagfæra eða byggja heimili þitt frá grunni
þá finnurðu það sem þig vantar í Húsasmiðjunni. Þar færðu líka alltaf lipra
þjónustu og góð ráð hjá fagmönnum okkar. Velkomin í Húsasmiðjuna.
Verkfærataska 20" Eldir
vnr. 5024705 Verð áður 2.899 kr.
1.695 kr.
Bor og bitasett 112 stk.
vnr. 5249146 Verð áður 6.337 kr.
3.995 kr.
Nýko
mið
aftur