Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 9
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
fagnar því hvað vel hefur verið
staðið að verki varðandi alla upp-
byggingu í tengslum við Vest-
urfarasetrið á Hofsósi og segir að
stuðningur forsætisráðuneytisins
til safnsins fari í mikilvægt mál-
efni, en safnið fær 45 milljónir á
fjárlögum til 2006, samkvæmt
nýjum samningi.
Valgeir Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Vesturfaraseturs-
ins, og Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra undirrituðu samstarfs-
samning í Þjóðmenningarhúsinu í
gær, en samkvæmt samningnum
tekur Vesturfarasetrið formlega
að sér hlutverk upplýsinga- og
þjónustumiðstöðvar fyrir afkom-
endur vesturfara og aðra þá sem
áhuga hafa á málefninu. Meðal
annars verður lögð áhersla á að
veita Kanadamönnum og Banda-
ríkjamönnum af íslenskum ættum
upplýsingar um rætur þeirra hér-
lendis, menningarlega og fé-
lagslega arfleifð, íslenska ætt-
ingja, sögu og búferlaflutninga til
Vesturheims. Auk þess verður
leitast við að upplýsa Íslendinga
um afdrif þeirra, sem fluttust
vestur um haf, og afkomenda
þeirra. Vesturfarasetrið byggir
upp nauðsynlegan gagnagrunn og
safnar þeim gögnum, ritum og
bókum, sem til þarf, til að geta
veitt almennar upplýsingar um
málefnið.
„Það er mikill fengur fyrir
landið að húsin hafi verið gerð
upp á Hofsósi með þeim mynd-
arskap sem þar hefur verið við
hafður,“ segir Davíð Oddsson og
áréttar að umrætt framlag sé
eyrnamerkt starfsemi Vesturfara-
setursins en ekki uppbyggingu
mannvirkjana. Hann segir að
hann hafi fundið fyrir því hjá
fólki sem hafi komið til Íslands
frá Bandaríkjunum og Kanada að
mikill áhugi Íslendinga á að
rækta tengslin vestur, meðal ann-
ars með því að gera söguna að-
gengilega og safna upplýsingum
um vesturfarana, snerti þetta fólk
djúpt og Vesturfarasetrið gegni
þar veigamiklu hlutverki.
Samningurinn tekur við af
samningi frá 1999 þar sem íslensk
stjórnvöld studdu Vesturfara-
setrið við að byggja upp gamla
þorpskjarnann á Hofsósi og
leggja grunn að öflugu starfi
þjónustumiðstöðvar fyrir fólk í
Norður-Ameríku af íslenskum
ættum. Valgeir Þorvaldsson segir
að stuðningur forsætisráðuneyt-
isins hafi mjög mikið að segja, því
nú sé unnt að sinna betur því
starfi sem setrið hafi tekið að sér
án þess í raun að hafa haft til
þess fjárhagslegt afl. „Með þess-
um samningi er formlega staðfest
að við eigum að sinna þessu upp-
lýsinga- og þjónustustarfi og að
við ætlum að sinna því,“ segir
hann og leggur áherslu á að nýtt
afl komi inn í starfsemina með
stuðningnum. „Nú getum við farið
að takast á við nýja hluti,“ bætir
hann við og nefnir í því sambandi
að vilji sé fyrir hendi til að skoða
eftirfylgni Landafundaverkefn-
isins og sjá hvaða þýðingu það
hafi haft.
Gert er ráð fyrir að 12 til 15
þúsund gestir heimsæki setrið á
þessu ári. Á sumrin starfa þar um
6 til 8 starfsmenn, en tveir starfs-
menn eru í fullu starfi allt árið.
Undanfarin tvö sumur hefur
kanadíski ættfræðingurinn Nelson
Gerrard, sem er af íslenskum ætt-
um og er kennari í Arborg í
Manitoba, starfað við upplýs-
ingagjöf og fleira í setrinu og
segir Valgeir að framlag forsæt-
isráðuneytisins nú efli meðal ann-
ars það starf. „Þetta er ómetan-
legur stuðningur.“
Vesturfarasetrið verður upplýsinga- og þjónustumiðstöð
Morgunblaðið/Golli
Davíð Oddsson forsætisráðherra heilsar Valgeiri Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Vesturfarasetursins. Með þeim
eru frá vinstri Ólafur G. Einarsson, fv. menntamálaráðherra, Ólafur B. Thors, stjórnarformaður Vesturfaraset-
ursins, og Björgólfur Guðmundsson, stjórnarmaður í Snorra Þorfinnssyni ehf. sem á Vesturfarasetrið.
Nýr samningur tryggir
safninu 45 milljónir
Gert er ráð fyrir
12–15 þúsund
gestum til Hofs-
óss á þessu ári
ALFREÐ Þor-
steinsson, borg-
arfulltrúi R-list-
ans, hefur tekið
við embætti for-
manns borgar-
ráðs af Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrr-
verandi borgar-
stjóra. Alfreð
stýrði sínum fyrsta borgarráðsfundi
í gær. Skipan Alfreðs er hluti af því
samkomulagi sem gert var milli
R-lista flokkanna við fráhvarf Ingi-
bjargar úr borgarstjórastólnum.
Þá sat Þórólfur Árnason borgar-
stjóri sinn fyrsta borgarráðsfund í
gær.
Alfreð
formaður
borgarráðs
Alfreð
Þorsteinsson
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
„Hent'í mig hamrinum!“
Kaffi-
brúsa-
karlarnir
Þorrahlaðborð og skemmtunin:
Kr. 1.800 á skemmtun.
Kr. 3.900 þorramatur
og skemmtun.
Kr. 1.200 á dansleik.
Hljómsveitin
BSG leikur fyrir
dansi eftir
sýningu.
Laugardaginn
8. febrúar
Ennþá skemmtilegastir eftir 30 ár
• Þau syngja, dansa
og þjóna þér !
• Þau láta þig hlæja, dansa
og syngja!
• Ekki missa af þessari sýningu !
• Þau eru Le'Sing!
Sýningar 8.feb. uppselt! 14.feb. -15.feb. nokkur sæti laus. - 21. og 22.feb.
Verð kr. 2.500 + matur
Litla sviðið opnar klukkan 19.30 .
Sýningin hefst
stundvíslega kl. 20:00.
Hátíðarkvöldverður og skemmti-
dagskrá úr Borgarfirðinum
Valentínusardagur
Hljómsveitin
Stuðbandalagið
leikur svo á ekta sveitaballi.
Föstudaginn 14. febrúar:
TINA
TURNER
hljómsveit söngur, dans
föstudagur 28. febrúar
Matur skemmtun og dansleikur
kr. 4.900.
Skemmtun og dansleikur2.500.
Dansleikur 1.200 kr
Söngvarar: Jóhanna Harðardóttir,
Jón Ike Sverrisson
og Jóna Fanney Friðriksdóttir.
Kvöldverður
og skemmtun
kr. 4.900
Geir Ólafsson
Söngvarar:
Ragnheiður Gröndal
og Harald Burr
Handrit eftir Þorstein
Eggertsson
Hljómsveitarstjóri:
Árni Scheving
Tuttugu manna stórhljómsveit.
Útsetningar eftir Þóri
Baldursson
ásamt
stórhljómsveit
Skemmtun
kr. 2.500
Vegna fjölda
áskoranna
föstudaginn 7. febrúar:
St
af
ræ
na
h
ug
m
yn
da
sm
ið
ja
n/
28
20
SKEMMTI- OG
HAGYRÐINGAKVÖLD
föstudagskvöldið 21. febrúar
Matur - skemmtun
- dansleikur 4.900.
Skemmtun
- dansleikur 2.500.
dansleikur eftir
kl. 23:30 kr. 1.200.
Landsfrægir hagyrðingar.
Lögreglukór Reykjavíkur í syngjandi sveiflu.
Húsið opnar fyrir matargesti kl. 19:00
Dansleikur til 03:00. Hljómsveitin Lúdó og Stefán.
Lögreglumenn og velunnarar lögreglunnar
sérstaklega velkomnir.
Erum með glæsilega sali
fyrir fermingar og giftingar !
Matur - skemmtun - dansleikur 4.900.
Skemmtun - dansleikur 2.500.
Dansleikur kr. 1.200.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Allt á hálfvirði
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Ný sending frá PAS
Gallabuxur, margar gerðir
Gallapils, skyrtur og bolir
St. 36-42 & 44-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15