Morgunblaðið - 05.02.2003, Síða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 15
STEPHANE Breitwieser, 32 ára gamall vín-
þjónn sem játaði að hafa stolið 239 málverkum
og öðrum listaverkum af söfnum þvers og
kruss um Evrópu og falið í svefnherbergi sínu,
sagði fyrir rétti í Sviss í gær, að hann hefði
leiðzt út í þjófnaðarleiðangurinn, sem stóð yfir í
sjö ár, af einlægri aðdáun á fegurð myndlist-
arinnar.
Breitwieser, sem er frá bænum Mulhouse
(Mülhausen) í suðurhluta Elsass-héraðs aust-
ast í Frakklandi, er ákærður fyrir að hafa stolið
69 listaverkum, flestum frá 16. og 17. öld, af
svissneskum söfnum, en verðmæti þessara
verka er áætlað 1,65 milljónir svissneskra
franka, andvirði um 93 milljónir króna. Mál
Breitwiesers vakti furðu listaheimsins, ekki
sízt vegna þess að maðurinn hlóð stolnu dýr-
gripunum upp í herbergi sínu í íbúð sem hann
deildi með móður sinni og virtist ekki hafa gert
neinar tilraunir til að selja þá.
Breitwieser, fyrrverandi kærasta hans, og
móðirin, sem er sökuð um að hafa eyðilagt
mörg verkin með því að henda þeim út í skipa-
skurð í því skyni að reyna að fela sönn-
unargögn fyrir sekt sonarins, bíða líka rétt-
arhalds í Frakklandi.
Hann var handtekinn í nóvember 2001 í
svissnesku borginni Luzern, skömmu eftir að
hafa stolið veiðihorni úr safni á staðnum. Við
yfirheyrslur yfir honum urðu rannsakendur
málsins dolfallnir yfir nákvæmri þekkingu hans
á listasögunni og stálminni, en hann játaði í
framhaldinu á sig ótrúlegan fjölda listaverka-
þjófnaða í sjö Evrópulöndum, þar á meðal á
verkum eftir Antoine Watteau, Peter Breugel
og Francois Boucher.
Að mati sérfræðinga var verðmætasti fengur
Breitwiesers 16. aldar málverk eftir Lucas
Cranach eldri, „Sybille, prinsessa af Cleves“,
en verðmæti þess var talið á bilinu 7,9 til 9
milljónir Bandaríkjadala, andvirði 620-700
milljónir króna. Verkinu var stolið af safni í
Baden-Baden í SV-Þýzkalandi árið 1995.
Heildarverðmætið talið um 80 milljarðar
Saksóknarar í Frakklandi gizka á að heild-
arverðmæti þeirra verka sem Breitwieser er
talinn hafa stolið nálgist einn milljarð evra, yfir
80 milljarða króna. Flest verkanna voru í
frönskum söfnum, en auk Frakklands og Sviss
sakna söfn í Þýzkalandi, Austurríki, Hollandi,
Belgíu og Danmörku verka sem Breitwieser er
sakaður um að hafa tekið.
Breitwieser greip ítrekað inní, er verið var
að lýsa listaverkunum sem hann stal fyrir rétt-
inum í gær, til að leiðrétta lýsingarnar. Hann
sagðist líka alveg heillaður frá fyrsta lista-
verkastuldi sínum, er hann tók lítið olíumálverk
af konu eftir 17. aldar málarann Christian Wil-
helm Dietrich úr safni í kastala í Gruyére-
héraði í Frakklandi árið 1995.
„Ég var heillaður af fegurð hennar, af eig-
indum konunnar á myndinni og af augum henn-
ar. Ég hélt að þetta væri eftirlíking af Rem-
brandt-málverki,“ sagði hann ástríðufullri
röddu.
Breitwieser faldi listaverkin, sem auk mál-
verka voru myndastyttur, silfurmunir, vegg-
teppi og skreyttir diskar, í bakpoka sínum eða
innan á sér; stöku sinnum henti hann verk-
unum út um glugga. Hann athafnaði sig að-
allega í litlum söfnum þar sem öryggisráðstaf-
anir voru veigalitlar.
Hann tjáði rannsakendum
málsins að hann hefði smitazt
af ástríðunni fyrir gömlum list-
munum af föður sínum, sem
erfði 19. aldar húsgögn og aðra
antík-muni og flutti forn-
byssusafn sitt með sér við skiln-
að. Sonurinn Stephane var eftir
hjá móðurinni án þess að geta
notið lengur þessara fögru
muna og segir hann þetta hafa
breytt lífi sínu.
Breitwieser hefur verið í
gæzluvarðhaldi frá því hann var
handtekinn og á yfir höfði sér
margra ára fangelsisvist, fyrst í
Sviss í allt að 5–10 ár, en þegar
hann hefur afplánað hana kann
hann að verða framseldur til
Frakklands, þar sem „afreka-
skrá“ hans er lengri en í Sviss.
Franskir saksóknarar hafa
greint frá því, að Mireille Breit-
wieser, móðir sakborningsins,
hafi er hún heyrði af handtöku sonarins hraðað
sér inn í herbergið hans, sem var troðið af
gömlum dýrgripum. Hún er sökuð um að hafa
skorið málverkin í strimla, troðið sumum mun-
unum í ruslið og hent öðrum í Rín-Rhone-
skipaskurðinn, sem liggur nærri heimili þeirra
í þorpinu Eschentzwiller við Mulhouse.
Lögreglu tókst að fiska fáein verkanna upp
úr skurðinum eftir að vegfarendur komu auga
á þau, en flest eru þau talin að eilífu glötuð.
Fyrrverandi unnusta Breitwiesers, Anne-
Cahterine Kleinklauss, hefur játað að hafa
fylgt honum í mörgum listaverkasafnaleið-
öngrum hans og lagt honum lið við þjófnaðinn
með því að standa vörð.
Réttað yfir ástríðu-
listaverkaþjófi
Breitwieser leiddur inn í réttarsalinn í Bulle í Sviss í gær.
Bulle í Sviss. AP, AFP.
AP