Morgunblaðið - 05.02.2003, Side 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á FUNDI stjórnsýslunefndar Akur-
eyrarbæjar í vikunni var lagt til að
vald til fullnaðarafgreiðslu erinda og
mála verði í auknum mæli fært til
nefnda og embættismanna og bæj-
arstjórn fjalli fyrst og fremst um
stefnumörkun.
Einnig var lagt til að framsetn-
ingu fundargerða bæjarstjórnar
verði breytt frá því sem tíðkast hefur
þannig að auðveldara verði fyrir les-
endur að átta sig á um hvaða mál er
verið að fjalla hverju sinni. Jafn-
framt komi fram í fundargerðum
hvernig bæjarfulltrúar greiða at-
kvæði ef ágreiningur er um af-
greiðslu.
Þá var lagt til á fundinum að upp-
setningu dagskrár bæjarstjórnar-
funda verði breytt þannig, að á henni
verði einunigs mál sem bæjarfulltrú-
ar hafa óskað eftir að ræða. Fund-
argerðir fastanefnda verði einungis
lagðar fram til kynningar. Mál úr
fundargerð nefndar skoðast sam-
þykkt af bæjarstjórn ef enginn bæj-
arfulltrúi óskar eftir að ræða það á
bæjarstjórnarfundi. Afgreiðslu þess-
ara tillagna var frestað á fundi
stjórnsýslunefndar.
Vald til
nefnda og
embættis-
manna
verði aukið
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hlaut viðurkenningu jafnréttis- og
fjölskyldunefndar Akureyrar-
bæjar fyrir árið 2002, en fyr-
irtækið þykir reka metnaðarfulla
starfsmannastefnu sem m.a.
byggist á því að tryggja hverjum
einstaklingi sem hjá því starfar
jafnræði í samskiptum og tæki-
færum óháð kynferði, uppruna,
starfssviði eða skoðunum.
Björn Snæbjörnsson, formaður
jafnréttis- og fjölskyldunefndar
Akureyrarbæjar, sagði tilgang
með veitingu viðurkenning-
arinnar tvíþættan, þ.e. að vekja
athygli á því sem vel væri gert og
eins að vera fyrirtækjum hvatn-
ing til að sinna þessu málefni.
Hann sagði ÚA einn af burðar-
ásum atvinnulífs í bænum með um
400 starfsmenn af báðum kynjum
á sjó og landi.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, sagði rekstur
félagins hvíla á fjórum jafn
mikilvægum meginstoðum, þ.e.
starfsfólki, hluthöfum, umhverf-
inu og mörkuðum og gat hann
þess að félagið hefði á að skipa
afar góðu starfsfólki. „Það er
langt síðan stjórnendur gerðu sér
grein fyrir því að ef fyrirtækið
ætti að skila árangri þyrfti gott
starfsfólk,“ sagði Guðbrandur og
nefndi að í samræmi við þá vissu
hefðu menn skoðað hvernig best
væri að auka þekkingu og metnað
þess til að efla fyrirtækið enn
frekar. Þannig styður ÚA starfs-
fólk sitt til að taka ábyrgan þátt í
fjölskylduhlutverki sínu og bregð-
ast við áföllum og stórfelldri
röskun á fjölskylduhögum auk
þess sem það styður starfsfólk
sem er að undirbúa starfslok.
Launastefna þess hefur einnig
verið til endurskoðunar, m.a hef-
ur verið unnið að launajöfnun
ákveðinna hópa og hækkun launa
umfram launavísitölu meðfram
styttingu vinnutíma sem hefur í
för með sér að félagið er nú eft-
irsóttari vinnustaður en áður og
starfsmannaskipti lítil.
Þá hefur ÚA skilgreinda stefnu
í fræðslumálum sem miðar að því
að styrkja einstaklinga og rekur í
því skyni eigin skóla, ÚA-skólann.
Hann hefur það að markmiði að
bjóða öllu landvinnslufólki fyrir-
tækisins úrval af námskeiðum og
gefa því þannig tækifæri til að
auka færni sína í leik og starfi.
Einnig er til skoðunar að mæta
þörfum sjómanna fyrir sí- og end-
urmenntun.
„Við höfum mikla trú á okkar
starfsfólki, þeim krafti og því
frumkvæði sem í hverjum og ein-
um býr,“ sagði Guðbrandur. „Það
er mjög ánægjulegt að hljóta
þessa viðurkenningu og verður
okkur eflaust hvatning til að gera
enn betur.“
ÚA hlaut viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldunefndar
Morgunblaðið/Kristján
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, t.v., tekur við viðurkenningunni hjá Birni Snæbjörnssyni.
Höfum mikla trú á okkar fólki
MÖGULEGT er að tvöfalda farþega-
fjölda með skemmtiferðaskipum til
Íslands fram til ársins 2010 að því er
fram kemur í skýrslu um stöðu Ís-
lands sem viðkomustaðar fyrir
skemmtiferðaskip. Þá er gert ráð fyr-
ir að tekjur vegna komu skipa og far-
þega verði um 2–3 milljarðar króna.
Samstarfshópur um markaðssetn-
ingu Íslands fyrir skemmtiferðaskip
með þátttöku Reykjavíkurhafnar,
Akureyrarhafnar, Ísafjarðarhafnar
og Ferðamálaráðs Íslands í Banda-
ríkjunum lét gera umrædda skýrslu
og var hún kynnt á Akureyri í gær.
Einar Gústafsson hjá Ferðamála-
ráði Íslands í New York sagði að
skemmtiferðaskip hefðu haft rúmlega
100 viðkomur í íslenskum höfnum á
liðnu ár og væri það tvöföldun frá
árinu 1992. Gert væri ráð fyrir að á
næstu 7 árum myndu komurnar enn
tvöfaldast og jafnvel ríflega það.
Tímamót að renna upp
Hann sagði að upp væri að renna
tímamót í þessum efnum og að í
skýrslunni kæmi fram að Ísland væri
ekki svo smátt hvað þessi viðskipti
varðar. Farþegafjöldi til þriggja áð-
urtaldra hafna hefur aukist úr 22 þús-
undum í 53 þúsund og skipakomum
fjölgað úr 51 í rúmlega 100. Heildar-
tekjur vegna farþega og skipa eru
áætlaðar um eða yfir einn milljarður
króna og gert ráð fyrir að þær muni
aukast umtalsvert á næstu árum og
verða á bilinu 2–3 milljarðar árið
2010. „Þetta er fundið fé fyrir íslenska
þjóðarbúið sem litlu þarf til að kosta
til að ná inn. Það þarf ekki að leggja
út í stórkostlegar fjárfestingar, en
efla þarf markaðssóknina,“ sagði Ein-
ar og bætti við að landsbyggðin
myndi mjög njóta ávaxtanna ef tækist
að fjölga komum skemmtiferðaskipa
til landsins. Nefndi Einar að til skoð-
unar væri að taka á móti smærri
skemmtiferðaskipum sem sérhæfðu
sig í ævintýra- og náttúruferðum. Þar
yrði um að ræða skip sem hefðu sum-
ardvöl við Íslandsstrendur og sigldu
hringinn kringum landið og skipt yrði
um farþega vikulega. Lögð er sérstök
áhersla á þennan þátt í skýrslunni og
staða Íslands talin sterk á þeim vett-
vangi. Sérstaða landsins byggist m.a.
á stórbrotinni náttúrufegurð landsins
frá sjó sem og að geta upplifað náttúr-
una sem víðast á landi.
Hafnirnar þrjár auk Ferðamála-
ráðs Íslands í Bandaríkjunum hafa nú
ákveðið að fara út í frekari aðgerðir í
samræmi við niðurstöðu skýrslunnar
sem unnin var í Seattle. Áformað er
að stofna samtökin „Cruise Iceland“
til að vinna að framgangi málsins og
fá fleiri til þátttöku. Samtökunum er
m.a. ætlað að vinna að bættri aðstöðu
fyrir skip og farþega, fjölga viðkomu-
stöðum hér á landi, auka afþreyingu
fyrir farþega, lengja dvöl skipanna í
höfn sem og að lengja tímabilið að
vori og hausti. Áætlað er að taka upp
samvinnu við samtökin „Cruise Cop-
enhagen“, en Kaupmannahöfn er
stærsti viðkomustaður skemmti-
ferðaskipa í Norður-Evrópu með um
250 slíkar komur. Þar er áhugi fyrir
að bjóða upp á ferðir til Íslands sem
ýmist myndu hefjast eða enda í Kaup-
mannahöfn.
Skýrsla um stöðu Íslands sem viðkomustaðar fyrir skemmtiferðaskip
Áætlað að fjöldi farþega
tvöfaldist á næstu árum
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar hafnanna þriggja og Ferðamálaráðs, f.v.: Ágúst Ágústsson,
Reykjavíkurhöfn, Guðmundur M. Kristjánsson, Ísafjarðarhöfn, Einar Gúst-
afsson, Ferðamálaráði í New York, og Pétur Ólafsson, Akureyrarhöfn.
Margt býr í fiskunum – sitjum við á
lyklinum að nýmyndun vefja í lækn-
ingaskyni? er yfirskrift málstofu
sem auðlindadeild Háskólans á Ak-
ureyri boðar til föstudaginn 7. febr-
úar, en hún stendur frá kl. 14 til 16
og fer fram á 2. hæð í Glerárgötu 36.
Fyrirlesari er Þórarinn Sigurðsson,
prófessor og deildarforseti heil-
brigðisdeildar. Í fyrirlestrinum mun
hann fjalla um möguleika á því að
nýta aukaafurðir sjávarfangs til
framleiðslu á lífrænum efnum sem
hægt er að nota í lækningaskyni.
Á NÆSTUNNIBómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050