Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 37
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg heldur fræðslukvöld
um tvö af bréfum Nýja testamentisins, Hebreabréfið og
Júdasarbréf, fimmtudaginn 6. febrúar í húsi KFUM og
KFUK, á horni Holtavegar og Sunnuvegar, kl. 20.
Gerð verður grein fyrir bakgrunni og innihaldi rit-
anna og hvaða gagn má hafa af lestri þeirra. Fræðslu-
kvöldið er liður í þriggja ára áætlun skólans er kallast
„Þekktu Biblíuna betur“. Á þriggja ára tímabili er ætl-
unin að kynna fyrir almenningi öll rit Biblíunnar og
hvetja þannig til lesturs hennar.
Nú á vorönn verður kennt fyrsta fimmtudag mán-
aðarins. Fyrirlesari á fræðslukvöldinu nú verður Skúli
Svavarsson kristniboði. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir hvort sem fólk hefur mætt á önnur fræðslu-
kvöld skólans eða ekki og þátttaka felur ekki í sér neina
skuldbindingu til frekari þátttöku.
Fornbækur á
samveru aldraðra
SAMVERUR aldraðra eru haldnar í Laugarneskirkju
hálfsmánaðarlega á fimmtudögum kl. 14:00. Fimmtu-
daginn 6. febrúar mun sr. Ragnar Fjalar Lárusson fyrr-
um prófastur heimsækja okkur og segja frá einstæðu
fornbókasafni sínu og m.a. sýna viðstöddum uppruna-
legar Guðbrandsbiblíur ásamt fleiri gersemum í sinni
eigu. Er ástæða til að hvetja allt áhugasamt fólk til að
nýta þetta sérstæða tækifæri til fróðleiks og ánægju.
Umsjón samverunnar er í höndum þjónustuhóps
kirkjunnar, sóknarprests og kirkjuvarðar og að venju
eru kaffiveitingar í boði.
Hús KFUM og KFUK við Holtaveg.
Fræðslukvöld um
tvö bréf Nýja
testamentisins
Morgunblaðið/Þorkell
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13–16.30. Handavinna, spilað,
föndrað. Gestur Helgi Seljan. Bílaþjón-
usta í símum 553 8500, 553 0448 og
864 1448.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
www.domkirkjan.is
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra
kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og
spjall. Munið þorramatinn næsta miðviku-
dag. Skráning í kirkjunni fram á mánudag
í síma 553-2750. Alfa-námskeið kl.
19.30–22.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Kvöldbænir kl. 18. Vinafundirnir á
vegum sr. Tómasar byrja aftur á morgun,
fimmtudag, kl. 14.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orgelleik og sálmasöng. Allir vel-
komnir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu (kr. 300). Kl. 13–16 opið
hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall,
föndur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl.
17–18.10 Krúttakórinn, 4–7 ára.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdóttir
guðfræðinemi og Hannes Guðrúnarson,
tónlistarmaður og kennari, leiða starfið
ásamt sóknarpresti. TTT-fundur kl.
16.15. (5.–7. bekkur). Andri Bjarnason
og Þorkell Sigurbjörnsson leiða starfið
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni, fram-
kvæmdastjóra safnaðarins, og hópi ungra
sjálfboðaliða. Fermingartími kl. 19.15.
Unglingakvöld Laugarneskirkju og Þrótt-
heima kl. 20 (8. bekkur). Umsjón hafa
Sigurvin Jónsson guðfræðinemi og Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir, tómstundaráð-
gjafi hjá Þróttheimum. (Sjá síðu 650 í
Textavarpinu.)
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Fræðsla: Þegar barnið veikist. Umsjón
hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslunni á
Seltjarnarnesi. Umsjón Elínborg Lárus-
dóttir. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall.
Upplestur og fræðandi umræður kl. 17.
Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Fyrir-
bænamessa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jóns-
son.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa–námskeið í
safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og
bænastund í kapellu safnaðarins í safn-
aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl.
12. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir
og íhugun. Kl. 13–15 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir
7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM&K
kl. 20–21.45. (Sjá nánar: www.digranes-
kirkja.is.)
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu verði
að lokinni stundinni. Allir velkomnir.
KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogs-
kirkju kl. 16.30–17.30. Kirkjukrakkar fyrir
börn 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–
18.30. TTT (10–12 ára) í Rimaskóla kl.
18.30–19.30. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8.–9. bekk í Engjaskóla kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–
12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-
spora námskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn-
um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Starf með 10–12 ára
börnum TTT á sama stað kl. 17.45–
18.45.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19 Alfa-nám-
skeið í safnaðarheimili Lindasóknar, Upp-
sölum 3.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartan-
lega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni í síma 567 0110. Æsku-
lýðsfundur fyrir unglinga 14–15 ára kl.
20. Röð biblíulestra hefst kl. 19.30.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara
á Álftanesi. Notalegar samverustundir
með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður
eða Erlendur sjá um akstur á undan og
eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hitt-
umst og spjöllum. Heitt á könnunni og
djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir
með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu
og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt
er að koma fyrirbænaefnum til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar. Bókakynning á
bókum þýska guðfræðingsins Jörg Zink í
umsjá Maríu Eiríksdóttur verður í safn-
aðarheimili Víðistaðakirkju í kvöld kl. 20.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.20 TTT – yngri hópur, 9–10 ára krakk-
ar í kirkjunni. Boltaleikjadagur. Kl. 17.30
TTT – eldri hópur, 11–12 ára krakkar í
kirkjunni. Spiladagur. Sr. Þorvaldur Víð-
isson og leiðtogarnir.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10–12. Umsjón hafa Arndís
L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjalta-
dóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafells-
kirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu
verði, allir aldurshópar. Umsjón: Ólafur
Oddur Jónsson. Æfing Kórs Keflavíkur-
kirkju frá kl. 19.30–22.30. Stjórnandi Há-
kon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorgunn í Safn-
aðarheimilinu kl. 10.30 í umsjá Kötlu
Ólafsdóttur og Petrínu Sigurðardóttur.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleikur
og samvera. Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20. Trúir þú? Kjartan Jóns-
son talar. Allir velkomnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Opið hús, kaffi og spjall, safi fyrir börnin.
ÆFAK, yngri deild, kl. 20.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 20 hjálp-
arflokkur. Fundur fyrir konur.
Safnaðarstarf
Í dag, 5. febrúar,
hefði Ásgrímur fagn-
að 50 ára afmæli sínu
ef hann hefði ekki
verið, langt fyrir ald-
ur fram, kallaður til annarra starfa
á æðra vettvangi þar sem hans
góðu eiginleika hefur verið þörf.
Það er erfitt að Ásgrímur skuli
ekki vera í eigin persónu hér með
fjölskyldu og vinum til að fagna á
þessum tímamótum en víst er að
hann er í huga og hjarta allra
þeirra er hann þekktu. Það er al-
veg klárt að Ásgrímur heldur upp
á daginn með sínum ástvinum,
hann verður á svæðinu hvort sem
það er í skólanum, Boganum,
ÁSGRÍMUR
SIGURÐSSON
✝ Ásgrímur Sig-urðsson fæddist
á Miðlandi í Öxna-
dal 5. febrúar 1953.
Hann lést 4. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Akureyrar-
kirkju 12. desem-
ber.
vinnunni eða hvar þar
sem fjölskylda og vin-
ir eru, og vakir yfir
þeim nú eins og hann
gerði í lifanda lífi.
Þegar andlát Ásgríms
bar að voru allir sem
steini lostnir. Að mað-
ur sem geislaði af
hreysti og heilbrigði
skyldi hrifsaður á
brott í blóma lífsins
var nokkuð sem erfitt
var að trúa. Ekki nóg
með að hann væri
sem unglingur í fasi
og atgervi öllu, heldur
einnig ákaflega heilbrigður maður í
anda. Maður sem lét sér annt um
sína og lagði metnað sinn í að hlúa
að þeim. En þegar góðra manna er
þörf hjá þeim sem öllu ræður verð-
um við sem eftir sitjum að hlýja
okkur við minningarnar um góðan
dreng. Það er með þakklæti, hlýju
og söknuði sem við minnumst þín í
dag sem aðra daga. Snjóka, Árný,
Jonna, Andri, Eva og Arna, hugur
okkar er hjá ykkur.
Jónas og Sveinbjörg.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða
543 1000 um skiptiborð.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í
Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og
slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–
24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl.
9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími
585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólar-
hringinn, s. 525 1710 eða 525 1000.
EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólarhring-
inn. S. 525 1111 eða 525 1000.
ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar-
hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð.
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112
Þjónusta
Kynni mína af
Magnúsi Árnasyni,
matreiðslumeistara,
hófust seint á sjötta
áratugnum. Hann var
þá kokkur á Lagar-
fossi og sigldi á Ameríku eins og
Lólý systir sem var þar þerna. Þau
voru reyndar gamlir vinir á ung-
lingsárum, en tóku upp þráðinn
þegar Lóly kom heim frá Kanada
eftir fimm ára dvöl á slóðum Vest-
ur-Íslendinga. Eftir það voru
Magnús og Lólý eitt. Magnús varð
sjötugur í fyrrasumar, þá kominn
á Landakot og þau bæði, þar sem
þau deildu sjúkrastofu í veikindum
beggja. En veikindin komu ekki í
veg fyrir veislu, líka veislu Lólýar,
því þau voru jafnaldra og sjötugs-
afmælið var því tvöfalt á setustof-
unni á Landakoti. Margir komu til
að taka þátt og gleðjast með þeim
hjónum. Veislukostur var á borð-
um, enda ekki á hverjum degi sem
matreiðslumeistari verður sjötug-
ur og þá er ekki verið að víla fyrir
sér að maður sé á spítala. Lífið er
til að lifa því hafa sennilega verið
einkunnarorð Magnúsar, enda var
gleðskapur og góður húmor yfir-
leitt með í för þar sem Magnús
fór.
Magnús lærði matagerðarlist
hjá dönskum, sem í þátíð var frem-
ur sjaldgæft. Þetta gerði Magnús
eftirsóttan á betri veitingastöðum
eins og Lídó og Valhöll meðan var
og hét, þótt síðar hafi hann kosið
að starfa sjálfstætt og úti á landi,
bæði á Hellu og á Höfn. Ég held
að hestamennskan hafi ráðið miklu
um það val, að geta riðið um sveit-
ir viljugum gæðingum í góðra vina
hópi. Náttúran togaði í Magnús og
það frelsi sem finna má á hestbaki.
Í fyrrasumar reið ég gæðingi hans
um Húsafellsland. Það gladdi hann
sjálfsagt meira en mig, því sjálfur
komst hann ekki á bak það sum-
arið. Hann var útivistarmaður í
anda. Ég held ég hafi verið innan
við 12 ára þegar við Magnús veidd-
um saman í Meðalfellsvatni. Þetta
átti að vera silungadorg en endaði
í ævintýri, glímunni við laxinn.
✝ Magnús Árna-son fæddist í
Reykjavík 16. ágúst
1932. Hann lést í
Landspítalanum á
Landakoti 27. jan-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Fossvogskirkju
4. febrúar.
Ekki gleymist heldur
sigling með Lagar-
fossi upp á Skaga,
helgarferð með
Magnúsi á stórskipi
íslenska flotans.
Þannig var hann ólat-
ur við að gefa af sér,
gæða lífið skemmti-
legum ævintýrum
fyrir ungan mág sem
hann gat alveg látið
vera. Ég minnist líka
skipafréttanna, hve-
nær von væri á Lag-
arfossi, því alltaf
fylgdi eitthvað gott
með skipskomunni. Þær voru held-
ur ekki fáar veislurnar heima á
Miklubrautinni sem matreiðslu-
meistarinn kom að með einum eða
öðrum hætti. Mér er minnisstætt
boð um jól, þegar vantaði óvænt
nógu stóran pott undir krásirnar.
Magnús brá á það ráð að skreppa
upp í Lídó eftir íláti, en þegar
þangað koma, reyndist eldhúsið
læst og lyklar víðs fjarri. Magnús
bað mig þá um að skríða inn í ör-
litla vörulyftu sem lá milli hæða
frá veitingasalnum á efri hæð og
opna eldhúsið niðri innanfrá. Það
hvarflaði ekki að mér að troða mér
í lyftuboruna og þrátt fyrir for-
tölur, varð mér ekki bifað. Skipti
þá engum togum að Magnús skreið
sjálfur inn í gatið í einum hnút og
skipaði mér að loka á eftir sér og
senda lyftuna af stað niður þrönga
rásina í eldhúsið eftir pottinum
góða. Jólaboðið var í húfi. Þannig
bjargaðist matargerðin en ég
mátti þola eigin skömm fyrir heig-
ulsháttinn, að hafa ekki þorað í
lyftuna. Þessi saga er í raun lýs-
andi fyrir Magnús. Hann gerði það
sem gera þurfti og meira til, refja-
laust. Eftir að Magnús og Lólý
stofnuðu sitt heimili og eignuðust
börn, var ég aufúsugestur á þeirra
heimili þótt heimsóknir yrðu stop-
ulli með árunum eins og gengur.
Magnús var ævinlega jákvæður og
húmorinn hans sterka hlið þótt
móti blési. Það var ekki að sjá að
helsjúkur maður væri á spjalli við
mig fyrir jólin uppi á spítala.
Magnús tók sjúkleika þeirra hjóna
með miklu æðruleysi og studdi
Lólý sem aldrei fyrr, þrátt fyrir
eigin vanmátt. Ég þakka góðum
dreng ánægjulegar stundir í lífinu
um leið og við Jórunn, Unnur syst-
ir og Sigmar, sendum Lólý, börn-
um og barnabörnum samúðar-
kveðjur.
Skúli Thoroddsen.
MAGNÚS
ÁRNASON