Morgunblaðið - 05.02.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 43
DAGBÓK
eva
Laugavegi 91, 2. hæð,
sími 562 0625
DKNY - Gerard Darel - Virmani - Seller - BZR - Paul et Joe - IKKS - Nichole Farhi
70%
Enn meiri verðlækkun
Allt að
...erum að taka upp vorvörurnar
afsláttur
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er frábær dagur til
mennta, fjölmiðlunar, útgáfu,
auglýsinga, ferðalaga eða sam-
skipta við erlend ríki. Dag-
urinn er einnig kjörinn til fjár-
hagslegra vangaveltna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú býrð svo sannarlega yfir
orku til að nýta þér bjargir
annarra til að bæta heimili
þitt. Notaðu sameiginlegt
eignarhald til að styrkja fjöl-
skylduböndin.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn er kjörinn til samn-
inga og viðskipta. Þér getur
hreinlega ekki mistekist.
Njóttu dagsins!
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn er kjörinn til við-
skipta. Þú getur þénað pen-
inga. Þú ert með á hreinu hvað
það er sem þú sækist eftir og
þetta hjálpar þér varðandi
ákvarðanatöku.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert í góðu formi í dag! Þig
langar til að daðra, leika þér
og vera í sambandi við fólk.
Hvað eina sem þú snertir
verður að gulli.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn er kjörinn til að
bæta heimilið. Þú býrð yfir
nægilegri orku til að færa fjöll
úr stað. Komdu skikki á hlut-
ina. Þú kemur miklu í verk og
færð líka aðstoð frá öðrum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú býrð yfir miklum sannfær-
ingarkrafti í dag. Þú gætir selt
eskimóum snjó. Þú skalt bera
þig eftir því sem þig langar í,
því það stenst þig enginn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er frábær dagur til að
vinna að frama og auknum
tekjum. Bjartsýni þín skapar
góða orku og því gengur þér
betur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú nýtur þess að ferðast. Dag-
urinn er kjörinn til að ráðgera
spennandi ævintýri. Það sem
viðkemur útgáfu, lögum og
menntun í dag mun ganga vel.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Innsæi þitt segir þér hvernig
þú skalt hegða þér í dag.
Hlýddu á innri rödd þína. Ef
þú lætur til skarar skríða núna
mun það verða bæði þér og
öðrum til góðs.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn er kjörinn til verka
sem eru þér hagstæð. Þér
finnst þú vera heppin(n) en í
raun er það vegna þess að þér
tekst að sjá hlutina í samhengi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að taka áhættu vegna
þess að þú veist ekki hvernig
hlutirnir eiga eftir að þróast.
Góð orka er í kringum þig og
jákvæðrar niðurstöðu er að
vænta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt gott með að tjá þig og
gerir gjarnan á léttu nót-
unum. Einn mesti styrkur
þinn er sá að þú berð mikla
virðingu fyrir öðru fólki.
ÁRNAÐ HEILLA
Man ég grænar grundir,
glitrar silungsá,
blómabökkum undir,
brunar fram að sjá.
Bændabýlin þekku
bjóða vina til,
hátt und hlíðarbrekku,
hvít með stofuþil.
Léttfætt lömbin þekku
leika mæðrum hjá,
sæll úr sólskinsbrekku
smalinn horfir á.
Kveður lóu kliður,
kyrrlát unir hjörð.
Indæll er þinn friður,
ó, mín fósturjörð.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
SVEITASÆLA
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3
b6 4. g3 Ba6 5. b3 d5 6.
Bg2 Bb4+ 7. Bd2 Bd6 8.
Re5 c6 9. Bc3 0–9 10. 0–0
Rfd7 11. Rd2 Rxe5 12.
dxe5 Be7 13. Dc2 Rd7 14.
f4 b5 15. Kh1 bxc4 16.
bxc4 Rb6 17. Ba5 Dc8 18.
Bxb6 axb6 19. e4 Bb4 20.
f5 Dc7 21. cxd5 Bxf1 22.
Hxf1 Dxe5 23. Rc4 Dc3 24.
Dxc3 Bxc3 25. dxc6 b5 26.
Rb6 Ha6
Staðan kom upp á Skák-
þingi Reykjavíkur sem
lauk fyrir skömmu. Einn
mikilvægasti eiginleiki
skákmanns er að gefast
aldrei upp þótt á móti
blási. Þegar tafl er orðið
erfitt er snjallt að þyrla
upp moldviðri til að rugla
andstæðinginn í ríminu.
Björn Þorfinnsson (2315)
er sá íslenski skákmaður
sem hvað snjallastur er í
þessu. Hann hafði hér
hvítt gegn Magn-
úsi Erni Úlfars-
syni (2365) og
greip til þess
ráðs að fórna
manni. 27. fxe6
Hxb6 28. e5!
Hbb8? Ekki
verður betur séð
en að svartur
vinni eftir 28…
Hc8 þar sem
hann nær þá að
virkja hrókinn og
kónginn í einum
leik. Í framhald-
inu nær hvítur
hróknum til baka
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
með vöxtum. 29. Bd5 Bb4
30. exf7+ Kh8 31. Be6
Ba5 32. Bd7 g6 33. e6
Kg7 34. Hf4 Bc7 35. He4
Bd6 36. e7 Hxf7 37.
e8=R+ Hxe8 38. Hxe8 Hf2
39. He6 Bc7 40. He7+ Hf7
41. He2 Hf1+ 42. Kg2 Hc1
43. Kf3 Kf6 44. Ke4 Bb6
45. Hb2 Hc5 46. a4 Hc4+
47. Kd3 Hd4+ 48. Kc2 b4
49. Kb3 Ke7 50. He2+
Kd6 51. He6+ Kc7 52.
He5 Kd6 53. Hb5 Bc7 54.
Hxb4 Hd2 55. Hh4 h5 56.
Kc4 Bd8 57. He4 Hxh2 58.
He6+ Kc7 59. Hxg6 h4 60.
Hg7 hxg3 61. Hxg3 Hh4+
62. Kb5 Hh5+ 63. Ka6
Kb8 64. Hb3+ Kc7 65. a5
Hh2 66. Hb5 Kd6 67. Kb7
Bxa5 68. Hxa5 Hb2+ og
hvítur vann. 16 manna úr-
slit Íslandsmótsins í at-
skák hefjast í dag kl. 17.00
í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Allir áhorf-
endur eru velkomnir að
fylgjast með bestu skák-
mönnum landsins etja
kappi saman en átta
manna úrslit hefjast kl. 20.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
febrúar, er sextugur Óli H.
Þórðarson, Kvistalandi 7,
Reykjavík. Óli og eiginkona
hans, Þuríður Steingríms-
dóttir, bregða sér af bæ í
kvöld með börnum sínum og
tengdabörnum.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
febrúar, er sextug Heiðdís
Gunnarsdóttir, leikskóla-
fulltrúi, Engjavegi 51, Sel-
fossi. Í tilefni afmælisins
taka Heiðdís og eiginmaður
hennar, Árni Óskarsson, á
móti vinum og vandamönn-
um í samkomuhúsinu Stað á
Eyrarbakka, laugardaginn
8. febrúar nk. kl. 14
ÝMISLEGT kemur til
greina í sex laufum suð-
urs og eins og svo oft í
slíkum spilum er vandinn
sá að samnýta mögu-
leikana sem best:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁD862
♥ 5
♦ D52
♣DG76
Suður
♠ K10
♥ ÁKG1064
♦ 7
♣ÁK82
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 3 lauf
Pass 4 lauf Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Vörnin er þægileg:
Vestur spilar út tígulkóng
og síðan tígulás í öðrum
slag. Þú trompar smátt,
en hver er svo áætlunin?
Líklega er best að gera
út á það að fríspila spað-
ann. Laufásinn er tekinn
og litlu laufi spilað á
blindan. Ef báðir fylgja
eru tveir slagir teknir á
spaða og spaði stunginn
með kóng heima. Síðan er
hjartaás tekinn, hjarta
stungið smátt í borði, síð-
asta trompið tekið af
vörninni og blindur
stendur. Með þessu móti
vinnst spilið ef trompið
kemur 3–2 og spaðinn
liggur ekki verr en 4–2.
Ef trompið reynist hins
vegar liggja 4–1 verður að
skipta um áætlun: Taka
laufkóng, spila svo spaða
tvisvar og enda í borði til
að taka síðasta trompið.
Ef spaðinn liggur 3–3 er
öllu lokið, en ef ekki má
alltaf svína hjartagosa.
Þessa áætlun má
kannski bæta örlítið með
því að taka á spaðakóng-
inn áður en laufi er spilað
að blindum. Henda svo
spaðatíu niður í tígul-
drottningu og trompa síð-
an spaða. Ef spaðinn
reynist vera 5–1 er enn
hugsanlegt að vinna spilið
ef drottningin er önnur í
hjarta með tvílit í trompi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 31. jan-
úar síðastliðinn var kynntur fram-
boðslisti Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, til Stúdentaráðs og
Háskólafundar við kosningarnar
sem fram fara 26. og 27. febrúar
næstkomandi
Framboðslistar Vöku árið 2003
eru sem hér segir:
Til Stúdentaráðs: Jarþrúður Ás-
mundsdóttir, viðskiptafræði. Sigrún
Helga Jóhannsdóttir, lögfræði. Ósk-
ar Hafnfjörð Auðunsson, stærð-
fræði. Ari Tómasson, verkfræði.
Þórhildur Birgisdóttir, spænska.
Soffía Erla Einarsdóttir, sálfræði.
Sæmundur Oddsson, læknisfræði.
Þóra Pétursdóttir, sagnfræði/forn-
leifafræði. Guðlaugur Kristmunds-
son, stjórnmálafræði. Auðbjörg
Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunar-
fræði. Þóra Helgadóttir, hagfræði.
Haukur Gunnarsson, líffræði. Jos-
eph O. Ajayi, jarðfræði. Birkir
Snær Fannarsson, lögfræði. Guð-
mundur Rúnar Kristjánsson, tölv-
unarfræði. Nanna Margrét Gunn-
laugsdóttir, viðskiptafræði. Guð-
finnur G. Sigurvinsson, stjórnmála-
fræði. Brynjólfur Stefánsson, verk-
fræði.
Til Háskólafundar: Davíð Gunn-
arsson, hagfræði. Ingunn Guð-
brandsdóttir, sálfræði. Steinunn
Vala Sigfúsdóttir, verkfræði. Gísli
Kristjánsson, stærðfræði. Árni
Árnason, stjórnmálafræði. Elísa
María Oddsdóttir, félagsfræði. Bolli
Skúlason Thoroddsen, verkfræði.
Teitur Björn Einarsson, lögfræði.
Nanda María Maack, guðfræði. Ei-
ríkur Atli Briem, viðskiptafræði.
Ásdís Rósa Þórðardóttir, líffræði.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, lög-
fræði. Nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu félagsins.
Framboðslisti
Vöku kynntur
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
fréttatilkynning frá Áhugahópi um
bættar samgöngur milli lands og
Eyja, þar sem segir m.a.:
„Við fögnum þeim áhuga á sam-
göngumálum sem komið hefur fram
að undanförnu í Vestmannaeyjum
enda almennt viðurkennt að góðar
samgöngur eru grundvallaratriði í
allri byggðaþróun. Við teljum brýnt
að á fjárlögum hvers árs verði áætl-
aðar fjárveitingar til samgöngurann-
sókna. Markmiðið hlýtur að vera að
ljúka sem allra fyrst rannsóknum
vegna ferjulægis við Landeyjasand
og einnig þeim framhaldsrannsókn-
um á vegtengingu milli lands og
Eyja sem kynntar voru fyrir tveimur
árum.
Við mótmælum þeirri lítilsvirð-
ingu sem samgönguráðherra sýnir
Eyjamönnum með því að halda úti
aðeins átta ferðum á viku með Herj-
ólfi í þrjá mánuði á ári.“
Samgöngur eru
lykilatriði byggðanna