Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verð á mann frá 19.800* kr. þegar bókað er á www.icelandair.is www.icelandair.is Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu Flugsæti á broslegu verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 19 89 0 01 /2 00 3 *Innifalið: Flug og flugvallarskattar REYNT AÐ HINDRA LÁN Alþjóðleg umhverfisvernd- arsamtök, International Rivers Net- work, reyna nú að koma í veg fyrir að fjármálafyrirtæki á alþjóðavett- vangi veiti lán til byggingar Kára- hnjúkavirkjunar. Samtökin hafa sett sig í samband við a.m.k. eitt fyr- irtækjanna og gefið til kynna að þau hyggist hafa samband við fleiri. Búnaðarbankinn braut lög Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Búnaðarbank- inn hafi tekið þátt í fyrirætlunum keppinautar viðskiptavinar síns, Norðurljósa samskiptafélags, um leiðir til þess að yfirtaka rekstur hans. Norðurljós hyggjast kæra bankann til ríkislögreglustjóra. Málið ekki endurupptekið Ríkissaksóknari telur ekki ástæðu til að gera sakborningum í Geir- finnsmálinu grein fyrir efnisatriðum skýrslu Láru V. Júlíusdóttur, setts saksóknara, á grundvelli laga um endurupptöku mála. Hann hefur skýrt dómsmálaráðherra frá þessu. Blix fagnar loforði Íraka Hans Blix, yfirmaður vopnaeft- irlitsmanna Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að loforð Íraka um að eyða bönnuðum eldflaugum væri „mikilvægt dæmi um raunverulega afvopnun“. Frakkar tóku í sama streng en Bandaríkjamenn og Bret- ar sökuðu Íraka um blekkingar. Eiður Smári í heimsúrvali Eiður Smári Guðjohnsen verður á meðal um 40 leikmanna frá 15 lönd- um í svokölluðu heimsúrvali sem mætir úrvalsliði Afríku í Bolton á þriðjudaginn kemur. L a u g a r d a g u r 1. m a r s ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 48/53 Viðskipti 14/16 Messur 45/46 Erlent 18/24 Kirkjustarf 46/47 Neytendur 26 Bréf 56/57 Heilsa 28 Myndasögur 56 Höfuðborgin 28/29 Staksteinar 58 Akureyri 30 Dagbók 58/59 Suðurnes 30/31 Íþróttir 60/63 Landið 31/32 Leikhús 64 Árborg 32 Fólk 64/69 Listir 33/35 Bíó 66/69 Forystugrein 36 Ljósvakamiðlar 70 Viðhorf 40 Veður 71 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið FAGRA VER- ÖLD 2003 frá Heimsklúbbi Ingólfs. Blaðinu verður dreift um allt land. FLUGVÉLABENSÍN í tönkum ol- íufélaga og einkaaðila sem prófað var víðs vegar um landið reyndist ekki uppfylla lágmarksgæðakröfur um uppgufunarþrýsting og hefur notkun þess verið bönnuð með öllu. Eldsneytið var rannsakað í kjölfar þess að við venjubundið eftirlit kom í ljós að eldsneyti af sömu tegund uppfyllti ekki gæðakröfur. Hefur Flugmálastjórn sent til- kynningu þar að lútandi, einnig á ensku, svo ferjuflugmenn geti gert sér grein fyrir því að ekki sé hægt að fá þetta eldsneyti alls staðar á land- inu. Búist er við því að nýr farmur af eldsneytinu berist eftir 10 til 14 daga. Segist Flugmálastjórn í til- kynningu telja að fjarlægja beri það eldsneyti sem fyrir er á flugvélum nema umráðandi eða flugstjóri hafi fullvissu fyrir því að það uppfylli lág- markskröfur. Olíuverslun Íslands tilkynnti í gær að við rannsókn hefði komið fram að hluti af birgðum félagsins, um 9 þús- und lítrar, uppfyllti staðla, og félagið hefði því hafið að nýju sölu á flug- vélabensíni, en afgreiðslan yrði til að byrja með takmörkuð við afgreiðslur á Reykjavíkurflugvelli. Félagið hefði kynnt fulltrúum Flugmálastjórnar niðurstöður rannsóknarinnar „og hefur stofnunin samþykkt að flug- vélar sem félagið afgreiðir með um- rætt eldsneyti fái loftferðarleyfi, enda ekkert athugavert við gæði um- rædds eldsneytis,“ segir á heimasíðu Olís. Flugvélabensín víðar um land stenst ekki kröfur Sala aftur hafin hjá Olís á Reykja- víkurflugvelli SÆMUNDUR Pálsson, varðstjóri og lögreglumaður á Seltjarnarnesi, bet- ur þekktur sem Sæmi rokk, lét af störfum sl. fimmtudag eftir rúmlega 34 ára starf hjá lögreglunni. Í gær fór hann í heimsókn á gamla vinnu- staðinn og kvaddi vinnufélaga og vini sem komu víða að til að heilsa upp á hann. Það var árið 1969 sem Sæmundur hóf störf hjá Lögreglunni í Reykja- vík og sex árum síðar flutti hann sig út á Seltjarnarnes þar sem hann hef- ur haldið til síðan með „bræðrum sínum á hæðinni“ eins og hann kemst að orði. „Þetta er búinn að vera yndislegur tími og ekki allir sem geta sagt að þeir vakni spenntir yfir því að komast í vinnuna með svona góðu fólki,“ segir Sæmundur. Árið 1975 var lögreglustöðin til húsa í gamla Mýrarhúsaskólanum, í timburhúsi undir súð. Þá voru tveir lögreglumenn á Nesinu, hann, og Ingimundur Kr. Helgason sem starf- aði með honum um áratugaskeið. Sæmundur segir það vera einkenn- andi við að gæta laga í litlum bæ að hér þekki allir alla. Seltirningar hafi jafnvel lag á að biðja hann að gæta húsa sinna á meðan þeir skreppi í frí. Viðkvæðið sé: „Geturðu litið eftir húsinu? Ég er að fara í hálfan mánuð, þrjár vikur og þú hefur þetta síma- númer ef eitthvað kemur upp á.“ „Þetta er svona á Nesinu,“ segir Sæmundur. Hann er lærður byggingarmeist- ari og vonast til að geta snúið sér í auknum mæli að smíðavinnu. Hann segist einnig enn þá vera liðtækur dansari og vís með að setja á sig dansskóna á opinberum vettvangi ef sá gállinn er á honum. Morgunblaðið/Jim Smart Félagar Sæmundar Pálssonar í lögreglunni gerðu sér glaðan dag með honum í gær. Meðal þeirra voru Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Sæmi rokk lætur af störfum Viðkvæðið var: „Get- urðu litið eftir húsinu?“ MAÐURINN sem slasaðist er bíll hans lenti út af veginum um Bjarngötudal, sem liggur milli Patreksfjarðar og Rauðasands, liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Samkvæmt upplýsingum vakt- læknis á gjörgæsludeild er maðurinn mjög alvarlega slas- aður og er honum haldið sof- andi í öndunarvél. Líðan hans er þó stöðug. Hann hefur enn ekki gengist undir aðgerð. Kastaðist út úr bílnum Maðurinn var á leið til Pat- reksfjarðar í fyrrakvöld en þegar hann skilaði sér ekki þangað fór lögreglan á Pat- reksfirði að svipast um eftir honum. Hún fann manninn um klukkan hálf ellefu þar sem bif- reið hans hafði farið út af veg- inum og runnið um 30 m niður í gil. Maðurinn hafði kastast út úr bifreiðinni á miðri leið en tal- ið er að um tvær klukkustundir hafi liðið frá slysinu og þar til lögregla fann hann. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og kom hún með hann til Reykjavíkur nokkru eftir miðnætti í gær. Liggur mjög al- varlega slasaður LANDSBANKI Íslands greiddi Halldóri J. Kristjánssyni, banka- stjóra, samtals um 19,2 milljónir króna árið 2002 fyrir utan greiðslur í lífeyrissjóð, en hann er ekki með neinn kaupaukasamning og fékk því engan kaupauka greiddan. Halldór J. Kristjánsson var hæst launaði starfsmaður Landsbanka Ís- lands á liðnu ári. Hann fékk 1.512 þús- und krónur í laun á mánuði og skatt- mat bifreiðahlunninda, sem bankastjóri naut, var 86 þúsund krón- ur á mánuði. Áunninn kaupréttur hans á bréfum í Landsbankanum var 3,3 m.kr. að nafnverði á genginu 3,58 og greitt var í séreignarlífeyrissjóð 5% framlag, umfram lífeyrissjóðskjör bankamanna. Haukur Þór Haraldsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Lands- bankans, segir að mismunur á mark- aðsgengi og kaupréttargengi bréf- anna nemi um 1,1 milljón og því nemi heildargreiðslur til bankastjórans um 19,2 milljónum króna fyrir utan greiðslur í lífeyrissjóð. Haukur Þór segir að bankinn hafi ákveðið að greina frá launakjörum bankastjóra á liðnu ári vegna þess að Kauphöllin hafi boðað nýjar reglur varðandi upplýsingagjöf og taki þær gildi 1. júlí. Í öðru lagi hafi verið ákveðin umræða í fjölmiðlum um þetta auk þess sem Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi skorað á banka og fjármálastofnanir að birta þessar upplýsingar á aðalfundum. Aðalfund- ur Landsbankans hafi verið haldinn 14. febrúar og því væri ekki lengur tækifæri til að koma upplýsingunum á framfæri á þeim vettvangi í ár. Enginn kaup- auki hjá Lands- bankanum Greiðslur til bankastjórans námu um 19,2 milljónum króna árið 2002 TALSVERT magn af svartolíu fór í sjóinn austan við Ósland við Höfn í Hornafirði í gær. Það var Björn Arn- arson fuglaáhugamaður sem fyrstur varð var við olíumengunina í Ós- landinu þegar hann var að líta eftir fuglum. Starfsmenn hafnarinnar ásamt bæjartæknifræðingi fóru þegar að leita að upptökum mengunarinnar, en strax varð ljóst að hún kom ekki frá skipi. Ekki var hægt að staðfesta upptök olíulekans í gær en í ná- grenninu er fiskimjölsverksmiðja sem brennir svartolíu og því ekki ólíklegt að olían sé þaðan komin. Ekki er vitað um hve mikið magn er að ræða en þykk olíuleðja er í fjör- unni á nokkrum kafla. Mengunin er bundin við vík sem er opin á móti vindáttinni og því helst mengunin á afmörkuðu svæði. Ósland er landföst eyja við Höfn í Hornafirði og er vestari hluti hennar friðlýstur fólkvangur. Þar eru leirur með miklu fuglalífi og þar koma jafn- an farfuglarnir fyrst að landinu. Töluvert er af æðarfugli við Óslandið og ekki er ólíklegt að eitthvað af fugli lendi í olíunni. Björn og félagar hans eru búnir að gera sig klára að bjarga fuglum og þrífa af þeim olíuna. Hann segir það mildi að ekki var norðanátt því þá hefði olíubrákin dreifst um stórt svæði með hörmulegum afleiðingum. Svartolía í sjóinn Hornafirði. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.