Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 35 HAFNARFJARÐARBÆR hefur nýlega veitt ýmsum menningarsam- tökum í bænum ríflega starfsstyrki. Slík styrkveiting er gríðarlega mikil lyftistöng fyrir starfsemi þeirra hópa sem reyna að halda uppi menn- ingarstarfsemi. Þótt starfið sé unnið að mestu í sjálfboðavinnu og fólk leggi á sig og aðstandendur sína ótakmarkaða sjálfsfórn kostar allt sitt. Það mættu fleiri sveitarfélög taka Hafnarfjarðarbæ til fyrirmynd- ar hvað þetta varðar. Það er nefni- lega mikill mannauður falinn í slíkri áhugastarfsemi. Hún kennir fólki öguð vinnubrögð, tillitssemi við náungann, eykur þekkingu og fyllir upp í frítíma og gefur þátttakendum óendanlega mikið sem aldrei verður metið til fjár. Allt kemur þetta svo í heild sveitarfélaginu til góða á ein- hvern hátt, t.d. með blómlegra mannlífi því allir íbúarnir eiga kost á að njóta uppskerunnar. Það var ánægjulegt að kórarnir fjórir skyldu taka sig saman og halda sameiginlega tónleika í tilefni af styrkveitingunni. Kór Öldutúnsskóla reið á vaðið með In monte Oliveti eftir G. Martini og ungverskt þjóðlag, Óskasteina, í útsetningu Bardos Lajos við texta Hildigunnar Halldórsdóttur. Kórinn var dálítið seinn í gang og náði ekki að hljóma í þessum lögum en það átti eftir að lagast strax í þriðja laginu, íslenska þjóðlaginu Ljósið kemur langt og mjótt, í útsetningu Jóns Ás- geirssonar sem var fallega sungið. Kveðja, úkraínskt þjóðlag við texta Sigríðar Þorgeirsdóttur, var næst á dagskrá og þar söng einn kórfélaga, Árný Gunnarsdóttir, einsöng. Hún hefur mjög fallega rödd og skilaði sínu hlutverki með sóma sem og kór- inn. Í maoríska þjóðlaginu Tutira Mai fór kórinn á kostum. Stúlkurnar sungu með leikrænum og að hluta til dansrænum tilbrigðum. Kórinn söng síðan aukalag frá Japan, Sakura, og þar söng Árný einnig einsöng. Þetta er lítið og fallegt lag og var sungið á japönsku. Öldutúnskórinn hefur löngum verið þekktur og ávallt tengdur nafni síns ötula söngstjóra, Egils Friðleifssonar. Kór Flensborgarskólans er góður kór með þéttan og mjúkan en um leið kraftmikinn hljóm og syngur fallega út með gott vald á styrkleikabreyt- ingum án þess að klemma eða þvinga tóninn. Kórinn söng fyrst lag Þor- kels Sigurbjörnssonar, Heyr himna smiður, og þar næst íslenska þjóð- lagið Grafskrift í útsetningu Hjálm- ars H. Ragnarssonar og síðan Fyr- irlátið mér eftir Jón Ásgeirsson við texta úr Lilju Eysteins Ásgrímsson- ar. Öll þessi þrjú lög eru langt frá því að vera einföld og auðsungin en kór- inn skilaði þeim mjög vel. Spænska lagið Pase al agua er létt og skemmtilegt og á eftir því komu þrjú ungversk og krefjandi þjóðlög í út- setningu Bela Bartók við texta Harðar Zophaníassonar. Þetta eru skemmtileg lög og vel útfærð af kórnum sem naut aðstoðar Antoníu Hevesi á flygilinn. Hrafnhildur er hér að gera mjög góða hluti með þessum 50 söngglöðu og prúðu ung- lingum og ekki þarf hún að kvarta undan áhugaleysi drengjanna. Báðir þessir kórar eru skólakórar sem þýðir örar mannabreytingar, reyndustu félagarnir vaxa upp úr kórnum og inn koma nýir og óreynd- ir. Þess vegna er gaman þegar svona góðir kórar ná að halda háum stand- ard ár eftir ár. Kammerkór Hafnarfjarðar steig næst á stokk og hélt sig við alíslenskt lagaval. Hið sívinsæla þjóðlag Ég að öllum háska hlæ er í raun tvö lög og tveir textar sett saman og útsett af Hallgrími Helgasyni sem ein heild og hefur í raun hepnast vel og er endirinn (án enda) í raun eitt erf- iðasta atriði lagsins. Þjóðlagið og þjóðvísan Vinarspegill í útsetningu Róberts A. Ottóssonar stendur fylli- lega fyrir sínu. Í þessum fyrstu lög- um átti sópraninn eitthvað erfitt með að syngja hreint á efra sviðinu þegar sungið var veikt og virtist þetta vandamál vera dálítið viðloðandi í öllum lögunum. Næst söng kórinn tvö þjóðlög í frábærum útsetningum Árna Harð- arsonar, Feigur Fallandason og Tíminn líður trúðu mér. Bæði lögin voru vel útfærð af kór og söngstjóra. Barnagælurnar í raddsetningu Jór- unnar Viðar voru vel fluttar og sama er að segja um lag Gunnsteins Ólafs- sonar, Gömul vísa um vorið, og heil- ræðavísu Jóns Nordals. Helgi Bragason er vandvirkur söngstjóri sem leggur mikla áherslu á veikan, skýran og fágaðan söng sem kannski kemur niður á samhljómnum þegar tekið skal á, en þá vantar oft kraftinn og fyllinguna. Karlakórinn Þrestir er að ég held elsti karlakór landsins, stofnaður 1912. Núverandi söngstjóri kórsins, Jón Kristinn Cortez, er greinilega mjög ákveðinn og góður söngstjóri sem er að vinna mjög góða hluti með kórnum og verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Kórinn hóf raust sína á lagi Stephens Fosters, Húmar að kveldi, og söng síðan íslenska þjóðlagið Hrafninn flýgur um aftan- inn í raddsetningu Sigfúsar Einars- sonar. Bæði voru þessi lög vel sungin og með fallega mótaðar hendingar, Glófagrar rósir eftir Pál Þorleifsson við texta Jóns B. Péturssonar fylgdi þar á eftir, ágætlega sungið. Stef – frá Nýja heiminum eftir Dvorák í umritun söngstjórans við texta Hall- dórs Halldórssonar var vel sungið og útfært. Litla friðarbænin, Domine, pacem da nobis sem Jakob Christ raddsetti, er lítið einfalt og fallegt bænalag sem alls ekki er auðsungið og náði ekki að hljóma hjá kórnum. Lag Þorkels Sigurbjörnssonar Til þín Drottinn hnatta og heima við friðarbæn Páls G. Kolka var á köfl- um vel sungið, en alls ekki án hnökra, enda erfitt lag. Síðasta lag kórsins Ár vas alda, þjóðlag í útsetn- ingu Þórarins Jónssonar við texta úr Völuspá, var án efa besta lag kórsins og þar náði kórinn loks að hljóma og ná fullu valdi á öllum styrkleikaskal- anum og hefði ég vilja heyra þennan hljóm í friðarbæninni, Domine, pac- em da nobis. Kórinn hefur mjúkan, kröftugan og fylltan hljóm og syngur sig vel saman en þarf að passa að klemma ekki á háu tónunum í veik- um söng og sýndi í síðasta laginu að hann getur það. Að lokum sungu allir kórarnir saman lag Friðriks Bjarna- sonar, Þú hýri Hafnarfjörður við texta Guðlaugar Pétursdóttur, og Antonia Hevesi lék með á flygilinn. Undirritaður óskar kórunum til hamingju með styrkinn og hlakkar til að fylgjast með grósku þeirra í framtíðinni. TÓNLIST Hásalir í Hafnarfirði Kór Öldutúnsskóla, stjórnandi Egill Frið- leifsson, Kór Flensborgarskólans, stjórn- andi Hrafnhildur Blomsterberg, Kamm- erkór Hafnarfjarðar, stjórnandi Helgi Bragason, Karlakórinn Þrestir, stjórnandi Jón Kristinn Cortez. Píanóleikari Antonía Hevesi. Sunnudagurinn 23. febrúar 2003 kl. 20.00. KÓRSÖNGUR Fjórir kórar í Hafnarfirði Jón Ólafur Sigurðsson EITT af síðustu embættisverkum Ingibjargar Sólrúnar, fráfarandi borgarstjóra, var að undirrita stofnskjal nýs listasafns í miðborg Reykjavíkur. Hér er auðvitað um að ræða hið glæsilega einkasafn Péturs Arasonar og eiginkonu hans, Rögnu Róbertsdóttur, en stór hluti þess eru verk eftir heimsfræga lista- menn, hverra verk er hvergi að finna annars staðar í íslenskum söfnum. Við undirritunina sagði Ingibjörg Sólrún eitthvað á þá leið að hún þyrfti ekki að vera sérstök áhuga- manneskja um samtímamyndlist til að gera sér grein fyrir nytsemi slíks listasafns, ekki frekar en hún þyrfti að vera tónlistarunnandi til að gera sér grein fyrir því að tónlistarhús skipti máli fyrir Reykjavíkurborg. Það er merkilegt að borgarstjór- inn skyldi nefna tónlist í sömu andrá og myndlist, því varla er hægt að finna meiri andstæður innan listanna að formi til, tjáningu, aðferð og afstöðu, eða hvað? Þegar talað er um myndlist í sam- tímanum er gjarnan átt við einn og sama hlutinn. Fæstir mundu vilja kannast við að myndlistin sé klofin í ólíkar leiðir þó svo að hér á landi eigi allstór hópur manna ef til vill erfitt með að sjá og skilja myndlist síðustu fimmtíu ára sem eina ná- tengda heild. En ef tekið er mið af almennu við- horfi Vesturlandabúa kannast al- menningur sem á annað borð heim- sækir söfn, sýningar, liststefnur eða stórhátíðir ekki við nein djúptæk vatnaskil sem greini myndlist í óbrúanlegar andstæður. Listasagan fram til síðustu aldamóta er skrifuð sem eitt órofa mengi, hversu margir og ólíkir sem straumar hennar eru. Í tónlistinni er því allt öðruvísi varið. Þegar í byrjun tuttugustu ald- ar var þar kominn ósættanlegur klofningur milli há- og láglistar, bet- ur nefnt klassískrar tónlistar og al- þýðlegrar. Við síðustu aldamót er svo komið að himinn og haf aðskilur megingreinar tónlistar, þó svo að í reynd sé hægðarleikur fyrir hvern þann sem hefur sæmilega heyrn að skilja og njóta allra þessara ólíku greina. Það breytir því þó ekki að lang- stærstur hluti fólks hlustar á dæg- urtónlist – hvers kyns popp og rokk – án þess að líta við annarri tónlist. Þeir sem hlusta á klassíska tónlist eru að fjölda til ekki nema brot af fyrrnefnda hópnum. Hluti af þess- um hópi hlustar ekki á neina aðra tegund tónlistar. Þeir eru þó sem betur fer fjölmargir sem geta bæði haft ánægju af klassík og annarri tegund tónlistar. Einkum á þetta við tónlist- armenn; tónskáld og hljóðfæraleik- ara. Margir þeirra fást við hvort tveggja í senn án þess að bíða af því tjón. En þeir eru einnig margir sem einskorða eyrun við aðeins eina teg- und klassískrar tónlistar. Það sanna ómældar vinsældir svokallaðra Vín- arkvölda hjá Sinfóníuhljómsveitinni. Þá er ótalinn sá hópur sem hlustar á djass, gamlan eða nýjan, eða ein- hverja tegund, eða tegundir heims- tónlistar. Líklega er sá hópur þó minnstur sem aðhyllist nútímatónlist, eða ætti að kalla minimalisma þeirra Reich og Riley, og postmódernisma Pärt og Tavener samtímatónlist? Eitt er víst að það gengi ekki í myndlist að einskorða sig með slíkum hætti við þröng tímabil eða tegundir. Hugs- um okkur mann sem segðist bara horfa á popplist, samsvarandi popp- tónlist eða rokki. Mundum við ekki telja smekk hans fáránlega þröng- an? Eða hvað finnast um mann sem einungis metur myndlist frá 18. og 19. öld en fúlsar við öllu öðru? Ef vel á að vera þarf að huga að allri flórunni í listum. Það er auðvit- að hægur vandi fyrir yfirvöld að hlúa að þeirri list sem mestra vin- sælda nýtur. Hitt er mun vanþakklátara þegar styðja skal list sem ekki nýtur mik- ils skilnings almennings. En ef gæta á þeirrar margbreytni sem endur- speglar nútímalegt lýðræði með allri sinni fjölmenningarlegu flóru þarf hið opinbera að sýna framsýni og áræði. Það hafa þau hjónin Ragna Ró- bertsdóttir og Pétur Arason svo sannarlega gert með söfnun sinni á ómetanlegum listaverkum, íslensk- um jafnt sem alþjóðlegum, þó sú list sé einmitt af þeirri tegundinni sem margir álíta torskilda. Því hljótum við hin að fagna gagnkvæmri dirfsku yfirvalda sem sjá sér leik á borði með hagstæðum samningi við þessa stórmerkilegu safnara. Hagur allra vænkast með opnun slíkrar stofnunar við rótgrónustu versl- unargötu borgarinnar, ekki síst þeirra sem vilja tryggja fjölbreytni í athafnalífi miðborgarinnar. Alþjóðlegt samtímasafn Ljósmynd/Halldór Björn Hjónin Ragna Róbertsdóttir og Pétur Arason í húsakynnum Safns, sam- tímalistasafnsins sem opnað verður við Laugaveg 37 á komandi mánuðum. Bak við þau má sjá verk eftir Donald Judd, helsta frumkvöðul hinnar al- þjóðlegu naumhyggju, og annan gimstein eftir Roger Ackling. Glugga- kistuna prýðir eitt af öndvegisverkum Sigurðar Guðmundssonar. Eftir Halldór Björn Runólfsson Höfundur er lektor við Listaháskóla Íslands. ÍSLENSKIR listamenn hlutu tölu- verða athygli í norskum og sænskum dagblöðum í vikubyrj- un, er sýning á verkum þeirra Ás- gríms Jónssonar og Georgs Guðna í Akvarelle-safninu í Skår- hamn í Svíþjóð og skáldsaga Ein- ar Más Guðmundssonar, Draumar á jörðu, voru tekin til umfjöll- unar. Sagði sænski veffréttamiðillinn ST. tidningen, sem fjallaði um sýninguna á verkum Ásgríms og Georgs Guðna til að mynda að í verkum Ásgríms brenndi ástríða hans „gagnvart landslaginu sig inn í bergsprungurnar, hraun- breiðurnar, grasi vaxin engi, og feykir á áhrifaríkan hátt burt öll- um yfirborðskendum hugmyndum um ógestrisið landslag,“ líkt og segir í dómi gagnrýnandans. ST. tidningen hrósar myndum Ásgríms í hvívetna og gerir að sérstöku umfjöllunarefni frum- herjastarf hans sem eins fyrsta ís- lenska listamannsins sem gerði náttúru landsins að viðfangsefni sínu. Verk Georgs Guðna fá einn- ig jákvæða dóma, en ST. tidn- ingen segir sýn hans á landslagið nokkuð aðra. Hér liggi eins konar líflína í gegnum landslagið. Þoka, gufukenndar uppsprettur, himinn sem grúfir yfir óbyggðunum, skapi verk sem séu „mistri hulin en mettuð litum.“ Verk þessara listamanna séu því töluvert ólík því á meðan að rýmið í verkum Georgs Guðna verði að tómi verði landslag Ásgríms villtara með sterkari litanotkun. Þurr húmor og jarðbundinn stíll Norskir aðdáendur Einar Más Guðmundssonar eru þá sagðir fá eitthvað fyrir sinn snúð með bók hans, Draumar á jörðu. Í norska dag- blaðinu Dags- avisen segir að kunnuglegar persónur komi að nýju fram í bókinni, sem og spítalinn sem kom fyrir í Englum al- heimsins. Í bók- inni fái þurr húmor höfundarins þá að njóta sín samtvinnaður við jarðbundinn og lýsandi stíl sem til hins ýtrasta nái að skapa áherslur og veita sögunni líf. „Hér er ekki dregin fram svart- hvít mynd af hinum góðu og fá- tæku annars vegar og hinum efnameiri og óskammfeilnu hins vegar – heldur er sagt frá per- sónum og aðstæðum á hinn ólýs- anlega máta [Einars Más] Guð- mundssonar,“ segir í frásögn blaðsins, sem telur söguna gefa sérlega skarpa og tilfinningaríka sýn á kynslóð fátæks fólks í okk- ar nánustu fortíð. Íslenskum listamönn- um hrósað í norrænum fjölmiðlum Einar Már Guðmundsson GRUNNNÁMSKEIÐ í þrí- víddarforritinu Form Z hefst 10. mars. Námskeiðið er eink- um ætlað arkitektum, vöru- og iðnhönnuðum. Kennari er Bárður Bergsson. Þá hefst námskeið 17. mars þar sem farið verður yfir helstu grunnaðferðir í silkiþrykki. Kennari er Ríkharður Valting- ojer myndlistarmaður. Námskeið í LHÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.