Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ VUR V IÐ SK IPTAÞJÓNUSTA U T A N R Í K I S R Á Ð U N E Y T I S I N S í verki með íslenskri útrás www.vur.is Borgarplast í Austurvegi „Ég má til með að þakka fyrir þá þjónustu sem við fengum hjá VUR í Moskvu í tengslum við útflutningsverkefnið okkar. Viðskiptafulltrúinn við sendiráðið reyndist okkur frábærlega, eldsnögg og nákvæm. Undirbúningur og framkvæmd var til fyrirmyndar og skýrslur mjög góðar. Það kom mér líka þægilega á óvart að finna hve sendiherranum í Moskvu er umhugað um að verslun milli þjóðanna gangi sem best. Hann telur það greinilega hlutverk utanríkisþjónustunnar að bæta viðskiptaumhverfið og ryðja hindrunum úr vegi, svo auka megi viðskipti milli þjóðanna. Við eigum eftir að eiga frekari viðskipi við VUR í framtíðinni, það er víst.“ Jón Guðmundsson, fjármálastjóri Borgarplasts E F L IR / H N O T S K Ó G U R V U R 6 0 1 -0 3 hlutafjárvæðingu, yfirtökutilrauna Búnaðarbankans, flutnings höfuð- stöðva og hás framlags í afskriftar- reikning útlána. Hann segir að dregið hafi verið úr markaðsáhættu í rekstri með sölu á hlutabréfum SPRON í Kaupþingi banka og styrkum stoðum verið skot- ið undir reksturinn með kaupum á Frjálsa fjárfestingarbankanum, sem auka muni stöðugleika í rekstri spari- sjóðsins. Vaxtamunur SPRON hafi aukist lítillega á árinu 2002 og numið alls 3,7%, en verið 3,4% árið 2001. Skýringuna segir Guðmundur vera þá að með kaupum á Frjálsa fjárfest- ingarbankanum og sölu hlutabréfa í Kaupþingi banka lækki verulega hlutfall þeirra eigna SPRON sem ekki beri vexti og það hafi áhrif á út- reikning vaxtamunar. Guðmundur segir að horfur í rekstri SPRON á yfirstandandi ári séu góðar og þess sé vænst að sam- starf sparisjóðsins og Frjálsa fjár- festingarbankans hafi í för með sér sóknarfæri á lánamarkaði. Vaxtatekjur aukast um 34,5% Hreinar vaxtatekjur SPRON námu alls 1.689 milljónum króna, sem er um 34,5% aukning frá fyrra ári. Hreinar vaxtatekjur móðurfélagsins drógust aftur á móti saman um 2,8%. Segir í tilkynningu að samdrátt hreinna vaxtatekna móðurfélagsins megi einkum rekja til mikillar lækkunar verðbólgu á árinu 2002. Hreinar rekstrartekjur jukust um 42,9%. Gengishagnaður af annarri fjár- málastarfsemi á árinu 2002 jókst um 69,3% og nam alls 350 milljónum. Gengishagnaður af hlutabréfum nam HAGNAÐUR samstæðu SPRON á árinu 2002 nam 734 milljónum króna eftir skatta. Árið áður var hagnaður- inn 238 milljónir. Hagnaður fyrir skatta var 272 milljónir í fyrra en 12 milljónir á árinu 2001. Guðmundur Hauksson, sparisjóðs- stjóri, segir að arðsemi af rekstri SPRON á árinu 2002 hafi verið mjög góð, eða 23%. Árið áður var arðsemin 8,5%. Hann segir að þessi árangur hafi náðst þrátt fyrir sérstaka kostn- aðarliði í rekstri sparisjóðsins, svo sem vegna brostinna áforma um 171 milljón og af skuldabréfum nam gengishagnaður 175 milljónum. Rekstrargjöld SPRON námu alls 2.057 milljónum á árinu. Rekstrar- gjöld samstæðunnar hækkuðu um 32,0% frá fyrra ári. Framlag í afskriftarreikning útlána hækkaði um 24,7% frá fyrra ári og nam alls 591 milljón. Afskriftarreikningur útlána 2,7% Útlán SPRON námu í árslok 2002 alls 35.996 milljónum króna, sem er um 40,8% hækkun frá árslokum árið áður. Segir í tilkynningunni að hækk- un útlána megi einkum rekja til kaupa SPRON á Frjálsa fjárfestingarbank- anum þar sem um 4,8% samdráttur hafi orðið í útlánum móðurfélagsins. Heildarinnlán SPRON í lok ársins námu alls 25.070 milljónum og hækk- uðu um samtals 3.150 milljónir eða 14,4%. Innlán og lántaka hækkuðu úr 29.376 milljónum í 37.620 milljónir, eða um 28,1%. Afskriftarreikningur útlána nam í lok ársins 1.113 milljónum. Afskrift- arreikningur útlána í hlutfalli af út- lánum og veittum ábyrgðum nam alls 2,7% í árslok en var 2,5% í árslok 2001. Eiginfjárhlutfall sparisjóðsins samkvæmt CAD reglum var í árslok 11,5% en var 11,2% í árslok 2001. Heildareignir SPRON í árslok námu alls 51.635 milljónum og jukust um 33,9% frá fyrra ári. Stjórn SPRON mun leggja fram tillögu á aðalfundi félagsins um að greiddur verði 18,0% arður til stofn- fjáreigenda vegna ársins 2002. SPRON hagnast um 734 milljónir                                                 !!   "# $!  %      & '& &(      ##% "$   %$# !  #   ! #  %   %" !"    '& &  )  *+,-   && &    & & . !!/0 /"0 ! ! !!/0 /0 !%       !  !!     "#$   HAGNAÐUR Sjóvár-Almennra á síðasta ári var 501 milljón króna en var 590 milljónir króna á árinu á undan. Heildar eigið fé félagsins í árslok 2002 var 5.942 milljónir króna en var 4.398 milljónir í lok ársins áð- ur og hækkaði um 35% á árinu. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að á árinu hafi fjárfestingar- tekjur lækkað verulega miðað við fyrra ár. Því valdi einkum minni verðbólga og styrking krónunnar en langtímafjárfesting félagsins í dótt- urfélögum leiði einnig til tímabund- innar lækkunar á vaxtaberandi eign- um. „Afkoma samstæðunnar er því nokkuð undir væntingum stjórn- enda. Vátryggingareksturinn er að vísu í betra jafnvægi en mörg und- anfarin ár en hagnaður af fjármála- starfsemi er borinn uppi af hagnaði af sölu fjárfestinga,“ segir í tilkynn- ingunni. Jafnframt kemur fram að hagstæð matsþróun tjónaskuldar eldri ára leiðir til jákvæðrar afkomu í lög- boðnum ökutækjatryggingum. Fjöldi ökutækjatjóna á árinu 2002 er svipaður og á árinu áður. Jákvæð þróun í eignatryggingum framan af ári gekk til baka á síðari hluta ársins en tíð stórtjón í brunatryggingum fasteigna höfðu neikvæð áhrif á af- komu félagsins. Versnandi afkoma af almennum ábyrgðartryggingum er einnig áhyggjuefni. Áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga á afkomuna eru neikvæð um 36 milljónir króna á árinu. Spáir 700 milljóna afkomu Um rekstrarhorfur hjá fyrirtæk- inu segir Einar Sveinsson forstjóri í fréttatilkynningunni að að því gefnu að tjónaþróun verði með svipuðum hætti og árið áður er gert ráð fyrir að afkoma félagsins á árinu 2003 verði ekki undir 700 milljónum króna. Bókfærð iðgjöld samstæðunnar í skaðatryggingum voru 8.153 milljón- ir króna en bókfærð iðgjöld líftrygg- inga voru 1.036 milljónir króna.Bók- færð tjón skaðatrygginga voru 5.371 milljón króna en bókfærðar líftrygg- ingabætur voru 234 milljónir króna. Hreinn rekstrarkostnaður vegna skaðatryggingarekstrar var 1.402 milljónir króna og vegna líftrygg- ingarekstrar 351 milljón króna. Fjárfestingartekjur yfirfærðar á skaðatryggingarekstur voru 640 milljónir króna en voru 1.403 millj- ónir króna árið áður. Fjárfestingar- tekjur samstæðunnar voru 1.548 milljónir króna á árinu og fjárfest- ingargjöld voru 653 milljónir króna. Að teknu tilliti til yfirfærðra fjárfest- ingartekna á vátryggingarekstur var hagnaður af fjármálarekstri 250 milljónir króna á árinu. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 30% arður til hluthafa á árinu 2003. Hagnaður Sjóvár-Almennra undir væntingum  % &'()*  '& & &    1 '& & 2 3 2)  & 4 &     .   5                   .         %" %" " $ !# !"     #     '& &(  &    !$" $   (    4 6( . '& &  )  *+,- !"# !$$ /0       !  !!    &' +     KRISTINN Björnsson, forstjóri Skeljungs, sagði á aðalfundi félagsins í gær að sá „plagsiður“ sumra ís- lenskra eftirlitsstofnana að gæta ekki þagmælsku um rannsóknarefni sín væri afar undarlegur, „og auðvitað óþolandi með öllu, þegar þess er gætt, að einvörðungu sjónarmið rannsókn- araðila koma fram í slíkum skipulögð- um leka.“ Hann gagnrýndi einnig hve langan tíma rannsókn Samkeppnisstofnunar á meintum brotum Skeljungs á sam- keppnislögum hefði tekið. Rannsókn stofnunarinnar hefur staðið yfir síðan í desember 2001, þegar hún gerði húsleit á skrifstofu Skeljungs. „Ekki þarf að fara mörgum orðum um það óhagræði og réttaróvissu, sem fylgir því að fólk og fyrirtæki séu svo lengi undir rannsókn hjá eftirlits- aðilum í þjóðfélaginu,“ sagði Kristinn í ræðu sinni á aðalfundinum. Líkur á að rannsóknin taki nokkur ár til viðbótar Kristinn sagði að líkur væru á að rannsóknin myndi taka nokkur ár til viðbótar, með tilheyrandi afleiðingum fyrir alla viðkomandi. „Hlýtur það að vera umhugsunarefni, svo ekki sé fastar að orði kveðið, hvort hér sé ver- ið að fylgja eðlilegum og viðurkennd- um vinnubrögðum eins og þau eru tíðkuð í öðrum löndum. Hvort skyldi það vera betra fyrir viðskiptaþjóð- félagið í heild sinni að beina sjónum fram á veg með ný vinnubrögð, grundvölluð á breyttu lagaumhverfi, að leiðarljósi, eða eltast árum saman við fornar syndir?“ Að sögn Kristins hefur Skeljungi nú borist svokölluð frumathugun nr. 1 frá Samkeppnisstofnun. Hann segir að þar sé um einhliða frásögn stofn- unarinnar að ræða, af atvikum og at- burðarás eins og hún blasi við starfs- mönnum hennar eftir að hafa blaðað í skjölum, minnisblöðum og tölvupósti starfsfólks olíufélaganna og spjallað við nokkra starfsmenn þeirra. „Vissu- lega ber hún þess merki, að verið sé að geta sér til um hluti, enda ekki ann- að hægt, þar sem starfsmenn Sam- keppnisstofnunar voru hvorki þátt- takendur né áhorfendur að þeirri atburðarás, sem leitast er við að lýsa.“ Forstjóri Skeljungs gagnrýnir seinagang við rannsókn Samkeppnisstofnunar vegna meintra brota félagsins Sakar stofnunina um skipulagðan leka Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, gagnrýndi Samkeppnisstofnun á aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gær. ÞAU mistök urðu í frétt á forsíðu Morgunblaðsins í gær um hagnað tíu fyrirtækja sem greindu frá uppgjöri ársins 2002 í fyrradag, að afkomutöl- ur fyrir Ker hf. voru rangar. Hagn- aður Kers á árinu 2002 var sagður hafa numið 888 milljónum króna en 2.120 milljónum árið áður. Hið rétta er að hagnaðurinn var 2.120 milljónir árið 2002 en 378 milljónir árið 2001. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Leiðrétting
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.