Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 53 ✝ Hermann Eyj-ólfsson fæddist í Hestgerði í Suður- sveit hinn 11. janúar 1916. Hann lést á hjúkrunardeild HSSA á Höfn hinn 15. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Eyjólfur Run- ólfsson, f. 1897, d. 1991, og Matthildur Gísladóttir, f. 1889, d. 1975. Hermann var elstur í hópi fjög- urra systkina. Hin eru: Ingólfur, f. 11.10. 1925, Olgeir, f. 13.11. 1928, d. 15.9. 1961, Hulda, f. 14.4. 1931, d. 15.3. 1947. Hermann kvæntist hinn 26.11. 1946 Huldu Sigurðardóttur, f. 12. nóv. 1915, d. 9. sept. 1989. Foreldr- f. 10. apríl 1956, og eiga þau þrjú börn. Barnabarnabörnin eru 36 og barnabarnabarnabörnin fimm. Hermann bjó fyrstu æviár sín í Suðursveit en flutti til Hafnar í Hornafirði árið 1945. Hermann starfaði þar sem verkamaður og fiskmatsmaður, auk þess að stunda smábúskap og leigði rækt- unarland. Hann bjó í Hlíðarenda ásamt eiginkonu sinni og byggði þar hús við enda eldra húss sem þar stóð fyrir. Hermann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og tók virkan þátt í félagsstarfi á Höfn, svo sem hjá Verkalýðsfélaginu Jökli þar sem hann var ritari á ár- inum 1950-53, gjaldkeri 1953-55 og meðstjórnandi 1964-69. Hann var einn af stofnendum ung- mennafélagsins Sindra. Þau hjón- in fluttu sig í hentugra húsnæði í Miðtúni á Höfn árið 1980 en eftir andlát Huldu árið 1989 bjó Her- mann á hjúkrunarheimilinu á Höfn. Útför Hermanns fer fram frá Hafnarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ar hennar voru Sig- urður Gíslason, f. 14.10. 1886, d. 16.9. 1968, og Þorbjörg Teitsdóttir, f. 29.8. 1889, d. 25.7. 1978. Börn þeirra Her- manns og Huldu eru: Sigþór Valdimar, f. 15. júní 1938; Gísli Ey- mundur, f. 16. febr. 1941, maki Ásdís Mar- teinsdóttir, f. 14. júní 1938, og eiga þau fjög- ur börn; Gunnar Val- ur, f. 15. nóv. 1942, maki Birna Þórkatla Skarphéðinsdóttir, f. 7. sept. 1946, og eiga þau fimm börn; Erla Sig- ríður, f. 8. sept. 1945, maki Guðni Hermannson, f. 23. júlí 1946, og eiga þau þrjá syni; Guðni Þór, f. 7. apríl 1954, maki Elín Ingvadóttir, Þá ertu genginn á fund feðra þinna, afi minn, rétt rúmlega 87 ára að aldri. Þú sagðir mér þegar ég ræddi við þig á afmælisdaginn þinn hinn 11. janúar sl. að þú teld- ir að ekki væri langt eftir. Þá reyndist þú sannspár þó að ég hafi ekki viljað trúað því þá. Alveg frá því að ég man eftir mér sem smá- gutti, búandi í sama húsi og þú við Hafnarbraut 45a á Höfn, hefur þú verið eins og klettur í hafi, sjálf- sögð stoð og stytta sem alltaf mátti leita til. Það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu og hjá ykkur dvaldi ég í lengri og skemmri tíma bæði þegar við bjuggum í íbúðinni við hliðina á ykkur og eins þegar við fluttum á Silfurbrautina. Alltaf var ljúft að koma til ykkar. Við sátum tveir andspænis hvor öðrum og spjöll- uðum saman og amma bar í okkur veitingar. Ykkur ömmu þótti sér- lega vænt um börn ykkar, barna- börn og barnabarnabörn og þess fékk ég að njóta í svo ríkum mæli. Mér er sérlega minnisstæð veiðiferðin okkar að Fýfu í Suð- ursveit. Óharðnaður unglingurinn gerði sér grein fyrir því að þó að ferðalagið sjálft tæki langan tíma – því ekki fórstu hratt yfir á Skod- anum – að þá yrði samveran okkur báðum mikils virði. Veiðin var þokkaleg og þú gast sagt mér ým- islegt. Þú varst hreinn og beinn og ósáttur við mig þegar ég missti þann stóra. Veiðimannseðlið var sterkt en reiðin sat ekki lengi í þér og ég fékk tilsögn í stangveiði sem ég bý enn að. Ég man líka þegar ég fékk að fara með þér út á fjörð og draga silunganetin sem voru þér svo mikilvæg eftir að þú hætt- ir að vinna. Enn var sama veiði- eðlið til staðar og eldmóðurinn. Þú varst mjög stoltur af öllum þínum afkomendum og þegar þú fluttir á elliheimilið á Höfn safnaðir þú í kring um þig miklu magni af myndum af þessu fólki og gast sagt mér til um hagi þess þá sjaldan að ég kom í heimsókn til þín austur á Hornafjörð. Þú varst afar skarpur maður, víðlesinn og fróður um marga hluti og bar þar engan skugga á með árunum. Þú fylgdist vel með atvinnuástandi og nánast öllu sem viðkom Hornafirði, þjóð- málum og á alþjóða vettvangi. Þú keyrðir bílinn þinn bróður- partinn af 87. aldursári þínu. Dag- legar ferðir inn að Lónsafleggjara og útí Ósland voru þér afar mik- ilvægar. Nú ekur þú um grænar grundir á öðru tilverustigi. Ég vona að amma sé þinn farþegi í þeim ferðum. Ég kveð þig með söknuði en einnig með stolti. Ég er stoltur af því að hafa átt þig að og fengið að njóta samvista við þig í gegnum árin. Mig tekur sárt að þær voru ekki fleiri þessar sam- verustundir nú hin síðari ár en við því er víst fátt að gera núna. Vertu blessaður að sinni. Ég votta börn- um þínum, barnabörnum og fjöl- skyldum þeirra allra mína dýpstu samúð. Hermann Þór Erlingsson. Elsku afi. Það er sárt að þú sért farinn en það huggar mig að hugsa til þín, hugsa um allar stundirnar sem við áttum saman. Þú varst allt- af góður við mig og það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þín. Þegar ég var yngri gafstu mér allt- af konfekt þegar ég kom í heim- sókn og þú hafðir alltaf einhverja skemmtilega sögu til að segja mér. Og alltaf þegar ég var að gera skólaverkefni kom ég beint til þín að því að þú kunnir svo margar sögur og þekktir svo vel sögur af Hornafirði. Þú mundir alltaf eftir afmælinu mínu og þegar ég fékk bílprófið bauð ég þér í bíltúr og þú lést mig keyra bílinn þinn. Það gladdi mig mjög að þú skyldir strax treysta mér fyrir að keyra bílinn þinn og ég man sérstaklega eftir því að ég og pabbi komum til þín ekki fyrir löngu síðan og þú ætlaðir að lána okkur bílinn þinn og þú réttir mér lyklana, en ekki pabba, og sagðir að ég kynni svo vel á bílinn. Svo núna síðustu mán- uði fannst mér svo indælt að alltaf þegar ég kom til þín hélstu í hönd- ina á mér á meðan ég var hjá þér. Það var líka gott að tala við þig því þú sagðir alltaf þínar skoðanir og varst alltaf hreinskilinn, eins og þegar ég var 15 eða 16 ára þá litaði ég hárið á mér dökkt og þú varst ekki hrifinn af því og þú sagðir það bara og þegar ég var komin með minn rétta lit aftur varstu ánægður með mig. Þú sagðir mér líka þegar þú varst ánægður með mig og ég held að þú hafir alltaf verið ánægð- ur með mig því þú hrósaðir mér svo oft og talaðir fallega til mín. Ég á eftir að sakna þess að koma ekki til þín um helgar og fara með þig á rúntinn og eins þess að hringja í þig og spjalla við þig. Þú komst með mér á rúntinn á nýja bílnum okkar helgina áður en þú fórst og við rúntuðum saman út í Ósland, það var yndislegt að þú skyldir koma með mér á rúntinn þá. Þú varst góður afi og ég á eftir að sakna þín mikið. Ég geymi alltaf góðar minningar og ást í hjarta mér. Þín Matthildur B. Gunnarsdóttir. HERMANN EYJÓLFSSON Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eigin- konu, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR ÁSTU STEFÁNSDÓTTUR, Reykjabraut 11, Reykhólum. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir alúðlega og kærleiksríka umönnun. Halla á lyflækningadeild 11E, þökk fyrir allt. Guð geymi ykkur öll. Páll Finnbogi Jónsson, Inga María Pálsdóttir, Hilmar Óskarsson, Aðalbjörg Pálsdóttir, Einar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, RAGNHILDAR VALGERÐAR JOHNSDÓTTUR, Sæviðarsundi 90, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigurjón Jónsson Bláfeld, Karen Kristjánsdóttir, Guðmundur Hafsteinsson, John Snorri Sigurjónsson, Jónína Björnsdóttir, Kristín Sigurjónsdóttir, Hildur, Kristján og Halla Karen. Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS DANÍELSSONAR, Guttormshaga. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Lundi. Ólöf Snælaugsdóttir, Ólafur K. Þorsteinsson, Helga Gísladóttir, Guðrún S. Þorsteinsdóttir, Hilmar Hoffritz, Bjarni H. Þorsteinsson, Þuríður S. Guðmundsdóttir, Daníel Þorsteinsson, Málfríður Hannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Allt frá því ég kom fyrst inn á heimili tengdaforeldra minna var mér mjög vel tekið. Hin ís- lenska gestrisni var þar í hávegum höfð. Eftir að við Þuríður fluttum í Kópavog 1998, höfðum við það fyrir sið að koma í heimsókn á Digranes- heiðina á sunnudögum. Þessar heimsóknir munu seint líða mér úr minni. Þú sagðir mér frá uppvexti þínum í Geiradalnum, allt frá því að nafni þinn sótti þig, hinn 2. desem- ber 1912, út á Bakka og gekk þér í föður stað, eftir að móðir þín dó. Þessar frásagnir geymi ég í hug- skoti mínu og mun segja langafa- börnum þínum þær í fyllingu tím- ans. Víst er að árin setja á manninn mark. Mér er sérlega minnistæð síðasta réttarferðin okkar, árið 2001 í Lögbergsrétt. Það var leið- indaveður og alls ekkert ferðaveð- ur fyrir gamlan og máttfarinn mann. Þú fórst nú samt úti í veðrið á viljanum einum saman, enda áhuginn mikill. Það kom ákveðinn glampi í augun og þú leist yfir safn- ið eins og þú hafðir gert árum sam- an, sem tómstundabóndi í Kópa- vogi. Um þetta gerðir þú eftirfarandi vísu. Það ég veit og það ég finn, það eru litlar fréttir, þetta er í síðasta sinn, sem ég fer í réttir. Hinn 12. desember sl. veiktist þú alvarlega og varst lagður inn á sjúkrahús. Ekki gafst þú þó upp, ekki svona fyrst í stað. En aðfara- nótt 15. febrúar sl. varstu ferðbú- inn og kvaddir þitt fólk og ég er þess fullviss að nafni þinn var nú ARNÓR AÐALSTEINN GUÐLAUGSSON ✝ Arnór Aðal-steinn Guðlaugs- son fæddist á Bakka í Geiradal í Reykhóla- hreppi hinn 5. ágúst 1912. Hann andaðist á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut hinn 15. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digranes- kirkju 21. febrúar. kominn aftur, rúmlega 90 árum síðar, að sækja nafna sinn. Hvort hann kom ríð- andi á einhverjum gæðinga sinna er ekki gott að segja, en víst að ykkur nöfnunum hefur gengið vel ferðin heim. Í dagrenningu eruð þið líklega komn- ir vestur fyrir Gils- fjörð. Það er vor í lofti þótt enn sé vika eftir af Þorra. Og Tindarnir gnæfa yfir gamla bæ- inn og bjóða ferða- langana velkomna heim. Guð blessi minningu þína. Þinn tengdasonur, Gunnlaugur Gunnlaugsson. Kveðja frá Sauðfjáreigenda- félagi Kópavogs Sú var tíðin að í Kópavogi var stundaður töluverður fjárbúskap- ur, bæði á bújörðum og af tóm- stundabændum. Í hópi þeirra síð- arnefndu var Arnór A. Guðlaugs- son. Með Svanfríði konu sinni og Guðbirni syni sínum rak hann myndarlegt fjárbú í bænum, lengst af við Digranesveg í jaðri íbúðar- byggðar og síðustu árin í fjárhúsa- hverfi í Fífuhvammslandi þar sem nú hefur risið Lindahverfi. Arnór var mikill áhugamaður um sauðfé og fjárbúskap og stundaði einnig hestamennsku á tímabili. Hann var minnisstæð kempa, dug- legur og samviskusamur, tillögu- góður og félagslyndur og var ritari í stjórn Sauðfjáreigendafélags Kópavogs um margra ára skeið. Hann var mikils metinn í okkar hópi og gerður heiðursfélagi 1997. Þótt aldurinn færðist yfir og nokk- ur ár væru liðin frá því að Arnór og fleiri félagar urðu að láta af kinda- eign vegna aðstöðuleysis fylgdist hann stöðugt með enda minnisgóð- ur með afbrigðum og fróðleiksfús. Því voru kindasögur af ýmsu tagi ætíð í fullu gildi. Litið var við í Fossvallarétt við Lækjarbotna og jafnvel skroppið í Húsmúlarétt neðan Kolviðarhóls þar sem Arnór hirti Kópavogsfé við sundurdrátt um fjölda ára enda fjárglöggur vel. Síðan var fylgst með heimtum á haustin því að hugurinn var alltaf við féð. Þennan góða félaga kveðja nú bæði núverandi og fyrrverandi félagar með virðingu og þökk. En áhugamálin voru fleiri, þar á meðal söfnun markaskráa. Safn Arnórs varð eftir því sem næst verður komist eitt hið besta á land- inu og færði hann Bændasamtök- um Íslands það allt að gjöf 1999, um 200 bindi flokkuð og skráð með dyggilegri aðstoð Guðbjörns. Það féll í hlut undirritaðs að taka við þessari veglegu gjöf og koma henni fyrir í bókasafni BÍ. Þá sem endra- nær var ánægjulegt að njóta gest- risni Arnórs og fjölskyldu hans. Um leið og undirritaður vottar Svanfríði og fjölskyldu innilega samúð vegna fráfalls Arnórs fyrir hönd fjáreigenda notar hann tæki- færið til að færa þeim öllum kærar kveðjur frá sér og fjölskyldu sinni. Mér er minnisstætt þegar við Arn- ór hittumst fyrst fyrir 25 árum uppi í Fossvallarétt. Öll okkar sam- skipti voru alla tíð hin ánægjuleg- ustu og kveð ég hann nú með sökn- uði. Minningarnar eru margar og góðar og í litlu fjárhjörðinni minni gætir enn áhrifa frá gimbrunum Botnu og Móhosu sem Arnór gaf dætrum mínum ungum á sínum tíma. Blessuð sé minning Arnórs A. Guðlaugssonar. Ólafur R. Dýrmundsson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.