Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 55
Kokkakeppni í Smáralind Í dag,
laugardaginn 1. mars, kl. 12–16
keppa tólf erlendir kokkar um tit-
ilinn „Food & Fun“ matreiðslu-
meistari ársins 2003, í Vetrargarð-
inum í Smáralind. Matreiddir verða
fiskréttir, kjötréttir og eftirréttir.
Sunnudaginn 2. mars kl. 14–16
keppa þjóðþekktir Íslendingar í
matreiðslu í boði Gestgjafans. Þar
hafa keppendur tvær klukkustundir
til að elda aðalrétt. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Opið hús hjá Ásatrúarfélaginu
verður að í dag, laugardaginn 1.
mars, kl. 14–18 á Grandagarði 8.
Haukur L. Halldórsson mun halda
fræðsluerindi um prímrúnir og
dagatal fornmanna. Hann mun
einnig ræða um spádóma og
stjörnukort til forna eftir því sem
tími og aðstæður leyfa. Allir eru vel-
komnir.
Furðufataball fyrir fatlaða í Ár-
seli í kvöld, laugardagskvöldið 1.
mars, kl. 19.30–22.30. Verð 400 kr.
og er 100 kr. ódýrara fyrir þá sem
mæta í grímubúningum. Andlits-
málun verður á staðnum og veitt
verða verðlaun fyrir frumlegustu
búningana.
Stangveiðifélagið Ármenn fagnar
30 ára afmæli sínu, en félagið var
stofnað 28. febrúar 1973. Í dag,
laugardaginn 1. mars, k. 14, fagna
þeir afmæli sínu í Árósum, félags-
heimili Ármanna, í Dugguvogi 13 í
Reykjavík. Jóhanna Benediktsdóttir
formaður býður gesti velkomna og
erindi halda: Jón Hjartarson, fyrsti
formaður Ármanna, Bjarni Krist-
jánsson, Gylfi Pálsson og Sigurður
Benjamínsson. Tónlistaratriði flytur
Guðmundur Haukur Jónsson. Allir
velkomnir.
Konur í landbúnaði kynna merki
sitt: Sól með húfu í dag, laug-
ardaginn 1., og sunnudaginn 2. mars
í Smáralind, í tengslum við kokka-
samkeppni Food and Fun Festival.
Í DAG
Vettvangsfræðsla Fuglavernd-
arfélags Íslands verður á morgun,
sunnudaginn 2. mars, kl. 13-15, við
Hvaleyrarlón, Hafnarfirði. Við Hval-
eyrarlón er oft mikið af fuglum á
þessum tíma. Einnig verður komið
við hjá Hafnarfjarðarhöfn. Hist
verður á uppfyllingunni við rennuna
inní lónið, bak við dælustöðina.
Fuglaskoðarar verða til leiðsagnar.
Á MORGUN
Íslenski Alpaklúbburinn heldur
Banff fjallamyndahátíð í Smára-
bíói dagana 10. og 11. mars nk. Að
þessu sinni verða sýndar 18 myndir.
Meginmarkmið Íslenska Alpa-
klúbbsins er að auka áhuga fólks á
fjallamennsku. Tvær íslenskar
myndir verða sýndar á hátíðinni og
er ein frá Ísklifurfestivali Ísalp árið
2000 en hin er frá ferð yfir Græn-
landsjökul. Stysta myndin er um 2
mínútur og sú lengsta um 49 mín-
útur.
Banff fjallamyndahátíðin er mynda-
samkeppni um fjallamennsku. For-
val myndanna er unnið af nefnd sem
velur um 40 myndir frá 29 löndum til
áframhaldandi þátttöku í keppninni.
Alþjóðleg dómnefnd velur síðan
bestu myndirnar í 8 flokkum. Upp-
lýsingar um Banff má finna á
http://www.banffcenter.ca
Miðasala fer fram í verslun Nanoq í
Kringlunni og í verslun 66°N í Lækj-
argötu. Miðaverð á hvort kvöld er
kr. 800. Allar nánari upplýsingar
ásamt lista yfir þær myndir sem
sýndar verða er að finna á vef Ís-
lenska Alpaklúbbsins www.isalp.is_
Alþjóðlega þýskuprófið TestDaF
verður haldið í Tungumálamiðstöð
HÍ í april. Prófið er ætlað þeim, sem
ætla að fara í nám í Þýskalandi í
haust. Prófgjaldið er kr. 8.000. Nán-
ari upplýsingar má finna undir
www.testdaf.de. Umsóknir eiga að
berast ekki síðar enn 13. mars nk.
Umsjón með prófinu hefur Peter
Weiss í Tungumálamiðstöð HÍ, net-
fang weiss@hi.is.
Kynning á vegum Rannsókn-
arstofnunar KHÍ Filip Paelman
kennari við Centre for Intercultural
Education, háskólanum í Gent í
Belgíu, heldur kynningu á vegum
Rannsóknarstofnunar KHÍ mánu-
dag 3. mars kl. 16 í stofu K 205 í
Kennaraháskóla Íslands v/
Stakkahlíð og er öllum opin. Fjallað
er um CLIM-aðferðina sem byggist
á hugmyndum um samvinnunám eða
samvirkt nám og hugmyndum um
margþætt fyrirmæli. Í CLIM er
áhersla lögð á að vinna með stöðu
nemenda í hópnum, þannig að allir
nemendur fái jafnan aðgang að
námsferlinu. Nemendur fá fjöl-
breytt verkefni, reyna sig í ólíkum
hlutverkum og allir eru þátttak-
endur. Grundvallarhugmyndir eru
m.a. þær, að allir geti gert eitthvað,
en enginn geti gert allt og að enginn
hafi lokið verkefninu fyrr en allir
hafi lokið því.
Á NÆSTUNNI
Sjálfstæðismenn halda opna
stjórnmálafundi á Austurlandi um
helgina undir yfirskriftinni: Góður ár-
angur - gjöful framtíð. Í dag, laug-
ardaginn 1. mars, kl. 15 á Seyðisfirði í
fundarsal Íþróttamiðstöðvarinnar
Herðubreiðar. Málshefjendur verða:
Arnbjörg Sveinsdóttir alþing-
ismaður, Björn Bjarnason alþing-
ismaður og Hilmar Gunnlaugsson
lögmaður. Á morgun, sunnudaginn 2.
mars, kl. 15 í Hótel Svartaskógi,
Norður-Héraði. Málshefjendur
verða: Arnbjörg Sveinsdóttir alþing-
ismaður, Þorgerður K. Gunnarsdóttir
alþingismaður og Hilmar Gunn-
laugsson lögmaður. Allir velkomnir.
STJÓRNMÁL
SÖFNUNIN Börn hjálpa börnum
stendur yfir dagana 1. til 22. mars.
Þetta er árlegt söfnunarátak ABC-
hjálparstarfs í samvinnu við grunn-
skóla landsins. Þessa daga munu
börn um allt land ganga í hús og
safna framlögum í merkta og núm-
eraða söfnunarbauka. Börnin eru
auðkennd með barmmerkjum með
sömu mynd og er á baukunum.
Söfnunarféð rennur óskert til
hjálpar umkomulausum börnum á
Indlandi og í Úganda.
Því verður í fyrsta lagi varið til
kaupa á 150 rúmum fyrir börn á El
Shaddai barnaheimilinu á Indlandi,
í öðru lagi byggingu skólahúss með
5 kennslustofum í Úganda og í
þriðja lagi byggingu verknáms-
skóla fyrir Heimili litlu ljósanna á
Indlandi. Fer bygging verknáms-
skólans eftir því hve mikið fé safn-
ast, en stefnt er að því að hægt
verði að koma a.m.k. einni deild
hans á laggirnar með söfnuninni.
Í söfnuninni í fyrra rann söfn-
unarféð, sem var rúmar 6 milljónir,
óskert til að ljúka byggingu El
Shaddai barnaheimilisins og eru
börnin að flytja inn í nýja húsið um
þessar mundir. Kostnaðurinn við
rúmin fyrir börnin á heimilinu og
byggingu barnaskólans í Úganda
sem safnað verður fyrir í ár nemur
samtals tæpum 3 milljónum. Bygg-
ing verknámsskólans kostar rúmar
7 milljónir og tæki og tól fyrir hin-
ar mismunandi deildir skólans
samtals um 4,7 milljónir króna.
Auk þess sem börn ganga í hús
og safna framlögum munu söfn-
unarbaukar standa frammi í öllum
bönkum, sparisjóðum, pósthúsum
og bensínstöðum á höfuðborg-
arsvæðinu og víðar. Reikningur
söfnunarinnar er í Íslandsbanka
nr. 515-14-110000 (kt. 690688-
1589).
Safna fyrir börn í
Úganda og á Indlandi
Söfnun ABC-hjálparstarfs hafin
Skeifan 4 • Sími 585 0000 • www.aukaraf.is • Opið frá kl. 9-18 • Laugardag frá kl. 10-16
Sendum í póstkröfu
F
rá
b
æ
r
ti
lb
o
ð
: • Magellan GPS-tæki
• GPS-aukahlutir s.s. plast-
pokar, tengi, loftnet o.fl.
• Talstöðvar, bíla-, báta- og
handtalstöðvar
• Aukahlutir fyrir talstöðvar
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Þjófavarnarkerfi
• Hljómflutningstæki fyrir bíla,
magnarar á frábæru verði,
mikið úrval hátalara
• GSM-handfrjáls búnaður
• Radarvarar
• Hleðslutæki
15-50%
afsláttur
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
Tilbo›
Barna
flíspeysur
bláar beinhvítar rau›ar fjólubláar
tilbo› 1.490 kr.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111