Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 29
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 29
STEFÁN Karl Stefánsson, leikari
og forsvarsmaður Regnboga-
barna, fjöldasamtaka áhugafólks
um einelti, tók í gær við mynd-
arlegu peningaframlagi sem nem-
endur Áslandsskóla höfðu safnað
á sérstökum menningardögum í
skólanum síðustu daga. Pen-
ingana fengu þau fyrir sölu á
myndefni ýmiss konar sem þau
unnu í skólanum og með sölu á
kaffi, kakó, vöfflum og öðru með-
læti í kaffihúsinu, Café Ásland,
sem eldri nemendur skólans sáu
um að reka. Að sögn Leifs Garð-
arssonar skólastjóra fóru menn-
ingardagarnir vel fram í alla staði
og var aðsókn á viðburði þeim
tengdum mjög góð. Í vikunni var
undankeppni í upplestri en tveir
nemendur skólans komast þaðan í
úrslit á upplestrarkeppni sem
haldin verður í Hafnarborg. Nem-
endur lásu ljós að eigin vali og
upp úr Heimsljósi eftir Halldór
Laxness.
Á menningardögunum hafa
stofur nemenda verið til sýnis auk
þess sem hver bekkur var með at-
riði í sal skólans.
Ágóðinn rennur til
Regnbogabarna
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Kristinn
LÚÐVÍK Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir neikvæð viðbrögð
Magnúsar Gunnarssonar, oddvita
sjálfstæðismanna, vegna tillögu
sinnar um auknar byggingafram-
kvæmdir í bæjarfélaginu vekja
undrun sína. Ekki sé um að ræða
neinar aðrar framkvæmdir en þær
sem full samstaða ríki um að fara í.
„Við erum fyrst og fremst að fara í
átak í að fjölga dagvistarplássum
sem er brýn ástæða til og ljúka ein-
setningu grunnskólanna sem hefur
legið fyrir,“ segir Lúðvík.
Hann segir að við afgreiðslu síð-
ustu fjárhagsáætlunar hafi Sjálf-
stæðisflokkurinn lagt fram tillögur
um að fara í stórkostlegar einka-
framkvæmdir til viðbótar við það
sem þegar hafi verið gert.
„Við að sjálfsögðu felldum það
vegna þess að það er ekki okkar
stefna að vera í þessum einkafram-
kvæmdum og um það var meðal ann-
ars kosið í síðustu kosningum.Við
teljum að þær einkaframkvæmda-
leiðir sem hér hafa verið farnar séu
ekki þær hagkvæmustu leiðir sem
eru í boði,“ segir hann.
Engin endanleg
ákvörðun tekin
Hann segir að ástæða þess að mál-
ið komi upp núna og með þessum
hætti sé að nýverið hafi stjórn Fast-
eignafélags Hafnarfjarðar tekið til
starfa en tillagan gangi út á að fela
henni að hefja undirbúning fram-
kvæmda. Engin endanleg ákvörðun
um framkvæmdir hafi hins vegar
verið tekin. Það verði bæjarráðs og
bæjarstjórnar að ákveða hvort rétt
sé að fara af stað.
Bæjarstjóri svarar
gagnrýni oddvita D-lista
Samstaða
um fram-
kvæmdir
Hafnarfjörður
♦ ♦ ♦
BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar hefur
ákveðið að nýta sér eignarnáms-
heimild á gamla ullarþvottarhúsinu í
Álafosskvosinni en umhverfisráðu-
neytið veitti bænum heimildina fyrr í
mánuðinum. Var samþykkt á fundi
bæjarráðs í síðustu viku að senda
eiganda hússins bréf um ákvörð-
unina hið fyrsta.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá hyggst bærinn rífa húsið
til að framfylgja deiliskipulagi fyrir
Álafosskvosina sem samþykkt var
árið 1997 en ekki hefur náðst sam-
komulag við eiganda þess um upp-
kaup eignarinnar.
Eignar-
námsheim-
ild nýtt
Mosfellsbær