Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Er vit í hlátri? Mikilvægi hlát- urs athugað ÞJÓÐLEIKHÚSIÐog Háskóli Íslandsstanda að sameig- inlegri dagskrá á stóra sviði Þjóðleikhússins í dag. Dagskráin er liður í hátíðarhöldum vegna Vetrarhátíðar Reykjavík- urborgar 2003 og er hún tileinkuð hlátri í öllum sín- um myndum. Guðrún J. Bachmann kynningar- stjóri er í forsvari fyrir dagskrána og svaraði hún nokkrum spurningum. – Hvað felst í yfirskrift- inni „Er vit í hlátri?“? „Það má lesa ýmislegt út úr þessari yfirskrift. Hún getur falið í sér vangaveltur um hvort hlátur geri eitthvert gagn, hvort hann sé tóm léttúð og alvöruleysi eða hvort hann hafi eitthvert annað og jafnvel æðra hlutverk. Svo má spyrja sig hvort sé eitthvert vit í að vera yfirhöfuð að ræða um hlátur af fullri al- vöru.“ – Hverjum datt í hug að halda dagskrá um þetta efni? „Þegar leitað var til Háskóla Íslands um þátttöku í Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar fórum við að velta fyrir okkur ýmsum árstíða- bundnum viðfangsefnum, svo sem skammdeginu, vorinu sem nálg- ast, ýmu í þjóðfræðum og menn- ingarfræði sem tengdist árstím- anum, kjötkveðjuhátíðum og svo framvegis. Einhvern veginn fór efnið að tengjast æ meir fögn- uðinum yfir því að vera til, gleðinni í lífinu. Þá kom Hugvís- indastofnun með þá hugmynd að halda ráðstefnu um hlátur og skop. Þegar málið var skoðað frekar sáum við hvað listin leikur stórt hlutverk í sögu hlátursins og meðal annars þess vegna þótti okkur mikilvægt að leita sam- starfs við listamenn. Hugmynd- inni var strax mjög vel tekið í Þjóðleikhúsinu, að tvinna saman listir og vísindi og vinna sameig- inlega dagskrá um hlátur.“ – Eru einhverjar sérstakar áherslur í dagskránni? „Fyrst og fremst langaði okkur að nálgast efnið frá sem flestum hliðum og möguleikarnir eru næstum óendanlegir. Fræðimenn og spekingar hafa um aldaraðir velt fyrir sér fyrirbærinu hlátri og mikilvægi hans fyrir mann- skepnuna. Það sama hafa lista- menn gert í gegnum tíðina. Þess vegna var lögð áhersla á að setja saman dagskrá sem sýndi sem flestar hliðar hlátursins: Hlut- verk hláturs í samfélaginu og menningarsögunni, mikilvægi hans í daglegu lífi og lækninga- gildi hláturs fyrir sál og líkama, svo eitthvað sé nefnt.“ – Hvernig verður dagskráin samsett? „Það verða flutt sjö erindi um hlátur, frá margvíslegum sjónar- hornum fræðanna. Inni á milli er- indanna og innan þeirra verða flutt leikin, lesin og sungin atriði sem hvert á sinn hátt vekur hlátur og gleði. Stundum verður hluti erindanna „leikgerð- ur“. Sem sagt tal og tónar, gamansöm al- vara í bland við alvöru gaman- semi.“ – Er dagskráin fyndin eða á hún bara að útskýra hvað fyndni er? „Það verður örugglega hlegið og það verður gaman. Spurning dagsins er kannski þessi: Hvað er fyndið og hvers vegna? Hvers vegna hlæjum við? Kannski er ekki einu sinni hægt að útskýra fyndni. Eða hlátur. En það er varla hægt að hugsa sér skemmtilegra viðfangsefni!“ – Nefndu okkur nokkur dæmi um dagskrárliði? „Kynnir hátíðarinnar er Örn Árnason, einn fremsti gleðigjafi þjóðarinnar. Meðal erinda má nefna að Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fjallar um hlátur og stjórnmál. Auðbjörg Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur talar um hlátur og heilbrigði, Þorbjörn Broddason fjölmiðla- fræðingur flytur erindi um húmor í fjölmiðlum og Torfi H. Tulinius bókmenntafræðingur fjallar um Freud og hláturinn. Torfi er jafn- framt forstöðumaður Hugvísinda- stofnunar Háskóla Íslands sem hefur átt drjúgan hlut í undirbún- ingi dagskrárinnar. Aðrir fyrir- lesarar eru Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur, Gottskálk Þór Jensson fornfræðingur og Friðrik Rafnsson bókmenntafræðingur. Einvalalið leikara Þjóðleik- hússins mun leiklesa, syngja og leika úr gömlum og nýjum verk- um, auk þess að skreyta erindin með ýmsum hætti. Þarna stíga á svið Pálmi Gestsson, Þórunn Lár- usdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Ólafur Darri Ólafsson, Atli Rafn Sigurðarson og auðvitað Örn Árnason.“ – Var mikið hlegið þegar þið skipulögðuð dagskrána? „Við skemmtum okkur alveg konunglega, það var mikið hlegið og af fullri alvöru. Þetta þyrfti að vera árviss atburður.“ – Fyrir hverja er þessi dagskrá? „Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Dagskráin er fyrir alla, en líklega una yngstu börnin sér þó betur við að spjalla við Sollu stirðu og Höllu hrekkjusvín frammi á gangi á meðan foreldr- arnir hlýða á erindi, en dagskráin er þannig uppbyggð að allir eiga að geta notið hennar eða einhvers hluta hennar.“ Guðrún J. Bachmann  Guðrún J. Bachmann fæddist 1953. Stúdent frá MH og bók- menntafræðingur frá HÍ. Starf- aði um árabil við þýðingar, kennslu, búskap og fleira. Frá 1984 textagerð, hugmyndasmíði og almannatengsl á auglýsinga- stofum. 1993–2001 markaðs- og kynningarstjóri Þjóðleikhússins og kennari við Endurmennt- unarstofnun HÍ og víðar. Frá 2001 verkefnastjóri á þróunar- og kynningarsviði Háskóla Ís- lands og kynningarstjóri Háskól- ans frá 2002. Maki er Leifur Hauksson dagskrárgerðarmaður og eiga þau fimm börn og tvö barnabörn. … örugglega hlegið og það verður gaman ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 03 52 03 /2 00 3 afsláttur af öllum vorlaukum & fræjum frá föstudegi til sunnudags 20% ræktunardagar Nei, nei, Guðni, þú átt ekki heima í Valhöll og Davíð er ekki pabbi þinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.