Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 34
LISTIR 34 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur Hátúni 14 kl. 10–14 Íþróttafélag fatlaðra býður gestum að prófa bogfimi, borðtennis, boccia, lyftingar o.fl. undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda. Vetrargarður í Smáralind kl. 12 Alþjóðleg keppni matreiðslu- meistara – Food & Fun Austurvöllur kl. 13 Leikskólabörn sýna eigin myndverk. Sundahöfn kl. 13 Menningar- ganga í Viðey. Kristinn E. Hrafnsson myndlistar- maður og Ragnar Sigurjóns- son, ráðsmaður í Viðey, leiða göngu þar sem kynnt er úti- listaverk Richards Serra og náttúra og saga. Þjóðleikhhúsið kl. 13–16.30 Er vit í hlátri? – Háskóli Ís- lands og Þjóðleikhúsið hafa tekið höndum saman um dag- skrá sem tileinkuð er hlátri í öllum myndum. Þar leiða fræðimenn Háskólans og lista- menn Þjóðleikhússins saman hesta sína. Ásgarður, Glæsibæ, kl. 13.30 Lífsorka og létt lund. Dagskrá Félags eldri borg- ara. Karl Ágúst Úlfsson flytur erindið „Um gildi húmors“. Borgarleikhúsið kl. 14 Ljósin í leikhúsinu - Á dag- skrá verða m.a. atriði úr sýn- ingum sem eru á fjölunum um þessar mundir. Þá mun Dísa ljósálfur birtast og leikarar Nýja sviðsins búa til Draumspuna með börnunum í salnum. Athyglinni verður beint að samspili ljóss og skugga og ljósamenn hússins framkvæma gjörning. Að- gangur er ókeypis. Miðberg, Gerðubergi kl. 14 Bland í poka-hópurinn Léttir laugardagar sýnir eigin kvik- mynd, syngur og er með uppi- stand. Gerðuberg kl. 15 Þetta vil ég sjá! Ingibjörg Sólrún Gísladóttir velur verk á sýninguna. Kl. 16 Gerðubergskórinn syngur vetrarlög, Flosi Bjarnason kveður rímur og Hjálmar Jónsson dómkirkju- prestur svarar honum með vísum og glettni. Söngur og dans. Alþjóðahús, Hverfisgötu, kl. 16 Opnuð verður sýning á búlg- örskum listmunum og Hilmir Snær Guðnason leikari og Júl- íana Grigorova Tzankova lesa búlgarskar sögur og ljóð. Kl. 20.30 syngur Tzvetana Peeva búlgörsk þjóðlög. Hitt húsið, Pósthússtræti 3–5 kl. 16–22.30 Stanslaus tónlist á Loftinu, sýningin Hverfull í Gallerí Tukt, Tukthús í kjallaranum. Opið hús. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar kl. 17 Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleik- ari og Anna Málfríður Sigurð- ardóttir píanóleikari taka for- skot á sumartónleika safnsins og leika verk eftir Bach, Jón- as Tómasson, Saint-Saëns og Chopin. Breiðholtsbrekkan kl. 17 ÍTR stendur fyrir bretta- stökki unglinga. Ingólfstorg kl. 18–24 Galopið bíó. Íslenskar og er- lendar stuttmyndir sýndar. Kvikmyndasýningum verður haldið áfram fram eftir nóttu á Sirkus. Austurbær, Snorrabraut 37, kl. 18 og 21 Páll Rósinkranz, Karlakórinn Stefnir og hljómsveit sýna á sér rómantísku hliðina. Miðaverð í forsölu í Japis og Máli og menningu. Perlan, Öskjuhlíð, kl. 19.30–24 Alþjóðlegur matreiðslumeist- ari ársins – Iceland Naturally Food & Fun Chef of the year 2003 – verð- launaður. Gala- kvöld í Perl- unni með sérstökum há- tíðarmatseðli. Öskjuhlíð kl. 20.45 Öfl góðs og ills mætast í Öskjuhlíð og almenningi gefst kostur á að fylgjast með af svölum Perl- unnar. Gjörningaklúbburinn og slökkvilið höfuðborgar- svæðisins skapa sjónarspil. Sundhöll Reykjavíkur kl. 20.30 Íslenskir og danskir sund- kappar heyja einvígi á sundi undir glitrandi ljósum og glymjandi tónlist. Listasafn Reykjavíkur – Hafn- arhús kl. 21–23 Ákveðin ókyrrð / Certain Turbulence. Gjörningar nem- enda í LHÍ. Iðnó kl. 24 Miðnæturtónleikar Þvotta- kvenna Sérstakur gestur Vetrarhátíð- ar, er hin finnska sveit Clean- ing Women. Kringla, efri hæð Ljóðið í Fókus – Ljósmynda- félagið Fókus tengir saman ljóð og ljósmyndir sem vísa á margvíslegan hátt til vetrar- ins. Sýningin stendur til 9. mars. SÍM-húsið, Hafnarstræti 16 Helga Óskarsdóttir og Magn- ús Kjartansson sýna hið leyni- lega landslag borgarinnar. Sýningin verður opin 1. og 2. mars kl. 13–18. SPRON, Skólavörðustíg Upplýstar tilfinningar – Ef lengi er staldrað við er hægt að upplifa 80 tilfinningar, sem verða æ sterkari eftir því sem rökkvar. Verk Haraldar Jóns- sonar myndlistarmanns. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Ó!Frjáls? Verðlaunaverk Al- freðs Sturlu Böðvarssonar, 2. verðlaun í hugmyndasam- keppni Vetrarhátíðar. Ingólfsstræti 8 kl. 20 Opna galleríið. Íslenskir myndlistarmenn, sem staddir eru í útlöndum sýna. Sýningin er opin kl. 13–17 til sunnu- dags. Epal, Skeifunni 6 Ljósin í borginni – Sýning á myndum Önnu Maríu Sigur- jónsdóttur ljósmyndara. Sýn- ingin stendur til 22. mars. Eldskálin við Reykjavíkurtjörn er orkubrunnur Vetrarhátíðar 2003. Í henni logar eldur með- an Vetrarhátíð stendur. Stytturnar tala Hringdu í þær gjaldfrjálst og hlustaðu á það sem fram fer í koparhöfði Jóns Sigurðssonar, Pilts og stúlku, Skúla fógeta, Hannesar Hafstein, Bertels Thorvaldsen, Jónasar Hall- grímssonar, Ólafs Thors, Kristjáns níunda, Adonis, Pal- las Aþenu, Friðriks Friðriks- sonar og Ingólfs Arnarsonar. Styttur bæjarins svara í síma meðan á Vetrarhátíð stendur en símanúmerin eru á stytt- unum. Kort af styttum bæj- arins fæst í Ráðhúsinu, Lista- safni Reykjavíkur og Upplýs- ingamiðstöð ferðamála. Vetrarhátíð GJÖRNINGAKLÚBBURINN mætir Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins í Öskjuhlíð í kvöld kl. 20.45 í tilefni af Vetrarhátíð í Reykjavík og getur almenningur fylgst með sjónarspilinu af svölum Perlunnar. „Við erum að fara að vinna með Slökkviliðinu, fyrst og fremst, en svo eru margir aðrir sem blandast inn í þetta, kvenna- kór og fleiri, þannig að þetta verð- ur mikið „show“. Með þessu erum við að reyna að lækna ófriðinn í sálu fólks,“ segir Eirún Sigurð- ardóttir, sem ásamt þeim Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfs- dóttur skipa Gjörningaklúbbinn. Í fyrra óskaði Slökkviliðið eftir sam- starfi við Gjörningaklúbbinn fyrir Ljósahátíðina, sem tókst svo vel að ákveðið var að halda samstarf- inu áfram í ár. „Þeir opna allt hjá sér fyrir okkur, við megum nota allan mannskap og græjur. Við vinnum því með Slökkviliðið eins og hvert annað efni.“ „Þakka ykkur fyrir að sætta okkur! Við gerðum okkur ekki grein fyrir eyðileggingarmætti reiðinnar!“ er setning sem Eirún segir kristalla það sem fram fer í kvöld. „Við viljum auðvitað ekki fara að segja alveg nákvæmlega hvað gerist, sjón er sögu ríkari og allt það gamla grín. En þessi setn- ing er mjög lýsandi fyrir það sem við erum að fara að gera.“ Gjörningaklúbburinn er þekktur fyrir skemmtilegar uppákomur af ýmsu tagi og hljómar þessi ekki síður spennandi. Eirún segir þessa sýningu vera eitthvað sem allir aldurshópar ættu að geta haft gaman af. „Þetta er einstakt tæki- færi, eitthvað sem hefur ekki verið gert áður og verður ekki gert aft- ur,“ segir hún að síðustu. Ljós og skuggar í brennidepli Ýmislegt fleira forvitnilegt er á dagskrá Vetrarhátíðar í dag. Fjöl- skyldudagskráin „Ljósin í leikhús- inu“ fer fram í Borgarleikhúsinu kl. 14, þar sem listamenn leikhúss- ins koma fram á stóra sviðinu. Flutt verða atriði úr sýningum sem eru á fjölunum um þessar mundir, m.a. söngatriði úr Sól og Mána og Ljóta andarunganum, at- riði úr Púntila bónda og Matta vinnumanni eftir Bertold Brecht, sem er næsta frumsýning leik- hússins á stóra sviðinu. Íslenski dansflokkurinn sýnir atriði úr sýn- ingunni Lát hjartað ráða för, og Dísa ljósálfur heimsækir gestina. Ljós og skuggar verða í brenni- depli, en ljósamenn hússins munu framkvæma ljósasýningu með tón- list. Hanna María Karlsdóttir leik- kona sér um dagskrána. Þetta vill Ingibjörg Sólrún sjá Þá verður opnuð sýningin Þetta vil ég sjá! í Gerðubergi kl. 15. Að þessu sinni velur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verk á sýninguna, eftir 22 íslenska listamenn. Þeirra á meðal eru Gabríela Friðriksdóttir, Georg Guðni, Húbert Nói, Ilmur Stefánsdóttir, Ragna Róberts- dóttir, Rúrí, Spessi og Sigurður Guðmundsson, en verkin eru öll gerð á árunum 1989-2003. „Ég á verk eftir suma þessara listamanna, en annað eru verk eft- ir listamenn sem ég hef fylgst með og haft áhuga á,“ segir Ingi- björg Sólrún, en hún á sjálf þrjú verkanna sem eru á sýningunni. Hún segist þó ekki vera sérstakur listaverkasafnari. „Það er meira tilviljun sem ræður því hvað það er, sem ég eignast.“ Ingibjörg segir val sitt nokkuð handahófskennt og að ekkert sér- stakt þema einkenni verkin sem valin eru til sýningarinnar. „Það er einmitt frekar þetta: Hvað ég vil sjá.“ Skilyrði fyrir vali á sýn- inguna er að verkin séu eftir núlif- andi listamenn, sem skýrir ef til vill hvers vegna Kjarval og fleiri gamlir meistarar urðu ekki fyrir valinu hjá Ingibjörgu. „Ég hef mjög gaman af abstrakt-málurum, en það er í sjálfu sér bara einn slíkur þarna á meðal á sýningunni, Hafsteinn Austmann. Þeim hefur fækkað.“ Þrátt fyrir áhuga Ingi- bjargar á abstrakt-málaralist end- urspeglast mikill fjölbreytileiki í vali hennar, þar er allt frá inn- setningum til málverka. „Ég hugs- aði þetta sem þversnið og lagði áherslu á að vera ekki bara með málverk, heldur einnig ljósmyndir, innsetningar og líkan, svo eitthvað sé nefnt, til þess að endurspegla þessa flóru sem er í myndlistinni.“ Fiðla og píanó leysa úr dvala Í Listasafni Sigurjóns Ólafs- sonar á Laugarnestanga verður risið úr vetrardvala, eins og yf- irskrift tónleika þar í dag kl. 17, gefur til kynna. Þá leika Hlíf Sig- urjónsdóttir fiðluleikari og Anna Málfríður Sigurðardóttir píanó- leikari einleiksverkið Vetrartré eftir Jónas Tómasson, samið fyrir Hlíf Sigurjónsdóttur 1982-83, Næturljóð opus 9 og opus 27 ásamt Fantasíu opus 49 í f moll eftir Chopin sem Anna Málfríður mun leika, og samleiksverk fyrir fiðlu og píanó eftir Þórarin Jóns- son, Atla Heimi Sveinsson, Fritz Kreisler og Saint-Saëns. Á morg- un mæta þær Hlíf og Anna Sigríð- ur einnig til leiks í safninu, en milli kl. 14 og 15 flytja þær létta skemmtitónlist fyrir gesti safns- ins. Jafnframt verður leiðsögn um sýninguna Andlitsmyndir og af- straksjónir kl. 14 og 16 á morgun. Slökkviliðið efniviður Gjörningaklúbbsins Flutt verða atriði úr Ljóta andarunganum og fleiri sýningum Borgarleikhússins á fjölskyldudagskrá í dag. Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari og Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu- leikari leika í Listasafni Sigurjóns í dag kl. 17 og á morgun kl. 14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.