Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 9
REGINA Pokorna, stórmeistari í
skák, vann í fyrrakvöld 14 karl-
menn í fjöltefli Taflfélagsins Hróks-
ins og Húsasmiðjunnar. Regina,
sem er 21 árs, tefldi við 16 karl-
menn í einu. Hún gerði eitt jafntefli
og tapaði einni skák, gegn Gunnari
Þorsteinssyni, iðnaðarmanni í
Húsasmiðjunni. Fjölteflið tók um
tvær klukkustundir og var fín
stemning í salnum, að sögn Hauks
Parelius, markaðsstjóra Húsa-
smiðjunnar. Hann sagði mikla
spennu hafa skapast í lokin þegar
mennirnir höfðu alltaf skemmri og
skemmri tíma gegn Reginu, en hún
hefur 2.375 skákstig.
Morgunblaðið/Jim Smart
Regina
Pokorna vann
14 skákir í
fjöltefli
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar
sem íslenska ríkið var sýknað af
kröfu karlmanns um 17,5 milljóna
króna bætur vegna ætlaðra mistaka
við skurðaðgerð sem hann gekkst
undir. Hæstiréttur taldi að ekki yrði
séð að stoðum hefði verið rennt und-
ir þá staðhæfingu mannsins að mis-
tök hefðu orðið í aðgerðinni eða und-
irbúningi hennar.
Maðurinn gekkst undir aðgerð
vegna samfallins vinstra lunga og í
kjölfarið komu fram taugaskemmdir
sem leiddu til þess að vinstri hönd
og handleggur varð manninum til
lítilla nota. Var örorka hans metin
50% en hann starfaði sem trésmið-
ur.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram,
að í málinu hafi legið fyrir nokkur
fjöldi læknisfræðilegra álita. Við
meðferð málsins ríkti vafi um það
hvort maðurinn kunni að hafa
rumskað fyrir lok aðgerðar eða ekki
og fengið svæfingarlyf til viðbótar
hinum fyrri. Fullyrðing skurðlæknis
um það njóti ekki stuðnings í skráð-
um samtímagögnum og önnur vitni
en hann sjálfur minnist þess ekki.
Það verði því ekki lagt til grund-
vallar dómi, að svo hafi verið. Engu
að síður verði að leggja heildarmat á
fram komin læknisfræðileg álit, þótt
sumir álitsgjafar hafi tekið mið af
því, að maðurinn gæti hafa losað
svefn of snemma og hreyft hand-
legginn. Þegar gögn málsins séu
þannig virt verði ekki séð, að stoðum
hafi verið rennt undir þá staðhæf-
ingu mannsins að mistök hafi orðið í
aðgerðinni eða undirbúningi hennar.
Ríkið sýknað af
skaðabótakröfu
TVEIR menn voru handteknir
þegar fíkniefni fundust við hús-
leit á Ísafirði. Við leitina fann
lögreglan á Ísafirði 75 grömm
af kannabisefnum. Auk efn-
anna fundust áhöld sem talin
eru hafa verið notuð til neyslu
og annarrar meðhöndlunar
fíkniefna. Húsleitin kom til eft-
ir að grunur vaknaði hjá lög-
reglunni um að tvímenningarn-
ir tengdust fíkniefnaneyslu og
einnig dreifingu þessara efna.
Mennirnir hafa viðurkennt
að hafa átt efnið en hafa sagt
það til eigin neyslu. Efninu allt
var hins vegar vandlega skipt
upp í grammaeiningar, rétt
eins og um söluefni væri að
ræða. Mönnunum hefur verið
sleppt.
Hald lagt á
75 grömm
af hassi
Ný gallapils
Nýjar skyrtur
Stærðir 36-42 & 44-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-16
Nýjar vörur
Fermingar nálgast
Glæsilegt úrval af kjólum,
drögtum og dressum
Einnig frábær ferðafatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
15%
afsláttur
Langur laugardagur
„Ljósahátíð í bænum“
Full búð
af fallegum vörum
Hálfermabolur (HEATWAY)
ný sending
Laugavegi 34, sími 551 4301
Hver einasti hlutur í búðinni á hálfvirði
- tveir fyrir einn meðan birgðir endast.
Húsgögn, púðaver, rúmteppi, ljós, fatnaður gjafavara,
perutoppar og -jakkar
Gerið ótrúleg kaup!
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15 og sunnudag kl. 13-16.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Okkar árlega
rýmingarsala
Kínversk leikfimi - Wushu art (Kung fu)
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Hugræn teygjuleikfimi
Gong Fa
Tai Chi
Sjálfsvörn
Wushu art fyrir börn
Wushu art fyrir unglinga og fullorðna
Einnig kínversk heilsumeðferð
Orka Lækningar Heimspeki
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
með Ásmundi Gunnlaugssyni
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til
þess að að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði.
Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða,tekur
fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg
lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist
reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
Hefst fimmtudaginn 12. mars - Mán. og mið. kl. 20:00.
Jóga gegn kvíða
Langur laugardagur
15% afsláttur af öllum vörum