Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 30
AKUREYRI
30 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
„ÉG er stolt af foreldrum í Reykja-
nesbæ og mun halda þessu frum-
kvöðlastarfi þeirra á lofti, eins og
mér framast er unnt,“ sagði Krist-
björg Hjaltadóttir, starfsmaður
landssamtakanna Heimili og skóli,
á blaðamannafundi í safnaðarheim-
ilinu Kirkjulundi í Keflavík í gær
þar sem kynntar voru nýútkomnar
handbækur foreldrafélaganna í
grunnskólum Reykjanesbæjar.
Það voru foreldrafélög og for-
eldraráð grunnskólanna fjögurra í
Reykjanesbæ (FFGÍR) í samstarfi
við forvarnaverkefnið Reykja-
nesbæ á réttu róli (RÁRR) sem boð-
aði til fundarins. Í handbókunum
eru settir fram starfshættir, mark-
mið og leiðir foreldrafélaganna og
er útgáfa þeirra liður í gæðaverk-
efninu „Betri foreldrafélög í
Reykjanesbæ“ sem FFGÍR tekur
þátt í að tilstuðlan Jóhanns B.
Magnússonar, formanns Íþrótta-
bandalags Reykjanesbæjar.
Hvert foreldrafélag hefur sett
saman sína handbók þar sem sér-
staða hvers skóla kemur fram auk
sameiginlegra markmiða foreldra-
félaganna sem sett eru fram undir
kjörorðinu „Að róa á sömu mið“.
Hvert félag leggur áherslu á að efla
samstarf heimila og skóla með
ýmsu móti, svo sem með því að setja
sér markmið, taka þátt í sameig-
inlegu starfi FFGÍR, efla upplýs-
ingaflæði, kynna félagið, kjósa
bekkjafulltrúa og koma á foreldra-
samstarfi, svo eitthvað sé nefnt.
Helga Margrét Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri á vegum RÁRR,
sagði á fundinum að hér væri á
ferðinni mjög athyglisvert frum-
kvöðlastarf sem vert væri að gefa
gaum. „Þetta mikla starf foreldra-
félaganna í grunnskólum Reykja-
nesbæjar, sem allt er unnið í sjálf-
boðavinnu, er til fyrirmyndar fyrir
landið.“ Í máli Helgu Margrétar
kom einnig fram að félög grunn-
skólanna fjögurra í Reykjanesbæ
væru fyrst til þess að gefa út slíkar
bækur og að hér væri á ferðinni
mikilvæg upplýsingamiðlun sem
hefði jákvæð áhrif á samstarf heim-
ila og skóla. „Slíkt samstarf er öll-
um til hagsbóta. Séu foreldrar með
jákvætt viðhorf til skólanna og
kennaranna á börnunum eftir að
ganga betur í skólanum,“ sagði
Helga Margrét undir lok fundarins.
Formenn foreldrafélaganna af-
hentu Árna Sigfússyni, bæjarstjóra
Reykjanesbæjar, fyrstu eintökin af
handbókunum fjórum. Einnig
fengu fulltrúar fræðslusviðs, fjöl-
skyldu- og félagsmálasviðs og
íþrótta-, menningar- og tóm-
stundasviðs bæjarins handbæk-
urnar að gjöf.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Halldór Rósmundur Guðjónsson, formaður foreldrafélags Njarðvíkurskóla,
afhendir Árna Sigfússyni bæjarstjóra fyrsta eintakið af handbók félagsins.
Jákvætt viðhorf
foreldra skilar betri
námsmönnum
Reykjanesbær
Foreldrafélögin gefa út handbækur
UNNIÐ er að gerð þjónustusamn-
ings embættis sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hf. Við það verð-
ur öll öryggisgæsla við flugfarþega
á einni hendi.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hef-
ur sagt upp samningi sínum við Ör-
yggismiðstöð Íslands varðandi ör-
yggisgæslu í flugstöðinni. Tíu
starfsmönnum verður sagt upp frá
og með næstu mánaðamótum. Jó-
hann R. Benediktsson sýslumaður
segir að hluta þeirra starfsmanna
sem unnið hafa samkvæmt þessum
samningi verði boðin vinna hjá
embættinu, líklega sex mönnum.
Jóhann segir að flugvallarstjór-
inn á Keflavíkurflugvelli og Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar hf. hafi ver-
ið með sjálfstæðar öryggisdeildir
og hafi starf þeirra skarast við
starfsemi sýslumannsembættisins
sem bæri ábyrgð á öryggisgæslu
vegna flugfarþega. Öryggisdeild
flugvallarstjórans hafi verið sam-
einuð embættinu um síðustu ára-
mót og með þjónustusamningi
Flugstöðvar og sýslumannsemb-
ættis verði framkvæmdin á einni
hendi. Býst Jóhann við að gengið
verði frá þessum samningi á næstu
dögum.
Samningur Öryggismiðstöðvar
Íslands og Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar fellur úr gildi 1. júní. Jó-
hann segir að sýslumaður taki ekki
við öllum þeim störfum sem örygg-
isverðirnir hafa unnið að, svo sem
öryggisgæslu í verslunum og hús-
gæslu. Þau verði væntanlega áfram
boðin út.
Öryggisgæsla
vegna flugs
á einni hendi
Keflavíkurflugvöllur
KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir að framlag
Akureyrarbæjar til Leikfélags Ak-
ureyrar til reksturs atvinnuleikhúss
muni verða 80 milljónir króna á
þessu ári. Um frekari fjárveitingar
verði ekki að ræða á árinu til þess-
arar listastarfsemi.
Öllu starfsfólki LA, 15 manns, var
sagt upp störfum nú um mánaðamót-
in, en uppsagnir taka gildi á næstu
mánuðum. Félagið hefur átt við fjár-
hagsvanda að stríða undanfarin
misseri.
Kristján Þór sagði að bærinn hefði
gert forsvarsmönnum LA það ljóst
um mánaðamótin október/nóvember
á liðnu ári að félagið fengi þessa fjár-
hæð, 80 milljónir, „og staðan er sú
sama nú, hún hefur ekkert breyst,“
sagði Kristján Þór.
Hann sagði að svo virtist sem
starfsemi félagsins rúmaðist ekki
lengur innan þess fjárhagsramma
sem því hefði verið settur og því
hefði verið gripið til þeirra ráðstaf-
ana að segja starfsfólki upp.
„Ég legg áherslu á það að stjórn
LA ber alla ábyrgð á ráðstöfun
þeirra fjármuna sem félagið hefur til
umráða og Akureyrarbær mun ekki
hlutast til um innri málefni þess,“
sagði bæjarstjóri. Hann sagði engin
áform uppi um að draga úr þátttöku
og framlögum Akureyrarbæjar á
sviði menningarmála, „en um frekari
fjárveitingar til rekstrarins á þessu
ári er ekki að ræða,“ sagði hann.
Það hvernig bærinn myndi styðja
og styrkja við leiklistarstarfsemi
innan vébanda sveitarfélagsins að
liðnu þessu ári sagði bæjarstjóri að
menningarmálanefnd hefði verið fal-
ið að hafa forgöngu um að móta
stefnunua og myndi vinna að því á
næstu mánuðum. „Það er hins vegar
alveg ljóst í mínum huga að ekki get-
ur orðið af endurnýjun á samstarfs-
samningi milli Akureyrarbæjar og
Leikfélags Akureyrar í óbreyttu
formi.“
Framlag Akureyrarbæjar til LA 80 milljónir í ár
Engar frekari
fjárveitingar á árinu
STOFNFUNDUR undirbúnings-
félags um byggingu jarðganga undir
Vaðlaheiði var haldinn í Valsárskóla
á Svalbarðsstönd í gær. Félagið
hlaut nafnið Greið leið ehf. Tilgangur
þess er að standa fyrir nauðsynleg-
um undirbúningi fyrir stofnun félags
um gerð og rekstur jarðganga undir
Vaðlaheiði, m.a. kynningarstarf,
áætlanagerð og samninga við ríkið
og fjárfesta.
Stofnendur félagsins eru 30 tals-
ins, 20 sveitarfélög, þ.e. öll sveitar-
félög á Norðurlandi eystra auk 10
fyrirtækja á svæðinu.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
á Húsavík, sagði ánægjulegt hversu
góð samstaða væri um málið á svæð-
inu og þá væri félaginu mikilvægt að
fá fyrirtæki til liðs við sig, m.a.
byggðafestufyrirtæki.
Hlutafé Greiðrar leiðar ehf er
samtals rúmar 4,4 milljónir króna.
Hlutur Akureyrarbæjar er stærstur,
tæplega 1,6 milljónir króna, þá greið-
ir Þingeyjarsveit 500 þúsund krónur
í hlutafé, en Jóhann Guðni Reynis-
son sveitarstjóri sagði sveitarfélagið
eiga mikilla hagsmuna að gæta varð-
andi Vaðlaheiðagöng. Hvatti hann til
þess að hratt væri unnið að málinu
nú á næstu mánuðum.
Fyrirtækin sem leggja fram
hlutafé eru Alli Geira ehf., Brim hf.,
Flytjandi/Eimskip, Grímu ehf.,
Kaupfélag Eyfirðinga, Norðlenska,
Norðurmjólk, SBA-Norðurleið,
Skipaafgreiðsla Húsavíkur og Vél-
smiðja Steindórs. KEA leggur fram
eina milljón króna í hið nýstofnaða
félag.
Pétur Þór Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Eyþings, samtaka
sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslum, sagði viðtökur betri en
menn hefðu fyrirfram átt von á og
greinilegt að fyrirtæki á svæðinu
sæju sér hag í því að vera með.
Ásgeir Magnússon, Andri Teits-
son og Pétur Þór Jónasson voru
kjörnir í aðalstjórn á stofnfundinum í
gær og þeir Jóhann Guðni Reynisson
og Bjarni Jónasson í varastjórn.
Í skýrslu sem kynnt var í janúar
síðastliðnum kom fram að jarðgöng
undir Vaðlaheiði væru arðbær fram-
kvæmd, tæknilega einföld og fjár-
hagslega vel framkvæmanleg. Fram
kemur í skýrslunni að hægt verði að
fjármagna stóran hluta fram-
kvæmdakostnaðar með innheimtu
veggjalds, en þó verði ekki ráðist í
framkvæmdina án þátttöku ríkisins.
Undirbúningsfélag um byggingu jarðganga undir Vaðla-
heiði, Greið leið, var stofnað á Svalbarðsströnd í gær
Góð samstaða um
málið á svæðinu
Morgunblaðið/Kristján
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík og formaður stjórnar Eyþings,
t.h., ræðir við fundarmenn á stofnfundi undirbúningsfélagsins vegna
Vaðlaheiðarganga. 20 sveitarfélög gerðust stofnfélagar á fundinum.
20 sveitarfélög
og 10 fyrirtæki í
hópi stofnenda
Páll Rósinkranz söngvari og Óskar
Einarsson píanóleikari halda tón-
leika í Akureyrarkirkju á mánudags-
kvöld, 3. mars, kl. 20.30. Flytja þeir
lög af geislaplötum Páls auk vel
þekktra gospellaga. Gestasöngvari
verður Hera Björk Þórhallsdóttir.
Ágóði af tónleikunum rennur til
barna úr hópi þeirra flóttamanna
sem væntanlegir eru til Akureyrar.
Miðaverð er 1.000 krónur en 600
krónur fyrir börn yngri en 14 ára.
Kór Menntaskólans á Akureyri, Páll
og Óskar koma einnig fram í kvöld-
messu í Akureyrarkirkju annað
kvöld, 2. mars kl. 20.30 í tilefni af
æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar. Fé-
lagar úr Æskulýðsfélaginu flytja
leikþáttinn Kærleikspóstinn.
Á NÆSTUNNI
ÞÓR Valtýsson bar sigur úr býtum
á Skákþingi Akureyrar sem nýlega
er lokið. Þór tók forystuna snemma
og missteig sig aðeins einu sinni, á
meðan helstu keppinautum hans
tókst ekki að halda í við hann. Þór
fékk 5,5 vinninga úr 7 skákum. Í
öðru sæti varð sá sem fyrirfram var
talinn sigurstranglegastur, stiga-
hæsti maður mótsins, Guðmundur
Gíslason, sem hlaut 5 vinninga. Í
3.-4. sæti lentu svo þeir Jón Björg-
vinsson og Gylfi Þórhallson, en þeir
fengu 4,5 vinninga.
Í B-flokki gerði hinn síungi og
skeinuhætti Sveinbjörn Sigurðsson
sér lítið fyrir og bar sigur úr býtum
eftir hörkuspennandi einvígi við
Eymund Eymundsson sem varð
annar. Þriðji varð svo ungur og
efnilegur strákur, Jón Birkir Jóns-
son.
Þór Akureyrarmeistari
Morgunblaðið/Ómar
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111