Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 46
MESSUR/KIRKJUSTARF
46 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.00
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaginn 5. mars:
Öskudagur. Messa kl. 18.30 föstudaginn
7. mars. Föstudagur Jesú hjarta. Helgi-
stund kl. 17.30 og messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtu-
daga: Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30 Sunnudaga:
Messa kl. 10.00
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11:00 Barnaguðsþjónusta í Landakirkju.
Litlir lærisveinar syngja. Æskulýðsfélag
fatlaðra kemur fram. Kirkjuprakkarar sjá
um skreytingar og sýning verður á ljós-
myndum krakka í TTT. Mikill söngur, guð-
spjall, brúður, bænir og létt stemmning.
Sr. Þorvaldur Víðisson og barnafræð-
ararnir. Kl. 14:00 Æskulýðsguðsþjónusta
og Íslandsmet. Æskulýðsfélag Landa-
kirkju og KFUM&K sér um guðsþjón-
ustuna. Unglingar sjá um tónlist og söng.
Eftir guðsþjónustuna er öllum boðið í köku
og mjólk í safnaðarheimilinu. Allir vel-
komnir. Hulda Líney Magnúsdóttir, Ingv-
eldur Theodórsdóttir, leiðtogarnir og sr.
Þorvaldur Víðisson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14.00 Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar. Athugið breyttan tíma. Sunnudaga-
skólinn, kirkjukrakkar, TTT- starfið
fermingarbörn vorsins, æskulýðsfélagið
og Skólakór Mosfellsbæjar taka þátt í
guðsþjónustunni. Stjórnandi skólakórs:
Guðmundur Ómar Óskarsson Organisti:
Jónas Þórir Hugvekja: Hreiðar Örn Stef-
ánsson Jón Þorsteinsson
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónustu kl.11.00 . Hljómsveit leið-
toga í sunnudagaskólastarfinu leikur.
Rúta fer frá Hvaleyrarskóla kl.10.50 og
heim aftur eftir stundina. Auk þess ekur
kirkjurútan að venju. Barnakórinn syngur
undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Prestur er
sr.þórhildur ólafs. Eftir guðsþjónustuna er
öllum boðið upp á nammi í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 20.30 Poppmessa í umsjón
ÆSKÓ-Æskulýðsfélags Hafnarfjarð-
arkirkju. Hljómsveit leiðtoga leikur undir
söng. Eftir poppmessuna bjóða ferming-
arbörn öllum kirkjugestum til veislu í safn-
aðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11:00 Morgunhressing
fyrir alla fjölskylduna í safnaðarheimilinu á
eftir. Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðs-
daginn kl. 14:00 Nemendur úr Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar sjá um tónlistarflutn-
ing. Samvera með fermingarbörnum og
foreldrum Í safnaðarheimilinu að guðs-
þjónustu lokinni. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Í tilefni dagsins
mun æskulýðsfélag og ungliðahreyfing Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði leiða guðsþjón-
ustuna og hefst hún kl. 13. Eftir guðsþjón-
ustu verður kaffisala - skúffukaka og djús
/ mjólk til styrktar indverska drengnum
Usavarty Subbarao. Allir hjartanlega vel-
komnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn í
Álftanesskóla sunnudaginn 2. mars kl.
11:00. Ásgeir Páll og Kristjana eru hress
að vanda. Mætum vel og eigum góða
stund í sunnudagaskólanum. Rútan ekur
hringinn á undan og eftir. Prestarnir.
GARÐASÓKN: Fjölskyldu/æskulýðsguðs-
þjónusta í Vídalínskirkju sunnudaginn 2.
mars, æskulýðsdaginn, kl. 11:00. Æsku-
lýðsfélag Garðasóknar og Sunnudaga-
skólinn taka þátt í athöfninni. Jóhann
Baldvinsson organisti og Ómar Guð-
jónsson gítarleikari og æskulýðsleiðtogi
Garðasóknar stjórna almennum safn-
aðarsöng. Tónlistin verður af léttara tag-
inu, eins og hæfir í æskulýðsguðsþjón-
ustu, á þeim degi sem tileinkaður er
vormönnum og -konum Íslands, æsku-
lýðnum. Foreldi eru sérstaklega hvött til
að fylgja börnum sínum til guðsþjónust-
unnar. Við athöfnina þjónar sr. Hans Mark-
ús Hafsteinsson. Prestarnir.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag-
inn 2. mars kl. 14:00. Félagar úr kór Vídal-
ínskirkju leiða almennan safnaðarsöng.
Barn verður borið til skírnar. Organisti: Jó-
hann Baldvinsson. Kynning verður á
Gideonfélaginu við athöfnina. Kári Geir-
laugsson mun flytja hugleiðingu og Gid-
eonfélagar lesa ritningarlestra. Það verður
gaman að heyra um þetta frábæra félag
sem svo ötullega hefur staðið að dreifingu
Biblíunnar og Nýja testamentisins um
heiminn. Samskot verða við lok athafn-
arinnar til stuðnings Gideonstarfinu. Mæt-
um vel og látum gott af okkur leiða til
starfsins. Við athöfnina þjónar sr. Hans
Markús Hafsteinsson. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskól-
inn kl. 11:00 Fjölskyldustund í kirkjunni kl.
20:00. Fjölbreytt tónlistaratriði verða flutt
af nemendum Tónlistarskóla Grindavíkur.
Einnig syngur Barnakórinn. Hljómsveit og
léttir gospelsöngvar. Fermingarbörnin
taka virkan þátt í stundinni ásamt ungum
sem eldri. Foreldrar fermingarbarna verða
með kaffiveitingar á vægu verði að lokinni
athöfn. Mætum öll til kirkju og eigum góða
stund saman á æskulýðsdegi. Prestur: sr.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir Organisti: Örn
Falkner Kór Grindavíkurkirkju leiðir safn-
aðarsöng.
ÞORLÁKSKIRKJA. Sunnudagur 2. mars.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Messa kl.
14:00 . Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA: Föstudagurinn 28.
febrúar Helgistund í Miðhúsum kl. 12.
Boðið er upp á léttan hádegisverð gegn
vægu gjaldi. Allir velkomnir. Laugardag-
urinn 1. mars Safnaðarheimilið í Sand-
gerði Kirkjuskólinn kl. 11 Börn úr tónlist-
arskólanum í Sandgerði koma fram. Að
sjálfsögðu er öll stórfjölskyldan velkom-
inn. Sunnudagurinn 2. mars Safn-
aðarheimilið í Sandgerði Æskulýðsdag-
urinn. Gospelguðsþjónusta kl. 20:30.
Kórar Hvalsnes- og Útskálakirkna syngja.
Undirleik annast hljómsveit skipuð Sverri
Ásmundssyni, Þorvaldi Halldórssyni og
Steinari Guðmundssyni organista. Alfa-
námskeið eru á miðvikudagskvöldum frá
kl. 19–22 í Efra-Sandgerði húsi Lions-
manna. Sóknarprestur Björn Sveinn
Björnsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 1.
mars Safnaðarheimilið Sæborg Kirkju-
skólinn kl. 14 Börn úr tónlistarskólanum í
Garði koma fram. Að sjálfsögðu er öll stór-
fjölskyldan velkominn. Sunnudagurinn 2.
mars Æskulýðsdagurinn. Sameiginleg
gospelguðsþjónusta Útskála- og Hvals-
neskirkna í Safnaðarheimilinu í Sandgerði
kl. 20:30. Kórar kirknanna syngja. Undir-
leik annast hljómsveit skipuð Sverri Ás-
mundssyni, Þorvaldi Halldórssyni og
Steinari Guðmundssyni organista. Garð-
vangur Helgistund kl. 15:30 Allir velkomn-
ir Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Sunnudagaskóli sunnudaginn 2. mars
kl.11. í umsjá Arngerðar Maríu Árnadóttur
organista, Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu
Sigurðardóttur. Baldur Rafn Sigurðsson
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudaginn 2. mars kl.14. Æsku-
lýðsdagurinn. Fermingarbörn og nem-
endur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
koma fram. Eldri borgari og fermingarbarn
flytja samtalsprédikun. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Natalíu Chow. Með-
hjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir.
Sunnudagaskóli sunnudaginn 2. mars
kl.11. Umsjón Ástríður Helga Sigurð-
ardóttir, Tone Solbakk og Natalía Chow
organisti.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Æskulýðsdagurinn:
„Lífið er okkar mál“. Æskulýðssamvera í
Kirkjulundi kl. 11 árd. Frumefnin sam-
kvæmt Aristótelesi eru notuð sem tákn og
fylla guðsþjónustuna lífi. Trúin á Jesú Krist
veitir okkur þá sýn að lífið í sinni fullu
gnægð er Okkar mál. Vatn – Skírnin, Eldur
– Bænin, Jörð – Orðið, Loft – Heilagur
andi. Leikhópur úr Fjölbrautarskóla Suð-
urnesja undir stjórn Mörtu Eiríksdóttur
fjallar um yfirskrift æskulýðsdagsins.
Prestur: Sigfús Baldvin Ingvason. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og foreldra
þeirra. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Undirleikari á píanó: Hákon Leifsson.
Meðhjálpari: Hrafnhildur Atladóttir. Léttar
veitingar í boði sóknarnefndar. Sam-
verustund í kirkjunni kl. 16:30. Hugleið-
ing, söngur o.fl. Sjá Vefrit Keflavíkurkirkju:
keflavikurkirkja.is
BORGARNESKIRKJA: Æskulýðsguðsþjón-
usta kl 11. Sóknarprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20:30. Gospelkór Vestfjarða syngur
undir stjórn Pálínu Vagnsdóttur. Sr. Magn-
ús Erlingsson.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju á æskulýðsdaginn 2.
mars 2003. Börn úr 1.–3.bekk sýna leik-
þáttinn „Bartemeus blinda“. Börn úr 4.–6.
bekk sýna söngleikinn „Zakkeus“. Krakk-
ar úr TTT segja frá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Fermingarbörn flytja bænir. Verðlaunaaf-
hending í getraun nemenda og kennara
um hve mikið hefur safnast í Hjálparstofn-
unarbaukinn. Vegleg verðlaun frá Indlandi
og Afríku. Léttir söngvar fyrir alla fjölskyld-
una. Verum öll hjartanlega velkomin.
Sóknarprestur.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Barnakór kirkjunnar syngur og leið-
ir söng. Ásta og Katrín ræða við börnin.
Foreldrar, afar og ömmur eru hvött til að
fjölmenna með börnunum. Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Krossbandið leikur
létta trúarlega tónlist. Persónulegar fyr-
irbænir.
AKUREYRARKIRKJA: Laugardagur 1.
mars: Hádegistónleikar kl. 12. Björn
Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Lesari:
Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir. Sunnudagur 2.
mars, æskulýðsdagurinn Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón: Ingunn Björk djákni og
Laufey Brá leikkona. Messa kl. 20.30. Sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Tónlist: Kór
Menntaskólans á Akureyri, Páll Rósin-
krans og Óskar Einarsson. Félagar úr
ÆFAK flytja leikþáttinn Kærleikspóstinn.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Fjöl-
skyldusamkoma sunnudag kl. 11. Börn og
unglingar í fararbroddi.
KFUMog K, Sunnuhlíð, Akureyri: Kristni-
boðssamkoma kl. 20. á laugardag, 1.
mars. Leifur Sigurðsson, kristniboði talar
og sýnir myndir frá Kenyu þar sem hann
hefur starfað undanfarin ár. Kristniboðs-
samkoma verður einnig á sunnudags-
kvöld, 2. mars kl. 20.30, þar sem Leifur
talar og sýnir myndir frá Kenyu. Allir eru
velkomnir á samkomurnar.
HRÍSEYJARKIRKJA: Æskulýðsguðsþjón-
usta kl.11:00.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Söfnuðir á Héraði
sameinast um guðsþjónustu kl. 11. 3.
mars. (mánud.) Kyrrðarstund kl. 18 Lof-
gjörðar og fræðslustund kl. 20. Sókn-
arprestur
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Barnakór Oddakirkju
og Stúlknakórinn Hekla taka þátt. Kirkju-
kaffi í umsjá fermingarbarnanna að lok-
inni guðsþjónustu. Organisti Nína María
Morávek. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 2. mars kl. 11.00
TORFASTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta verður sunnudag 2. mars kl. 14.00
Barnakór Biskupstungna syngur. Mikill
söngur – sögur – fræðsla – samfélag. Allir
eru velkomnir. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Æskulýðsdagurinn. Létt-
ur hádegisverður að guðsþjónustu lokinni.
Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags
kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni. For-
eldrasamvera miðvikudaga kl. 11. Kirkju-
skóli í Vallaskóla miðvikudag kl. 14 í úti-
stofu nr. 6. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta n.k. sunnudag kl. 11.00 Gaulverja-
bæjarkirkja: Messa n.k. sunnudag kl.
14.00 Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Kl. 11 sunnu-
dagaskóli, Æskulýðsdagurinn. Kl. 14
guðsþjónusta . Samtalsprédikun með
fermingarbörnum. Fermingarbörn ganga
til altaris með foreldrum sínum. Kl. 15.15
Vakin er athygli á aðalsafnaðarfundi
Hveragerðissóknar sem verður í safn-
aðarheimilinu strax að lokinni messu.
Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og láta
sig málefni kirkju sinnar varða. Kosið
verður í þrjú sæti í sóknarnefnd.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14.
Morgunblaðið/KristinnNeskaupstaðarkirkja
Í TILEFNI æskulýðsdags kirkj-
unnar, á morgun 2. mars, beinir
Háteigskirkja athyglinni sér-
staklega að börnum og unglingum.
Dagskráin er sem hér segir:
Kl. 10.00 Pálínuboð. Þar eru allir
hjartanlega velkomnir, foreldrar
sem börn. Pálínuboð er morg-
unverðarboð þar sem aðgangseyr-
inn er í formi meðlætis á hlað-
borðið. Dagskráin hefst klukkan tíu
með morgunleikfimi í umsjón barna
úr Ævintýraklúbbnum og Æv-
intýrabjörnunum. Í lok morg-
unverðarins mun barnakór Há-
teigskirkju syngja nokkur lög undir
stjórn Julian Isaaks.
Kl. 11.00 Barnaguðsþjónusta í
umsjón Péturs Björgvins Þorsteins-
sonar fræðslufulltrúa og Guðrúnar
Helgu Harðardóttur æskulýðsfull-
trúa. Þar mun stúlknakór Háteigs-
kirkju taka virkan þátt í barna-
guðsþjónustunni og Pétur Björgvin
og Guðrún Helga bregða sér í gervi
Gulla húsvarðar og Pöllu forvitnu.
Kl. 14.00 er messa á æskulýðs-
degi í umsjón sr. Tómasar Sveins-
sonar.
Kl. 17.00 er æskulýðsguðsþjón-
usta sem er sérstaklega ætluð ferm-
ingarbörnum og eldri unglingum.
Félagar úr æskulýðsfélaginu
MEME taka virkan þátt en guðs-
þjónustan verður undir stjórn sr.
Tómasar og Péturs Björgvins.
Æskulýðsdagurinn
í Hjallakirkju
SUNNUDAGURINN 2. mars er til-
einkaður æskulýðnum í kirkjum
landsins og að því tilefni verður
æskulýðsguðsþjónusta kl. 11 í
Hjallakirkju, Kópavogi.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar að
guðsþjónustunni sem verður bæði
lífleg og skemmtileg. Barn verður
borið til skírnar og krakkar úr
barna- og æskulýðsstarfi kirkj-
unnar aðstoða við ýmsa þætti guðs-
þjónustunnar, lesa ritningarlestra
og bænir og taka þátt í helgigöngu
við upphaf hennar. Þorvaldur Hall-
dórsson, tónlistarmaður, sér um
tónlistina sem verður í léttum dúr.
Í fordyri kirkjunnar verða
hengdar upp myndir og verkefni
sem krakkar í kirkjustarfinu hafa
unnið að á undanförnum vikum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Fermingin í fortíð
og nútíðí Hall-
grímskirkju
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms-
kirkju kl. 10 næstkomandi sunnu-
dagsmorgun mun Þorsteinn Helga-
son, dósent, flytja erindi um
ferminguna í fortíð og nútíð.
Ferming í einhverri mynd hefur
fylgt kristinni kirkju allt frá fyrstu
öldum hennar. Miklar breytingar
urðu á inntaki og eðli ferming-
arinnar á siðbótartímanum en þá
og síðar varð fermingarfræðslan
mikilvægur þáttur fermingarinnar.
Áður fyrr markaði ferming-
arathöfnin einnig tímamót í lífi ein-
staklingsins og talað um að verið
væri að taka ungmennin í fullorð-
inna manna tölu. Ýmsir siðir, auk
helgisiðanna sjálfra hafa einnig
tengst fermingunni. Þorsteinn
Helgason hefur kynnt sér sögu
fermingarinnar fyrr og nú og mun í
erindi sínu án efa draga upp marg-
ar áhugaverðar myndir úr sögu
þessara tímamóta í lífi landans.
Að loknum fræðslumorgninum,
kl. 11.00, hefst fjölskylduguðsþjón-
usta á æskulýðsdegi í umsjá séra
Sigurðar Pálssonar.
Kvöldmessa í
Dómkirkjunni
Í VETUR hefur Dómkirkjan brydd-
að upp á nýju formi og nýjum tíma
fyrir helgihald. Fyrsta sunnudag
hvers mánaðar er kvöldmessa í
kirkjunni. Lagt er upp úr frísklegu
formi og léttleika. Tónlistin ber
þann svip enda þótt alvörutónar
komandi föstutímabils heyrist einn-
ig.
Sunnudaginn 2. mars kl. 20 er
kvöldmessa. Þar flytur sr. Hjálmar
Jónsson hugleiðingu og þjónar fyr-
ir altari ásamt sr. Jakobi Á. Hjálm-
arssyni. Eivör Pálsdóttir söngkona
frá Færeyjum syngur einsöng.
Hörður Bragason og Hjörleifur
Valsson annast tónlistarflutning en
forsöngvari er Kristín Valsdóttir
kórstjóri. Verið velkomin.
Dómkirkjan.
„Megamessa“ í
Grafarvogskirkju
ÞAÐ verður mikið um dýrðir í
Grafarvogskirkju á morgun, á
Æskulýðsdaginn, er efnt verður til
„Megamessu“ kl. 11:00. Prestar
kirkjunnar munu þjóna ásamt
sunnudagaskólakennurum. Ferm-
ingarbörn lesa ritningarlestra og
bænir. Brúðufólkið Karl og Sólveig
kemur í heimsókn. Krakkakór
Grafarvogskirkju og Barna- og
unglingakór kirkjunnar munu
syngja undir stjórn Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Færeyska söng-
stjarnan Eivör Pálsdóttir syngur í
„Megamessunni“ við undirleik
Harðar Bragasonar, organista,
Birgis Bragasonar, bassaleikara og
Hjörleifs Valssonar, fiðluleikara.
Kaffi, djús og kleinur að messu
lokinni.
Fjölskyldumessa
í Neskirkju
FJÖLSKYLDUMESSA verður í
Neskirkju sunnudaginn 2. mars kl.
11. Drengjakór Neskirkju syngur
undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar. Félagar í TTT (10–12 ára)
flytja leikþátt, félagar í Krakka-
klúbbnum (8 og 9 ára) aðstoða við
bæn og börn úr sunnudagaskól-
anum syngja. Organisti er Stein-
grímur Þóhallsson og prestur sr.
Örn Bárður Jónsson. Eftir messuna
er boðið upp á kaffi og djús í safn-
aðarheimilinu.
Æskulýðsguðsþjón-
usta í Neskirkju
NÆSTA sunnudag, 2. mars, er
æskulýðsdagurinn. Sá dagur er til-
einkaður unglingunum í kirkjunni.
Af því tilefni verður æskulýðsguðs-
þjónusta í Neskirkju kl. 20:30.
Nedó, æskulýðsfélag Nes- og Dóm-
kirkju, sér um guðsþjónustuna,
ásamt úrvalsfólki. Jón Jósef Snæ-
björnsson (Jónsi úr Í svörtum föt-
um) sér um tónlistina ásamt hljóm-
sveit kirkjunnar. Vala Ósk
Gylfadóttir, Diljá R. Rudolfsdóttir
og Jónas M. Ingólfsson sjá um hug-
leiðingu. Félagar í Nedó flytja leik-
þátt. Sr. Örn Bárður Jónsson leiðir
stundina. Allir velkomnir.
Æskulýðsdagurinn
í Breiðholtskirkju
ÆSKULÝÐSDAGURINN er sunnu-
daginn 2. mars. Þennan dag kl. 11
verður í Breiðholtskirkju í Mjódd
fjölskylduguðsþjónusta þar sem
ungmenni taka með margvíslegum
hætti virkan þátt í helgihaldinu.
Unglingahljómsveitin Geðveiki
leikur, eldri barnakór kirkjunnar
syngur, börn úr tíu til tólf ára starf-
inu (TTT) flytja helgileik, brúð-
urnar Sólveig og Kalli koma í heim-
sókn og börn flytja bænir. Halla
Jónsdóttir kennari hugleiðir út frá
Guðs orði.
Að guðsþjónustunni lokinni verð-
ur síðan boðið upp á hressingu við
allra hæfi í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Við viljum hvetja sóknarbúa, á
öllum aldri, til að fjölmenna til þess-
arar guðsþjónustu og sýna þannig í
verki að öll getum við, óháð aldri,
glaðst og fagnað saman í húsi
Drottins og átt þar uppbyggilega
stund. Allir velkomnir.
Sr. Gísli Jónasson.
Fyrirlestur
í Landakoti
SR. JÜRGEN Jamin býður upp á
fund fyrsta mánudag hvers mán-
aðar. Í þessari fyrirlestraröð verð-
ur hver einstakur hluti heilagrar
messu útskýrður með sérstökum
kafla úr ævisögu eins dýrlings.
Næsti og síðasti fundur þessa vetr-
Pálínuboð í
Háteigskirkju